Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 19

Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 19
Laugardagur 1. júlí 1994 19 Franskar kvikmyndir og breskir jafnaðarmenn Henri Langlois: First Citizen of Cinema, eftir Clenn Mayrent og Georges P. Langlois. Twayne, 346 bls., £ 10,95. Fremst kvikmyndasafna heims þykir Cinematheque Francaise, en stofnandi þess og forstöðumaður í fjóra áratugi var Henri Langlois. „Hann hóf söfnun filma kvikmynda á eigin vegum. í síðari heimsstyrjöld- inni lék hann tveim skjöldum milli stjórnvalda í Vichy og Frjálsra Frakka, tók listina fram yfir smáræði sem föðurlands- hyggju.... Hann kom á fót kvik- myndasafni, sem enginn hafði ráð á, síst hann sjálfur. Vinur hans André Malraux, menning- arráðherra í forsetatíð de Gaulle, vék honum úr starfi for- stöðumanns safnsins, en stúd- entar og kvikmyndagerðar- menn létu ekki af mótmælum fyrr en hann hafði verið aftur kvaddur til starfa." Svo sagði í ritdómi í Financial Times, 27.- 28. maí 1995. „Hann var hár maöur, fremur feitlaginn, meö poka undir aug- um og sýndist alltaf hafa sofið í fötunum. ... Hann keðjureykti og var matmaður mikill. ... Síð- ustu 35 ár ævi sinnar átti hann í ferðum á milli Frakklands og Bandaríkjanna. ... í bók þessari er saga Cinematheque rakin ágætlega vel. Franska kvik- myndasafnið var ekki hið fyrsta: Söfnin í Berlín, Moskvu, London og New York eru öll eldri. En það var hið eina, sem upp reis að frumkvæði eins manns." Saga franskra kvikmynda Republic of Images: A History of French Filmmaking, eftir Alan Williams. Harvard University Press, xiv + 458 bls. „í þessari frásögn af franskri kvikmyndagerö sem í fyrri til- raunum til að gefa yfirlit yfir svið hennar, er lögð áhersla á — þótt ekki einvörðungu — kvik- myndic, sem meira hefur verib ætlab en ab veita áhorfendum Fréttir af bókum dálitla ánægju á kvöldstund. ... Mesta umfjöllun á eftirfarandi síðum hljóta kvikmyndir, sem líkindi eru til að komið hafi fyr- ir sjónir áhorfenda í öbrum en frönskumælandi löndum. ... í bókinni er af ýmsum ástæöum sá dálítið gamaldags háttur á hafður að tilgreina æviatriði kvikmyndagerbarmanna. Varð- andi nokkra þeirra eru þau ann- álar og greining merks framlags til framvindu franskrar kvik- myndagerðar." Svo segir höf- undur í inngangi. Bók þessi er ítarleg og fróðleg, en á stundum rík af smáatrið- um. Og þótt sumir kapítular séu ágætir, einkum upphafskapítul- amir og 9. kapítuli, sem fjallar um fjórða áratuginn, grípa aðrir ekki mjög athygli lesandans. Frelsi, jafnrétti og ...? Values, Visions and Voices: An Antho- logy of Socialism, ritstýrb af Gordon Brown og Tony Wright. Mainstream Pu- blishing, 252 bls., £ 14,90. Bók þessi er samsafn tilvitn- ana í ræbur og rit breskra jafn- aöarmanna, allt frá John Ball á 14. öld til Anthonys Crossland á öld þessari. Eru þær sóttar til nafnkunnra manna og ann- arra, síbur kunnra af orðspori. Á meðal hinna fyrrnefndu eru: Á 16. öld Thomas More, á 17. öld Francis Bacon, á 19. öld kröfuskrármenn (Chartists) og skáldin Blake, Burns, Shelley og Wordsworth, á 20. öld (svo að fáeinir þeirra séu tilnefndir) rithöfundar sem Bernard Shaw, H.G. Wells, J.B. Priestl- ey, fræöimenn sem Webb- hjónin, R.H. Tawney og stjórn- málamenn sem. Keir Hardie, Ramsay MacDonald, Clement Attlee og Tony Benn. Allir voru þessir menn ekki jafnaðar- menn, eins og kunnugt er, þótt um skeib á ævi sinni settu fram sjónarmið og hugsjónir jafnab- arstefnunnar. — Ritstjórar bókarinnar eru breskir þing- menn. DAGBÓK IVAAyWUUVJVAJVAJUUI T' 182. dagur ársins -183 dagar eftir. 26. vika Sólris kl. 3.04 sólarlag kl. 23.57 Dagurinn styttist um4mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Dansað í Goðheimum, Sigtúni 3, á sunnudagskvöld kl. 20. Félagsstarf í Risinu, Hverfisgötu 105, liggur niðri í júlí. Fundur hjá SSH SSH, Stuðnings- og sjálfshjálpar- hópur hálshnykkssjúklinga, verbur með fund mánudaginn 3. júlí kl. 20 í ÍSÍ- hótelinu í Laugardal. Light Níghts ab byrja Fyrsta sýning Light Nights á þessu sumri verður mánudags- kvöidið 3. júlí kl. 21, í Tjarnarbíói, Tjarnargötu 12 (við Ráðhús Reykja- víkur). Leiknir þættir úr íslendingasög- um og þjóðsögum, fluct á ensku. Sýningar eru öll kvöld nema sunnudaga. Kvenréttindafélag íslands: Heiömerkurferö Hin árlega ferð í gróburreit KRFÍ í Heiömörk verður farin þriðjudag- inn 4. júlí. Reiturinn, sem er rétt við gatnamót Hraunslóbar og Heib- arvegs, verður merktur. Hittumst og gróöursetjum tré frá klukkan 16 til kl. 20. Nánari uppiýsingar fást á skrifstofu KRFÍ í síma 5518156. All- ir hjartanlega velkomnir. Tilvalin útivist fyrir fjölskyldufólk. P.s. Gleymum ekki nestinu! Enskur lístamaöur sýnir í Gallerí Fold og Þrastalundi í dag, laugardag, byrjar kynning á verkum listmálarans Hugh Dunford Wood í Gallerí Fold við Rauðarár- stíg. Ennfremur stendur yfir sýning á verkum hans í Prastalundi. Wood er fæddur í Englandi árið 1949. Hann nam myndlist við ýmsa skóla í Bretlandi, m.a. hinn virta skóla Ruskin School of Drawing and Fine Art, svo og í Brasilíu, Frakklandi og á Spáni. Hann hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum víða um heim. Myndirnar, sem Wood sýnir, eru landslagsmyndir gerðar með acryllitum. Opib er í Gallerí Fold virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-16. Kynningunni þar lýkur 15. júlí, en sýningunni í Þrastalundi 16. júlí. Fræöslufundur í Odda Mánudaginn 3. júlí kl. 20.30 verður haldinn opinber fræðslu- fundur á vegum Hins íslenska nátt- úrufræðifélags í stofu 101 í Odda, Hugvísindahúsi Háskóla íslands. A fundinum flytur Alicia Warren, starfsmaður Náttúruverndarrábs Nýja-Sjálands, erindi sem hún nefnir: „Áhrif Russell-lúpínu á gróður og dýralíf á Nýja-Sjálandi". Erindib verður flutt á ensku. L.A. Café 6 ára L.A. Café, Laugavegi 45, er um þessar mundir 6 ára og af því tilefni munum þeir brydda uppá mörgum skemmtilegum hlutum. Boðið verður uppá 50% afslátt af matseðlinum og föstudaga og laug- ardaga munu Anna Karen og Krist- ján Guðmundsson leika fyrir mat- argesti og svo verður diskótek á eft- ir. Nú verður byrjað á því í fyrsta skipti að halda diskótek öll kvöld vikunnar og kemur Vilhjálmur Ástrábsson til með að sjá um það. L.A. Café verður eini dansstaðurinn sem býöur uppá uppákomu sem þessa í miðri viku. Diskótekið hefst kl. 22.30 og stendur til 01 virka daga. I hádeginu verða skemmtileg til- boð á léttum mat, auk þess sem öl verður boðið á enn betra verði. Gísli og Þórir lelka í Ölkjall- aranum Gísli Helgason og Þórir Baldurs- son leika í Ölkjallaranum viö Skóla- brú sunnudagskvöldiö 2. júlí frá kl. 22. Þeir félagar munu spila frum- samda tónlist og ýmis vinsæl lög með djass-ívafi. Þórir og Gísli hafa iítið leikiö tveir saman opinberlega hér á landi. Þriöjudagstónleikar í Lista- safni Sigurjóns Elisabeth Zeuthen Schneider. Á þriöjudagstónleikunum í Lista- safni Sigurjóns Ólafssonar þann 4. júlí kl. 20.30 verbur flutt tónlist fyr- ir fiðlu og píanó. Flytjendur eru danski fibluleikarinn Elisabeth Zeuthen Schneider og Halldór Har- aldsson píanóleikari. Á efnisskrá eru eftirtalin verk: lög eftir sænska tónskáldið Tor Aulin, Diptychon opus 11 eftir danska tónskáldið Per Nargárd, verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, G-suite, sem var samið 1976 fyrir Guönýju Guð- mundsdóttur. Tónleikunum lýkur meö tveimur verkum eftir Antonin Dvorák, Romance opus 11 og Mazurek opus 49, bæði samin árið 1879. Fréttir í vikulok Verkfallib leystist Verkfall yfirmanna innan Farmanna- og fiskimannasam- bandsins leystist í fyrrinótt eftir að samgöngur höfðu lamast í nokkra daga. Samið var um 11% launahækkun. Banaslys í Víkurskarbi Maður á fertugsaldri og 6 ára gamall sonur hans fórust í bíl- slysi í Víkurskarði í vikunni. Flutningabíll sem maðurinn ók fór út af veginum og steyptist niður bratta hlíð, með þeim af- leiöingum að feðgarnir biðu bana. Dýrbítur í Grímsnesi Bóndinn á Hömrum í Grírnsnesi hefur misst a.m.k. 7 kindur af völdum scháferhunds sem beit kindurnar. Bóndinn segir slíkt hafa gerst áður. Enn ósamiö í Hafnarfirbinum Enn er ekki búið að mynda meirihluta í Hafnarfirðinum. Bú- ist er þó við að það verði á næstu dögum. Viðræður standa yf- ir, þar sem alþýðuflokksfulltrúar eru í oddaaðstööu. Víkingahátíb í Hafnarfirbi Undirbúningur fyrir alþjóðlega víkingahátíð í Hafnarfirði gengur vel, en hún verður sett í næstu viku. Alls munu um 600 erlendir víkingar koma til landsins af þessu tilefni, og haldið verður uppi fjörugri dagskrá í Hafnarfirði í þrjá daga. Akæra á hendur eiganda Gýmis Ákæra hefur verið lögð fram á hendur Hinriki Bragasyni og Helga Sigurbssyni dýralækni, vegna Gýmismálsins svokallaða. Þeir eru kæröir fyrir brot á dýraverndunarlögum og lítur Hesta- íþróttasamband íslands málið mjög alvarlegum augum. Rætt hefur verið um að setja Hinrik í keppnisbann. Metframleibsla hjá íslenska álfélaginu Hagnaður íslenska álfélagsins nam á síðasta ári 967 milljón- um króna. Hreinn hagnaður eftir greiöslu á 245 milljón króna framleiðslugjaldi nam því 721,7 milljónum króna. Meira var framleitt af áli en nokkru sinni fyrr. Seybisfjörbur 100 ára Seyðfirðingar fagna 100 ára afmæli kaupstaðarréttinda bæj- arins með tilkomumiklum hætti um helgina. Meðal annars em sett upp leikrit í tilefni afmælisins og myndlistarsýningar, af- hjúpun minnismerkis og fjölbreytt skemmtidagskrá verður í boöi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.