Tíminn - 01.04.1995, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 1. apríl 1995
Fólk í fyrirrúmi
Brýnustu verkefni næstu ára.
Kjörtímabili ríkisstjórnar Sjálfstæöisflokks og Alþýðuflokks er aö ljúka, kjörtímabili
sem einkennst hefur af stöönun og samdrætti, skattahækkunum og kjaraskeröingu,
atvinnuleysi og ríkissjóöshalla.
Þessari stjórnarstefnu hafnar Framsóknarflokkurinn.
Vegna aögeröa ríkisstjórnarinnar er neyöarástand á þúsundum heimila í landinu og
gjaldþrot blasir viö mörgum þeirra. Þetta ástand hefur til viöbótar viö atvinnuleysiö
skapaö margvísleg félagsleg vandamál.
Þrátt fyrir hagstæö ytri skilyröi, hækkandi verö á erlendum mörkuöum, met
loönuvertíö og aukinn afla á fjarlægum miöum erum viö enn föst í vítahring stöönunar
og samdráttar. Viö þurfum aö losna viö þessa ríkisstjórn. Út úr þessum vítahring vill
Framsóknarflokkurinn koma þjóöinni. Hann gengur því til komandi alþingiskosninga
undir kjöroröinu „fólk í fyrirrúmi". Auka þarf bjartsýni þjóöarinnar og efla trú hennar á
þá stórkostlegu möguleika sem landiö og þjóöin hafa upp á aö bjóöa.
Til þess þarf nýja ríkisstjórn, ríkisstjórn sem hefur hagsmuni fólksins í fyrirrúmi.
Brýnasta verkefni stjórnmálanna á komandi kjörtímabili veröur aö vinna bug á
atvinnuleysinu; skapa því fólki sem nú er atvinnulaust og því unga fólki sem kemur inn
á vinnumarkaðinn á næstu árum atvinnu.
Hér í þessum blaöauka er því nákvæmlega lýst meö hvaöa hætti Framsóknarflokkurinn
vill taka á greiösluerfiöleikum heimilanna og koma hjólum atvinnulífsins af staö.
Veröi rétt á málum haldið á næstu árum geta landsmenn gengiö meö reisn
til móts viö nýja öld.
Finnur Ingólfsson
;