Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 15

Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 15
Laugardagur 1. júlí 1995 15 David Whitehouse. að nauðga Eileen og myrða, en ekki tekist hiö fyrrnefnda vegna mótþróa hennar. Aö því loknu hefði hann brotið rúðuna í úti- dyrahurðinni og hent innan- stokksmunum til í stofunni til að villa um fyrir lögreglunni. En hann gerði tvenn mistök. Hann gleymdi að „stela einhverju" og hann gleymdi læsingunni að innri dyrunum. Allir ættingjar Eileen voru með lykil að íbúðinni. Allir voru með haldbæra fjarvistarsönnun nema David Whitehouse. Sönnub sekt Gamanið kárnaði fljótt hjá hin- um taugaveiklaöa Whitehouse. Ekki síst eftir að þrjár sígarettur sömu tegundar og hann reykti fundust hjá fórnarlambinu. Eile- en hafði sjálf aldrei reykt. Til að gera langa sögu stutta, hlóðust upp sannanir fyrir því að Whitehouse væri morðinginn og var hann handtekinn daginn eft- ir. í ljós kom aö mjög slæmt sam- band hafði verið milli hans og tengdamóðurinnar, en það kom öllum á óvart að afleiðingarnar* yrðu tilraun til nauðgunar og kaldrifjað morð. Eileen hafði veriö óspör að láta í ljósi vanþóknun sína á White- house, ekki síst vegna atvinnu- leysis hans. Hún lét hann óspart heyra það, og það fór sérstaklega illa í hann. Athygli vakti að hann var með hreina sakaskrá fyrir morðið. Whitehouse breytti framburði sínum eftir ákæruna og sagðist ekki muna hluta kvöldsins vegna drykkju. Vörn lögmanna hans byggðist á þessu, en hún tók á sig vafasama mynd þegar lögmaöur hans gróf upp gamlar læknaskýrslur, sem sýndu að David Whitehouse hafði gengið í svefni sem ungling- ur. Verjandi hans hélt því fram að það sama hefði gerst um kvöldið, og morðið hefði verið framið í svefni. Á það var ekki hlustað og 15. mars 1994 var Whitehouse fundinn sekur um öll ákæruatriði og dæmdur til lífstíðarfangavist- ar. Hann heldur sig enn viö að muna ekkert eftir atvikinu. ■ Lögreglan var agndofa yfir aökomunni. Fram til þessa höfbu aldraöir íbúar ekki þótt í lífshœttu / West Bromwich, þótt innbrot vœru nokkuö al- geng. Eöli innbrotsþjófa var aö foröa sér jafnhratt og auöiö varö, ef til þeirra sást. Kynferöisglcepir voru jafnframt afar fátíöir: Svefngengillinn" Sex mílum norðvestur af Birm- ingham í Englandi, stendur borgin West Bromwich. Borgin þykir lítt fyrir augað, enda hafa íbúar hennar lengstum haft at- vinnu af þungaiönaði, mest- megnis stálbræðslu. Uppgangur borgarinnar hófst 1960 og varð þá mikil íbúafjölgun og byggt á litlu rými. En atvinn- ustigið hélst ekki er fram liðu stundir og nú er stór hluti íbúa at- vinnulaus og glæpir vaxandi vandamál. Samt eru þeir glæpir, sem framdir eru í borginni, yfirleitt minni háttar. Þannig eru óvopn- uð rán og fíkniefnadreifing al- gengust, en morð harla fátíð. Það skók því íbúa borgarinnar þegar framið var kaldrifjað og að því er virtist tilgangslaust morð á mið- aldra konu í júní áriö 1993. Líkiö finnst Eileen Luke, 61 árs, bjó í blokk- arþyrpingu, n.k. fátækrahverfi, í NV-hluta West Bromvich. Sumar- ið 1993 var hún búin að búa 21 ár í sínu húsnæði, en eiginmaður- inn hafði látist fyrir nokkrum ár- um, lungun höfðu gefið sig eftir mikla loftmengun í starfi hans sem málmverkamanns. Bill Morris, nágranni Eileen, var á leið til vinnu einn morgun- inn þegar hann tók eftir að rúða var brotin á útihurð Eileen. Hann vissi að hún bjó einsömul og því ákvað hann aö kanna máliö frek- ar. Þjófar höfðu rammt látið að sér kveða í hverfinu. Eftir að hafa kallaö nafn hennar og bankað á hurðina án árangurs, ákvað hann aö kanna máliö sjálfur. Hurðin var ólæst og það var ekki síst til að minnka áhyggjur Bills. Nokkrum augnablikum síðar fann Bill Eileen liggjandi á stofu- gólfinu. Húsgögnin voru á tjái og tundri og líklegt að átök hefðu átt sér stað. Misnotkun og morö Eileen var látin þegar að var komið. Lík hennar var í hræði- legu ástandi. Á höfði voru ljótir áverkar, líkt og eftir barsmíðar, og band hafði verið reyrt um háls- inn, svo þétt að það hafði skorist í gegnum húöina. Eileen lá á bak- inu, þegar að var komið, með kjólinn upp að maga. Bill þurfti ekki annaö en að líta andlit hennar augum til að sjá að hún var látin. Krufningarskýrsla sýndi að Eile- en hafði orðið fyrir kynferðislegri áreitni, en samfarir höfðu ekki átt sér stað. Dánarorsök var kyrking, en áður haföi Eileen verið barin mjög illa, m.a. höfðu tvö rifbein brotnað og líffæri hennar voru illa farin eftir þung högg. Rannsóknin Fyrsta skref rann«óknarinnar beindist að öðrum íbúum blokk- arinnar, en þeir skiptu hundruö- um. Farið var í allar íbúðimar og fólk tekið tali. í fyrsta lagi var spurt hvort íbúar heföu orðið var- ir við óvenjulega háreysti þessa nótt og í öðm lagi var fjarvistar- sönnun þeirra könnuð. Enginn hafði orðið var við neitt. Eileen var lýst sem lífsglaðri gæðakonu, sem ekkert fékk hagg- að. Helsta yndi hennar var heim- Frá hverfinu þar sem morbib átti sér stab. óhult á eigin heimili, eins og ör- lögin sýndu. Lögreglan velti upp þeirri hug- mynd hvort alvarlega geðsjúkur afbrotamaður gæti átt hlut að máli. Ekki hafði frést af neinum slíkum og þegar smáþjófar voru teknir tali, sögðust þeir ekkert vita um verknaðinn. Morðið hefði haft slæm áhrif á lífsafkomu þeirra, fólk herti öryggisvarnir og minna var um tækifæri til grip- deilda fyrir vikið. Morðið virtist tilefnislaust, engu hafði verið stolið. Dæturnar voru svo slegnar fyrst eftir fréttirnar að lögreglan gat ekki haft tal af þeim um máliö. SAKAMAL að. Að því búnu hefði hann labb- að heim og sofnað framan við sjónvarpið. Þar hefði hann sofið í um þaö bil þrjár klukkustundir áður en hann vaknabi og hélt til hvílu, þar sem kona hans var sof- andi. Whitehouse neitaði að hafa hitt tengdamóbur sína þetta kvöld. Mistökin Á sama tíma komust rannsókn- armenn í höfuðstöðvum lögregl- unnar að því að þeim hafði yfir- sést mikilvægt atriði. Þegar Bill Morris fór inn í húsið, höfbu innri útidyrnar verið ólæstar. Eileen var með lás á báðum hurð- um, þannig ab þótt innbrotsþjófi tækist að komast í gegnum ytri dyrnar var ómögulegt að brjótast í gegnum innri dyrnar vegna rammgerðrar læsingar. Ergó: Eile- en hafði annab hvort hleypt moröingja sínum sjálfviljug inn eða þá að hann hafði haft lykil. Hið síðarnefnda þótti líklegra, þar sem mjög var áliðið kvölds þegar Eileen lést. Lögreglan ályktaði að morbing- inn hefði komið í þeim ásetningi Eileen Luke. sókn barnabarnanna, en hún átti átta slík og þrjár dætur. Þrátt fyrir aldurinn var hún fílhraust, naut mikillar útiveru og lifði heil- brigðu lífi. Eileen var varkár kona og var aldrei á ferli eftir að skyggja tók. Hún hafði lýst þeirri skoðun sinni að hún teldi sig ekki óhulta á göt- um borgarinnar á kvöldin, en ör- yggisráðstafanir reyndust ekki nægjanlegar. Hún reyndist ekki Þannig varð lögreglan að láta sér nægja að tala viö tengdasynina. Einn þeirra var David White- house, 41 árs. Hann bjó í Aca- demia Avenue, aðeins 200 metr- um frá heimili tengdamóður sinnar. David var atvinnulaus og bú- inn ab vera um hríð. Hann bauð lögreglumönnum til stofu, en konan hans lá fyrir og treysti sér ekki til að hitta lögreglumennina. Whitehouse reykti sex sígarett- ur á þeirri hálfu klukkustund sem fór í yfirheyrsluna. David virtist einhverra hluta vegna mjög óstyrkur. Þegar David var spurður um gerðir sínar, kvöldib sem Eileen var myrt, var svarið: „Ég var á kránni. Ykkur að segja, þá fékk ég mér fullhressilega neðan í því." Whitehouse kvaðst hafa verið allt kvöldið á kránni og fram yfir lokunartíma. Hann sagðist hafa áttað sig á hve drukkinn hann var er hann yfirgaf krána, og því hefði hann ákveöið að fara í gönguferö eftir að henni var lok-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.