Tíminn - 17.06.1994, Blaðsíða 17

Tíminn - 17.06.1994, Blaðsíða 17
Föstudagur 17. júní 1994 17 Þingmenn og gestir ganga niöur Almannagjá til hátíöarfundar 17. júní 1944. í fararbroddi eru Sveinn Björnsson, ríkisstjóri, sem skömmu síöar varö forseti, og Sigurgeir Sigurösson, biskup. Þar á eftir ríkisstjórn og þingmenn. Fyrir göngunni gengur fánaberinn Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi. Þ j óðarsaga Svo er skráð í fomum fræðum: Fcerðu austmenn knörr úr nausti, sigldu glœst um svalar rastir, sjónir festu á landi í vestri. ísland heita hauðrið létu, haldgott reyndist nafnið kalda, lifir enn, þótt aldir hafi ótœpt heiminn teygt og mótað. Bú sér reistu hetjur hraustar, höfðu stoð að ráðum goða. Frelsið dýra mátu meira makindum við heimaakra. Settu lög, sem dugðu dróttum, drengskapsorðum treysta þorðu, sýndu rausn og ráðin fundu, reifuðu slyngir mál á þingi. Meðan ríki, fjölmenn, frœkin féllu mörg á rómuvelli, lifað gat við langan vetur lítil þjóð á norðurslóðum. Ólík tvinnast örlög manna, ýmsu er blandin saga landsins. Kónga gildra vígaveldi vildi ráða ísaláði. Kom að sunnan siður annar, sem að lögum breytti og högum. Hvíta-Kristi lýðir lutu, létu falla goð afstalli. Hélst þó enn í huga manna hörkublandinn víkingsandi. Hefhdargjöld með egg og eldi enn voru sótt með fomum þrótti. Neista glœddu, nepju eyddu nýrrar aldar bylgjufaldar. Æ skal minning affeksmanna okkur lýsa, brautir vísa. Sóknin styrk var sýnd í verki, sigri náð og frelsi þráðu. Endurheimt var œttarlandið, óskirgóðar rœttust þjóðar. íslenzkt tungutakið slynga tömdu menn í orðasennum, orðsins list var iðkuð glœsta efldur hróður sagna og Ijóða. Heiðin drápa og helgikvœði hljóma í sama stuðlaómi, himna og jörð var haegt að ríma, hylli vottuð Óðni og Drottni. Aldarfar var utan mildi, urðu í garði þrautir harðar. Ættarveldin háðu hildi, hatri sáðu lœvís ráðin. Innrí sundmng olli grandi, afli spillti valdataflið, unz menn hlutu auðmjúkt játa eiðaspjalli konungslalla. Enn er stríð og úthellt blóði, afl hins sterka mótar verkin. Heiður brigðull er sem áður, auðugur grípur lamb hins snauða. Gylliboð þótt aðgát eyði, ætíð má hins fengna gæta. Þörfer brýn, að þetta muni þjóðin smá á norðurslóðum. Þyngdust kjör er fimbulfrerar fjötmðu gróður norðurslóða. Hekluglóð og hríkajöklar huldu land með ösku og sandi. Dugur þvarr við það hið verra, þjóðar tók að dvtna hróður. Erlent vald með engri mildi olli flestum böli mestu. Mögnuðu hættur mein og ótta miðaldanna skuggahrannir. Fomar dyggðir fagrar bmgðust, frelsi allt var lagt í helsi. Fávís lýður fimum trúði, fjandann sá á hverju strái. Ógnarverkin kóngs og kirkju kveiktu bálin galdramála. Jóhannes Benjamínsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.