Tíminn - 22.10.1994, Side 13

Tíminn - 22.10.1994, Side 13
Laugardagur 22. október 1994 SMK3I 13 bilasala b Samtök tœknivísindamanna og bíla- blabamanna í Japan: Völdu Wagon R japanska bíl ársins Samtök tæknivísindamanna og bílablaöamanna í Japan velja árlega japanska bíl ársins og í ár varö fyr- ir valinu Suzuki Wagon R, sem er fjögurra sæta, snaggaralegur fjölskyldubíll, en hann er aöeins 3,3 metrar aö lengd. Hann þykir bera vott um nýja hugsun í hönnun bíla og hefur notiö gífurlegra vin- sælda í heimalandinu, en enn sem komiö er fæst hann aöeins þar. ■ Samkomulag Frœöslu- miöstöövar bílgreina og prófnefndar bifreiöasala: Bílasal- ar á skóla- bekk Samkvæmt nýjum lögum um sölu notaöra ökutækja þurfa þeir, sem reka bílasölur, aö uppfylla ítarlegri skilyröi og meöal annars þurfa þeir aö hafa sótt námskeiö, sem próf- nefnd bifreiöasala hefur um- sjón meö. I kjölfar þessa nám- skeiös þurfa þeir aö gangast undir og standast próf í fag- inu. Prófnefndin, sem skipuö er af viöskiptarábherra, hefur nú gert samning viö Fræbslu- mibstöb bílgreina um fram- kvæmd og umsjón meb nám- skeibunum, sem hefjast í þess- um mánubi. Ein ástæöa þess aö ný lög hafa veriö sett er aö alltof oft hafa komiö upp vandamál tengd þessum viöskiptum, enda án efa um eina mestu fjárfestingu fjöl- skyldna aö ræöa þegar fjárfest er í ökutæki. Lögum þessum er ætlaö aö koma í veg fyrir þetta, enda eru meö þeim settar upp einfaldar reglur sem auövelda bílasalanum verk sitt, þar sem hann veit nákvæmlega til hvers er ætlast af honum. Þá mun við- skiptavinurinn hafa mun betri skilning á rétti sínum og þeirri þjónustu, sem bílasalinn á aö veita. Á námskeiöunum, sem hér um ræöir, verður fjallaö um marga þætti og má þar nefna kaupa- rétt, samningarétt, veörétt lausafjármuna og þinglýsingar, viöskiptabréfareglur, vátrygg- ingar ökutækja, sölu- og samn- ingatækni og margt fleira. í öll- um tilfellum hefur veriö leitaö til helstu sérfræöinga á viðkom- andi sviðum. Námskeiöin verða haldin á sex kvöldum og í þrjár stundir í senn. Ætlunin er aö bjóða nám- skeiðin bæöi í Reykjavík og á Akureyri, en næsta námskeiö verður haldið í Reykjavík þann 25. október næstkomandi. En bílasölum er ekki einungis gert aö setjast á skólabekk, held- ur einnig að sækja um starfsleyfi fyrir 1. desember næstkomandi. Innan níu mánaöa frá gildis- töku laganna er meö öllu óheimilt aö stunda sölu á not- uðum ökutækjum í atvinnu- skyni án slíks leyfis. Áöur en hægt er að sækja um Ieyfi þarf aö uppfylla ákveöin skilyröi, s.s. tryggingar, aldur, eigin fjárhags- stöbu, auk námskeiös og prófs. ■ Hlaðinn aukahlutum • útvarp og segulband, 4 hátalarar • hituð sæti • útihitamœlir • og margt margt fleira Opið allar helgar frá kl. 14-17 að Sævarhöfða 2 Ingvar f ■ a I Helgason hf. : Sœvarhöfða2 Sími 674000 Nissan SunnyJjögurra dyra árgerð 1995 Aukahlutir á mynd: Álfelgur Innifalið í verði: • frítt þjónustueftirlit • íslensk ryðvörn og hljóðeinangrun • 6 ára ryðvarnarábyrgð • 3 ára verksmiðjuábyrgð ™ Sunny með öllu tilheyrandi á krónur 1.169.000.-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.