Tíminn - 21.06.1995, Side 2
2
Wimmn
Miðvikudagur 21. júní 1995
Tíminn
spyr...
Kemur til greina fyrir al-
menning a& hunsa Shell
vegna olíuborpallsins Brent
Svavar Gestsson, alþingis-
ma&ur Alþýöubandalags:
Ja, aubvitaö veröur hver og
einn aö gera þaö upp fyrir sig,
þaö kemur til greina aö menn
taki á því, hver fyrir sig. Hins
vegar finnst mér sem Kristinn
Björnsson hafi sýnt lit í mál-
inu og þaö er einnig umhugs-
unaratriði.
Sævar Gunnarsson, formað-
ur Sjómannasambandsins:
Shell og Skeljungur eru sitt
hvað, hef ég lesið í einhverju
blaöi. Skeljungur er sjálfstætt
fyrirtæki. Hitt er annað mál
aö ég vil ekki ab úrgangi —
svo sem borpöllum meö eitur-
efnum — sé hent í hafið. En
aö hunsa Skeljung á íslandi
fyrir þaö aö breskt fyrirtæki sé
aö losa sig við mengaðan olíu-
borpall í sjóinn; slíkt gæti ég
ímyndað mér að væri líkt og
að hengja bakara fyrir smiö.
Vilhjálmur Egilsson, alþing-
ismabur og forma&ur Versl-
unarrá&s:
Ég tel þaö hæpiö að menn
séu með einhver innbyrðis
samtök um það, hver og einn
hlýtur auðvitaö aö gera þaö
upp viö sig hvaöa aðila hann
skiptir viö. Við höfum aö
sjálfsögðu orðiö vör við þann
þrýsting sem hefur orðiö á
þetta fyrirtæki vegna málsins
og þaö er sjálfsagt aö halda
þeim þrýstingi áfram. Hitt
þykir mér langsótt aö búa til
viðskiptabann á íslenskt fyrir-
tæki vegna þessa.
Þa& er ef til vill ofsagt a& íslensk
fjaliagrös séu allra meina bót, en
þær vísindalegu rannsóknir sem
þegar hafa fari& fram á áhrifum
þeirra á mannslíkamann benda
þó til þess a& þau séu anna& og
meira en kerlingabækur.
Eftir umfangsmikla vöruþróun
hefur fyrirtækib íslensk fjallagrös
hf. nú hafið sölu á fjórum vöruteg-
undum þar sem grösin eru uppi-
staða. Þetta eru hálstöflur, hylki
meb muldum fjallagrösum, húð-
smyrsl og fjallagrasasnafs.
Helstu hluthafar í fyrirtækinu
eru Hvatning hf., Iðntæknistofnun
íslands, Iðnþróunarfélag Norður-
lands vestra og Blönduósbær, en fé-
lagiö á lögheimili á Blönduósi.
Markmið íslenskra fjallagrasa hf. er
að þróa og framleiða nútímalegar
og handhægar neysluvörur úr
hefðbundnum íslenskum lækn-
ingajurtum og markaössetja þær á
íslandi og í öðrum löndum.
í upphafi er áhersla lögð á vörur
með fjallagrösum en vinnsla úr
fleiri jurtum er í undirbúningi.
Vöruþróunin hefur notið styrkja
frá Rannsóknaráði íslands, Fram-
leiðnisjóði landbúnaðarins og
Byggðastofnun, auk þess sem verk-
efnið er liður í „Vöruþróun '94"
sem fjármögnuð er af Iðnlánasjóði
og Iðntæknistofnun. Hefur vöru-
þróunin aðallega farið fram í Iðn-.
tæknistofnun í samvinnu við aðrar
stofnanir og íslensk fyrirtæki.
Fyrirtækib var stofnað fyrir
tveimur árum en hugmyndin varð
til þegar kjarnorkuslysið í Tsérn-
óbyl hafði orðið til þess að fjalla-
grös á meginlandi Evrópu og á
Norðurlöndunum reyndust geisla-
virk og óhæf til manneldis. Við
þetta jókst mjög eftirspum eftir ís-
lenskum fjallagrösum og hafa 3-5
tonn af þeim verið flutt úr landi á
hverju ári undanfarin sex ár.
Auk þess að vera algjörlega laus
við geislavirkni má heita að ís-
lensku grösin séu laus vib mengun-
arefni. Sem dæmi um þetta má
nefna að í fjallagrösum frá Finn-
landi og Sviss er 10-100 sinnum
meira af blýi en í þeim íslensku.
A kynningarfundi, sem íslensk
fjallagrös hf. efndu til í Dillonshúsi
í Arbæjarsafni í gær, vakti fjalla-
grasasnafsinn ekki síst athygli.
Alkóhólmagnið er 38% en sterkur
fjallagrasakeimur er þó það sem
gerir þennan drykk afar sérstæðan.
I fyrstu verður hann aðeins seldur á
litlum glösum í Leifsstöð, en verði
viðtökumar góðar má búast við því
að síðar verði hann seldur á venju-
legum áfengissölustöðum.
Leiöbeiningar fyigja þeim fjalla-
grasavörum sem sala er nú að hefj-
ast á. Þannig eru Fjallagrasahylkin
talin holl fæðubót. í þeim er rnikið
af steinefnum, s.s. járni, og trefjum,
enda eiga þau að bæta meltinguna.
Soprano-hálstöflur eru sykur-
lausar. í þeim er seyði af fjallagrös-
um sem mýkir hálsinn. Töflurnar
eru framleiddar hjá Ópal, enda líkj-
ast þær hinu víðfræga „ópaii", að
öðru leyti en því ab bragðið er
mildara og fjallagrasabragbið ríkj-
andi.
Þá eru húbsmyrslin ótalin. Alda-
gömul hefö er fyrir notkun fjalla-
grasa í smyrsl og bakstra, enda eru
grösin bæði græðandi og mýkjandi.
Sagt var...
Af menningu
„... Þab fara fleiri í leikhús í Reykjavík
en á alla knattspyrnu- og handbolta-
leiki ársins samanlagt."
Þórhallur Sigurósson leikstjóri í BSRB
tíbindum.
Tilbúin ri&a
„En ég reyndi að hafa eins gaman af
þessari bölvabri ribu og ég gat. Þab
kom hingab til mín, meban á þessum
ósköpum stób, einhver blabasnakkur
og ætla&i ab velta sér upp úr þessu. Þá
sagbi ég vib hann ab ég hefði ekki
nennt ab búa og reynt ab koma mér
upp ribu. Ég hefði tekið eina rolluna
og hellt í hana slurk af brennivíni. Ég
hefði svo kallað til Rögnvald dýralækni
í Bú&ardal til ab skoba rolluna og þá
hefbi hún slagab dálítib til, en það eru
einkenni ribuveikinnar ab féb slagar..."
Steinólfur Lárusson í Ytri-Fagradal í bún-
abarblabinu Frey.
Betra seint en aldrei
„Ég hef aldrei stundab íþróttir um æv-
ina".
Anna Kristjánsdóttir sem tók 94 ára göm-
ul þátt í Kvennahaupinu. Mogginn í gær.
Helgi argasta kvennalistakona
„Þrátt fyrir þessi orb telur Helgi sig af-
skaplega jafnréttissinnaban og hefur
jafnvel fundib skýringu á því misrétti
sem konur hafa búib vib. Hann sakar
karlmenn um a& hafa í krafti aflsmunar
raskað því góða jafnvægi sem hefur
ríkt og hljómar þá eins og argasta
kvennalistakona."
Kolfinna Baldvinsdóttir og Jóhanna Vil-
hjálmsdóttir sem nú eiga í kostulegri rit-
deilu vib Helga Hálfdanarson um jafn-
rétti.
Heffbi betur litib út
„Ég hélt ab þab væri jarbskjálfti eba
komið eldgos. Ég bara bab fyrir mér
þegar ég fór fram. Það skalf allt og titr-
abi og hvinurinn var rosalegur. Mér
fannst þetta alveg hræðilegt og datt
ekki í hug ab líta út um gluggann. Ég
hefbi betur gert þab."
Þuríbur Erla Erlingsdóttir sem varb fyrir
árás Scania vörubifreibar um mibja nótt.
DV í gær.
í heita
pottinum...
Þrálátur orðrómur hefur verið á sveimi um
ab Sparisjóður Mývetninga hafi veitt Hall-
dóri Jóhannssyni 20 milljóna króna
ábyrgb, sem tryggingu fyrir hluta þeirra
40 milljóna sem Halldór ábyrgbist gagn-
vart HSÍ vegna miðasölu á HM í hand-
knattleik. Heimamönnum finnst mörgum
ab þær séu heldur kaldar kvebjurnar sem
þeir fá „að sunnan" og að menn keppist
vib ab láta þá líta út eins og hálfgerba
kjána. Fyrst saki Sigrún Stefánsdóttir þá
um ab vera allir saman hálfgerbir lananib-
ingar, sem reki fé á gróburlausa afrétti, og
nú áfellist menn þá fyrir ab rábstafa þeim
litlu peningum, sem í sveitinni eru, í slíkt
áhættuverkefni sem mibasölu í handbolta.
Mývetningur í heita pottinum fussabi vib
þessu hvoru tveggja og sagbi kjaftasögur í
Reykjavík ekki riba vib einteyming.
•
Lib Vestmannaeyinga, sem lék við KVA í
Mjólkurbikarkeppninni í knattspyrnu á
Eskifirði, lenti í ævintýri á leib sinni meb
flugvél til baka til Vestmannaeyja. Um var
ab ræba 9 manna vél, sem var full. Einn
flugmabur var í vélinni og því sat einn libs-
stjóra libsins í farþegasæti. Þegar vélin var
yfir Vatnajökli, opnabist gluggi vib hlib
liðsstjórans. Skipti engum togum ab vélin
tók mikla dýfu og lét flugmaburinn libs-
stjórann taka vib stýri vélarinnar á me&an
hann lagabi gluggann og eftir þab gekk
allt vel til Eyja. Segir sagan a& andlit þeirra
leikmanna, sem aftur í sátu, hafi verib eins
og búningur Eyjamanna, náhvítur.
•
Eins og fram kom íTímanum í gær mælti
meirihluti Skólamálarábs meb Sigrúnu
Ágústsdóttur í skólastjórastarfib í Austur-
bæjarskóla, en ekki Gubmundi Sighvats-
syni, starfandi skólastjóra. Ljóst er ab fái
Sigrún stö&una, munu einhverjir hinna
reyndari kennara hætta, en kennarar og
starfsfólk var búib ab lýsa yfir stubningi vib
Gubmund. Sigrún mun vera meb meiri
menntun en Gubmundur, en enga stjórn-
unarreynslu, og er altalab í heita pottinum
ab ótti meirihluta Skólamálarábs vib kæru
til Jafnréttisrábs rábi miklu um mebmælin.
Sem kunnugt er var þab kært til Jafnréttis-
rábs þegar rábinn var karlmabur til ab
sinna heilsdagsskólunum í borginni og var
Skólamálaráb þá dæmt brotlegt.
M6/~1
s/OM/A/GJ/9 /A/G/ bDO/?//,
/f/LTJF T4K4
POAM//A/ S/MV /