Tíminn - 09.04.1994, Síða 6

Tíminn - 09.04.1994, Síða 6
6 snHRfwU Laugardagur 9. april 1994 Hagyit»inqaþáttur Lífsmark Sjótivarp héma hjamar senn, hrafhar báðir flognir. ' Verkin annast meiri menn, þótt minna séu roggnir. (Þjóstólfur) Þessi ágæta vísa þarf ekki skýringa við, fremur en limran sem hér fer á eftir: Garpskapur Suma þarfhvergi að hvetja er hœttumar kostina setja. Nií dáurn við Mark- úsar manndóm og kjark, er hann flýði afhólmi sem hetja. H.P. DV kallaði Egil á Seljavöllum krataskelfi og varð kveikja að vísum. Krataskelfir „Krataskelfir" kominn er, karl frá Seljavöllum, Egill þessi œtlar sér að útrýma þeim öllum. Það væri mikið þarfaverk, að því skulum vinna. Hugsun sú er heil og sterk og henni má ei linna. Búi var viö pólitíska heygarðshomið þegar hann setti saman eftirfarandi stökur: í villum Viðsjál er og villugjöm valdaleiðin manna. Margur, líkt og Markús Öm, má þá reynslu sanna. Yfir vötnum Ijóst og leynt lytnskuandar sveima. Davíð fer til Brussel beint en Baldvin situr heima. Matseðillinn íslenskt ket er algjört frat, sem enginn getur étið! Heimtum betri mannamat — mengað, innflutt ketið. Botnar Hér koma nokkrir botnar við fyrripart, sem birtur var fyrir allnokkru. Nálgast vorið norðurslóð, nepjan burtu víkur. Botn: i Lifhað hefur laglegt fljóð, listinn engan svíkur. Eða: Kalda vetur þessi þjóð þraukar uns yfir lýkur. Eöa: Að vetrarslitin verði góð virðast miklar líkur. Hausavíxl Sigurbjörg E. á Galtalæk II hafði hausavíxl á síðasta fyrriparti og hafði botninn á undan. Varð úr hin ágætasta staka: Saman ástar syngjum Ijóð, sigmm lífsins gaman. Vertu hjá mér vina góð, vökum ánægð saman. Nýr fyrripartur: / Seðlabankann sækja menn svona undir lokin. Botnar og vísur sendist til Tímans Stakkholti 4. 105 Reykjavík. p.s. SKRIFIÐ GREINILEGA! Bjarni Fel. viröir fyrir sér mannfjöldann á Old Trafford, sem var nákvœmlega 45.175 manns. i Einn alvinsœlasti knattspyrnu- maöurinn í dag, Eric Cantona, var settur í leikbann á dögunum. Þaö gramdist aödáendum. LJOSBROT GUNNAR SVERRISSON „Glory, glory, Manchester United!" Áhugi landans hefur lengi verið mikill á ensku knattspymunni. Reglulegar beinar útsendingar Ríkissjónvarpsins frá kappleikj- um hafa hingað til svalað þörf manna fyrir að berja knatt- spyrnugoð sín augum. Til aö fullkomna allt saman hafa Sam- vinnuferðir-Landsýn boðið uppá hópferðir til Englands til þess aö áhugamenn komist í enn meiri snertingu við leikinn. Ein slík ferð var farin um sl. páska. Áfangastaður var Man- chester. Ferðina skipulögöu þeir Willum Þór Þórsson hjá Sam- vinnuferöum-Landsýn og gamli knattspyrnukappinn úr Kefla- vík, Friörik Ragnarsson. Hann hefur starfað alllengi á ferða- skrifstofu í Manchester og skipulagði ferðir hópsins af stakri prýði. Fararstjórar voru þeir Bjarni Felixson og Arnar Björnsson, en þeir félagar eru vel kunnugir enska boltanum. í þessum rúmlega 40 manna hóp var uppistaðan aðdáendur Manchester Utd., en nokkrir höföu mætur á öörum liðum og var því stundum erfitt fyrir þá að vera í minnihluta. Leikimir, sem fariö var á, voru annars vegar viöureign Manchester Utd. og Liverpool og Blackbum og Man. Utd., en hinsvegar sáu einhverjir Liverpool leika gegn Sheffield Utd. Það var ekki aö sökum að spyrja, þetta varð undirrituöum ógleymanleg ferð og var hópurinn á einu máli um það.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.