Tíminn - 17.01.1995, Síða 1
SIMI 631600
Brautarholti 1
STOFNAÐUR 191 7
79. árgangur
Þriðjudagur 17. janúar 1995
11. tölublað 1995
fógfjlp
VHþ; "l;
• ny 5* -7®*; U|
v" rv<V»'' 1Mlm • ’mTXtUKffl*
Varöskipiö Týr fór um miöjan dag í gœr meö á annaö hundraö manns, björgunarsveitarmenn, hjúkrunarfóik og annaö hjálparfólk. Einnig voru um borö ýmis björgunartæki, s.s. þrír snjóbílar,
en á þessari mynd má einmitt sjá hvar veriö var aö hífa einn þeirra um borö. Tímamynd cs
Þjóöarsorg á íslandi í kjölfar mannskaöa í snjóflóöi sem reiö yfir kauptúniö í Súöavík í gœrmorgun:
Harmleikur í Súðavík
Fimm hafa fundist látnir og
sjö slösuöust í miklum harm-
leik í Súbavík, þegar snjóflób
féll á stóran hluta kauptúns-
ins um klukkan hálfsjö í gaer-
morgun. Þegar blabib fór í
prentun í gærkvöldi, var enn
ellefu manna saknab. Alls
lentu 26 einstaklingar í snjó-
flóbinu, en sumir þeirra kom-
ust af sjálfsdábum út úr því.
Alls lentu fimmtán hús í flób-
inu og þar af eru tíu stór-
skemmd. Eftir ab flóbib féll
var öllum íbúum bæjarins
safnab saman í húsakynnum
hrabfrystihúss Frosta hf.
Strax í gærmorgun var leit
hafin ab fórnarlömbum flóbsins
og í gær var unnið ab því ab
flytja björgunarmenn og annaö
hjálparlib til Súðavíkur og í gær-
kvöldi voru þegar komnir um
140 björgunarsveitarmenn á
staðinn, en þá var enn verið að
safna saman fleiri sjálfboðalið-
um. T.d. voru á annaö hundrað
manns á leið frá Reykjavík með
varbskipinu Tý, sem ætti að
vera á slysstaðnum undir há-
degi í dag.
Aðstæður til leitar voru mjög
erfiðar, vegna veðurs, en blind-
bylur og hvöss norðanátt var í
Súðavík í gær. Af þessum völd-
um áttu leitarmenn erfitt með
að meta umfang snjóflóðsins.
Leit var haldið áfram í nótt og
verður svo næstu daga, ef með
þarf.
Samhliða aðflutningum var
unnið aö því að flytja íbúa
s
Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir:
„Missir eins er
missir okkar allra"
Frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, flutti þjóðinni
stutt ávarp í gær í kjölfar harm-
leiksins í Súðavík, þar sem hún
sagði að á stundum sem þeirri,
sem þjóöin hafigengið til móts
við í gær, finni Islendingar hve
mikil ítök þjóðin eigi í hjörtum
hvers annars og hve samstaða
hennar og samhugur sé einlæg-
ur á raunastundum. Ennfremur
segir hún: „Hvort sem við erum
nær eða fjær því svæði, sem orð-
ið hefur fyrir miskunnarlausum
náttúruhamförum, dvelur hug-
urinn hjá öllum þeim sem að
hefur verið höggvið.
Missir eins er missir okkar
allra.
Við lifum í von um að enn
verði mannslífum bjargað og ég
bið blessunar öllum þeim sem
um sárt eiga að binda."
Súðavíkur til ísafjarðar, þar á
meðal konur, börn og slasaða,
og í gærkvöldi var búið að flytja
126 Súðvíkinga á brott. Um eitt
hundrað íbúar voru þá eftir í
kauptúninu.
Húsin, sem lentu undir snjó-
flóöinu í gær, voru ekki talin á
hættusvæði. Það voru hins veg-
ar önnur hús innar í bænum og
þessa örlagaríku nótt voru ein-
mitt nokkur þeirra rýmd vegna
snjóflóðahættu.
Þau hús, sem lentu í flóöinu,
voru Túngata nr. 1, 2, 3, 4, 5, 6,
7, 8, 9, 10 og 12, Nesvegur nr. 1,
3 og 7 og Njarðarbraut nr. 10.
Fólks var í gærkvöldi enn sakn-
að úr eftirtöldum húsum: Tún-
götu nr. 3, 4, 5, 6, 7 og 8 og frá
Nesvegi nr. 7, alls ellefu manns.
Það var einnig slæmt ástand
annars staðar á Vestfjarðakjálk-
anum og í gærkvöldi hafði ver-
ið lýst yfir hættuástandi á Pat-
reksfirði, Tálknafirði, Bíldudal,
Bolungarvík, Flateyri og
Drangsnesi, vegna snjóflóða-
hættu. Alls höfðu um fimm
hundruö íbúar verið beönir um
að rýma hús sín á þessum stöð-
um, þar af um 300 á Patreks-
firði. Aftakaveður var á flestum
þessara staöa, hvöss norðanátt
og blindbylur.
Sjá nánar blabsíbu 2-3
Bessi frá Sú5a-
vík stranda&i
Togarinn Bessi frá Súbavík
strandaði í Skutulsfirði í
fjörunni við ísafjaröarflug-
völl í gærkvöldi. Togarinn
var að koma frá Súbavík á
leiö til ísafjarðar, eftir að
hafa aðstoðað við björgun-
arstörf í Súðavík, en vegna
dimmviðris vildi ekki betur
til en svo að hann strandaði.
Togarinn Haffari kom taug
um borö í Bessa í gær og átti
ab freista þess að koma hon-
um á flot á flóbi. ■
Beöiö fyrir íbúum Súöavíkur
Fjöldi brottfluttra Súövíkinga, vina, ættingja og venslamanna, fylltu Dómkirkjuna í Reykjavík ígœrkvöldi á
bænasamkomu sem biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, boöaöi til síödegis vegna náttúruhamfaranna vestra.
Séra jakob Ágúst Hjálmarsson, dómkirkjuprestur, flutti hugvekju og hughreystingarorö til kirkjugesta, Súövíkinga
og landsmanna allra. Séra Jakob var um árabil sóknarprestur Súövíkinga og búsettur á ísafiröi.