Tíminn - 10.08.1995, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.08.1995, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 10. ágúst 1995 Heimsleikar íslenskra hesta í Sviss: Fjölmennasta heimsmeistara- móti íslenskra hesta lauk í Fehraltdorf í Sviss á sunnudag. Þetta er fjölmennasta og eitt best skipulagöa heimsmeistar- mót frá upphafi. Ab sögn móts- stjóra lá fyrir seinasta daginn ab á milli 15 og 20 þúsund manns hefbu borgab sig inn á mótib en slíkur fjöldi hefur ekki sést á mótum sem þessum hingab til. "Þaö var ekki hægt ab gera bet- ur á lokasprettinum heldur en ís- lensku keppendurnir geröu," sagbi Pétur Jökull Hákonarson, landsliöseinvaldur íþróttadeildar íslenska liösins, þegar úrslit heimsmeistaramótsins í Sviss lágu fyrir síödegis á sunnudag. Miklir hitar og sólskin settu svip sinn á mótiö en hitinn í forsælu var um og yfir 30 stig alla dagana fimmgangi á Hugin frá Kjartan- stööum eftir haröa en örugga keppni. Eftir forkeppnina var -þjóöverjinn Karly Zingsheim efstur á þýskræktuöum gæöingi, Feyki frá Ringscheid. Karly, sem giftur er íslensku tamningakon- unni Rúnu Einarsdóttur, átti mjög slæman dag í úrslitakeppn- inni á sunnudeginum, sér í lagi í skeiðinu þar sem hann missti hestinn upp á stökk í öllum HEJTA- MOT KARI ARNORS- SON lolly og Ófeigur ósigrandi í fjórgangi og tölti. Siguröur V. Matthíasson, tvöfaldur heimsmeistari. og ekki ský sjáanlegt á himni. Reynt var aö kæla íslensku keppnishestana niður eins og mögulegt var og það bar þann ár- angur aö sólskinið og hitasvækj- an virtist ekki hafa sýnileg áhrif á árangurinn. jolly Schrenk stjarna Þjóöverja Mikil spenna var ríkjandi á lokadegi mótsins, sér í lagi var úrslita í fimmgangi beðiö með eftirvæntingu. Flestir höföu reyndar gefiö sér fyrirfrám aö Jolly Schrenk á Ófegi færöi þýska landsliðinu gullverölaun í fjór- gangi og tölti. Ófeigur er mjög öflugur fjórgangshestur en hans sterkasta hliö er hratt tölt og yfir- ferö svo og stökk, en í þessum greinum hlaut hann einkunnir frá 8,5-9,5. Ófeigur var hins veg- ar dæmdur niður fyrir skrefstutt tippi á fetganginum. Unn Krog- hen frá Noregi sýndi firnargóöa takta í fjórgangi og tölti á Hruna frá Snartarstöðum, en hún var í hópi betri knapa á mótinu. Hún hlaut silfurverðlaun í fjórgangi og hreppti 4. sætiö í töltinu. Þá átti Gaby Fuchtenschnieder einnig góöu gengi að fagna á sótrauðum glófextum klár frá Wendalinushof í Þýskalandi. Hún sigraði í keppni í tölti viö slakan taum og náði fjórða sæti í hlýönikeppni og fjórgangi. Glæsilegur árangur í fimmgangi Tvær skærustu stjörnur móts- ins voru Þjóöverjinn Jolly Schrenk og Siguröur Vignir Matthíasson frá íslandi enda báðir nettir og lægnir knapar. Sigurbur bar sigur úr býtum í 15-20 þúsund manns fylgd- ust með spennandi keppni ? 5-20 þús. manns fylgdust meb mótinu. Hulda og Stefnir nábu silfurverblaununum ífimmgangi. Islendingar tóku ekki þátt í hlýðnikeppninni enda hefur sú grein löngum veriö ein veikastá hlið íslenska landsliðsins. Þar sigraði Doris Kainzbauer frá Aust- urríki á hestinum Kópari frá Hrepphólum. Næst í röðinni var Satu Paul frá Finnlandi á Eitli frá Hnausum en hún varö einmitt sigursæl á Norðurlandamótinu í Finnlandi í fyrra. íslensku keppendurnir og aö- standendur þeirra voru mjög á- nægðir með árangurinn í heild. íslendingar unnu til þriggja gull- verölauna í stað fjögurra á HM í Sparnwooude í Hollandi fyrir tveimur árum. Á móti kemur að allir keppendur íslenska liösins náðu inn í A-úrslit sem ekki hef- ur gerst áður. Þrír af hestum ís- lenska liösins helltust úr lestinni. Eins og áöur segir dró Sigurbjörn Báröarson Höfða út úr keppni vegna meiðsla og sömuleiðis fór Erill frá Felli, sem Sigurður Mar- iníusson átti að hleypa í 250 m. skeiði, ekki í keppni vegna helti. Þá komu í ljós eftir flutninga meiðsli á Hnokka, hesti Atla Guðmundssonar, sem gerðu það að verkum að hann komst ekki í keppni. þremur tilraununum. Slæmur ár- angur Karlys á Feyki opnaöi leið- ina fyrir Huldu Gústafsdóttur á Stefni frá Tunguhálsi, en hún sýndi örugga reiömennsku og hækkaði sig úr 6. sæti í forkeppn- inni upp í 2. sæti í úrslitunum. Eiginmaður Huldu, Hinrik Braga- son keppti einnig fyrir íslands hönd í 250 m. skeiði á Eitli frá Akureyri og náði þar 3. sæti en þetta er í fyrsta sinn sem hjón keppa sameiginlega í landsliðinu. Einar Öder Magnússon hirti silf- urverðlaunin í fimmgangi á Mekki frá Þóreyjarnúpi, en Karly og Feykir urðu að sætta sig viö 5. sætið og hefðu átt betra skilið. Höfbi dreginn úr keppni Sigurbjörn Bárðarson dró Höfða frá Húsavík út úr keppni eftir skeiðkeppni og undanúr- slitakeppni í fimmgangi. Höfði, sem verið hefur úti síðan á heimsmeistaramótinu í Hollandi 1993, reyndist ekki vera í fullu formi, meiösl í fæti frá því fyrr í sumar tóku sig upp og þó þau væru ekki alvarleg var hesturinn tekinn úr keppni. Engu að síður náði Sigurbjörn að verja heims- meistaratitilinn í gæðingaskeiði en í öðru sæti hafnaði Einar Öder Magnússon á Mekki.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.