Tíminn - 21.06.1995, Qupperneq 4
4
Mibvikudagur 21. júní 1995
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: ]ón Kristjánsson
Ritstjórn oq auqlýsinqar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík
Sími: 563 1600
Símbréf: 55 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf.
Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk.
Brent Spar og
Skeljungur
Forsvarsmenn Skeljungs hafa undanfarna daga reynt
með máttleysislegum hætti að aðgreina sig frá móður-
fyrirtækinu Shell International vegna þeirra áforma
þess að sökkva Brent Spar olíupallinum í hafið suður af
íslandi. Alþjóðleg alda reiði og hneykslunar hefur skoll-
ið á Shell fyrirtækinu og jafnt opinberir aöilar sem
einkaaðilar víða í Evrópu hafa beint viðskiptum sínum
til annara fyrirtækja í mótmæalaskyni við ákvörðun
Shell.
Á það hefur verið bent að hundruð úreltra olíupalla
séu í Norðursjó og ef heimilað er að sökkva einum
þeirra í djúpið, sé komið fordæmi sem erfitt geti veriö
að sporna gegn. Verði Brent Spar sökkt suður af íslandi
er það stórfengleg bein atlaga að hagsmunum íslend-
inga auk þess sem það er fullkomlega óásættanleg um-
gengni viö náttúruna. Tveir aðilar eru ábyrgir. Annars
vegar breska ríkisstjórnin og hins vegar Shell olíufélag-
ið. Harðorð mótmæli hafa veriö send breskum stjórn-
völdum frá Guðmundi Bjarnasyni umhverfisráðherra.
Alþingi hefur mótmælt þessari aðgerð í sérstakri þing-
ályktun. Svipaður pólitískur þrýstingur hefur komið frá
stjórnvöldum víðs vegar að úr Evrópu og sumir áhrifa-
.miklir stjórnmálamenn hafa beinlínis gert sér far um að
mótmæla persónulega við breska forsætisráðherrann.
Þetta virðist ekki ætla að duga til.
Hinn aðilinn sem ber ábyrgðina ef þessi umhverfis-
glæpur verður framinn er Shell olíufélagið. Skaði félags-
ins er þegar orðinn mikill vegna mótmælaaðgerða, af-
pantana og sölumissis og á enn eftir að verða meiri. Fé-
lagið telur sér því greinilega mikinn ávinning af því að
losa sig viö úrelta borpalla með þessu móti í stað þess að
gera það með dýrari en umhverfisvænni hætti. Her-
kostnaðurinn af Brent Spar er augljóslega réttlættur
með því að verið sé að ryðja brautina fyrir framtíðarúr-
eldingu borpalla félagsins.
Shell á stóran hlut í Skeljungi á íslandi og olíuvörur
Skeljungs eru seldar undir merki móðurfyrirtækisins.
Forstjóri Skeljungs hefur því að vonum áhyggjur af því
að reiði almennings beinist gegn fyrirtæki sínu eins og
gerst hefur um alla Evrópu. Skeljungur hefur því lýst sig
andvígt því að borpallinum sé sökkt, en þó hefur það
ekki borið fram formleg mótmæli við móðurfyrirtækið
eða yfirleitt sett fram neitt handfast til að þrýsta á um
að ákvörðuninni verði breytt. Um augljóst ýfirklór er að
ræða og á meðan Skeljungur grípur ekki til róttækari
aðgerða er engin ástæöa til að ætla að hugur fylgi máli.
Viðskipti við Skeljung eru því viðskipti við Shell og
óbeinn stuðningur við glæpsamleg áform þess um að
sökkva olíupallinum. Það veldur því óneitanlega nokkr-
um vonbrigðum að sjá frétt Tímans í gær þar sem fram-
kvæmdastjóri LÍÚ kveðst ekki tilbúinn að ljá máls á því
aö fá útgeröir til að svo mikið sem ræða hvort hætta
eigi viðskipum við Skeljung. Slíkt hlýtur þó ab koma til
álita á íslandi eins og annars staðar, hvaða niðurstöðu
sem menn kunna svo að komast að í þeim efnum.
Sú hálfvelgja, sem forsvarsmenn Skeljungs eru að
reyna að selja þjóðinni með því að þykjast vera að beita
þrýstingi sem síðan er ekkert nema látalætin, er auðvit-
að móðgun í ljósi þeirra hagsmuna sem í húfi eru. Á
meðan Skeljungur gerir ekkert raunhæft til að hafa
áhrif á móðurfyrirtækið og á meðan Shell er stór eign-
araðili aö Skeljungi hlýtur Skeljungur að vera fulltrúi og
tákn Shell International á íslandi.
Verkalýðstónn í heildsalanum
Þá er upplýst ab Ingi Björn Al-
bertsson er 20 árum á eftir tím-
anum í þjálfun og er því löngu
kominn úr tísku. Þess vegna var
Ingi Björn látinn víkja sem
þjálfari fyrstu deildarlibs Kefla-
víkur. Þetta upplýsir formaður
knattspyrnudeildarinnar okkur
um í Tímanum í gær. Raunar
virbist röggsemi af þessu tagi
vera að ganga í knattspyrnu-
stjórnum þessa dagana því ný-
lega var Marteinn Geirsson,
þjálfari Fram, látinn fara meb
svipubum hætti.
Umræban, sem spunnist hef-
ur um uppsagnir þessara þjálf-
ara, er nokkub kunnugleg. Svip-
ub umræða hefur nefnilega far-
ib fram í tengslum vib þær efna-
hagsþrengingar sem íslendingar
hafa gengib í gegnum á umliðn-
um árum meb tilheyrandi
fjöldauppsögnum, atvinnuleysi
og tekjubresti heimilanna.
Þannig hefur Ingi Björn Alberts-
son opnab umræbuna um
starfsöryggi þjálfarastéttarinnar
á íslandi og bent á nauðsyn þess
ab séttarfélag þjálfara taki málib
upp á sína arma. Garri fær ekki
betur heyrt en hressilegur
verkalýbsforingjatónn sé nú
kominn í heildsalann og óneit-
anlega vaknar sú spurning
hvort Ingi Björn beri næst niður
í verklýbsgeiranum.
Ems og alþjób þekkir hefur
svipub umræba um starfsöryggi
farib fram undanfarna daga
vegna fyrirvaralítilla uppsagna
fiskvinnslufólks sem missti
vinnuna vegna hráefnisskorts
sem til kominn var vegna sjó-
mannaverkfallsins.
Starfsör-
ygg«
variö
Fróblegt er ab
ab íhuga þá
stabreynd ab
, . engum verka-
ngi )orn. lýbsleibtogan-
um virbist hafa dottib í hug ab
segja þab sem heildsalinn, þjálfar-
inn og fyrrum þingmaburinn Ingi
Björn Albertsson sagði í sjónvarp-
svitali: „Ef uppsagnir eins og þessi
eiga ab fá ab vibgangast óátaldar
þurfa menn ekki ab búast vib ab
hægt verbi ab fá þjálfara til starfa
í deildinni." Þetta hefbu Björn
Grétar, Jakinn, Benedikt, Snær, og
þau öll hin sem eru í verkalýðs-
forustunni aubvitab átt ab segja
um fiskvinnsluna, en sögbu ekki.
Garri veit raunar ab svarið ligg-
ur í því ab verkalýbsforustan er
GARRI
ekki alltaf í boltanum, en þeir
sem eru alltaf í boltanum lúta allt
öbrum lögmálum en allir hinir.
Þess vegna er það ekki tiltökumál
þó nokkur þúsund fiskverkakon-
um sé sagt upp, það er sjálfsagt
mál. En ef þjálfara er sagt upp er
„vegið ab starfsöryggi stéttarinn-
ar". Nú vill Garri ekki taka af-
stöbu meb eba á móti því hvort
segja átti Inga Birni eða Marteini
upp eba hvort þarna rébi abeins
stórmennskubrjálæbi stjórna
deildanna, sem vildu fá að ráða
meiru um hverjir fengju að spila
og hverjir ekki. Hins vegar er rétt
ab benda á ab þeir fá öbruvísi
mebferð en fiskverkafólkib ab því
leyti ab þeir fá áfram borgab sam-
kvæmt samningum um talsverb-
an tíma eftir ab þeir eru hættir ab
vinna. Þab er eitthvab annab en
fiskvinnslufólkib.
íþróttahagkerfiö
Þab virðist nefnilega ekki þurfa
ab spara ef menn eru alltaf í bolt-
anum. Boltinn er orbinn ab um-
fangsmikilli starfsgrein sem lýtur
sínum eigin markabslögmálum.
Þetta íþróttahagkerfi er heill
heimur út af fyrir sig sem lifir
sjálfstæðu skattlausu „rassvasa-
bókhalds-lífi" og tengist þá ab-
eins efnahagskerfi þjóbarinnar ef
veriö er að útdeila almannafé til
íþróttafélaga og íþróttamann-
virkja og íþróttastarfsemi hvers
konar.
Yfirlýsingar Inga Björns um ab
brýnt sé aö koma á almennum
samningum til að tryggja starfsör-
yggi þjálfara er til þess fallið að
koma íþróttahagkerfinu undir
opinbert eftirlit og eölilegar bók-
haldsreglur því í framhaldinu
verba líka settar almennar reglur
um starfskjör leikmanna, upp-
sagnarfresti, greiðslur og sporslur.
Mikilvægast af öllu er þó aö nú
hyllir undir aö nýr verklýösfor-
ingi sé að hasla sér völl. Verka-
lýöstónninn í Inga Birni hljómar
eins og tónlist í eyrum fisk-
vinnslufólks enda boðar hann
bjartari tíð með blóm í haga í
réttindamálum.
Garri
Ein lítil leiðrétting
Fyrir kemur að það vekur undrun
hve óskaplega áherslu sumt fólk
leggur á að ná kosningu á Alþingi.
Eins og starfið er nú erfitt, krefjandi
og vanmetið og hörmulega að þing-
mönnum búiö á alla lu'nd.
Raunin er enda sú að það er ekki
nema fórnfúst hátekjufólk sem
kjósendur velja og treysta til að fara
með mál sín á löggjafarsamkundu
lýðveldisins.
Það eru fyrir löngu alkunn sann-
indi að þeir, sem leggja það á sig fyr-
ir kjósendur sína að þiggja sæti á Al-
þingi, lækka mikið í launum miðað
við kaupið sem þeir fá áður en þeir
gerast þingmenn og slíku hæfileika-
fólki er greitt á öllum öðrum vinnu-
stöðum.
Því er það að þingmönnum verð-
ur tíðræddara um léleg launakjör
sín og bága starfsaðstöðu en flest
mál önnur sem stjórn lands og
þjóðar varðar. Það sem meira er og
lýsir vandamálinu betur en flest
annað er að um þetta eru engar
deilur meðal þingmanna.
Ábyrgöin
Samanburöarfræðin eru mikið
brúkuð til að sýna fram á bág launa-
kjör hinna réttkjörnu. Aldrei eru
samt tilgreindar stéttir eða kjara-
samningar þeira sem verið er að
bera sig saman við. Það er rætt um
þá sem bera mikla ábyrgð og gegna
mikilvægum störfum. Eitthvaö er
minnst á embættismenn sem marg-
ir hverjir hafa komið sér aðdáanlega
vel fyrir í kerfunum og þiggja laun
og fríðindi úr lófum stjómmála-
mannanna, oft með óbeinum
hætti.
Síðasta verk Alþingis á sumar-
þinginu var aö leiðrétta laun og
kjör þingmenna ofurlítið. Það var
gert vegna þess hve nýkjörnir þing-
menn lækkuöu mikið í launum
þegar þeir skiptu um vinnustað. Svo
þarf alltaf að leiðrétta mikið vegna
þess hve þingmenn, forsetar og ráö-
herrar eru komnir langt afturúr við-
miðunarembættum.
Þó er til dæmi um þingmann sem
fékk kjör sín bætt um helming viö
þaö að setjast á þing og láta af fyrra
starfi á meðan.
Undantekningin er Ágúst Einars-
son, sem hafði um 145 þúsund
króna mánaðarlaun sem prófessor
við Háskóla íslands. Af þeim tekjum
Á víbavangi
bar hann kostnað af ferðalögum
milli vinnustaðar og heimilis og
ýmsu því öðru sem reiknað er með
að launþegar borgi af kaupinu sínu.
í nýja starfinu ber Ágúst helmingi
meira út býtum og þykir samt
mörgum að hann búi við léleg kjör.
Ef hér er rangt meb farið mun und-
irritaður gleypa þaö allt ofan í sig
með glöðu sinni og birta leiðrétt-
ingu sé þess óskað.
Hæg heimatök
í nýju lögunum um kjör þing-
manna var jafnframt gerð smávægi-
leg leiörétting á skattalögunum.
Margháttaður kostnaður, sem fylgir
þingsetunni og þingmenn fá eðli-
lega greiddan, er gerður frádráttar-
bær frá skatti,-en er framtalsskyldur.
Hér er um ab ræða risnu og bóka-
kaup og ráðstefnusókn og fleira sem
íþyngir þeim sem tekið hafa á sig þá
sjálfsafneitun og ábyrgð að leyfa ab-
dáendum ab kjósa sig á Alþingi ís-
lendinga.
Hér er fundin leið til að drýgja
þingmannalaunin án þess að
hækka kaupið nema ab óverulegu
leyti. Það er að veita þeim skattfríö-
indi og til þess eru hæg heimatökin,
því svo heppilega vill til að það eru
einmitt þeir sjálfir sem semja og
samþykkja skattalög.
í sambandi við samningu skatta-
laga hefur siðgæðiö aldrei verið aö
bögglast fyrir brjósti þeirra sem þar
um véla og er engin ástæða til ab
það komi frekar við sögu þegar
þingheimur samþykkir skattafríð-
indi sjálfum sér til handa.
Það er gleðilegt að nýkjörið þjóð-
þing skuli hafa döngun í sér til ab
bæta kjör fulltrúanna, svo nánasar-
leg sem þau voru og eru.
Þingmenn hafa fréttir af glás af
fólki sem starfar á vegum hins opin-
bera sem býr við boðleg og æskileg
kjör. Þar finna þeir viðmiðunarstétt-
ir sínar og er það vel á þeim glæsi-
legu uppgangs- og velmegunartím-
um sem stjórnvitringar vorir lifa ná
á.
Eins og endranær veit þingheim-
ur nákvæmlega hvað hann er að
gera og er tímasetning kjarabót-
anna frábær. Allir verba búnir að
gleyma þeim þegar fjárlagahallinn
verður samþykktur í haust, og heil
eilífö er til næstu kosninga.