Tíminn - 06.07.1995, Blaðsíða 11
?.?<>' ilijj ,ð v..-:
Fimmtudagur 6. júií 1995
11
W9WS9MU
og útsjónarsöm og því fengum
viö framsóknarkonur svo sann-
arlega að kynnast.
Starf Sólveigar var ekki viö
það miðað að hljóta daglaun að
kvöldi, heldur hitt ab vinna
þjóð sinni allt þab gagn er
verða mætti. Hún studdi mann
sinn í stjórnmálastarfi hans, en
vegur stjórnmálamannsins er
ekki alltaf rósum stráður og Ey-
steinn komst ekki hjá því frekar
en aðrir að stundum var á
hann deilt. Þá reyndi á styrk
eiginkonunnar og eðli hennar
samkvæmt var stuðningur
hennar óbrigðull á hverju sem
gekk og hvað mestur þegar
harbast og ómaklegast var að
manni hennar vegib.
Hún var gædd óvenjulegu
jafnabargeði og andlegum
styrk.
Það er mál þeirra sem best
þekkja, að þau hjón hafi verið
samrýmd í öllu og heimilislíf
þeirra til fyrirmyndar. Gagn-
kvæm ást og virðing mótaði
allt þeirra samlíf frá fyrsta til
síðasta dags. Vinátta Sólveigar
var eins og hún sjálf trú og
traust.
Megi þjóð okkar eignast
margar konur henni líkar.
Við sendum börnum hennar
og fjölskyldum þeirra okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Hve Ijúft er að verða að liði
utn langan og fagran dag,
í kœrleikans kyrrð og friði
svo kveðja um sólarlag.
(Steingrímur Arason)
Blessuð sé minning Sólveigar
Eyjólfsdóttur.
Sigrún Sturludóttir og
Þóra Þorleifsdóttir,
fyrrverandi formenn
Tíminn líður, og samferöa-
mennirnir kveðja einn af öbr-
um og takast þá ferð á hendur
yfir landamæri lífs og dauba
sem liggur fyrir öllum. Nú hef-
ur Sólveig Eyjólfsdóttir hlýtt
þessu kalli, og það er mér Ijúft
og skylt að senda henni kveðju
ab leiðarlokum.
Það vill oft verba svo ab mak-
ar stjórnmálaforingja standa í
skugga þeirra, og Sólveig var
vissulega ekki í sviðsljósinu á
sama hátt og maður hennar Ey-
steinn Jónsson, sem var einn af
svipmestu stjórnmálaforingjum
aldarinnar. Eigi að síður var
hún afar eftirminnilegur per-
sónuleiki. Leiðir okkar lágu ein-
staka sinnum saman á síöari ár-
um, og minnumst við hjónin
þeirra stunda með miklu þakk-
læti. Hlýja Sólveigar og yfirlæt-
islaust fas gerði það að verkum
að okkur fannst vib hafa þekkt
hana lengi. Frásagnir hennar af
liðinni tíð, meðal annars upp-
vaxtarárum sínum í Reykjavík,
eru ekki síður minnisstæðar.
Hún gegndi ábyrgðarmiklum
skyldum fyrir land og þjóð,
ekki síst fyrir Austurland. Fyrir
það ber ab þakka að leiðarlok-
um. Störf maka stjórnmála-
manna eru ævinlega vanmetin.
Hún bjó manni sínum það
skjól sem hann þurfti í sínum
ábyrgðarmiklu störfum og kom
fram með honum sem fulltrúi
þjóðar sinnar vib ýmis tæki-
færi. Gott heimili er undirstaða
þess að gera hlutina vel. Mér er
líka fullkunnugt um það að
ekki var auður í búi hjá þeim
hjónum og ekki var spurt um
daglaun að kvöldi. Húsfreyjan á
Ásvallagötunni hefur þurft á
öllu sínu að halda í starfi sínu
og uppeldi barnanna. Lífib á
heimili stjórnmálamanna er
með þeim hætti. Ferill þeirra
hjóna Eysteins og Sólveigar var
glæsilegur, og svo samhent
voru þau að mér er tamt að
nefna þau í sama orðinu.
Við hjónin minnumst þeirra
beggja með hlýju og virðingu,
og hlýja þeirra og uppörvun var
ómetanleg fyrir okkur bæði
þegar leiðirnar lágu saman og
hlutskipti mitt var orðið að
vera fulltrúi Austurlands á Al-
þingi.
Við Margrét sendum aðstand-
endum Sólveigar innilegar sam-
úðarkveðjur. Megi minningin
um þessa góbu konu vera þeim
huggun þegar sorgin kveður
dyra.
Jón Kristjánsson
Sólveig Eyjólfsdóttir er látin.
Hvorki man ég daginn né
stundina þegar mig bar fyrst að
garði þeirra Eysteins Jónssonar,
Ásvallagötu 67. En margar urbu
komur mínar þangað í vel hálfa
öld — og svo ab Miðleiti síðasta
áratuginn.
Ég var ekki lánlaus hér á ár-
unum þegar ég tók að venja
komur mínar til höfuðstaðar-
ins, fyrst á leið í skóla, seinna
ýmissa erinda. Fjölskyldur
frændfólks og vina tóku mér
opnum örmum og ástúð og
umhyggja þess fólks brást ekki
síðan. Þab er því margs að
minnast og ég hef mikið að
þakka.
Hjónin Sólveig Eyjólfsdóttir
og Éysteinn Jónsson áttu langa
samleið. Húsfreyjan stýrði um-
svifamiklu heimili þeirra meb
reisn. Húsbóndinn stóð í eld-
línu stjórnmálanna nær alla
ævi. Þar urðu mörg tíðindi í
senn. íslendingar stofnuðu lýb-
veldi, mótuðu utanríkisstefnu,
færðu út fiskveiðilögsögu sína
og byggðu upp velferðarsamfé-
lag. Á heimilum landsmanna
urðu og miklar sögur.
Eysteinn og Sólveig gengu í
hjónaband og stofnuðu heimili
ung að árum, hún aðeins tví-
tug. Heimili þeirra var frá byrj-
un nokkuð sérstætt. Húsbónd-
anum fylgdu þá þegar aldraðir
foreldrar og um stundarsakir
tvær fóstursystur. Yngsta barn-
ið var vart komið af höndum
þegar húsbóndinn var orðinn
alþingismaður fyrir víðlent
kjördæmi í fjarlægum lands-
hluta og jafnframt einn af
fremstu forvígismönnum í stór-
um og aðgerðamiklum stjórn-
málaflokki — og lá ekki á liði
sínu. Á þeim árum hafði hvorki
Framsóknarflokkurinn skrif-
stofu né heldur þingmenn hans
afdrep til starfa úti í bæ utan
þingfunda. Af því leiddi að
heimilið að Ásvallagötu varð
jafnframt eins konar flokks-
skrifstofa og miðstöð stuðn-
ingsmanna í kjördæmi þegar
þeir áttu Ieið í borgina — einn-
ig hótel fyrir okkur suma eftir
því sem til vannst. Vib slíkar
aðstæður verbur hlutverk hús-
freyju stórt, þó sjaldnar sé um
það fjallað en störf hins aðilans
sem unnin eru í augsýn alþjóð-
ar.
Eysteinn Jónsson lýsti eitt
sinn í viötali hlutverki konu
sinnar á heimilinu á þessa leið:
„... Allan okkar búskap hefur
hún orðið að sjá um heimilið,
nálega að öllu leyti, vinna
venjuleg húsbóndastörf auk
heimilisverkanna, því ég hef
staðið á höfði í málefnum
landsins, kjördæmisins, flokks-
ins o.s.frv. Ég hef sjálfsagt verið
ólíkur mörgum öðrum heimil-
isfeðrum að því leyti, að ég hef
lítiö getað sinnt okkar eigin
málum. ... Þetta má skoba sem
framlag hennar til þjóðmála-
baráttunnar."
Nefnt viðtal er fyrir margra
hluta sakir merkilegt. Spyrjand-
inn, Valgeir Sigurðsson, vék
orðum að Sólveigu húsfreyju
og spurði m.a. um viðbrögð
hennar þegar pólitískir and-
stæðingar fóru hamförum gegn
manni hennar að þeirrar tíðar
hætti. Sólveig sagbi þá meðal
annars:
„... Ég setti mér það strax að
tala ekki um slíka hluti við Ey-
stein og hef haldið þeirri reglu
fram á þennan dag. ... Þetta
hefði verið margfalt erfibara ef
ég hefði tamið mér að vera allt-
af að hugsa og tala um það sem
misjafnt var sagt og skrifað um
Eystein."
Svar Sólveigar var lengra og
ítarlegra og bæði klárt og kvitt
eins og allt hennar tal og sann-
ferðugt í besta máta. Un það er
ég, með leyfi ab segja, alveg
vitnisbær. Og ég þekki þab af
eigin reynslu — að breyttu
breytanda eins og stundum er
sagt — að þessi afstaða Sólveig-
ar húsfreyju var bónda hennar,
stjórnmálamanninum, mikill
styrkur — til viðbótar margvís-
legu starfi hennar Framsóknar-
flokknum til stuðnings, beint
og óbeint.
Saga mikilhæfrar konu verður
auðvitað ekki sögð 1 fáum lín-
um og ætlun mín aðeins að tjá
þakkir á tímamótum. Fer þá
sem löngum þegar líkt stendur
á að orð skortir. Eða hver getur
þakkað með orðum áratuga —
raunar ævilanga — samfylgd og
órofa vináttu?
Við Margrét mín kveðjum
Sólveigu með virðingu og þökk.
Ástvinum hennar sendum við
hlýjar kveðjur og biðjum þeim
blessunar.
Vilhjálmur Hjálmarsson
DAGBÓK
Fimmtudaqur
6
187. dagur ársins -178 dagar eftir.
27. vika
Sólris kl. 03.15
sólarlag kl. 23.48
Dagurinn styttist um
5 mínutur
Regnboginn sýnir „Kiss of Death"
I dag, fimmtudag, frumsýnir
Regnboginn spennumyndina Kiss
of Death eða Feigðarkossinn. í aöal-
hlutverkum er mikið einvalalið
leikara með þá David Caruso
{NYPD Blue), Nicholas Cage (It Co-
uld Happen to You, Honeymoon in
Vegas, Wild at Heart) og Samuel L.
Jackson (D/e Hard With a Venge-
ance, Pulp Fiction, Patriot Games) í
fararbroddi. Leikstjóri myndarinn-
ar er Barbet Schroeder, sem m.a. á
að baki myndina Single White Fe-
male, eina bestu spennumynd
seinni ára.
Feigðarkossinn byggir lauslega á
eftirminnilegri samnefndri kvik-
mynd frá árinu 1947, sem þeir
Schroeder og samstarfsmaður hans,
handritshöfundurinn Richard
Price, hafa fært til samtímans.
Smábófinn Jimmy Kilmartin (Car-
uso) hefur sagt skilið við gömlu
vinina í glæpagenginu og helgað
sig fjölskyldulífi. Fyrir þrábeiðni
fyrrum félaga felst hann á að veita
aðstoö viö bílaþjófnaö, en sú för
endar með ósköpum. Jimmy er
handtekinn og kýs aö dúsa á bak
við lás og slá fremur en að koma
upp um félaga sína. En brátt taka
mál óvænta stefnu og lögreglu-
maðurinn Calvin (Jackson) fær
Jimmy til liðs við sig til að ná til
ofstopafulls glæpamanns sem svífst
einskis (Cage).-
Lárus Karl sýnir í Listhúsi 39
Lárus Karl Ingason ljósmyndari
opnar á morgun, föstudag, ljós-
myndasýningu í Listhúsi 39 við
Strandgötu í Hafnarfirði. Þema
sýningarinnar er hestar og fjöll.
Lárus Karl sýnir þar hátt í tutt-
ugu svart/hvítar ljósmyndir, sem
teknar hafa verið og unnar á síð-
ustu misserum. Listhús 39 er sölu-
gallerí fjórtán hafnfirskra myndlist-
armanna, gegnt menningarmið-
stöðinni Hafnarborg.
Þetta er þriðja einkasýning Lár-
usar Karls Ingasonar, en hann
starfar sem auglýsinga- og iönaöar-
ljósmyndari. Hann hefur m.a. tek-
ið ljósmyndir í innlend og erlend
tímarit og bækur og fyrir ýmsa að-
i!a heima og heiman.
Lárus Karl er fæddur 1959. Hann
hefur unnið við ljósmyndun und-
anfarin tíu ár.
Sýningin í Listhúsi 39 verður op-
in virka daga kl. 10-18, laugardaga
kl. 12-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Sýningin stendur til 20. júlí.
Dregib í verölaunagetraun
Vestfirska forlagsins
Hreppstjóri Þingeyrarhrepps hef-
ur annast útdrátt úr réttum lausn-
um í verðlaunagetraun sem fylgdi
bókinni ]ón Sigurðsson forseti, œvi-
saga í hnotskum.
Eftirfarandi hlutu 5,000 kr. verð-
laun hver:
Sigurbjörn Einarsson, Fögru-
brekku, Brú. Linda Ósk Guö-
mundsdóttir, Hamraborg 14, Kópa-
vogi. Kristinn Björnsson, Espigerði
4, Reykjavík. Einar H. Heiðarsson,
Dalatanga, Mjóafiröi. Hjalti Hrafn
Hafþórsson, Mjólkárvirkjun, Arnar-
firði. Vilborg Guðrún Sævarsdóttir,
Eyjabakka 20, Reykjavík. Sigurður
Aðalsteinsson, Vaðbrekku, Hrafn-
kelsdal. Erlendur Jónsson, Hlíðar-
hvammi 13, Kópavogi. Reynir
Hólm Gunnarsson, Víðihvammi
14, Kópavogi. Brynjólfur Már Ge-
orgsson, Kjörseyri, Brú.
Birt án ábyrgðar. Verðlaunin
hafa veriö send til viðkomandi.
Dagskrá Árbæjarsafns
um helgina
Laugardagurinn 8. júlí. Nýjung —
Grasaferð í fyrsta sinn. Lagt verður
af stað frá Arbæjarsafni kl. 11 og
gengið í Elliðaárdalinn þar sem
tínd verða ýmis lækningagrös og
litunarjurtir undir handleiðslu
Rannveigar Haraldsdóttur grasa-
konu frá Patreksfirði og Áslaugar
Sverrisdóttur, sérfræðings í jurtalit-
un.
Þátttaka í göngunni er ókeypis,
en gestir verða að taka með sér
góðan pokaskjatta, beittan hníf og
Frá Árbœjarsafni.
rúllupylsuband, auk nestis sem
verður snætt í dalnum.
Sunnudagurinn 9. júlí. Grasadagut
—- Rannveig matreiðir þjóðlega
rétti úr fjallagrösum í Árbæ. Upp-
skriftir fást á staðnum að réttum
eins og fjallagrasagraut og fjalla-
grasatei, auk þess sem lækninga-
jurtir verða kynntar og seld ýmis
smyrsli og seyði úr íslenskum jurt-
um. Áslaug sýnir jurtalitun eins og
hún var um og eftir aldamót. Jón
Einarsson kynnir grasalækningar
og hollustu jurta í Kornhúsi, en
Jón er sonur Ástu grasalæknis og
hafa grasalækningar haldist í ætt-
inni um ómunatíö. Gestum verður
boðið að bragða á tei og seyði. Ým-
is varningur tengdur grösunum
verður til sölu.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavlk frá 30. júnl tll 6. Júlf er I Reykjavfkur apó-
tekl og Garðs apótekl. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll
kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnu-
dögum. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu
eru gefnar I slma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags íslands
er starlrækt um helgar og á stórhálíðum. Símsvari
681041.
Hafnarfjörðun Hafnarfjaróar apólek og Norðurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skipt-
is annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar I símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort að sinna kvöld-, nælur- og helgidagavörslu.
Á kvöldin er opið I því apóteki sem sér um þessa vörslu,
til kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00 og
20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bakvakt.
Upplýsingar eru gefnar I sima 22445.
Apótek Keflavíkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13,00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rumhelga daga kl. S 30-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
1. júlí 1995
Mánaöargreiöslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 12.921
1/2 hjónalífeyrir 11.629
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega 29.954
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega 30.793
Heimilisuppbót 10.182
Sérstök heimilisuppbót 7.004
Barnalífeyrir v/1 barns 10.794
Meðlag v/1 barns 10.794
Mæðralaun/feöralaun v/1 barns 1.048
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna 5.240
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eba fleiri 11.318
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða 16.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaba 12.139
Fullur ekkjulífeyrir 12.921
Dánarbætur í 8 ár (v/ slysa) 16.190
Fæðingarstyrkur 26.294
Vasapeningarvistmanna 10.658
Vasapeningar v/ sjúkratrygginga 10.658
Daggreibslur
Fullir fæðingardagpeningar 1.102,00
Sjúkradagpeningar einstaklings 552,00
Sjúkradagp. fyrir hvert barn á framfæri 150,00
Slysadagpeningar einstaklings 698,00
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri 150,00
í júlí er greidd 26% uppbót vegna launabóta á
fjárhæðir tekjutryggingar, heimilisuppbótarog
sérstakrar heimilisuppbótar. Uppbótin skerðist vegna
tekna í sama hlutfalli og þessir bótaflokkar skerðast.
GENGISSKRÁNING
Opinb. viðm.aenai Gengl
Kaup Sala skr.fundr-
Bandarfkjadollar 62,75 62,93 62,8-
Sterlingspund 99,95 100,21 100,08
Kanadadollar 45,70 45,88 45,79
Dönsk króna ....11,599 11,637 11,618
Norsk króna ... 10,176 10,210 10,193
Sænsk króna 8,667 8,697 8,682
Finnsktmark ....14,711 14,761 14,736
Franskur franki ....12,950 12,994 12,972
Belgískur franki ....2,2040 2,2116 2,2078
Svissneskurfranki. 54,53 54,71 54,62
Hollenskt gyllini 40,45 40,59 40,52
Þýskt mark 45,33 45,45 45,39
jtölsk líra ..0,03870 0,03887 0,03878
Austurrfskur sch 6,442 6,466 6,454
Portúg. escudo ....0,4294 0,4312 0,4303
Spánskur peseti ....0,5202 0,5224 0,5213
Japanskt yen ....0,7382 0,7404 0,7393
írskt pund ....102,67 103,09 102,88
Sérst. dráttarr 98^33 98>1 98^52
ECU-Evrópumynt.... 83,53 83,81 83,67
Grlsk drakma ....0,2790 0,2800 0,2795
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELG ARPAKK AN A
OKKAR
REYKJAVÍK
568-6915
AKUREYRI
461-3000
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar