Tíminn - 10.08.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.08.1995, Blaðsíða 1
SIMI 56B 1600 Brautarholti 1 STOFNAÐUR 1917 79. árgangur Fimmtudagur 10. ágúst 1995 146. tölublað 1995 FIB krefst lœkkunar á /ö- gjöldum bílatrygginga. Islensku tryggingaféíög- in eru vellauöug: Hrein eign í bótasjóðum eru 10 millj- arðar króna Hrein eign íslenskra trygginga- félaga í bótasjóöum sínum, sem notabir eru til ab grei&a úr vegna umferöaróhappa, er um 10 milljarbar kr. Sjó&ir þessir gildna stö&ugt, því á árinu 1993 voru tæpir 3,8 milljar&ar greiddir í þá, en út fóru 2,4 milljar&ar — og ávöxtun af rekstri sjó&anna er eftir því gó&. Því er mismunurinn milli inntektar og útgjalda og eignir sjó&anna ver&a sífellt meiri. Þetta kom fram á blaöamanna- fundi sem Félag íslenskra bif- reiöaeiganda stó& fyrir í gær en FÍB þrýstir áfram á um lækkun i&gjalda af tryggingum á bíl- um. Árni Sigfússon forma&ur FÍB var í forsvari á fundinum í gær og fram kom í máli hans að alvarleg- um slysum og dauðsföllum í um- ferðinni hér á landi hefur ekki fjölgað, heldur þvert á móti fækkaö. Skv. upplýsingum Um- ferðarráðs hefur hinsvegar skráð- um minniháttar óhöppum fjölg- að og þaö er fyrst og fremst vegna breyttra aðferða lögreglu viö skráningu óhappa. Nú eru öll óhöpp tekin inn í tölur Umferð- arráðs, en svo var ekki áöur. Sömuleiðis séu lægri fjárhæðir greiddar út hér á landi í slysa- og örorkubætur og það helgist af lægri meðallaunum. Þá segir jafnframt í greinargerð frá FIB, sem dreift var á blaðamanna- fundinum í gær, að afkomubati í rekstri tryggingafélaganna sé fyrst og fremst vegna fækkunar bifreiðatjóna. Það kemur heim og saman við tölur Umferðar- ráðs, allt þar til FÍB hefur lagt sín spil á borðin nú. Árni Sigfússon segir aö því hnigi allar staðreyndir að því að hægt sé að lækka iðgjaöld af bif- reiðatryggingum hér á landi verulega, um allt að 20 til 30 þús. kr. á ári. Leitað veröi allra leiða til að fá fram lækkun iðgjaldanna. ■ Borcjarstjóri vísar því á bug ab fjárhagsáœtlun borgarinnar hafi veriö óraunsœ: Ovissa um sömu liði og undanfarin ár Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri vísar þeirri gagnrýni Árna Sigfússonar á bug a& fjárhagsáætlun meiri- hluta borgarstjórnar fyrir þetta ár hafi verið óraunhæf. Hún segir sömu liði hafa ver- ið háða óvissu við gerð fjár- hagsáætlunar þessa árs og verið hafa undanfarin ár. Borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að leitað verði tilboða í útgáfu skuldabréfa í nafni borgarsjóðs að nafnvirði allt að 700 milljóna króna. Lánsféb verður notað til að Söfnun til styrktar fjölskyldu nýrnaveikra stúlkna: Á góbum batavegi Asta Kristín Gu&mundsdóttir, 13 ára stúlka úr Reykjavík, er á bata- vegi eftir nýrnaígræ&slu í Boston 20. júlí sl. Félag Árneshreppsbúa afhendir í dag peninga sem þegar hafa safnast til styrktar fjölskyldu hennar en söfnun félagsins er ekki lokið. Ferðin til Boston er sú þriðja sem hjónin Vilborj* Benediktsdóttir og Guðmundur Árni Hjaltason hafa farið á 11 árum vegna nýrna- ígræ&slu í tvær dætur sínar. Nýra úr föður stúlknanna var grætt í Ástu Kristínu árið 1984 og nýra úr móð- ur þeirra í Brynju dóttur þeirra, sem er núna 9 ára, árið 1987. ígræðslan lánaðist mjög vel hjá Brynju en Ásta Kristín hefur fengið höfnunar- einkenni og því þurfti hún að fara aftur út núna og fá nýtt nýra. í þetta sinn var þaö Ásta amma hennar og nafna sem gaf annað nýra sitt. Aðgerðin á þeim nöfnum var gerð þann 20. júlí en áður var búið að fjarlægja nýrað sem Ásta Kristín fékk frá föður sínum fyrir 11 árum. Aðgerðin gekk vel og eru þær nöfn- ur báðar farnar af spítalanum. Vilborg og Guðmundur Árni eiga fjögur börn, Ástu Kristínu, 13 ára, tvíburasysturnar Brynju og Örnu sem eru 9 ára og Benedikt Andrés 5 ára. Veikindi dætranna hafa reynst fjölskyldunni erfið fjárhagslega. Bæði kemur þar til beinn útlagður kostnaður í ferðum þeirra til Boston og vinnutap meðan á ferðunum stendur. Guðmundur Árni er málari mæta kostnaði borgarinnar á árinu umfram fjárhagsáætlun. Árni Sigfússon, oddviti Sjálf- stæðismanna í borgarstjórn, hefur lýst því yfir að lántakan nú sýni að fjárhagsáætlun meirihlutans hafi verið óraun- hæf. Ingibjörg Sólrún vísar þessu á bug. „Þegar fjárhagsáætlun var lögð fram í upphafi árs gerði ég sérstaka grein fyrir því að það væri óvissa um ákveðna liði og þeir gætu kallað á auka- fjárveitingu síðar. Þetta eru sömu liðir og hafa verið háðir óvissu undanfarin ár." Stærsti liðurinn af þeim sem kalla á aukafjárveitingu núna er sumarvinna skólafólks en vegna hennar þarf um 180 milljónir. Vegna fjárhagsað- stoðar félagsmálastofnunar er talið að vanti um 100 milljón- ir, og átaksverkefni borgarinn- ar kalla á 50 milljóna króna aukafjárveitingu. Borgarstjóri segir þetta vera liði sem alltaf séu háðir ákveðinni óvissu við gerð fjárhagsáætlunar. „Síðan bætist við kostnaðarauki vegna kjarasamninga sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhags- áætlun. Þar var stuðst við for- sendur Þjóðhagsstofnunar. Við sjáum t.d. að hjá Dagvist barna getur umframkostnaður vegna kjarasamninga orðið 100 milljónir." Yfirdráttur og víxlaskuldir borgarsjóðs eru nú um 700 milljónir. Stefnt er að því að þessar skuldir verði ekki hærri en 1400 milljónir í lok ársins sem er mun lægra en þær voru í lok síðasta árs. Ingibjörg Sól- rún segir að náist niðurskurð- ur á móti lántökunni nú verði hluti lántökunnar nýttur til að lækka yfirdrátt borgarinnar enda sé um hagstæðari lán að ræða. ■ Ungviðið kælt niður Miklir hitar hafa geisað á meg- inlandi Evrópu undanfarnar vikur og keppendur og áhorf- endur á heimsleikum íslenskra hesta í Zúrich í Sviss fóru ekki Hann var feginn aö komast í . kalda sturtu þessi snáöi enda hit- inn á heimsleikunum um og yfir 30 stig aö viöbœttu steikjandi sólskini. Tímamynd: Þ. Elenora jónsdóttir varhluta af því. 15-20 þúsund manns keyptu sig inn á mótið alla dagana. Nokkuð var um að fólk félli í yfirlið af því að sitja í sól og steikjandi hita við að fylgjast með íslensku hestunum og til þess að kæla áhorfendur niður var komiö fyrir úðara með köldu vatni við áhorfendapall- ana. Sjá úrslit og frásagnir af HM í Sviss í miðopnu. ■ Systkinin fjögur, þau Arna, Brynja, Ásta Kristín og Benedikt Andrés. að atvinnu og tapar því vinnu á besta tíma ársins. Fjársöfnun Félags Árneshrepps hefur staðið yfir frá því í febrúar sl. og hafa þegar safnast um 366 þús- und krónur að sögn Hilmars F. Thorarensen gjaldkera félagsins. Þeir sem vilja leggja fjölskyldunni lið geta lagt fé inn á reikning 1124- 26-50 í Sparisjóði Árneshrepps. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.