Tíminn - 21.05.1994, Blaðsíða 9
Laugardagur 21. maí 1994
9
Glæsileg hross í forskoöun
Forskoðun kynbótahrossa í
Reykjavík er lokið. Þó er yfirlits-
sýning eftir, þegar þetta er skrif-
að.
Það hlýtur að hafa vakið á-
nægju ráðunautanna hve mikið
kom þar fram af góöum hross-
um, sem sýnir framför í ræktun-
inni.
Fimm stóöhestar 6 vetra og
eldri náðu einkunn inn á lands-
mót, en þeir eru: Segull frá
Stóra-Hofi aðaleinkunn 8.24,
Kraflar frá Miðsitju 8.25, Fjölnir
frá Kópavogi 8.23, Logi frá
Skarði, allir með l.v. bæði fyrir
byggingu og hæfileika og
fimmti hestur Geysir frá Dals-
mynni aðaleinkunn 8.15, en
með hæstu einkunn fyrir hæfi-
leika 8.60. Segull fékk hæsta
byggingareinkunn 8.38. Allir
em þessir hestar undan hátt-
dæmdum stóöhestum og mæð-
ur þeirra flestra þekktir gæðing-
ar.
Af 5 vetra hestum fékk einn
fararleyfi á landsmót, en það var
Óður frá Brún við Akureyri und-
an Stíg frá Kjartanssöðum og
Ósk frá Brún. Hann hlaut hvorki
meira né minna en 8.64 fyrir
hæfileika, sem var hæsta hæfi-
leikaeinkunnin í þessari for-
skoöun, en byggingin var mun
lakari eða 7.70. Aðaleinkunn
8.17.
KJÖRSTAÐIR
við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík
þann 28. maí 1994 verða þessir:
Álftamýrarskóli
Árbæjarskóli
Austurbæjarskóli
Breiðagerðisskóli
Breiðholtsskóli
Fellaskóli
Foldaskóli
Langholtsskóli
Laugarnesskóli
Melaskóli
Miðbæjarskóli
Sjómannaskóli
Ölduselsskóli
Auk þess verða kjördeildir i Elliheimilinu Grund, Hrafnistu og Sjálfsbjargar-
húsinu, Hátúni 12.
Kjörfundur hefst laugardaginn 28. maí, kl. 9.00 árdegis, og lýkur kl. 22.00.
Sérstök athygli kjósenda er vakin á eftirfarandi ákvæði 81. gr. kosningalaga:
Er kjósandi kemur inn í kjörfundarstofuna gerir hann kjörstjóm grein fyrir
sér með því að framvísa nafnskirteini eða á annan fullnægjandi hátt. Ef
hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni, afhendir
oddviti honum einn kjörseðil.
Kjósandi, sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki, getur átt von á því
að fá ekki að greiða atkvæði.
Yfirkjörstjórn mun á kjördegi hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur, og þar hefst
talning atkvæða þegar að loknum kjörfundi. Símanúmer ýfirkjörstjórnar á kjör-
dag er 632263.
Yfirkjörstjórnin í Reykjavík
Jón Steinar Gunnlaugsson
Gísli Baldur Garðarsson Eiríkur Tómasson
HEJTA-
MOT
KARI
ARNORS-
SON
Enginn 4 v. hestur var sýndur
í reið.
Úrvals hryssur
Hvorki meira né minna en 13
hryssur 6 vetra og eldri (raunar
var bara ein 6 v., hinar eldri)
fengu yfir 8 í aðaleinkunn. Efst í
aðaleinkunn var Hrafndís frá
Réykjavík með 8.28 í aðalein-
kunn og ísold frá Keldudal meö
sömu aðaleinkunn, en hæsta
einkunn fyrir hæfileika í þessum
flokki 8.59. Báöar þessar hryssur
em undan Hrafni 802 frá Holts-
múla og báðar eiga mjög góðar
mæður. Þriöja í röðinni var
Stígsdóttirin Katla frá Dallandi
meö 8.40 fyrir byggingu og 8.11
fyrir hæfileika skeiðlaus, aðal-
einkunn 8.26.
Næst kom Freyja frá Efra-Apa-
vatni með 8.20, þá Stilling frá
Svertingsstöðum með 8.18 og
hæstu byggingareinkunnina
8.48, Snilld frá Skollagróf 8.14,
Lukka frá Götu 8.14, Hrefna frá
Gunnarsholti 8.13, Glóö frá
Möðruvöllum 8.09, Jara frá
Steindórsstöðum 8.08, Ósk frá
Litla-Dal 8.07, Ösp frá Teigi II
8.03, Brana frá Háholti 8.00.
Þetta er góður árangur, því 19
hryssur til viðbótar náðu ein-
kunn inn í ættbók. En 14 af
þeim hryssum, sem dæmdar
vom í þessum flokki, náðu ekki
ættbókarmarkinu, sem er 7.50.
Af 5 vetra hryssunum náðu
fjórar einkunn inn á landsmót:
Röst frá Kópavogi aðaleinkunn
8.16, Engilráð frá Kjarri 8.10.
Hrefna frá Prestsbakka 8.06 og
Hvönn frá Gýgjarhóli 8.03. 9
hryssur til viðbótar komust í
ættbók.
Tvær 4 vetra hryssur náðu inn
á mótið, Hekla frá Oddhóli meö
7.81 og Tinna frá Sæfelli 7.80.
Hekla er undan sömu hryssunni
og Röst, sem efst er í 5 v. flokkn-
um. Móðirin er Gola 6160 frá
Brekkum undan Hrafni 8.02.
Ein hryssa til viðbótar, Von frá
Hvammstanga, náði ættbókar-
einkunn.
í yfirlitssýningunni á laugar-
daginn em dómar opnir og
þá eiga hrossin möguleika
á aö bæta hæfileikaeinkunn
sína. ■
Hagyrbingaþáttur
Ermin drjúg
Loforð fyrir flokkinn sinn
fýsir menn að heyra.
Haltu áfram, Ámi minn,
ermin tekur meira.
(Þjóstólfur)
Nú fer hver að verða síöastur að yrkja um verðandi borgar-
stjómarkosningar, en væntanlega verða yrkisefnin nóg að
þeim loknum.
Sólmundur Heimir sendi Tímanum eftirfarandi:
Ekki neinum framhjá fer,
finnst það á svo mörgu.
Ámi þegar orðinn er
undir Ingibjörgu.
Loforð Árna borgarstjóra til Reykvíkinga, sem hann mun efna
ef hann vinnur næstu tvennar kosningar:
Þó verði ég í verkum smár
og virðist ncestum sofa.
Eg skal eftir átta ár
öllu fógm lofa.
Og limrur frá Búa:
Auöæfaeyöing
Fjármálum lítið ég fattaí,
þvt fara mín auðcefi skattaí.
Þegnana þlokkar
þjóðfélag okkar
- þetta' er svo hrikalegt barrarí!
Sjálfseyöing
Ég þekki einn glaðlyndan grallara,
gagnmerkan veraldarsvallara,
unnanda lista,
sem oft fékk að gista
áður - í löggunnar kjallara.
Sveini Sigurjónssyni, Galtalæk II, varð eftirfarandi á munni
vegna vegaframkvæmda á Landvegi no. 26 í Rangárvallasýslu:
Ekli verður aldrei rótt,
andans fauskar dudda.
Gerast btlargamlir fljótt
á grófum vegamdda.
Vegagerðarvinnan breitt
vaknar hverjum friður.
Horfa bara aðeins eitt,
áttina Imgra niður.
Nafnlaus sendi nokkrar vísur:
Kona, sem er þingmaður, taldi ný lög um kynferðislega áreitni
vera mjög til bóta:
Konurassi efklappað er
kemur nú til greina,
þungan dóm fcer þrjótur hver,
þú veist hvað ég meina.
Velferö
Valdamenn hér velferð bjóða,
verðbréfmunu skapa gróða,
effest þau em á fjármagnsplóg.
Mannfólkið er misjöfh vara,
mannsltfin þarfekki að spara,
afþeim verður alltafnóg.
Þá em það botnar við gamla fyrriparta:
Vertu hjá mér vina góð,
vökum áncegð saman.
Þú skalt vera þceg og hljóð,
þá verður nú gaman.
eða:
Ekki sá ég annað fljóð
yppilegra að framan.
Að síðustu:
Öld er köld með vaxtavöld,
veldur höldum tjóni.
Á söguspjöldin syndagjöld
sjötugfóld hjá Jóni.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4.
105 Reykjavík. P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA!