Tíminn - 12.11.1994, Page 12
12
HmUM - ÍSLENSKT, JÁ TAKK -
Laugardagur 12. nóvember 1994
Fellihýsi eins og Vagnasmibja jRj
framleibir á japanska pallbíla.
Tímamynd Árni Bjarna
Vagnasmiöja JRJ
í Varmahlíö:
Fullbúið íslenskt felli-
hýsi á pallbíla á 370 þús.
Vagnasmibjan JRJ í Varma-
hlíö hefur nýlega hafiö
framleiöslu á fellihýsum
aftan á pallbíla og hefur þegar
hafiö markaössetningu á þeim.
Um er aö ræöa hýsi þar sem
toppnum á húsinu er lyft upp
þegar bíllinn er ekki í akstri og
myndast þá svefnloft yfir öku-
mannshúsinu. Jóhann R. Jak-
obsson, bílasmiöur og eigandi
fyrirtækisins, er bjartsýnn á
framhaldiö hvaö varöar söluna
á fellihýsinú.
Jóhann segir aö á undanförn-
um árum hafi veriö lagt í tals-
veröa kynningu og segir hann
viötökurnar hafa veriö mjög
góöar. Hann segist hafa oröiö
var viö mikinn áhuga fyrir felli-
hýsinu frá eigendum pallbíla.
Ástæða þess aö farið var í
framleiðslu á húsunum segir Jó-
hann vera þá aö fyrir nokkrum
árum hafi komið að máli viö
hann verkfræöingur, meö teikn-
ingar af húsi aftan á pallbíla,
sem hann vildi láta smíöa eftir.
Það hafi gengið eftir, en verk-
fræbingurinn síöan látiö þá
hafa teikningarnar.
Jóhann segist ekki vita til þess
að hús sem þessi séu framleidd
annars staðar hér á landi, en
samkeppnin komi erlendis frá.
Hann segir hins vegar að ís-
lensku húsin hafi tvö megin-
þætti framyfir þau innfluttu:
þyngd og verð. Þau séu mun
léttari og talsveröur veröinunur
sé á húsunum. Verðmuninn
segir Jóhann mega rekja til
þeirrar stefnu fyrirtækisins aö
framleiða húsin ekki eins vel út-
búin og þau innfluttu og lögö
væri áhersla á verð í staö íburð-
ar. Reyndar er hægt aö fá húsin
mismunandi vel búin. Óinn-
réttuö kosta húsin 270 þúsund
meö virðisaukaskatti, en full-
innréttuð kosta þau 370 þús-
und, en þá eru þau meö eldavél,
vaski, borði, svefndýnum bæöi
uppi og niöri, topplúgu og inni-
ljósi, auk þess sem allt er teppa-
lagt. Húsin, sem JRJ framleiðir,
passa aftan á alla japanska pall-
bíla, en Jóhann og félagar sér-
smíöa einnig hús aftán á aðrar
geröir pallbíla.
Jóhann hefur rekið fyrirtækiö
í 17 ár og nú vinna 2-3 menn
hjáJRJ. Það stefnirþó allt í fjölg-
un starfsmanna eftir áramót, ef
sala á fellihýsunum gengur vel,
en framleiðslan á þeim hefst þá.
íslenska járnblendifélagiö á Crundartanga tók um margra ára skeiö þátt í ýmsu þróunarstarfi ótengdu rekstri þess.
Jón Sigurösson framkvœmdastjóri:
Þróunarstarf, óviökomandi rekstr-
inum, algerlega verið lagt niður
Sjálfvirka beitingavélin, sem íslenska járnblendifélagib vann ab þróun ab ásamt uppfinningamanni. Verkefni
þetta lofabi góbu, en vegna fjárskorts var þab lagt á hilluna í bili. Tímamynd Pjetur
S
slenska járnblendifélagið
hefur hætt fjárframlögum
til þróunarverkefna sem
snúa að ööru en því sem verk-
smiðjan var stofnuð til aö
sinna. Jón Sigurösson fram-
kvæmdastjóri segir að á þeim
þrengingatímum, sem félagið
hafi gengið í gegnum undan-
farið, hafi þessir liðir í starfsem-
inni lagst niður, en félagiö tók
þátt í ýmsum verkefnum, bæöi
í samvinnu við opinbera aöila
og einstaklinga. „Þaö sem viö
höfum verið aö fást viö af hlut-
um, sem koma ekki viö okkar
tegund af rekstri, höfum við
allt lagt á hilluna í bili," segir
Jón.
Þaö vakti mikla athygli og var
greint frá því á síðum þessa
blaös, þegar Járnblendifélagið
vann ásamt uppfinningamanni
aö því aö hanna og þróa sjálf-
virka beitingavél. Unniö var að
verkinu í húsakynnum Járn-
blendifélagsins að Grundar-
tanga og lagbi félagið bæði til fé
og mannskap. Hvaö þetta verk-
efni varðar, segir Jón að ákveö-
iö hafi verib að leggja þab á
hilluna, þegar ljóst hafi verib ab
næsti verkþáttur beitingavélar-
innar myndi hafa kostab félag-
ib á bilinu 5-10 milljónir. Hins
vegar hafi uppfinningamaöur-
inn unnib áfram aö verkinu, en
Jón sagðist ekki geta sagt til um
á hvaba stigi þaö væri.
íslenska járnblendifélagiö var
einnig þátttakandi í fyrirtæki,
sem stofnsett var í framhaldi af
rannsóknum í Raunvísinda-
stofnun Háskólans og er enn
starfandi, en félagið dró sig út
úr því. Það sama megi segja um
fjármögnun rannsókna við Iön-
tæknistofnun. íslenska járn-
blendifélagiö lagði fram fé í
ýmis verkefni, sem tengjast
svokölluðu hátæknikeramiki.
Síðan hafi þó verið unnið að
því í samstarfi þessara tveggja
aðila aö nýta þá þekkingu, sem
til varð í rannsóknunum.
Jón útilokar ekki að íslenska
járnblendifélagið fari á ný inn á
þessar brautir, en þaö verður þó
ekki fyrr en búiö verður aö bæta
afkomu þess frá því sem nú er.
„Við viljum vera komnir miklu
nær landi áöur en viö förum að
gera eitthvað meira af þessu
tagi. Við vorum svo bjartsýnir
hér áöur, sem reyndist svo ekki
á rökum reist, miðaö við hvern-
ig markaður fyrir kísiljárni þró-
aðist," segir Jón.
Hann segir ekki nokkurn vafa
leika á því aö stór og stöndug
fyrirtæki þurfi aö leggja fé í þró-
unarverkefni. Ríkiö leggi til
talsverða fjármuni til rann-
sókna og þróunar í gegnum
rannsóknarsjóöi, og þaö sem
vanti er aö fyrirtæki hafi frum-
kvæöi og burði til aö koma á
móti meö fé til aö kosta slík
verkefni, prófa þau og helst
stjórna þeim. ■