Tíminn - 29.10.1994, Page 11
10
Laugardagur 29. október 1994
Lauggrdagur 29. október 1994
11
„Haraldur í Skríplalandi" tekur Opel Corsa Swing til kostanna:
„Litíi bíííinn
meb stóra
plássib"
Nýr og endurhannaöur Opel
Corsa var kynntur í byrjun síð-
asta árs. Hann var kosinn næst
besti smábíllinn af sérfræðingum
evrópskra bílablaða og hafnaði
þar á eftir Nissan Micra. Corsa er
samt sem áður að sumu leyti
eigulegri bíll. Fyrst og fremst er
hann rýmri, eða eins og Halli
Laddabróðir sagði eftir reynslu-
akstur: „Þetta er litli bíllinn með
stóra plássið."
Gamall Skodasali
Sá, sem reynsluók með Tíma-
mönnum að þessu sinni, var sem
sagt Haraldur sonur Siguröar,
sem kenndur er við Kirkjubæ, og
helmingurinn af tvíeykinu Halli
BILAR
ÁRNI GUNNARSSON
og Laddi. Haraldur vann sjálfur
við bílasölu hjá Jöfri hf. í 12 ár
og seldi þar meðal annars og aug-
lýsti Skoda frá Tékkóslóvakíu.
Hann starfar nú sem auglýsinga-
stjóri hjá hestatímaritinu Eiðfaxa
og sinnir sem fyrr skemmtana-
bransanum í hjáverkum. Á þeim
tíma, sem Corsunni var reynslu-
ekið, var Halli að ljúka við endur-
NOTAÐAR BUVELAB 0G TÆKI
Verð án vsk.
1. Jarðýta, DRESSER TD8 með ripper og skekkjanlegri tönn, árgerð ‘90, ekin 4.400 tíma 3.300.000
2. Fiat Agri 80-90 4WD. Árgerð 1990. Ekin 1150 klst. Með ALÖ 540 ámoksturstækjum. 80 hestöfl 1.920.000
3. Same Exploder Turbo 4WD, 90 hestöfl m/vendigír, árgerð 1986. Ásamt SIGMA 4 ámoksturstækjum. Ekin 2500 klst. 1.420.000
4. Massey-Ferguson 390 2WD, 80 ha. dráttarvél, árgerð ‘93, ekin 800 klst. 1.750.000
5. Massey-Ferguson 3070, árgerð 1989, ekin 2900 klst., 4WD 1.900.000
6. Massey-Ferguson 350 2WD, 47 hö., árgerð 1987, ekin 1800 klst. 650.000
7. Massey-Ferguson 3070 4WD, 93 hö. Trima 1620, árg. 1989 2.400.000
8. Massey-Ferguson 3065 2WD, 85 hestöfl, árgerð 1992, ekin 487 klst. 2.400.000
9. Universal 600, 60 hestöfl, 2WD árg. 1979 210.000
10. CASE 685 2WD, 68 hö., árgerð 1986, ekin 3500 klst. 600.000
11. WELGER RP 12 rúllubindivél, 120x120, árgerð 1989 650.000
12. WELGER RP 12 rúllubindivél, 120x120, árgerð 1989 650.000
13. MF 828 rúllubindivél, fastkjarna, árgerð 1991, stærðir 60 til 180x120 850.000
14. Claas R44s rúllubindivél, 120x120, árgerð 1989-90 550.000
15. Kemper heyhleðsluvagn, 24 rúmmetra, árgerð ‘84 270.000
16. Kemper heyhleðsluvagn, 24 rúmmetrar, árgerð ‘84 270.000
17. International heybindivél, árgerð ‘74 180.000
Leitiö nánarí upplýsinga hjá sölumönnum vorum
Ingvar
Helgason hf. vélasala
Sævarhöföa 2, SIMI 91-674000.
Haraldur Sigurbsson var ánœgbur meb Corsuna, en fannst verbib íhœrri kantinum.
gerð á 15 ára gamalli plötu, „Har-
aldur í Skríplalandi", sem verður
endurútgefin á næstu dögum.
Skríplamir heita reyndar ekki
lengur Skríplar heldur Strumpar
og er plötunni breytt í samræmi
við það.
„Þetta er hinn besti bíll," sagði
Haraldur að loknum reynslu-
akstrinum. „Það kemur á óvart
hversu rúmgóður hann er. Mað-
ur á ekki von á því, þegar sest er
inn í hann. Með því að hafa aft-
urdekk jafn aftarlega og hægt er
og framdekk jafn framarlega og
hægt er, næst meira pláss en
menn eiga að venjast í bílum af
þessari stærð, og jafnframt verða
aksturseiginleikarnir betri."
Hvaö er á bak við
hestöflin?
Corsa er í grundvallaratriðum
nokkúð dæmigerður smábíll.
Vélin er 4 strokka 1,2 1. Sparneyt-
in og sterk, enda byggð á eldri
vél með sama rúmtaki sem hefur
verið í þessum bílum lengi. Hún
skilar 45 hestöflum eða 33 kW.
Eyðsla var ekki mæld, en erlend
bilablöð gefa hana upp sem 6,4 1
á hundraðið í blönduðum akstri.
Hestaflatalan ein og sér segir
ekki nema hálfan sannleik um
afkastagetu vélar. Gott dæmi um
þetta er að nýr VW Polo með 1,0
1 vél er meö sama skráðan hest-
aflafjölda. Volkswagenhestöflin
eru mæld viö 5200 sn./mín., en
Opel Corsa er mældur við 4800
sn./mín. Togiö mælist 76
Nm/mín. í Polo, en 88 Nm/mín.
í Corsa. í báöum tilfellum er
mælt við 2800 sn./mín.
Þetta útskýrir hvers vegna VW
Polo 45 Servo — sem er skráður
45 hestöfl eins og Opel Corsa
l,2i — er tæpar 23 sek. úr kyrr-
stöðu upp í 100 km/klst., á með-
an Corsa er tæplega 18 sek. í 100
km/klst. Polo er að vísu um 50 kg
þyngri. Þar er hins vegar á ferð-
inni nýr og athyglisverður bíll á
góöu verði, sem vonandi gefst
tækifæri til að reyna hér innan
skamms.
Rúmgóöurog
sterkur
Eitt af því sem við Halli, Pjetur
ljósmyndari og fleiri sem skoð-
uðu bílinn, vorum sammála um,
er að hönnun hans hefur tekist
einkar vel. Mælaborðið er einkar
smekklegt og aðgengilegt, heild-
arsvipurinn yfir innréttingunni
bjartur, samræmið gott og frá-
gangur mjög traustvekjandi. Stýr-
ishjólið er fremur smátt, en gerð-
arlegt og gefur gott grip. Bíllinn
er lipur í akstri, útsýni er gott á
alla kanta og ökumaður fær strax
góða tilfinningu fyrir bílnum. Þá
er sérstök ástæöa til þess að hæla
sætunum, en þau eru mjög
vönduð miðað við bíl af þessari
stærð, bæði frammí og afturí. Ör-
yggisbelti eru fyrir þrjá afturí, en
þegar þrír fullorðnir eru þangað
komnir er tæpast afgangur af
sætisplássinu. Aftur á móti fer
mjög vel um tvo.
Pláss fyrir farangur er ótrúlega
gott og leynir á sér. Rúmmál í
lítrum höfum við ekki, en þetta
geta þeir sannreynt sem hafa
áhuga á að kynna sér bílinn af
eigin raun.
Eldri útgáfan af Opel Corsa var
á sínum tíma talinn með örugg-
ari smábílum sem framleiddir
voru. Með þessum hefur veriö
haldið áfram á sömu braut. í
hurðunum eru tvöfaldir styrktar-
bitar og sérstök höggvarnarsvæði
(krumpusvæði) að framan og aft-
an. Öryggisbeltin eru öll stillan-
leg á hæðina og að framan er
strekkjari á móthaldinu, sem eyk-
ur enn á öryggið. Þá er bíllinn
einn af fáum í sínum stærðar-
flokki sem fáanlegur er með líkn-
arbelgjum fyrir ökumann og
framsætisfarþega.
Smábílar eiga erfitt
uppdráttar
Smábílar eru full dýrir hér á
landi, í samanburði við bíla í
smærri millistærðarflokki.
Þannig þarf ekki að bæta nema
100-150 þúsund krónum við
kaupverð Opel Corsa til þess að
fá bíl í næsta stæröarflokki fyrir
ofan, eins og t.d. Opel Astra,
Toyota Corolla, Hyundai Ac-
cent eða Nissan Sunny. Þó að
Opel Corsa sé reyndar ekki
ódýr smábíll á íslenskan mæli-
kvarða, er hann engu að síður
litlu dýrari heldur en keppi-
nautar frá öðrum framleiðend-
um, s.s. Peugeot 106, Nissan
EL
Nýkomið - Við höfum yfirstærðirnar
Úlpur — þrjár í einni, mittisúlpur, síðar úlpur. Gallabuxur, Terylene- buxur, stærðir 32-52.
Búðin, Bíldshöfða 18, sími 91-879010, fax 91-879110 Opið: mánud-föstud. 9-18, laugard. 10-16
Tímamynd Pjetur
Micra, Renault Clio og Suzuki
Swift, svo dæmi séu nefnd. Þá
er einnig rétt að taka fram að
verð Opelbílanna frá Bílheim-
um er með íslenskri ryðvörn,
skráningu, hljómflutningstækj-
um og fullum bensíntanki.
Þannig má í raun draga 40-50
þúsund krónur frá kaupverö-
inu.
Sölutölur undirstrika að verð-
munur svokallaöra smábíla og
millistærðarbíla er of lítill. Litlu
bílarnir seljast einfaldlega ekki
nógu vel hér á landi. Sam-
kvæmt nýlegum samanburði
Auto Motor und Sport á fjórum
evrópskum smábílum, kostar
Opel Corsa Eco l,2i um 760
þúsund krónur í Þýskalandi, Fi-
at Punto 55 S og Renault Clio
um 740 þúsund, og nýr VW
Polo með 1,0 1 vél um 800 þús-
und krónur. Þetta eru þau verð
sem ættu að sjást hérlendis.
Þrír „gallar"
í heildina tekið er Opel Corsa
mjög eigulegur smábíll. Rúm-
góður, sterkur og síðast en ekki
síst nútímalegur og fallegur.
Þrennt má þó finna að honum.
í fyrsta lagi er verðið full hátt. í
öðru lagi mætti gírskiptingin
vera þjálli, en það er þó atriði
sem venst. í þriðja lagi er plast-
hlíf neðst á framstuðara full
lág, en hana má auðveldlega
fjarlægja og er sérstaklega mælt
með því að vetrarlagi. Opel
Corsa er bíll sem heillar eigend-
ur sína. Bíll með ríkan „karakt-
er" og gerir án efa sitt til þess
að skipa þessari ágætu bílateg-
und þann sess sem hún á skilið
hér á landi. Hann hefur alla
buröi til að seljast vel. ■
HVER HELDUR
ÞÉR UPPI
eftir aðþú hœttir að vinna?
t^jtmu bömin þín halda þér uppi
eða sýnirþú þáfyrirhyggju að greiða
ílífeyrissjóð? Frjálsi lífeyrissjóður-
inn erhugsaðurfyrirþá sem ekki eru
skyldaðir til að greiða
í hefðbuiulna lífeyris- wf \
sjóði og þá sem gera \ *.
kröfu um luerri lífeyri
en fœst úr tryggingakerfinu
og almennum tífeyrissjóðum.
Sjóðurinn er þín eign, þú rœður
iðgjaldinu og þú rœður hvemig
greiðslum úr sjóðnum er háttað.
Hafðu samband við okkur hjá
Skandia ogfáðu sendan
bœkling ogforritsem
> jj reiknar út þínar lífeyris-
greiðslur. Haltu vel á
þínum Hfeyrismálum og njóttu
lífsins með Fijálsa Ifeyrissjóðnum
FRJÁLSI
LtFEVKISSJÓÐURINN
— tiJ sðnjóta lífsins
BKANDIA • LALKBAVK3I 170 • BÍMI B1 87 OO
Skandia
Terrano II selst vel
Nissan Terrano II hefur verib vel tekib hérlendis, enda bíllinn á nokkub
góbu verbi mibab vib stcerb og útbúnab. í heild seldust yfir 50 Terrano-
jeppar á fyrstu 8 mánubum ársins, samkvœmt upplýsingum frá Bifreiba-
skobun íslands hf., og þar meb er þessi jeppi kominn í rabir þeirra sölu-
hœstu hér á landi. Timamynd Pjetur
30% afsláttur af öllum vörum
» 6 daga rýmingarsala
Slæður - hanskar - veski
skartgripir, skjalatöskur
Hvíta uglan,
Laugavegi 66,
sími 621260