Tíminn - 09.04.1994, Side 12
12
Laugardagur 9. apríl 1994
JÖNA RUNA á mannlegum nótum:
Þrjóska
Einþykkni og óþægö hvers
konar er nokkuð áberandi í
manngeröum okkar margra.
Mjög oft veröa slíkir eðlisþættir
til aö skapa ófyrirséðan vanda
fyrir þá sem þannig eru geröir,
ekkert síður en fyrir þá sem fyr-
ir veröa. Vissulega getur verið
ágætt að vera fastheldinn og
fylginn sér, þegar þáð á við. Aft-
ur á móti þegar þannig viðhorf
til manna eða málefna verður
of áberandi eða fyrirferðarmik-
ið í hugsun okkar eða fram-
kvæmdum, skapast iðulega
vesen og vandkvæði sem getur
verið ótrúlega erfitt að vinna á
og uppræta. Besta fólk getur
veriö með mótþróa útaf
minnstu smáatriðum og fundið
hjá sér ótrúlega þörf til stirð-
leika og þrákelkni. í tilfinninga-
málum er afleitt þegar kergja
verður til þess aö uppúr þeim
slitnar. Það getur nefnilega ver-
ið ákaflega erfitt að ræða við þá
sem eru sauðþráir og leiða þeim
fyrir sjónir að ekkert er svo flók-
iö í samskiptum aö ekki megi
gera betur, ef óánægja er í
gangi. Þybbni sem veldur vin-
slitum er algeng og fátt við
henni að gera annað en að
reyna að tala um það, sem á
milli ber eða úrskeiðis hefur far-
ið í samskiptunum, í von um
góðan árangur og heppilegar
niðurstöður.
Eiginlega má segja sem svo að
þrjóska sé einhvers konar hæfi-
leikaleysi til að sjá eöa skynja
sjónarmið eöa viðhorf annarra
en sjálfs sín í flestum málum.
Það er því miður hægt að nota
stífni sem stjómtæki í sam-
skiptum við aðra. Margur nýtir
sér einmitt þennan möguleika
til þess að láta sinn vilja verða
ofaná, þegar útkljá þarf eitt-
hvað sem í raun krefst fremur
samvinnuhæfni og tillitssemi,
en ekki mótþróa og þver-
móðsku. Þarna er átt við nei-
kvæðan andlegan einleik þess
sem beitir stirfni fyrir sig, þegar
mikið liggur við að mati viö-
komandi, og kemst mögulega
upp með þaö, þó óánægja ríki í
kringum hann. Þvergirðings-
háttur er neikvæður, vegna þess
meðal annars að hann hamlar
framförum og hlýrri nálægð
fólks hvert við annað.
Best er kannski að íhuga með
sjálfum sér, ef við finnum fyrir
tilhneigingu innra með okkur
til að vera með þybbni af sára-
litlum tilefnum, að íhuga okkar
gang alvarlega, vegna þess að
við getum auðveldlega misst af
góðum samböndum, samskipt-
um og tækifærum, ef við erum
bæði ósveigjanleg og þursaleg í
viðhorfum okkar til manna eða
málefna. Eiginlega má segja
sem svo, aö best sé að hafa
hæfni til að gefa eftir upp að
vissu marki, ef áríðandi er, sjálf-
um sér aö sársaukalausu. Sér-
staklega ef um er að ræöa mál
eða samskipti sem gefa fremur
tilefni til samvinnu og tillits-
semi, en ekki þvert á móti.
Við ætrtum aö efla með okkur
aukna tiltrú á auðmjúk og
sveigjanleg samskipti, en ekki
þau samskipti sern eru bæði
sauðþrá og einþykk. Þau eiga
nefnilega rætur sínar í eintrján-
ingshœtti viðkomandi þvergirð-
ingsffkils og valda öðrum von-
brigðum og vandræðum, sök-
um einstefnuþráa þess stíflynda
og stirfna.
ÍSÍflllll KROSSGATAN NR. 13
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra við leikskólann Ösp, Iðu-
felli 16, er laus til umsóknar. í leikskólanum
Ösp er lögð áhersla á starf með fötluðum og
ófötluðum börnum.
Framhaldsmenntun æskileg.
Umsóknarfrestur er til 24. apríl nk.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson fram-
kvæmdastjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir
deildarstjóri í síma 27277.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
LAUSN GATU NR. 12
UR 1=3 1 ’rrr \piap- T.,7-1 in lö 5 4 w ÁfKÍKu- LMD / OoKS E r mcK* pp diLTI 'G 'o' flJoT- fKAKI hjíl H ræktar íkAiÓ-' DÝAl’i 'E VAMCl ' JAOA/i N
5 r A é N ! H > A ■0 V E' R K i
Dii/tA K u N N A 'A s T /1 Au/Iii/I SHAOI £ 0 J“ A N
KÆIUlX Í^7T y ' 8(161 S okop- AtHlK. p U D s GAffAL f*UL6u8 F 0 R K IKBST- B)TA G A L L /j N N
/1 5 T 1 R HluiIM- IMDI POAA 'I T A K SKiíT- Lriiv* pvKKim '0 N D l flA/ÍTA SDAiAB U R T oslÉtta
T 'A L PÚKAR ÍMAZju r R A R iiöio iAufAOI 5 r A T T A R CYLTu TIL- HLAuP b Ói
\ rnK E R T u R SMfll api u S L 1 ÍC6 G srrAM tÖOOlKA 1 N N A HAC F
*'A L r (AUi- AiT 'AÍÍIA N Æ 9 T HÓTAR 606- '0 G N A R Y ECuA- ff&r G r T A N
N A N G A Ð / CKEhi CtlSLA- 6Au 6 A N G 1 XasA FÍLA '0 P u R R K r
1 pY«iO i (LAuH- bíA ÍXÍbm '0 ■Ð A M 'A L A AuOl/t KAf- AIKOI i '0 M 1 R MJAKA ‘ÍL'AT F K MifKlÆ
'K u R ■Ð 1 Ku*r- eisa LtlK- P1 R á e A SJ 'oii- UEKlO Tore L 1 N 5 /1 N MIK LA 0
fi R '0 A RolA hUh- Viotl Or A u -Ð Tini 5 T U N D fötiri STÖ/ÍC 3 N Æ R
VAÍA iá 0 R u N LYKT- IfiA l L M 1 N N VI* HHiOtMl s3 K A R Ð
*'A M u Æ.TTA8 0 L S E N UúfAA 1 N D Æ L L A 'ATT N f\
5 sriti M 1 K / OLÆTI A T Wd, rní D KYZAB Klö \‘A R NlA R