Tíminn - 29.04.1995, Síða 4

Tíminn - 29.04.1995, Síða 4
4 Laugardagur 29. apríl 1995 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmi&ja hf. Mánaöaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verð í lausasölu 150 kr. m/vsk. Baráttudagur launamanna Á mánudaginn er fyrsti maí, hátíðisdagur verka- lýðsins í landinu. Á þeim degi er reynt eftir föng- um að treysta samstöðuna, auk þess sem baráttu liðinna ára er minnst. Hátíðarhöldin 1. maí eru mikilvæg fyrir hreyfingar launafólks í landinu í mörgu tilliti. Verkalýðshreyfingin er sterkt afl, en vissulega eiga forustumenn hennar við vandamál að etja, sem eru keimlík þeim sem við er að glíma í öðrum þjóðmálahreyfingum, til dæmis stjórnmálaflokk- unum, sem er lítil þátttaka almennings í félags- legu starfi. Þessi staðreynd breytir því þó ekki, að samtakamáttur launafólks hefur komið ófáum framfaramálum þess áleiðis. Þar er ekki síður um að ræða félagsleg réttindi ýmiss konar, sem væru fátækleg ef afls verkalýöshreyfingarinnar hefði ekki notið við. Núverandi vinnulöggjöf er frá því fyrir stríð, og það er staðreynd að hún var samin við allt aðrar aðstæður heldur en nú eru. Það gefur auðvitað augaleið, að umhverfið á vinnumarkaðnum er allt annað en þá var. Starfsstéttum hefur fjölgað, tæknivæðing aukist og samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja breyst. Efnahagskerfið er gjörólíkt. Vinnulöggjöfin þarf því endurskoðunar við, og fleiri en áður viðurkenna að svo sé. Sú endurskoð- un þarf ekki að vera launafólki í óhag. Markmið . þeirrar endurskoðunar á að vera að auka þátttöku þess í starfi samtaka sinna og styrkja verkalýðs- hreyfinguna í landinu. Það er lýðræðinu hollt að samtök launafólks séu ábyrgt og sterkt afl í þjóðfé- laginu. Það, sem einkum hefur verið gagnrýnt í vinnu- löggjöfinni, er réttur fámennra starfsstétta til keðjuverkfalla í fyrirtækjum með flókna og marg- þætta starfsemi, þar sem starfsfólk er í fjölmörgum stéttarfélögum. Þessi umræða styrkir ekki stöðu launafólks, heldur þvert á móti. Sama gildir um verkfallsboðanir, sem teknar eru af mjög fámenn- um hópi manna í stéttarfélögum. Leita þarf leiða til þess að efla þátttökuna í hinu félagslega starfi. Breytingar á löggjöf einar leysa vissulega ekki þann vanda. Það verður áreiðanlega seint hægt að skipta þjóðarkökunni á þann veg að allir verði ánægðir. Það er skylda samtaka launafólks í landinu að berj- ast fyrir umbjóðendur sína, en gæta þess jafnframt að hinir verst settu beri ekki skarðan hlut frá borði. Með breyttri og flóknari atvinnustarfsemi í þjóðfé- laginu og fleiri starfsstéttum verður þetta sífellt flóknara verkefni. Með svokallaðri þjóðarsátt árið 1989 lögðu hinir svokölluðu „aðilar vinnumarkaðarins" grunn að nýjum samskiptum sín á milli og við ríkisvaldið í landinu. Árangurinn er sú lága verðbólga sem er í dag. Þetta var umdeilt, en hefur tvímælalaust skil- aö árangri. Áhrif þessara aðila á framvindu mála hafa áreiðanlega ekki minnkað, heldur vaxið með þessum starfsaðferðum. Tíminn færir launafólki árnaðaróskir á hátíðis- degi þess á mánudaginn. Megi hann auka sam- stöðu þess og þátttöku í því að skapa betra og rétt- látara þjóðfélag. Birgir Guömundsson: Sá hlær best... Við stöndum frammi fyrir því að gífurleg hætta steðjar að vistkerfi jarðarinnar. Vandinn er ekki ósvipaöur því þegar menn stóðu frammi fyrir kjarnorkuvopnunum, að því leyti að maðurinn og menning hans er bæði þolandi og gerandi. Maðurinn bjó sjálfur til hættuna og honum er sjálfum ógnað, ekki síður en um- hverfinu. Hann verður því að end- urskoða samskipti sín við jörðina í ljósi hinnar nýju stöðu.... En hin raunverulega lausn hins vegar ligg- ur í því að endurheimta tengslin milli jarðarinnar og menningarinn- ar og hlúa ab þessum tengslum, þannig að sárin grói. ... Rétt eins og menn laga sig ab tilvist kjarnorku- vopna, þá mun þessi lausn á deil- um manns og náttúru eflaust kalla á breytta tækni og jafnvel minni tækni á sumum sviðum. Mikilvæg- asta breytingin felst þó í nýjum hugsunarhætti og nýjum skilningi á sjálfu eðli sambands okkar við jörðina. Ai Gore, varaforseti Bandarikjanna, í bók sinni: „Jörðin að veði" (Earth in the Balance) Óvenjulegustu viðbrögðin í frétt- um síðustu helgar, þegar stjórn- armyndunin og stjórnarskiptin gengu yfir, komu tvímælalaust frá Jóni Baldvini Hannibalssyni, fráfarandi utanríkisráðherra o§ formanni Alþýðuflokksins. I flestum ljósvakamiðlum landsins varð þjóðin vitni að löngum hæðnislegum hlátri formanns- ins, þegar hann var spurður um þá ráðstöfun nýrra stjórnarherra ab sami ráöherrann færi með landbúnaðarmál og umhverfis- mál. Össur Skarphéðinsson, frá- farandi umhverfisráðherra, gerði, eins og formabur hans, athuga- semdir við þessa ráöstöfun, þó það væri ekki með sama hroka- fulla hættinum. Össur hefur lýst þeirri skoðun sinni ab það sé mjög óheppilegt að sami maður fari með þessi tvö ráðuneyti og kvebst hann óttast að umhverfis- ráðuneytið veröi að „skúffuráðu- neyti" í landbúnabarráðuneyt- inu, sem vænatanlega þýðir að hann óttist ab málefni landbún- aðarráðuneytis muni njóta for- gangs á kostnað umhverfisráðu- neytisins. Samhliða þessum ótta Össurar hefur mátt greina í mál- flutningi hans það vibhorf að landbúnabarráðuneytið og um- hverfisrábuneytib ættu yfirleitt ekki samleið. Hlátur Jóns Bald- vins hefur almennt verið túlkab- ur á svipaðan hátt. Fram og aftur fjárgötuna Þessi viöbrögð krata valda hins vegar miklum vonbrigðum. Ann- ars vegar lýsa þau mikilli vantrú á getu og þrótti umhverfisráðu- neytisins sem slíks og hins vegar lýsa þau ótrúlega gamaldags við- horfum til umhverfismála. For- ustumenn Alþýbuflokksins virð- ast hafa, eins og raunar ýmsir aðrir, fest í gömlu umræðunni um að átakalínurnar í umhverfis- málum lægju milli sauðkindar- innar annars vegar og einhverra náttúruverndarmanna, helst í sérstökum náttúruverndarráð- um, hins vegar. Þessi gamla, djúpa fjárgata virðist ætla ab verða fúrðu lífseig. Hún er í það minnsta enn á sveimi, þó svo að kalda stríöið, sem geisaði meb og á móti sauð- kindinni, sé löngu búib alveg eins og hitt kalda stríðið. Jón Konrábsson á Selfossi og Sauð- fjárverndin hans em löngu hætt að auglýsa í útvarpinu að menn eigi að vera góðir við sauðkind- ina. Gamaldags náttúmverndar- menn em samt ennþá í rökræð- um við hann! Það em nýir tímar í landbún- aði og það em nýir tímar í um- hverfismálum. Umhverfismálin em alveg jafnt upp á kant við aðrar atvinnugreinar eða at- vinnuvegaráðuneyti og landbún- aðinn. Þab em verk ab vinna á svibi umhverfismála í sjávarút- vegi, iðnaði og þjónusm. Um- hverfismál snúast ekki lengur um íslensku saubkindina. Ef eitthvað ✓ I tímans rás er, þá hefur landbúnaðurinn ver- ið í fararbroddi aukinnar mebvit- undar um vistvæna, ábyrga og sjálfbæra notkun á landgæbum á íslandi, bæbi varðandi fram- leiðslu og ferðamannaþjónusm, svo dæmi séu tekin. Það sem meira er, mebvimð umhverfis- málastefna er nánast sú öndunar- vél sem gefur landbúnaðinum von um framtíð. Umhverfismálin eru mál mál- anna og hafa fyrir löngu varpað af sér þeim hlekkjum, sem saub- kindin setti á umræðuna. Það hlýmr því að teljast nokkuð háöuleg niðurstaba, ef forustu- menn krata ætla að halda áfram ab labba fram og aftur gömlu fjárgömna — nú þegar sauðkind- ur em nánast að verða safngripir. Þannig aö sárin grói Umhverfismálin snúast heldur ekki um það hvort umhverfis- rábuneytib er í skúffu í landbún- aðarráöuneytinu eba ekki. Um- hverfismálin em lifandi mála- flokkur, sem snertir nánast öll samskipti mannsins og jaröar- innar. Þau snúast um það að halda þessum samskipmm í eðli- legu jafnvægi, „þannig ab sárin grói" eins og varaforseti Banda- ríkjanna hefur orðaö það. Um- hverfismálin em því ekki stofnun sem hægt er að kæfa í skúffum, ekki heldur í stjórnsýslulegum skilningi. Það er búið að setja umhverfisráðuneytið á fót og þab er búið að festa það í sessi. Verk- svið ráðuneytisins er að vera bæði aflstöð og bakland fyrir hin ýmsu svið og verkefni umhverfis- mála. Þess vegna er þab ekki mál- ið að standa vörð um stofnunina umhverfisráðuneyti og gæta þess eins og það sé dýrgripur á borö við myndina af Mónu Lísu. „Móna Lísan" er til staðar og næsta skref er ab tryggja aö hún taki til óspilltra máíanna, láti ab sér kveða sem víðast og með sem virkustum hætti. Það er slík útrás sem er á dagskrá, en ekki dyra- varsla við listasafn. Libur í þessari útrás er að eyða leifum togstreimnnar, sem skap- ast hefur í kringum stofnanir eins og Landgræðsluna og Skógrækt- ina milli Iandbúnaðarráðuneytis- ins og umhverfisrábuneytisins. Sú togstreita er arfur frá sauð- kindarsýninni á umhverfismálin og henni þarf að breyta í takt við nýja tíma, því í raun hefur hún ekkert með umhverfismál að gera. Snjallt skref í þá átt ab eyða togstreitunni milli umhverfisráð- herra og landbúnaðarráðherra í slíkum málum er að hafa sama mann í báðum embættum! Umhverfismebvitund alls staðar Stóra verkefnið er þó aö ná fram þeirri stöðu, að umhverfis- meðvitund gegnsýri allt ákvörb- unarferlið í stjórnkerfinu jafnt sem daglegt líf manna. A1 Gore, núverandi varaforseti Bandaríkj- anna, skrifabi merkilega bók um umhverfismál fyrir nokkrum ár- um og hlaut fyrir frægð og frama, vegna þess ab hann þótti fylgjast vel meö tímanum og vera fram- sækinn. Varaforsetinn leggur í bók sinni mikla áherslu á sam- hengi hlutanna og heildarsýn varöandi umhverfismálin jafnt í smáu sem stóru. í því felst hin nýja hugsun, sem hann telur ab geti skapað börnum okkar og barnabörnum framtíð og „endur- heimt tengslin milli jarðarinnar og menningarinnar". Hér á ís- landi eiga svipub sjónarmib vax- andi skilningi ab mæta og menn em að hætta að líta á umhverfis- mál sem afmarkað, sérskilgreint fyrirbæri, sem heyri undir um- hverfisráðuneytið og ekkert ann- að, sé einkaviðfangsefni náttúru- verndarráðsmanna, landvaröa eba annarra þar til bærra sérfræð- inga. Það eru þó þessi stofnana- kenndu kyrrstöðuviðhorf sem endurspeglast að nokkm leyti í áhyggjum Össurar, en þó sérstak-' lega í hæðnishlátri Jóns Baldvins. En hlátur Jóns breytir þó ekki þeirri staöreynd, ab þegar allt kemur til alls er það hann sjálfur sem stendur á saubskinnsskón- um í fortíbinni og rífst um nátt- úruvernd á forsendum sauðkind- arinnar. Og sem betur fer er það nú rétt, sem sagt er, að sá hlær best sem síbast hlær. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.