Tíminn - 21.06.1995, Page 9
Miðvikudagur 21. júní 1995
Wfymwm
9
Kampavínsframleiðendur í hér-
aðinu Champagne í Frakklandi
hafa varað við því ab ólíklegt er
að þeim takist að fullnægja
væntanlegri eftirspurn eftir
hinu eina sanna kampavíni
þegar jaröarbúar fagna alda-
mótunum næstkomandi.
Framleiðslugeta héraðsins er
325 milljón flöskur á ári, og
ekki eru miklar birgðir til á lag-
er. Hins vegar hefur eftirspurn
eftir kampavíni farið stöðugt
vaxandi. A níunda áratug ald-
arinnar jókst hún um 8% ab
meðaltali á ári. Árið 2.000 er
reiknað með því, haldi eftir-
spurnin áfram ab aukast með
sama hraða, að hún verði orðin
um 380 milljón flöskur. Aug-
ljóst er að það dæmi gengur
ekki upp.
Margir eru þó forsjálir og
hafa þegar pantað sinn skammt
af kampavíni, sem á að afhend-
ast á gamlársdag árið 1999. Þeir
sem þetta gera greiða fyrir
pöntunina á verölagi dagsins í
dag, en fullvíst má telja að
veröið á kampavíni hljóti að
hækka gífurlega fyrir aldamót-
in. Þegar þar að kemur geta
hinir forsjálu því væntanlega
grætt stórar fúlgur á því að selja
pöntunina öðrum, sem ekki
hafa verið jafn forsjálir. ■
Richard Leakey.
Richard Leakey heldur á ný miö:
Daniel Arap Moi.
Alþjóðleg her-
ferð gegn fátækt
Reynir að fella
stjómina í Kenýa
London — Reuter
Oxfam, sem er alþjóöleg
hjálparstofnun sem hefur höf-
uðstöðvar í Bretlandi, hóf í gær
alþjóölega herferð gegn því sem
hún nefndi „hina þöglu helför
fátæktarinnar í heiminum."
„Fátæktin í heiminum er ekki
aðeins siðferðilega röng og brot
á þeim réttindum sem nefnd
eru í Sáttmála Sameinuðu þjób-
anna," segir í yfirlýsingu Davids
Bryers, yfirmanns stofnunar-
innar. „Hún er líka óhagkvæm
efnahagslega, því hún gerir að
engu getu og hæfileika meira en
fjórbungs allra þeirra sem búa á
þessari jörð."
Oxfam er sjálfstæð hjálpar-
stofnun sem starfar í 70 lönd-
um, einkum í þriöja heiminum
svonefnda.
í tilefni af því, að þann 26.
júní nk. eru liðin 50 ár frá því ab
Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna
og Mannréttindayfirlýsingin
voru undirrituö, hvetur stofn-
unin ríki heims til ab bæta lífs-
skilyrði fólks og auka þátttöku
almennings. ■
Fornleifafræöingurinn kunni, Ri-
chard Leakey, hefur gengib til liðs
við nýstofnuð samtök stjórnar-
andstæðinga í Kenýa sem stefna
að því að ná meirihluta í kosning-
unum og koma Daniel arap Moi
úr forsetastólnum, en kosningar
eiga ab fara fram í landinu árið
1997. Munu nýju samtökin leggja
áherslu á að gagnrýna mannrétt-
indabrot og spillingu stjórnvalda.
Viðbrögð forsetans við þessum
tíðindum hafa verið all harkaleg,
en af viðbrögðunum virðist aug-
ljóst að hann óttast samkeppnina.
Ekki er langt síðan Leakey sagði
skyndilega af sér formennsku í
Náttúruverndarstofnun Kenýa.
Hann hefur undanfarin ár gagn-
rýnt harðléga spillinguna í landinu
og þar með bakað sér óvild forset-
ans, sem áður fyrr var mikill að-
dándi og stuðningsmaður Leakeys.
Eftir að Leakey tilkynnti um
stofnun samtakanna þann 7. maí
sl. hefur Moi kallaö hann öllum
illum nöfnum, sagt hann vera
kynþáttahatara, nýlendusinna,
guðleysingja, heimskan og óhæf-
an stjórnanda — og það sem verst
er af öllu: hann er hvítur.
Nokkrum dögum eftir stofnun
flokksins ruddust fylgismenn Mo-
is inn á heimili Leakeys og ætluðu
að krefjast þess að hann hypjaði
sig úr landinu. Leakey reyndist
ekki vera heima. Moi hefur auk
þess hótað því að banna samtök-
in og hvetur íbúa landsins til að
lesa bók, sem heitir „Richard Lea-
key, blekkingameistarinn" — en
þar er honum lýst sem undirróð-
ursmanni sem gengur hagsmuna
Vesturlanda.
Nú í byrjun júní komu svo
fram, í málgagni stjórnar Mois,
Flóöbylgja hryöjuverka gceti skolliö yfir Rússland:
Rússar varnarlausir
gegn hryðjuverkum
Moskvu — Reuter
Gíslatökumálið í Budenovsk
hefur gert Rússum þaö ljóst að
stríðið í Tjetjeníu er ekki eins fjar-
lægt og það leit út fyrir að vera.
Það getur teygt anga sína til bæja
og borga um allt Rússland nánast
fyrirvaralaust. Viöbrögð Tjernóm-
yrdins forsætisráðherra og
„lausn" hans á málinu, sem fólst
einfaldlega í því að gefa eftir, gæti
einnig valdiö því að flóðbylgja
hryðjuverka skelli yfir í Rússland
áður en langt um líöur.
„Tjernómyrdin leit út eins og
hetja í sjónvarpinu," sagði Kiril
Gostev, verkfræðingur í Moskvu í
gær. „En ef hann talar svona vib
alla hryðjuverkamenn fer hann
að líta út eins og skemmtikraftur í
sjónvarpsþáttum. Þaö er ekkert
fyndið, það er ógnvekjandi."
í dagblaðinu Sevodnja segir ab
Þreyttir rússneskir ferbaiangar á brautarstöö íMoskvu.
uppreisnarmennirnir í Tjetjeníu
geti nú farib aö undirbúa sig und-
ir langvarandi skæruhernað í Kák-
asus-héruðunum. „Þessi hernaður
verður sérstaklega grimmilegur
nú eftir ab Basajev hefur sýnt
fram á að auðveldasta leiðin til að
ná sínu fram er að ráðast á konur
og börn í staðinn fyrir aö berjast
vib rússneska herinn."
Basajev, foringi árásarmann-
anna sem tóku gíslana í Bu-
denovsk, sagðist hafa mútað rúss-
neskum landamæravörðum til ab
komast leibar sinnar til Bu-
denovsk. Það hefði verið leikur
einn. Upphaflega hefði hann ætl-
að tii Moskvu og það eina sem
kom í veg fyrir þaö var að landa-
mæraveröirnir heimtuðu meira fé
en Basajev var tilbúinn til að
borga.
„E.t.v. var Basajev að ljúga,"
segir í Sevodnja. „En það sem
hann er að segja hljómar mjög
trúveröuglega í rússneskum eyr-
um. Atburðirnir í Budenovsk
sýndu að fjöldi ríkisstofnana eru
aö rotna í sundur." ■
ásakanir á hendur Leakey þar sem
hann var sagður hafa átt leyni-
fundi með Ku Klux Klan hreyfing-
unni og birt var afrit af bréfi frá
hreyfingunni þar sem lýst var ein-
dregnum stubningi vió Leakey.
Bréfið var hins vegar augljós föls-
un, skrifað á frekar lélegri ensku
sem ber þar að auki frekar keim af
breskum málvenjum heldur en að
þaö hafi verið skrifaö í suöurríkj-
um Baridaríkjanna. Þegar þab er
haft í huga að mikill meirihluti
fylgismanna Leakeys er svartur á
höfund geta þessar ásakanir vart
talist annað en hlægilegar.
Engu að síður er nokkuð ljóst
að ákvörðun Leakeys gæti reynst
honum hættuleg. Samtökin eru
mynduð af fjölda manna sem
hafa lengið verið óánægðir með
stjórnmálaástandið í landinu.
Flestir eru þeir menntamenn af
ýmsu tagi, læknar, lögfræðingar
og kennarar. Forsetaefni þeirra
verður að öllum líkindum Paul
Muite, dugmikill lögfræðingur
sem hefur um nokkurt skeiö átt
þingi landsins þar
sæti
sem
hann hefur setið í hópi stjórnar-
andstæðinga. Ljóst er þó að Lea-
key mun gegna lykilhlutverki í
samtökunum, bæöi mun hann
njóta frægbar sinnar við ab afla
þeim fylgis og auk þess hefur
hann langa reynslu af því að afla
fjár á bak við tjöldin — þykir
hann mjög harbfylginn á því
sviði og hefur jafnan náð góðum
árangri.
í gær, þriðjudag, sóttu svo
Muturi Kigano, sem er formaður
flokksins, og Leaky, sem gegnir
embætti aöalritara, formlega um
að samtökin verbi löglega skráð í
landinu. Tímasetningin er sér-
staklega valin með tilliti til þess
ab eftir fimm vikur, þann 24.
júlí, verður haldinn fundur í Par-
ís þar sem fulltrúar stjórnarinnar
í Kenýa ræða vib mlltrúa þeirra
landa sem hafa styrxt Kenýa með
fjárstuðningi. Þegar sótt er um
skráningu stjórnmálasamtaka í
Kenýa hafa þau leyfi til að starfa í
fjórar vikur áöur en ákvörbun er
tekin hvort þau verba bönnub.
Erfitt gæti reynst fyrir Kenýa-
stjórn ab banna flokkinn vilji
þau forbast gagnrýni frá styrktar-
löndunum og eiga þá hugsanlega
á hættu aö missa fjárstubning frá
þeim. ■
Kampavíns-
skortur um
aldamótin
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .