Tíminn - 22.10.1994, Side 1

Tíminn - 22.10.1994, Side 1
SÍMI 631600 78. árgangur íslensk aevintýraferb á Leifi Eiríkssyni sem siglir inn í 300 km langan fjörb þar sem vestrœnir menn hafa naer aldrei sést: Fyrsta skipið næst á eftir Pourquois Pas? Síöla sumars fór íslenska far- þega- og björgunarskipið Leifur Eiríksson í óvenjulega ferö sem lá á þriöja hundrað kílómetra inn í fjörö hjá Scoresby-sundi á Grænlandi. Þar hafa fáir vest- rænir menn komiö og aðeins bátar grænlenskra veiöimanna koma þangað endrum og sinn- um. A þessum slóðum eru veiðimenn snöggir aö ná sér í sauðnaut í matinn því þau kunna ekki almennilega að vara sig á manninum. Að öllum líkindum hefur ekkert skip siglt svo langt inn í þessa firbi síðan franska rannsóknarskipið Po- urquois Pas fór þar á sínum tíma, en þab skip strandaði sem kunnugt er við Mýrar á íslandi 1934. Sigurður Þórðarson, einn eigenda Leifs Eiríkssonar, segir frá för sinni og útgerðaráform- um á blaðsíðu 2 í blaöinu í dag. Vestfiröir: Jörð skalf á Patreks- firði Rúmlega hálftíu í gærmorgun reiö yfir jarbskjálfti á sunnan- verbum Vestfjörbum og fundu íbúar á Patreksfirbi og nágrenni vel fyrir honum, en styrkleiki skjálftans var um 2,8 stig á Richter. Gunnar Gubmundsson á skjálftavakt Veburstofunnar sagði að upptök skjálftans hefbu verið í austanverðri Kleif- arheiði. Hann segir afar sjald- gæft ab jarðskjálftar verði á þessu svæði og telur að hér hafi verið að ræða svokallaðan „inn- plötuskjálfta", en svo eru þeir skjálftar nefndir sem verða ut- an hefðbundinna skjálfta- svæða. Nokkur hrina skjálfta varð í kjölfarið á skjálftanum í gær- morgun og hefur fólk á Patreks- firði orðið vart vib þá. Mælar Veðurstofunnar mæla ekki skjálfta sem eru undir 2 stigum á Richter og ekki er líklegt aö eftirskjálftarnir hafi verið stærri en þab. Þrír skjálftar fundust þó á þessum slóðum í síðustu viku. Þá er ekki búist við að þessi skjálfti í gærmorgun sé undan- fari einhverra frekari jaröhrær- inga á svæbinu og ekki var heldur vitab um neitt tjón eða skribuföll af völdum skjálftans í Stakkholti 4 Inngangur frá Brautarholti Laugardagur 22. október 1994 199. tölublað 1994 Leifur Eiríksson siglir hér á sjó sem trúlega hefur ekki verib gárabur af skipi síban Pourquois Pas sigldi þar um fyrir meira en hálfri öld. Útgáfuveldi Friöriks Friörikssonar: Líklegt að Blað hf. verði keyrt í gjaldþrot Líklegt er ab krafist verib gjald- þrotaskipta á Blabi hf., sem gaf út vikublabib Pressuna, en fyr- irtækib hefur verib lýst eigna- laust í sumar eftir ab annab fyrirtæki í eigu sama abila tók vib útgáfu Pressunnar. Fram- kvæmdastjóraskipti hjá Blabi hf. árib 1992 hafa ekki enn verib tilkynnt til Hlutafélaga- Nefnd um endurskipulagningu sjávarútvegsnáms á Islandi leggur til ab bobib verbi upp á sérstaka sjávarútvegsbraut á framhaldsskólastigi og verbi fagnám innan hennar metib ab fullu til stúdentsprófs. Námsbrautin yröi tveggja ára braut sem bybi upp á almennt framhaldsskólanám í ýmsum grunngreinum auk greina tengd- um sjávarútvegi. Námskrá braut- arinnar verbi mótuð þannig ab námib nýtist nemendum hvort sem þeir hyggja á frekara nám í skrár, en slíkt er hægt ab kæra til rannsóknarlögreglu. „Ég er ekki búinn að taka ákvörðun," sagði Hákon Hákon- arson, fyrrum framkvæmdastjóri Blaös hf., aöspurður um hvort ab hann ætli ab krefjast gjaldþrota- skipta. Hákon starfaði sem fram- kvæmdastjóri í ársbyrjun 1992, nokkrum mánuðum eftir ab sérskólum á sjávarútvegssviði eba til undirbúnings náms á há- skólasvibi. Nefndin leggur til að í inn- gangsnámskeiöi á fyrstu önn fái nemendur innsýn í vélstjórn, skipstjórn, fiskvinnslu og mark- aösmál. Að lokinni fyrstu önn velji nemendur um eftirfarandi námslínur: Skipstjórnarlínu sem lýkur með 30 rúmlesta skip- stjórnarprófi, Vélstjórnarlínu sem þegar er til innan Vélskóla íslands og Fiskivinnslulínu sem felst í þjálfun í helstu fisk- Fribrik Fribriksson, fram- kvæmdastjóri Pressunnar, Al- menna bókafélagsins og fleiri fyrirtækja, keypti Blaö hf. Blað hf. skuldar Hákoni um eina milljón króna vegna starfsloka- samnings sem ekki var staðið viö. Til ab fara fram á gjaldþrot þarf aö leggja fram 150 þúsund króna tryggingu. Gjaldþrota- vinnslustörfum, fræðslu um markaðsmál og rekstur fisk- vinnslufyrirtækja. Tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir að Fiskvinnsluskólinn í Hafnarfirbi, Stýrimannaskólinn í Reykjavík og Vélskóli íslands sameinist um rekstur sjávarút- vegsbrautar á svæbinu. Lagt er til ab þetta fyrirkomulag verði reynt í fjögur ár en eftir þrjú ár fari fram ítarlegt endurmat á skólan- um sem lagt verði til grundvallar viö ákvörðun um framhaldiö. meðferð gæti reynst eina leiðin fyrir Hákon til þess aö ná laun- um sínum, en finnist ekki eignir í búinu fyrir þeim verða þau greidd af ríkisábyrgðasjóði launa. Már Pétursson, héraðsdómari við Hérðasdóm Reykjaness, höfðaði á sínum tíma meiðyrða- mál á hendur Pressunni og vann það fyrir undirétti 14. mars á þessu ári. Blað hf. áfrýjaði til Hæstarréttar. Ekki er hægt að krefjast fjárnáms á meðan mál er fyrir dómi og þess vegna fór lög- maður Más fram á svokallaða löggeymslu, en með henni hefði verið hægt að taka frá veðrétt fyr- ir skuldinni. Farið var fram á lög- geymslu 20. júní en hún reyndist árangurslaus og Friðrik Friðriks- son lýsti Blað hf. eignalaust. Á þessum tíma var hins vegar Pressan hf., sem er annað fyrir- tæki í eigu Friðriks Friðrikssonar, tekin viö útgáfu Pressunnar. Samkvæmt heimildum Tímans er Landsbankinn stærsti skuldu- nautur Blabs hf., en annar aðili sem fékk Pressuna dæmda fyrir meiðyrði er Úlfar Þormóðsson, fyrrum eigandi Gallerí Borgar. Hann vinnur nú að því ásamt lögfræðingi sínum að finna leiö- ir til ab innheimta skuldina hjá Blaði hf., en hann hóf þær að- gerðir í þessari viku. ■ Sjávarútvegsbraut á framhaldsskólastigi: Námið verði metið til stúdentsprófs

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.