Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 7
Laugardagur 1. júlí 1995
7
Sigrún Eldjárn segir hneykslanlegt hvernig komib
var fram gagnvart fólkinu í Mibhúsum:
Fagnar niðurstöðunni
„Eg fagna þessari niðurstöðu
sem slíkri, en mér finnst
hneykslanlegt hvemig þetta
gekk allt fyrir sig, sérstaklega
ásakanimar sem fólkið í Mið-
húsum varð fyrir. Þær standa
eftir, burtséð frá því hve silfrib
er gamalt," sagbi Sigrún Eld-
jám í gær, þegar Tíminn innti
liana um vibbrögð við aldurs-
greiningu silfursjóðsins.
„Það virðist loks sem búið sé að
ryðja úr vegi öllum gmnsemdum
um að brögð hafi verið í tafli."
Þórarinn Eldjám, bróðir Sig-
rúnar, skrifaði á sínum tíma
greinar, þar sem hann gagnrýndi
ummæli ákveðinna aðila sem
komu að rannsókninni, og
fannst vegið að starfsheiðri föður
síns. Ekki náðist í hann vegna
málsins. ■
Kristján Eldjárn, þá forseti ísiands og fyrrverandi þjóöminjavöröur, skoöaöi uppgröftinn aö Miöhúsum í Egils-
Staöahreppi. Tímamynd: IK
Niöurstaöa danska þjóöminjasafnsins leiöir í Ijós aö silfursjóöurinn,
sem fannst aö Miöhúsum áriö 7 980, er frá víkingatímabilinu:
Miöhúsabóndi sýknaður
Rannsókn danska þjóðminja-
safnsins á silfursjóðnum í Mibhús-
um hefur leitt það í Ijós ab efna-
samsetning silfursins eigi sér hlið-
stæbu í óvefengjanlegum silfur-
sjóðum ffá víkingaöld og að allir
gripimir utan einn beri skýr ein-
kenni víkingaaldarsmíöar. Miklar
deilur hafa veriö um þetta mál og
mörg stór orb látinn falla sem
koma til með ab hafa eftirmála.
Aldurinn dreginn íefa
Það var Þjóðminjaráð sem kynnti
niðurstöðuna á blaðamannafundi í
gær og lagði fram öll gögn í málinu,
en rannsókn danska safnsins hefur
staðið yfir frá áramótum. Ástæða
þess að farið var út í rannsókn þessa
var að einn af starfsmönnum Þjóð-
minjasafnsins, Vilhjálmur Öm Vil-
hjálmsson, dró í efa að sjóðurinn
væri jafn gamall og menn vildu vera
láta og taldi að um nútímasmíð væri
að ræða. Guðmundur Magnússon,
þáverandi þjóðminjavörður, fékk
James Graham-Campbell, þekktan
fomleifafræðing, til að rannsaka
sjóöinn. Niðurstaða hans var að vís-
bendingar séu um að Þjóöminja-
safnið hafi verið blekkt vísvitandi og
að um helmingur silfursins hafi ver-
ið búinn til nýlega.
Samkvæmt tilmælum frá
menntamálaráðuneyti var óskað
eftir því aö silfrið yrði rannsakað af
sérfrcéðingum á Norðurlöndum og
varð danska þjóðminjasafnið fýrir
valinu, og liggur niöurstaða þess nú
fýrir, en af hálfu þjóöminjaráðs vom
jrað þau Iilja Árnadóttir safnvörður
og Helgi Þorláksson dósent sem
höfðu umsjón með rannsókninni.
Brætt og smíbab ab nýju?
Niðurstaðan gengur þvert á niður-
stöðu Giahams-Campbells í öllum
meginatriðum, nema hvað þennan
eina hring varðar. Sérfræöingar
danska safnsins segja þó að silfrið sé
jafngamalt en leitt er að því líkum að
silfrið hafi verib brætt niöur og smíö-
ab úr því aö nýju á 17. eða 18. öld.
Graham-Campbell fann heldur ekki
þær jarðvegsleifar sem þessi síðasta
rannsókn á silfursjóðnum leiddi í
ljós.
Þab kom fram á blaðamanna-
fundinum ab lykillinn að þessari
niðurstöðu er að einn sérfræðingana
fann hliöstæðu við hluti úr silfur-
sjóðnum á norsku safni, en það
hafbi Graham-Campbell ekki tekist.
Þá hefbi danska þjóðminasafnið
haft mun meiri tíma en hann og að-
stæður allar mun betri.
Rannsóknin, sem framkvæmd
var af sérfræðingum danska þjóð-
minjasafnsins, verður greidd af
þjóðminjaráði og samkvæmt kostn-
aðaráætlun mun hún kosta tæpar
18 þúsund danskar krónur.
Eitt af því sem sagt hefúr verið er
að silfursjóðnum hafi verið komið
fyrir í jörðu vegna ferðar Kristjáns
Eldjáms, fýrrverandi foreeta og þjóð-
minjavarðar, á Hérab. í greinargerð
Lilju og Helga segir ab niðurstöðum-
ar bendi til að svo hafi ekki verib.
Sýknabur
í samþykkt þjóðminjaráðs frá því
á fundi sínum í gær kemur fram að
rannsók á sjóðnum gefi ekki tilefni
til að álykta ab blekkingum hafi ver-
ið beitt í tengslum við fund hans og
er Hlynur því hér með sýknaður.
Ráðið lítur nú svo á að með þeim
skýrslum sem nú hafi verið lagðar
fram sé lokið þeirri rannsókn sem
menntamálaráöuneytið lagði til að
yrði gerð þann 12. september síðast-
liðnum.
Mun ekki skaba safnib
Sturla Böðvarsson, formaöur
þjóðminjarábs óttast ekki að þetta
mál muni skaða safriiö út á við. Þab
sé mjög gott að búið sé að skera úr
um aldur silfursjóðsins og þab sé
mikill styrkur fýrir safnið að hafa
þessa hluti innan sinna veggja.
Hvað málshöfðun varðar, sagbi
Sturla að Þjóðminjaráð muni taka á
því máli þegar þar ab kemur.
Þór Magnússon, þjóðminjavörb-
ur sagði ab ekkert hefði verið rætt
um hvort breytingar yrðu á starfs-
mannahaldi í kjölfar þessarar niður-
stöðu.
Hlynur Halldórsson, bóndi og silfursmiöur í Miöhúsum:
„Málshöföun á
leiðinni þrátt fyr-
ir niðurstööuna"
Hlynur Halldórsson, bóndi og
silfursmibur í Mibhúsum, seg-
ist vera mjög feginn, en hótun-
in um málshöfbun standi."Þab
er fyrst og fremst Iéttir að þetta
mál skuli vera komið á hreint.
Sem sannur íslendingur hlýt
ég að telja þab jákvætt að hér
sé ekkert fals á ferðinni eins og
haldið hefur verib fram," segir
Hlynur.
Hann segir niðurstöbuna
engu breyta um framhaldib.
„Það hafa stór orö fallið enda er
líka málshöfðun á leiðinni. Orð-
in hafa verið sögð. Málshöfðun-
inni verður ekki beint gegn Þjóð-
minjasafninu sjálfu, en því verö-
ur sjálfsagt hegnt fyrir þetta mál.
Þetta em fyrst og fremst starfs-
menn innan þessa geira, fyrrver-
andi formaður þjóöminjaráðs,
Olafur Asgeirsson, Vilhjálmur
Örn Vilhjálmsson og Guömund-
ur Magnússon, fyrrverandi þjóð-
minjavörður." Hlynur segir að
málshöfðun þessi muni líta
dagsins ljós á næstunni.
Varðandi þá spurningu, hvort
þetta hafi haft einhver áhrif á
þeirra líf, segir Hlynur: „Það er
ekki þægilegt að vinna þessa
vinnu sem vib stundum hér
með þetta á bakinu. Maður er í
svo persónulegu sambandi við
viðskiptavininn, þar sem maður
er að smíða svo persónulega
hluti. Einhverjir hafa trúaö þessu
upp á okkur og aðrir ekki, en
maður hefur hins vegar fundið
þaö síðustu daga að það hefur í
auknum mæli verið staöið með
manni."
Bændur
Við erum á
leiðinni
Búvélasýningar um allt land
Nýjasti Ferguson mætir á svæðið
Laugard. 1. júlí
Laugard. 1. júlí
Sunnud. 2. júlí
Mánud. 3. júlí
Mánud. 3. júlí
Þriójud. 4. júlí
Þriðjud. 4. júlí
Mióvikud. 5. júlí
Fimmtud. 6. júlí
Fimmtud. 6. júlí
Föstud. 7. júlí
Föstud. 7. júlí
Laugard. 8. júlí
Blönduós, Vélsm. Húnv. 10-14
Varmahlíð, Kf. Skagf. 16-20
Akureyri, Þórshamar 10-19
Fosshóli 10-13
Húsavík, Kf. Þingeyinga 14-18
Ásbyrgi 10-13
Vopnafjöröur 17-21
Egilsstaðir, Bílarog tæki 10-19
Breiðdalsvík 10-14
Höfn, Bílverk 18- 22
Kirkjubæjarklaustur 10-14
Vík, Víkurskálinn 18-22
Hvolsvöllur, Hlíðarenda 10-14
Ingvar
Helgason hf. véladeild
Sævarhöföa 2, SÍMI 525-8000