Tíminn - 27.05.1995, Blaðsíða 16
16
Wmrnn páskar
Laugardagur 27. maí 1995
JONA RUNA á mannlegum nótum:
Gamansemi
Vib, sem unnum léttleika og
uppörvandi andrúmslofti í
sammannlegum samskiptum,
kjósum aö eiga sem mest sam-
neyti við þá, sem eru léttir og
spaugsamir. Viö vitum og finn-
um aö allt sem viö tökumst á
viö er auðveldara og aðgengi-
legra, ef við göngum aö verki
með opnum huga og glööum.
Þrátt fyrir þessa staöreynd erum
viö sum gleðivana og skop-
skynsrýr, sökum þess aö viö sjá-
um ekki glettnina og spaugiö í
lífinu og tilverunni. Viö erum
leiö og fúlræn og íþyngjum öðr-
um meö óáhugaverðri og létt-
leikalausri afstöðu okkar til
manna og málefna.
Best er, ef við viljum breyta
þannig afstöðu og efla kankvísi
okkar og kímni, aö viö reynum
aö sjá það sem er hnyttið og
smelliö í aðstæðum okkar og
samskiptum. Það segir sig nefni-
lega sjálft, aö ef viö erum jálæg
og léttlynd, þá veröur allt eins
og auöveldara, jafnvel tíma-
bundnir erfiðleikar.
Ekkert okkar kemst hjá því
einhvern tíma aö fyllast áhyggj-
um og drunga. Þegar þannig
árar innra meö okkur, þá er
mikils virði, aö viö sjáum þaö
broslega og gamansama viö þaö
sem þrúgar okkur og þreytir, því
þannig afstaöa auöveldar okkur
líklegar úrlausnir. Óhætt er að
fullyröa, að án skrýtilyrða og
orðkímni fari ánægja og gleði
lífsins fyrir lítiö.
Best er auðvitaö, aö viö séum
lifandi og létt og séum frekar
höll undir spaugilegu og
hnyttnu hliöar tilverunnar en
þær neilægu og ónotalegu. Þaö
hefur þegar sannast bæöi í
gegnum vísinda- og reynslu-
þekkingu, að hlátur og kátína
virka ótrúlega vel á sálarlíf okk-
ar og líkamlegan þrótt. Ágætt er
og viturlegt, sökum þessara
staðreynda, aö við sem erum í
daufara lagi, eflum meö okkur
smellni og sniðugheit, en huns-
um fúllyndi og önugheit. Okk-
ur, sem þab höfum gert, líður
mun betur fyrir bragöið, enda
örvar gleðin með okkur bjart-
sýni og aukinn lífsþrótt.
Skopskynsvöntun dregur úr
lífsgleði okkar og áhuga fyrir
því sem í raun er áhugavert og
spennandi í athöfnum okkar og
samskiptum. Við, sem erum
höll undir skuggahliöar tilver-
unnar, erum oftast niöurbeygö
og nöldrandi. Viö veltum okkur
uppúr armæöukenndum hugs-
unum og afleiddum. Viö erum
reyndar langt frá því að vera
sniðug og skemmtileg. Viö átt-
um okkur ekki á því, að viö
sköpum skilyrði á aö auka van-
líöan okkar og annarra, ef við
erum skapþung og gleðivana.
Viö, sem erum aftur á móti
gamansöm og fyndin, berum
birtu kátínu og gleði inní líf
okkar og annarra, enda leggjum
við kapp á að sjá það skemmti-
lega og sniöuga viö menn og
málefni, ánægjunnar og holl-
ustunnar vegna. Viö nennum
ekki aö vera afundin og fúl, sök-
um þess aö það dregur úr lífs-
gleði okkar og áhuga á því sem
er eftirtektarvert og sérlægt í til-
verunni. Viö, sem viljum auð-
velda okkur sjálfum að takast á
við þaö sem er mótdrægt og
öröugt, ættum að kynna okkur
brandara og gamanmál til upp-
örvunar og gleði. Gamansemi er
nefnilega gulls ígildi og því er
áríöandi að örva hana reglu-
lega. ■
®®ra#§W! KROSSGÁTAN NR. 21
Varnarliðið/Laus störf
Varnarliöið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða tvo mat-
reiðslumenn til starfa.
Umsækjendur séu lærðir matreiðslumenn með mikla
reynslu. Mjög góðrar enskukunnáttu er krafist.
Skriflegra meðmæla er óskað.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar Varnarmálaskrif-
stofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími 92-11973, eigi síðar
en 6. júní 1995.
Starfslýsingar liggja þar frammi til aflestrar fyrir umsækj-
endur og er þeim bent á að lesa þær áður en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama stað.
Absendar greinar, afmælis-
og minningargreinar
sem birtast eiga í blaðinu þufa að hafa borist ritstjórn blaðsins,
Brautaholti 1, tveimur dögum fyrir birtingardag, á disklingum
vistab í hinum ýmsu ritvinnsluforritum sem
texti, eöa vélritabar. lltWftítí®
SÍMI (91) 631600
LAUSN Á GÁTU NR. 20
ftíii 4rt;XU- LAAO Kuiou/A' VA AtCUti iu y- . rMMJCUl 3f7í7 röTT iStK *ú J] DÍILA bTKAusÍ A/ — srvtja SÍCLL mv 'I T
L 1 N D i i * G UtSLu T m Tf K TTÁFö- A
------ÍVS>-' jtÍÁlA S f A * A R KtSTAR ssr G R 1 Y b A A L
-Jj mm T T w s&ia T T H u AixuR KMu ö4 L N fVIJOtól ViM <5 £ F
íHll !/Á\ L m \f r*y«é T 0 W s Æ L A FUU &/KKM h 'A A t*xw A R £jHi ptuu. L L
'A m r u A íifisr Féu Æ $ / S T S / r ycyídu TAJO,- (óu 1 L L Ui
f y Y ÍOfLu* ootoam H / K1 KM&A auxju Ö R T u ÍtSALA &£JMI A u h A KftOff- Atm. S
A£“tL 6Líkié fAAA6 R ó A HAF A U N ut A H£B '0 s K / H /
’A 5 W A £ G Köb S/6A £ U H A 371 s T u H 0 A
} írtbr r A J G / u £ G OUUt srlrr T u s K u ATT w
v> þ C'oO MAfuA % G Æ T Tb*A FncfJF MAtK K u ö A fi &MJI £ '0 F/ÍOA mr uó 1É T /
A É riPfi JjA*- UtCAST Æ D KAuO- Ltir RiíMA É d '0 D LU6A 7JÖÖ A M A Msa KAll A) Æ A A H
L y m pf i 'M r*» P m W 7* Sí M WM rr m á féa
fhk (*A Ý s U MiTVú- ULL 5 A6 T / L C LÓO H Æ G 6 ÍAlit- fLDTU* I L
0 Æ T K "0 5 / z A R'iFI r Æ T i % A IÍHCmM Þ A 'A