Tíminn - 08.06.1995, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 8. júní 1995
11
HofsÓS. Tímamynd Ágúst Bjarnason
skips á bryggju. í væntanlegu
safni verður dregin upp mynd
af kjörum þessa fólks sem lagði
af staö í svo langa ferö, fjallað
um helstu ástæður fólksflutn-
inganna, aðbúnað á útleið o.fl.
Byggðasafn Skagfirðinga sér um
uppsetningu safnsins, undir
handleiðslu Sigríðar Sigurðar-
dóttur safnstjóra.
Stofnaö hefur verið hlutafé-
lag, Snorri Þorfinnsson ehf.,
sem sér um uppbyggingu húss-
ins. Eigendurnir eru hópur
fólks, sem á sínum tíma keypti
húsið til þess að bjarga því frá
eyðileggingu.
jónsmessuhátíb —
menningarvibburö-
ur á Hofsósi
Nú verður í annaö sinn hald-
in Jónsmessuhátíð á Hofsósi. í
tilefni dagsins er efnt til þjóð-
legrar dagskrár, söngur og fróð-
leikur í fyrirrúmi. A föstudags-
kvöldið 23. júní er kvöldvaka í
Pakkhúsloftinu. Þar er þétt set-
ið á heyböggum og hlýtt á söng
og skemmtilestra. Stemningin
er einstök undir súðinni og úti
fyrir kveða vorfuglar í fjöru-
borðinu. Ef veður leyfir, veröur
farið í ferðir um miðnættið, út í
eyjar og gengið í döggvotu grasi
í bjartri sumarnóttinni. Fyrir
áhugasama verður leiöbeint um
forna siði á Jónsmessunótt, svo
sem daggarböðun og blóma-
lestur.
Laugardaginn 24. júní hefst
hátíðin með söng Karlakórsins
Heimis við stuðlabergið í Staðar-
bjargavík. í þetta sinn syngur
einnig við stuðlana ein vinsæl-
asta söngkona landsins, Sigrún
Hjálmtýsdóttir — Diddú, og
horn Þorkels Jóelssonar mun
óma í berginu. Áhorfendur njóta
söngsins sitjandi í grasigrónum
slakkanum, einhverjir í bátum
sem sigla inn á víkina og ófáir
munu nota tækifærið og fara um
borð í varðskipið Óðin, sem
verður fljótandi áhorfendapallur
fyrir framan.
Þegar söng er lokib í Staðar-
bjargavík, stígur karlakórinn á
hestbak og ríður syngjandi niður
að Pakkhúsinu. Þar verða á dag-
skrá atriði tengd undirbúningi
Vesturfarasafns. Síðar um kvöld-
ið veröur söng- og skemmtidag-
skrá fram haldið í félagsheimil-
inu Höfðaborg og hátíðinni lýk-
ur þar meb dansleik.
Jónsmessuhátíð
1995 - Menningar-
vaka á Hofsósi
Dagskrá:
Föstudagur 23. júní:
Kvöldvaka í Pakkhúsinu:
20.00: Árni Björnsson flytur er-
indi um Jónsmessuna.
- Haraldur Bessason flytur pistil
um Snorra Þorfinnsson, fyrsta ís-
lendrnginn fæddan vestanhafs.
- Árni Tryggvason fer með þjóð-
leg gamanmál.
- Helga Rós Indriðadóttir og
Margrét Stefánsdóttir syngja.
- Kristján Stefánsson og Kristján
B. Snorrason leika á harmoniku
og stjórna fjöldasöng.
- Að lokinni kvöldvöku verða
eyjaferðir og Jónsmessunætur-
ganga eins og veður leyfir.
Laugardagur 24. júní:
10:00 Félagsmót hestamannafé-
lagsins Svaða á Hofsgerbisvelli.
14:00 Knattspyrnuleikur U.M.F.
Neista og Magna, Grenivík.
Sungið við stuðlabergið í Staðar-
bjargavík:
16.30: Fánareið hestamannafé-
lagsins Svaða.
17:00 Karlakórinn Heimir syng-
ur.
- Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur.
- Þorkell Jóelsson leikur á horn.
Varðskipið Óðinn tekur áhorf-
endur um borð og liggur fyrir
framan víkina ásamt öðrum bát-
um.
18:00 Karlakórinn Heimir ríður
syngjandi niður ab Pakkhúsinu.
- Atriði tengd undirbúningi
væntanlegs Vesturfarasafns.
Skemmtun í félagsheimilinu Höfða-
borg:
20:00 Karlakórinn Heimir flytur
söngdagskrá.
- Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur.
- Árni Tryggvason fer með þjóð-
leg gamanmál.
- Kristján B. Snorrason leikur á
harmoniku og stjórnar fjölda-
söng.
- Heiðursgestur kvöldsirs flytur
ávarp.
23:00 Dansleikur fram eftir nóttu
með Ártúnabandinu.
Miðapantanir fyrir kvöldvöku í
Pakkhúsinu og skemmtun í
Höfðaborg í síma: 453-7310.
„Sætaferðir" eru í hestaferð, sem
farin er á laugardagsmorgni frá
Sauðárkróki meb TOPPHESTUM
s.f. Sími: 453-5828. ■
Leiðrétting
í minningargrein í gær um Há-
kon Kristinsson kaupmann féll
út hluti setningar. Rétt er efnis-
greinin í heild þannig:
Systkini Hákonar eru Guðrún
Sigríöur Kristinsdóttir húsfreyja
í Hvammi á Landi, gift Eyjólfi
Ágústssyni, refaskyttu og sýslu-
nefndarmanni. Eiga þau sex
börn, 15 barnabörn og 4 barna-
barnabörn. Guðni Kristinsson,
hreppstjóri í Skarði, kvæntur
Sigríði Theódóru Sæmunds-
dóttur. Eiga þau tvö börn, átta
barnabörn og eitt barnabarna-
barn. Laufey Guðný Kristins-
dóttir, gift Einari Eiðssyni
skipasmið. Er hann látinn. Eiga
þau þrjú börn og eitt barna-
barn.
Beðist er velvirðingar á þess-
um leiðu mistökum. ■
DAGBÓK
Fimmtudaqur
8
• * '
juni
159. daqur ársins - 206 daqar eftir.
23. vika
Sólris kl. 3.08
sólarlag kl. 23.47
Dagurinn styttist um
4 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppnin fellur niður í
Risinu í dag.
Næsta ferb félagsins verður
miðvikudaginn 14. júní kl. 18
frá Risinu. Ekinn Bláfjallahring-
urinn, stutt ganga á Strompinn
í hrauninu. Fararstjóri Sigurður
Kristinsson. Upplýsingar og
miðaafhending á skrifstofu fé-
lagsins, s. 5528812.
I dag, kl. 9.30 til 16, veröur
sýning á ýmsum smá hjálpar-
tækjum til ab auðvelda sjálfs-
hjálp í daglegu lífi, fengin frá
Hjálpartækjabanka RKÍ og
Sjálfsbjargar. Sýningin er í
kaffistofu F.E.B. (inn af skrif-
stofu), Hverfisgötu 105. Gjörið
svo vel og lítið inn.
Fyrirlestur á vegum Stofn-
unar Siguröar Nordals
Prófessor Kirsten Wolf flytur
opinberan fyrirlestur um
skjaldmeyjar á Vínlandi í boði
Stofnunar Sigurðar Nordals, í
dag fimmtudag, kl. 17.15 í
stofu 101 í Lögbergi, húsi laga-
deildar Háskólans.
Fyrirlesturinn kallast „Amaz-
ons in Vínland" og fjallar eink-
um um Freydísi Eiríksdóttur og
lýsingu á Vínlandsför hennar í
Grænlendinga sögu og Eiríks
sögu rauða. Fyrirlesturinn verð-
ur fluttur á ensku, en á undan
skýrir Kirsten efni hans á ís-
lensku.
Dr. Kirsten Wolf er prófessor
í íslensku við Manitobaháskóla
í Winnipeg.
Myndbandamaraþon í
Norræna húsinu
Föstudaginn 9. júní mun
bókasafn Norræna hússins
standa fyrir 24 klst. mynd-
bandamaraþoni. Sýnd verða:
a) Myndbönd sem framleidd
hafa verið sérstaklega fy'rir ungt
fólk.
b) Myndbönd sem ungt fólk
á Norðurlöndunum hefur sjálft
staðið ab.
Dagskráin hefst á morgun kl.
14, en henni lýkur laugardag-
inn 10. júní kl. 14.
Norræna húsið verður öllum
opið og abgangur er ókeypis.
Golf-kaffi og vöfflur
Golfklúbburinn Dalbúi, Mið-
dal viö Laugarvatn, hefur opið
hús í klúbbhúsi sínu í Miðdal
laugardaginn 10. júní. Kaffi og
vöfflur verða á boðstólum og
einnig verður tekiö á móti nýj-
um félögum og starfsemin
kynnt. Einnig geta menn skráð
sig hjá Ómari í síma 5545750
og HilmariJ síma 4861245.
Ingibjörg Siguröar og
Soffíudóttir heldur
tvær sýningar
Ingibjörg Siguröar og Soffíu-
dóttir opnar myndlistarsýningu
í Djúpinu, Hafnarstræti 15
(veitingahúsið Hornið), laugar-
daginn 10. júní kl. 17.
Verkin, sem hún sýnir, eru
unnin með olíukrít.
Ingibjörg er leirkerasmiður að
mennt og útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands áriö 1976. Hún fékk styrk
frá listamiðstöbinni í Sveaborg
í Finnlandi og dvaldi á gesta-
vinnustofu fyrir norræna
myndlistarmenn í Hasselby
Slott í Stokkhólmi 1987. í Sví-
þjób var hún gestanemi við
Konstfackskolan í Stokkhólmi
og útskrifaðist þaðan úr málm-
smíöadeild árið 1988.
Auk sýningarinnar í Djúpinu
verða nokkur verka hennar til
sýnis á Bílaverkstæði Hermanns
S. Ágústssonar, Súöarvogi 40.
Szymon Kuran, fiðluleikari
og borgarlistamaður, leikur við
opnun beggja sýninganna. Á
bíjaverkstæöinu íd. 14 og kl. 17
í Djúpinu.
Sýningin i Djúpinu stendur
yfir til 1. júlí n.k. og á bílaverk-
stæöinu til 10. júlí.
Ingibjörg Sigurbar og
Soffíudóttir.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavlk frá 2. tll 6. júnf er I Hraunbergs apótekl
og Ingólfs apótekl. Það apótek sem fyrr er nefnt
annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 aö kvöldl tll kl.
9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudög-
um. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu eru
gefnar I slma 18888.
Neyðarv kt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórháliðum. Símsvari
681041.
Hafnarfjörðun Hafnarfjarðar apólek og Norðurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dógum frá kl. 9.00-18.30 og til skipt-
is annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar i símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunadíma búða. Apólekin skiplast á sína
vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu.
Á kvöldin er opið i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu,
til kl. 19.00. Á helgidögum er opið Irá kl. 11.00- 12.00 og
20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyljalræðingur á bakvakt.
Upplýsingar eru gefnar í sírra 22445.
Apótek Keflavlkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga Irá kl. 8.00-
18.00. Lokað í hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga 61 kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Qarðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9. 0-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGIMGAR
1. júnt 1995
Mánabargreibslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 12.921
1/2 hjónalífeyrir 11.629
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega 23773
Full tekjutrygging örorku I ífeyrisþega 24.439
Heimilisuppbót 8.081
Sérstök heimilisuppbót 5.559
Barnalífeyrir v/1 barns 10.794
Meblag v/1 barns 10.794
Mæbralaun/febralaun v/1 barns 1.048
Mæbralaun/febralaun v/ 2ja barna 5.240
Mæbralaun/febralaun v/ 3ja barna eba fleiri 11.318
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaba 16.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaba 12.139
Fullur ekkjulífeyrir 12.921
Dánarbætur í 8 ár (v/ slysa) 16.190
Fæbingarstyrkur 26.294
Vasapeningar vistmanna 10.658
Vasapeningar v/ sjúkratrygginga 10.658
Daggreibslur
Fullir fæðingardagpeningar 1.102,00
Sjúkradagpeningar einstaklings 552,00
Sjúkradagp. fyrir hvert barn á framfæri 150,00
Slysadagpeningar einstaklings 698,00
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri 150,00
GENGISSKRÁNING
7. júnf 1995 kl. 10,57
Opinb. vlðm.gengl Geng!
Kaup Sala skr.funda
Bandarfkjadollar......63,62 63,80 63,71
Sterlingsþund........101,18 101,44 101,31
Kanadadollar..........46,01 46,19 46,10
Dönsk króna..........11,558 11,596 11,577
Norsk króna......... 10,130 10,164 10,147
Sænsk króna...........8,812 8,842 8,827
Finnskt mark.........14,738 14,788 14,763
Franskur frankl......12,834 12,878 12,856
Belgfskur franki.....2,1948 2,2022 2,1985
Svissneskur franki....54,79 54,97 54,88
Hollenskt gyllini.....40,31 40,45 40,38
Þýsktmark.............45,10 45,22 45,16
ítölsk líra.........0,03886 0,03903 0,03894
Austurrfskur sch......6,411 6,435 6,423
Portúg. escudo.......0,4285 0,4303 0,4294
Spánskur peseti......0,5214 0,5236 0,5225
Japanskt yen.........0,7514 0,7536 0,7525
irsktpund............103,21 103,63 103,42
Sérst. dráttarr.......99,14 99,54 99,34
ECU-Evrópumynt........83,42 83,70 83,56
Grisk drakma.........0,2808 0,2818 0,2813
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELG ARPAKK AN A
OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar