Tíminn - 01.07.1995, Blaðsíða 13
Laugardagur 1. júlí 1995
13
Spara bæjarfé-
lögin A.V. á
álagstímum?
Ég undirrituö vil lýsa furöu
minni yfir lélegri þjónustu Al-
menningsvagna BS þann 17.
júní síöastliöinn, sem ég veit aö
bæjarráö viökomandi bæjarfé-
laga, sem vagnarnir ganga, eru
meö puttana í.
Ég, systir mín, mágur og fjög-
ur börn þeirra, þar á meöal eitt í
barnavagni, ætl- ^
STtMa; LESENDUR
nánar tiltekiö kl.
fram á þaö aö viö kæmumst
ekki heldur meö næsta vagni.
Viö reyndum aö tala viö lögregl-
una í Kópavogi en hún gat ekk-
ert hjálpaö okkur, jafnvel þó viö
bentum henni á að það væri allt
of mikið af fólki í vögnunum.
Eftir þetta hefur annaöhvort
einhver séð aö sér eða bara
óhlýðnast, því
um kl. 22.00
kom aukavagn
21.26 frá skiptistööinni í Kópa-
vogi. Þarna biöu u.þ.b. 70
manns eftir aö leið 140 kæmi
sunnan að, og þegar vagninn
kom var hann svo troðfullur aö
einungis brot af fólkinu gat
troðið sér meö (í bókstaflegri
merkingu!), hinir 45-50 manns,
þar á meöal við, þurftum aö
bíöa eftir næsta vagni sem von
var á eftir hálftíma. Ekki vorum
viö sátt við þetta og mágur
minn spuröi bílstjórann hvort
þaö væri hægt aö senda auka-
vagn fyrir allan þann fjölda.
Hann svaraði því til að auka-
vagn heföi hætt aö ganga kl.
19.26 og þeir hefðu verið í
vandræðum síðan, hann kallaöi
samt sem áöur í talstöðina eftir
aukavagni en var sagt aö hunsa
okkur og halda áætlun! Við svo
búiö var ekkert annaö aö gera
en að halda áfram að bíöa og
vona hiö besta en sífellt dreif aö
fleira fólk og viö sáum fljótlega
frá Hafnarfirði,
örlítiö minna troöinn en forveri
hans hálftíma áöur. Við rétt
náðum aö mismuna okkur inn í
vagninn meö barnavagninnn
áöur en hann troðfylltist, en
þrátt fyrir þaö var hellingur eftir
á skiptistööinni.
Þegar á áfangastað var komið
töldum við út úr strætisvagnin-
um og farþegarnir reyndust
129!
Ég vil skora á bæjaryfirvöld
viökomandi bæjarfélaga, sem
leið 140 gengur í gegnum, og þá
sérstaklega bæjaryfirvöld í
Kópavogi í þessu tilviki, aö
breyta svona mislukkuðum
samgöngum til betri vegar. Ef
ætlunin var að spara meö svona
aögerðum skora ég á ykkur að
hugsa aftur því þetta var einkar
óþægilegt feröalag á sjálfan Lýö-
veldisdag þjóöarinnar.
Kolbrím Þóra Sverrisdóttir
kt. 270363-5479
Þverbrekka 4, 200 Kóp.
Aktu eins og þú vilt
or
að aorir aki!
ÖKUM EtNS OG MENN!
IUMFERÐAR
Iráð
Sumartónleikar:
Afmælishátíð
í Skálholti
BYKO hefur opnað nýja deild sem sinnir eingöngu
viðskiptavinum okkar á landsbyggðinni.
Grænt númer er tengt beint til þrautþjálfaðra
sölumanna okkar í landsbyggðardeildinni.
Þjónustan er einstök.
Þú hringir, pantar og vörurnar eru komnar til
flutningsaðila innan sólarhrings.
-byggir með þér
Grænt númer:
msm: y !
4
Afmælishátíö í tilefni þess aö
tuttugu ár eru liöin síöan tón-
listarhátíöin Sumartónleikar í
Skálholti hóf göngu sína veröur
sett í Skálholtskirkju kl. 14 í
dag, laugardaginn 1. júlí. Sr.
Guömundur Óli Ólafsson sókn-
arprestur heldur hátíöarræöu
og Bachsveitin í Skálholti leik-
ur konserta fyrir þrjá og fjóra
sembala eftir Johann Sebastian
Bach, ásamt einleikurunum
Helgu Ingólfsdóttur, Guörúnu
Óskarsdóttur, Elínu Guö-
mundsdóttur og Málfríöi Gísla-
dóttur.
Kl. 15 sama dag leikur franski
semballeikarinn Francoise Len-
gellé einleiksverk eftir Couperin-
fjölskylduna, en kl. 17 verða flutt
trúarleg verk eftir Jón Nordal. Ma.
veröur frumflutt sálumessa hans,
en flytjendur eru söngflokkurinn
Hljómeyki undir stjórn Bernharðs
Wilkinsonar.
Sunnudaginn 2. júlí verða
einnig flutt trúarleg verk eftir Jón
Nordal, en við messu sem hefst
kl. 17 hljóma kórverk hans.
Ión Nordal tónskáld.
Báða dagana veröa áætlunar-
ferðir frá Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavík kl. 11.30 og til baka frá
Skálholti kl. 18.
Aögangur aö tónleikunum er
ókeypis, en meðan á þeim stend-
ur verður bamagæsla í Skálholts-
skóla. ■
Sími 5631631
Fax: 5516270