Tíminn - 12.03.1994, Side 7
Laugardagur 12. mars 1994
7
„ Borbib eins og þib getib afþessum landbúnabarafurbum," sagbi Sighvatur Björgvinsson sem baub fréttamönnum upp á rjómavöfflur meb kaffinu. Meb
honum eru Þorkell Helgason og Kristmundur Halldórsson. Tímamynd cs
Hlutur fjölskyldunnar aöeins 90.000 af 150.000 kr. rafhitunarkostnaöi:
Hitunarkostnabur lækkar
á um 10.000 heimilum
Sex bílar
í árekstri
Sex bílar lentu í árekstri í Ár-
túnsbrekkunni í Reykjavík um
miöjan dag í gær. Abdragand-
inn var sá að skófla fauk af
toppi bifreiðar sem var ekið upp
brekkuna. Ökumaðurinn stööv-
aði bílinn til að ná í skófluna og
við það lentu sex næstu bílar
hver aftan á öðrum. Tveir öku-
menn voru fluttir á slysadeild
eftir áreksturinn en meiðsl
þeirra voru minniháttar. ■
AB gefur
bækur til
Japans
Almenna bókafélagið hefur
fært Tokai háskólanum í Jap-
an bókagjöf að verðmæti
100.000 krónur. í Tokai há-
skólanum er kennd ísleriska
við norrænudeild skólans.
Nobuyoshi Mori, prófessor
við háskólann, var staddur
hér á landi nýlega og kynnti
sér þær bækur sem Almenna
bókafélagið hefði fram að
færa. Gjöf félagsins saman-
stendur að mestu leyti af bók-
um úr bókaflokknum íslensk
þjóðfræði. M.a. eru þar bæk-
umar íslenskt málfar, íslenskt
orðtakasafn og ísienskir máls-
hættir. Einnig fékk háskólinn
að gjöf bækur Einars Más
Guðmundssonar, Tómasar
Guðmundssonar og Gunnars
Gunnarssonar. í tilkynningu
frá Almenna bókafélaginu
segir að félagið vonist til að
bókagjöfin verði til að auka
tengsl Japana og íslendinga.
Þau tengsl hljóti að stóreflast í
náinni framtíð og þess vegna
sé þaö þjóöinni mikilvægt að
haldgóð þekking á íslandi og
íslensku máli sé til staðar í Jap-
an. Hliöstæð þekking á Japan
og japönsku sé íslendingum
nauðsynleg. ■
„Fátt ef nokkuð sjónvarpsefni
mun hafa stuðlað að áhuga
þjóðarinnar á náttúrufræði eins
og sjónvarpsþættir þeir, sem
Óskar hefur séð um." Þetta segir
í tilkynningu frá Hinu íslenska
náttúrufræðifélagi, sem nýlega
heiðraði Óskar Ingimarsson
þýðanda fyrir sérstakt framlag
hans til kynningar á náttúru-
fræði meö þýbingu á náttúm-
fræðiheitum og sjónvarpsþátt-
um um náttúrufræði ásamt
stjóm þeirra. Jafnframt kaus að-
alfundur félagsins dr. Pétur M.
Jónasson, prófessor í vatnalíf-
fræði viö Kaupmannahafnarhá-
skóla, heiðursfélaga í tilefni af
forgöngu hans um rannsóknir á
helstu stöðuvötnum landsins,
Mývatni og Þingvallavatni,
Iðnaðarráöherra hefur
ákveðið aö auka niöur-
greiðslu á raforku til húshit-
unar. Hækkunina segir hann
samsvara 4.200 kr. á „mebal-
íbúð" á ári, eöa í 37.800
krónur alls. Stjóm Lands-
virkjunar hefur jafnframt
ákveöið aukinn afslátt á raf-
orku til húshitunar sem
nemur 1.200 kr. á ári. Niður-
greiöslur og afsláttur hafa
því aukist um samtals 5.400
kr. á ári. Niburgreiöslur á raf-
orku til hitunar á sveitabýl-
jafnt lífríki sem vatnasviði.
Félagib stefnir aö hátíðarsam-
komu Pétri til 'heiðurs þegar
hann verður hér á ferðinni með
vorinu. Verða þar haldin erindi
um valda þætti Þingvallarann-
sóknanna.
Pétur hefur sýnt Hinu íslenska
náttúrufræðifélagi þann velvilja
ab gefa því 300 eintök Þingvalla-
vatnsbókar sinnar til frjálsrar
ráðstöfunar.
Fundarmenn beindu þeim ein-
dregnu tilmælum til umhverfis-
ráðherra að hann beitti sér af
öllum kröftum fyrir því aö ráðu-
neyti hans tæki í sínar hendur
friðun á vatnasviði Þingvalla-
vatns og tryggi að sjónarmið
óiíkra abila fái lýðræðislega og
faglega umfjöllun. ■
um og hjá rafkyntum hita-
veitum munu hækka til sam-
ræmis við beina rafhitun.
Áætlað er að kringum tíu
þúsund heimili séu kynt meö
rafmagni og muni því njóta
góbs af þessari lækkun.
í iðnaðarráðuneytinu reikn-
ast mönnum til að rafmagns-
kynding „meðalíbúðar" kosti
kringum 150 þús.kr. á ári mið-
að við algengasta hitunartaxta
Rarik. En að frádregnum af-
slætti Landsvirkjunar (9
þús.kr.), niðurgreiöslu ríkis-
sjóðs (nær 38 þús.kr.) og end-
urgreiðslu meginhluta virðis-
aukaskattsins sé kostnaður
húseiganda sjálfs kominn nið-
ur í um 90.000 kr. á ári (7.500
Seölabanka-
vextir
lækkabir
Bankastjóm Seðlabanka íslands
ákvað á fimmtudaginn eftirfar-
andi breytingar á vöxtum sem
gilda í viðskiptum hans vib
innlánsstofnanir. Vextir inni-
stæðubréfa lækkuöu um 0,25
prósentustig og ávöxtun í end-
urhverfum verðbréfakaupum
lækkuðu um 0,1-0,25 pró-
sentustig frá og með gærdegin-
um, 11. mars. Eftir þessar breyt-
ingar em vextir innistæðubréfa
4,25%, ávöxtun í endurhverf-
um kaupum ríkisvíxla 5,4% og í
kaupum annarra verðbréfa
6,0%.
í tilboðum sínum á Verðbréfa-
þingi hefur Seðlabankinn lækk-
að ávöxtnn á ríkisvíxlum og
ríkisbréfum undanfama daga.
Sem dæmi hefur ávöxtun
þriggja mánaba víxla í sölutil-
boðum bankans lækkað úr
4,91% í 4,48% frá því föstudag-
inn 4. mars síðastliðinn. ■
kr. á mán.). Iðnaðarráðherra,
Sighvatur Björgvinsson, segir
niðurgreiðslur á rafmagns-
kyndingu íbúðarhúsa eitt af
því fáa í fjárlögum sem ekki
hafi sætt niðurskurði. Rúmlega
390 milljónum er varið til
þeirra í ár. Sighvatur segir nú
orðið kringum 10% ódýrara að
kynda með rafmagni en olíu,
þrátt fyrir óvenjulega lágt olíu-
verð. Hins vegar er rafmagns-
kyndingin ennþá rúmlega tvö-
falt dýrari en með heitu vatni
frá Hitaveitu Reykjavíkur.
- HEI
PÓSTUR OG SÍMI
Póstur og sími óskar
að ráða
rafeindavirkja við Loranstöðina á Gufuskálum
sem fyrst. Ráðið er til ársloka 1994. íbúð á
staðnum fylgir.
Upplýsingar hjá stöðvarstjóra Loranstöðvar-
innar á Gufuskálum, sími 93-66606.
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á íbúðarhúsnæði á
BLÖNDUÓSI.
Um er að ræða einbýlishús, u.þ.b. 170-200 m2 að
stærð að meðtalinni bílgeymslu.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og
-efni, fasteigna- og brunabótamat, verðhugmynd og
áætlaðan afhendingartíma, sendist eignadeild fjár-
málaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reýkjavík, fyrir
20. mars 1994.
Fjármálaráðuneytið,
10. mars 1994.
Hiö íslenska náttúrufrceöifélag:
Heiðrabi Óskar
Ingimarsson og
Pétur Jónsson