Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 10

Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 10
10 Laugardagur 1. júlí 1995 Óbinn Albertsson, nemií Vilnius í Litháen, rœddi vib Birgi Cubmundsson fréttastjóra Tímans sl. haust þegar hann var ab fara út, um ab þeir héldu sambandi sín á milli og ab Óbinn leyfbi Birgi ab fylgjast meb því hvab vœri um ab vera í Litháen. Hér á eftir fer nýlegt sendibréf frá Óbni, þar sem hann segir tíbindi frá Litháen. Þar sem bréf Ób- ins er ab mörgu leyti frób- legt og á erindi vib fleiri en starfsmenn á ritstjórn birtum vib þab hér á eftir: Kæri Birgir, Þegar viö raeddum saman í haust nefndir þú aí> þiö hefðuð fyrst og fremst áhuga á fréttum tengdum ís- lendingum. Mabur hefur lítiö rekist á landa á götum Vilníusar, en þó hefur lengst af dvaliö hér lítill hóp- ur íslendinga. í vetur var reist myndarleg lyfjaverksmiðja í útjabri Vilníusar og sáu íslendingar að öllu leyti um bygginguna. Að minnsta kosti þrír hópar iðnabarmanna komu hingað til að byggja grunn- inn, púsla saman húsinu, setja upp loftræstikerfi og fleira. Eftir jól komu tveir lyfjafræðingar sem munu starfa við verksmiðjuna næstu árin og búa í Vilníus ásamt fjölskyldum sínum. Mér skilst að það eigi að opna verksmiðjuna formlega 1. júlí og að Davíð Odds- son veröi á staönum. Okkur hefur nú ekki verið boðið þangað. Þú hefur örugglega heyrt um Isa- sva, íslensk-litháenska hestabú- garðinn sem er staðsettur í Krasu- ona, rétt fyrir utan Utena-borg. Jör- mundur Ingi Hansen allsherjargoði er framkvæmdarstjóri búgarbsins og dvaldi hann í Litháen mestallan septembermánuö. Hann er væntan- legur aftur á næstunni. í vetur dvaldi á búgarðinum íslenskur hrossatemjari, 23 ára strákur kallað- ur Addi. Addi bjó í Krasuona í þrjá mánuði við heldur frumstæðar að- stæður. Hann var þar settur yfir hóp manna og gengu samskiptin skraut- lega á stundum þar sem útlensku- kunnátta Litháanna var samasem engin. Einnig munu einhverjir fleiri ís- lendingar standa í ýmsum viðskipt- um í Litháen, innflutningi á timbri til íslands o.fl. í haust minntist þú einnig á ma- fíuna. Starfsemi glæpaklíkanna viröist vera orðin nokkuð rótgróin í litháensku samfélagi og margir sem ég hef talaö við hafa sætt sig við þab sem eðlilegt ástand. ítölsk kona, sem hefur í hyggju ab opna veit- ingahús hér í bæ, sagði rólega að hún þyrfti aö fresta opnuninni að- eins á meban hún útvegaði pening handa mafíunni. Rita Dapkus, amerískur Lithái sem á einn allra vinsælasta veit- ingastaðinn í Vilníus, lætur hafa þab eftir sér að hjálp mafíunnar sé ómissandi við að halda uppi öryggi og friði á veitingastaðnum, hún geti ekki treyst lögreglunni til þess. „They take less than the govern- ment and work for their money" — segir konan sem einu sinni var ráð- gjafi Landsbergis forseta. Mér finnst slíkt nú heldur sorg- legt þar sem ljóst er að hér'er um að ræða óprúttna og hættulega glæpa- menn. Skemmst er að minnast morðsins á blaðamanninum Vitas Lingys og ekki fyrir löngu dó mabur í bílasprengju í miðborg Vilníusar. Rodion Kolomin, sem er Rússi og ágætur vinur minn, spilar á gítar í hljómsveit sem er smám saman ab festa sig í sessi í músikbransanum. Hann lenti fyrir stuttu í klónum á einni klíkunni sem m.a. hefur ofan- af fyrir sér við dreifingu fíkniefna. J Stórhertogakastalinn í Trakai. Einn skúrkurinn ásakaði Rodion fyrir að benda á sig í sambandi við sölu á eiturlyfjum. Viðskiptavinur- inn reyndist vera blaöamaður sem var ab leita sér að marijuana. Það næsta sem gerist er að mafíósinn segir Rodion ab borga sér 200 doll- ara daginn eftir fyrir ab láta málib ekki ganga lengra (þetta eru mjög miklir fjármunir fyrir fátækan tón- listarmann, hann hefur sennilega aldrei átt svo mikib fé í einu). Ef greiöslan klikkabi átti ab senda ein- hverja bola til ab ganga í skrokk á gitarleikaranum og um leið myndi upphæbin hækka í 5000 dollara (sennilega til að borga bolunum fyrir ómakið??). Rodion fer stoltur í hljóðfæraverslun og leggur magn- arann sinn í pant fyrir 200 dollara og borgar glæponinum. Þegar hann segir mér þetta síöar og ég æsi mig upp í hneykslan svar- ar hann: „Óðinn, þú skilur ekki, þetta er normal, það var ég sem gerði mistök, við erum ekki á ís- landi." Fyrir u.þ.b. ári síðan var einn ungur og efnilegur trommu- leikari barinn til ólífis eftir ekki ósvipað atvik. Svona fantar eru frekar áberandi í götumynd Vilníusar. Þeir eru flestir stórir ungir menn, stuttklipptir og svartklæddir og oftar en ekki meb bílasíma í hendinni (undarlegt, þar sem almenningssímar eru á hverju götuhorni og kosta ekkert, en ég held að mínútan í bílasíma kosti meira en 1 dollara). Þessir menn láta sem heimurinn sé þeirra og viröast ekki hika við að beita of- beldi. Eitt kvöldið lenti ég í orða- sennu vib eina týpu eftir að vin- kona mín neitaöi að eiga samskipti viö hann. Hann virtist ekki skilja að hún gæti átt rétt á að segja nei. Ég íslendingar í Litháen héldu þjóöhátíö í Trakai þann 17. júní si. en Trakai hér- oð er þjóbgaröur og gamlar söguslób- ir, en þar stóö fyrrum höfuöborg lithá- enska stórhertogadœmisins fram til 1323 er hún var flutt tii Vilniusar. I dag er Trakai vinsæll útivistarstaöur, eins konar Þingvellir Litháa, og nutu íslendingarnir sín vel viö hátíöahöld og gríll í skugga miöaldakastala stór- hertoganna. Um i 5 Islendingar eru um þessar mundir búsettir í Vilnius ásamt fjöl- skyldum sínum og er hluti þeirra á þessari mynd. Bréfskrifari, Óöinn Al- bertsson, er annar frá hœgri. var orðinn heldur skelkaður á tíma- bili en tókst loks að sannfæra dón- ann um að best væri að öll værum við vinir. í lok kvöldsins laumaöi hann að okkur spjaldi meb farsíma- númerinu sínu og sagði: „Ef þið lendið einhverntíma í vandræðum — hringið í þetta númer." Einhvern veginn er ég smeykur við að blanda gebi vib þessa ná- unga. Betur líkar mér við heiðarlega bófa eins og t.d. pólsku konuna sem býr á fyrstu hæðinni í húsinu okkar. Hún er svona 70 ára, stressub og þybbin kona sem býr í þriggja herbergja íbúð (alveg eins og okkar) ásamt húðlötum eiginmanni, upp- kominni dóttur og syni, konu hans og tveimur dætrum þeirra. Konan fær eftirlaun frá ríkinu, en þab þýð- ir að hún þiggur um 2.000 krónur á mánuði frá hinu opinbera. Til þess ab drýgja tekjumar rekur gamla konan einskonar landasjoppu, eða totsjka („punktur") eins og fyrir- bærið er kallað á rússnesku (eða kannski öllu heldur sovésku, sama nafn er örugglega notaö frá Vilníus til Vladivostok). Á öllum tímum sólarhringsins laumast alls konar fólk inn í portið okkar, bankar á gluggann hjá hinni pólsku, hverfur þvínæst inn til hennar og birtist síðan stuttu síðar með grunsamlega bungu á jakkan- um sínum. Síðasta mánuðinn finnst mér ég verða var við aukn- ingu í eftirspurn í landasölunni. Það hlýtur að standa í samhengi við ný litháensk áfengislög sem hækka gjöld og takmarka sölutíma áfengis. Þegar ríkið skrúfar fyrir kranann spretta totsjkur útum allt, það sama gerðist þegar Gorbatsjof kom með sína bindindisstefnu. Seint í gær- kvöldi bankaði hjá okkur ungur og kurteis mabur og spurði hálf hvísl- andi: „Góða kvöldið, seljið þið vodka hér?" Ég beindi honum til nágrannakonunnar og pilturinn læddist feimnislega niður tröpp- urnar. Meb þessu bréfi sendum við í gamni myndir frá þjóðhátíð íslend- inga í Litháen. Hópmyndin er ekki upp á marga fiska, tekin á tíma með myndavélina uppá útigrillinu, svo að ramminn skekktist eitthvað. Litla stúlkan með Trakaikastala í baksýn er Guðrún Ýr HalTUórsdóttir (4 ára), en faðir hennar hefur haft umsjón með byggingu lyfjaverk- smiðjunnar undanfariö ár. Bestu óskir og kveðjur frá Vilníus, Óðinn Albertsson íþjóöhátíöarskapi meö Trakaikastala í baksýn. Guörún Ýr Halldórsdóttir, 4 ára, er meö pabba sínum í Litháen en hann hefur umsjón meö byggingu lyfjaverksmiöjunnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.