Tíminn - 22.10.1994, Page 8

Tíminn - 22.10.1994, Page 8
8 9múmu Laugardagur 22. október 1994 Hagyrbinaaþáttur Hugsab til pistlahöfunda Aflúsa skal útvarpslið, óþrifin á burtu þvo, vammlausir svo virðist þið. En — verður nóg að reka tvo? Smugukviöa Heyrðust yfir höfin gjalla hávœr púðurskot, við það margir fuglar falla, flestallir í rot. Skemmdarverka skrattakollum skelfilega brá, geystust burt á gúmmídollum gamla Hágang frá. í þungu skapi þegnar Gróu þrá að hefha sín. Úr hrceðslu ncestum dátar dóu við djöfuls hrekkjusvín. Skjótum niður skrattans dallinn, skelfum bófana. Hengjum árans íslandskallinn og alla þjófana. Úr Smugunni veiða margir menn og mikið er þar affiski enn. Norðmenn blóta og Norðmenn hóta að skjóta niður þœr skepnur senn. Þorsteinn Daníelsson Á biölista meö aldraöri konu Ég var aldrei stofustáss og staða þín er ekki vís. Fyrir okkur er ekkert pláss ennþá laust í Paradís. Varasöm ást Ástin er fógur að allra dómi, þó enginn sjái 'ana óholl en bragðgóð eins og rjómi þegar aldraðir fá 'ana. Aöalsteinn Ólafsson Bjartsýni Haustar að og sígur sól, sálar dofnar kraftur. Hún mun eftir heilög jól hcekka ganginn aftur. Seinna þreytir fuglinn fcer flug til norðurstranda, og á velli grasið graer grcent og þétt að vanda. Verum hress og vílum ei, þó vetrar þyngist sporin. Aftur munu gömul grey gerast ung á vorin. Búi Eftir blaöalestur Engum vill hann gefa grið, gjörla þekkir fagið. Hann er bara hrceddur við hrceðslubandalagið. SMF Botnar og vísur sendist til Tímans Stakkholti 4 105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA Rugl í kvennabaráttunni Árekstrar milli karla og kvenna vegna breyttra umgengnisvenja eru þreytandi og óþarfir, ef rétt er á málum haldið. Hefðum og siðum er kastað fyrir róða, án þess aö neitt komi í staöinn, og karlar og konur eru álíka rugluð í hvernig koma á frarri hvert við annað. Heiðar: Það~hefur komið fram rugl í kvennabaráttunni. Eitt af veikum viðbrögðum karla er að fyrst konurnar vilja jafnrétti, þá hætti þeir að opna fyrir þeim dyr. Þetta er eitt af ótal smáat- riðum sem valda pirringi og óþægindum í samskiptum kynj- anna nú til dags. Ég fer eftir þeirri reglu og kenni hana, aö ef konan er spariklædd og farið er eitthvað til að halda upp á eitthvab, þá gilda náttúr- lega allar herramennskureglur. En ef hún er í jogginggallanum að kaupa í matinn, en þannig klædd á hún ekkert aö vera að fara í búöir, þá getur hún sjálf eða önnur kona allt eins opnab dyrnar ef karlmaðurinn er ekki tilbúinn á sínum staö. Svona hlutir breytast. Ég býst ekki viö að karlmaöur fari úr jakkanum og leggi yfir poll, þótt kona á háum hælum þurfi að ganga yfir hann. Þetta þótti einu sinni fínt, en er þab tæpast lengur. Sú regla aö kona hringdi ekki í mann, heldur átti karlinn ein- hliða aö hringja í konu, er orðin úrelt og er fólki í sjálfsvald sett hver hringir í hvern. En þab er tilfinningamál hverrar konu hvernig hún lítur á þessa hluti. Það eru margar konur sem enn lifa eftir gömlum stöblum um umgengni. Svo eru aðrar sem brussast áfram og eru sífellt ab láta í ljósi aö þær þurfi ekkert á körlunum að halda. Hvab er áreitni? Þetta eru ekki stór vandamál. En hitt sé ég sem stórt vanda- mál, þar sem er offariö í sam- bandi við áreitni. Einkaritarinn, sem er búinn að vera lengi hjá sínum yfirmanni og er orbin vön því að hann styðji hönd á öxl hennar, þegar hann útskýrir fyrir henni eitthvert form og breytingar á því, ab það sem var í öbrum dálki fari nú í þriðja dálk og allt fór vel. Nú er þessi aumingja maður í fimm metra fjarlægð hinum megin við boröib og stóll þar á milli og reynir með bendingum aö leið- beina hvar dálkaskiptin eiga ab vera. Hann þorir ekki ab koma nærri konunni, því þá á hann á hættu ab hún kæri hann fyrir áreitni. í mínum huga er þetta mjög stórt vandamál og verðum viö íslendingar að taka okkur á og koma okkur saman um hvab sé Hvernig áég ab vera? Heibar jónsson, snyrtir, svarar spurningum lesenda áreitni og hvað ekki og hver sé eðlileg nálægð í mannlegum samskiptum. Það á helst ekki að láta lög- reglu og dómstóla skera úr um þab. Smáatribin mikilvæg Þetta meö að opna hurðir og svoleiðis er dálítill prófsteinn á hvernig æskilegt er að kynin umgangist hvort annað. Ég tel til dæmis sjálfsagt að þótt kona keyri bílinn þegar farið er í leik- hús, að maöurinn fari út á und- an, aftur fyrir bílinn og opni fyrir konunni áður en farið er inn í leikhúsið og gangi á und- an henni inn í bekkinn. En hvort þetta á við þegar farib er að versla í Kringlunni eða far- ið er í berjamó verður hver og einn að gera upp við sig. Þaö er auðvitað mjög góður sibur að maburinn opni alltaf fyrir sinni konu þegar þau eru á ferð sam- an, en ekki naubsynlegt. Nú er þab svo að oft þegar karl- maður er ab sýna konu kurteis- legt viðmót, stendur hann uppi sem dóni vegna þess að hún kann ekki að taka hegðun hans eins og hún er meint, svo sem eins og aö leyfa honum ekki að opna dyr eða standa upp fyrir henni. Þegar kemur að skemmtana- menningunni vandast málin. Þá halda margir karlmenn að ef þeir bjóða konu upp á glas, séu þeir að borga fyrir næturgreiða. Konur hafa brennt sig dálítið á þessu og karl, sem býður ókunnri konu upp á glas, á jafn- vel von á löðrungi. Ég er vanur að segja konum, sem þiggja drykk, að segja hreinskilnislega að þær ætlist ekki til að honum fylgi neinar kvaðir. Svona árekstrar eru annars allt- of algengir. Ég býst við að engin þjóð hafi gengið eins ört gegn- um breytingar og við íslending- ar. Vib fórum úr torfbæjunum í seinni heimsstyrjöldinni, veiddum síld og eignuöumst peninga og fórum í alla þessa fermetra. Það er ekki lengra síð- an en þegar ég hóf búskap að ekki var algengt að konur ynnu utan heimilis. Nú vinna konur úti og vilja að sjálfsögðu jafn- rétti og það er ekkert undarlegt þótt eitthvað riðlist í umgengn- isvenjum kynjanna. Mikill áhugi Hitt sé ég í umgengni við mína nemendur, að unga fólkið er kurteisara en þeir sem nú teljast miöaldra. Herramennskan er að vakna. Ef farið er í dag á skemmtistað þar sem fólk milli þrítugs og fimmtugs er ab skemmta sér, sér maður ýmislegt sem er ekkert vobalega sniðugt að verba vitni að. En það er hægt að fara á heljar- mikið ball með tvítugu fólki í dag og sjá alla skemmta sér eins og engla. Unga fólkið kann bet- ur mannasiði og áreynsluiitlar umgengnisvenjur en þeir eldri. Maður á mínum aldri hlammar sér á stólinn, þótt konan sé ekki einu sinni komin að borðinu. Þetta sér mabur tvítugan strák, sem býður átján ára stúlku út, ekki gera. Hinar klassísku umgengnis- venjur kynja eiga við þegar fólk er ab gera sér dagamun, en á heimili hleypur eiginmaðurinn ekki um og opnar klósettdyrnar fyrir konunni eba bíbur enda- laust eftir því að hún setjist á undan honum. Það er áreiðanlega full þörf á að kenna fólki umgengnisreglur og flestir vilja læra þær og kunna mannasiði. Eg flyt stundum fyrirlestra um kurteisi og fæ alltaf góða eftirtekt og spurningarnar dynja á mér, þegar þær eru leyföar, og er áhuginn ótrúlega mikill. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.