Tíminn - 10.08.1995, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 10. ágúst 1995
_
mmmu
7
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Króatískir hermenn skjóta fallbyssuskotum á bœkistöbvar Bosníu-Serba.
Víða er Iitib svo á að skyndiárás
Króata inn í Kraínu-hérað, sem
Serbar hafa hingað til haft á
valdi sínu, hafi breytt stöðunni
í átökunum á Balkanskaga á af-
gerandi hátt sem hugsanlega
gæti auðveldað fyrir friðarum-
leitunum. Hins vegar er engin
trygging fyrir því að „tengsla-
hópurinn" svonefndi, þ.e. sam-
ráðshópur Rússlands, Banda-
ríkjanna, Þýskalands, Frakk-
lands og Bretlands, geti komið
sér saman um næsta skref þrátt
fyrir stöðugar viðræður.
Rússar hafa meiri samúð með
Serbum og eru tortryggnir á íhlut-
un Vesturlanda á Balkanskagan-
um. Þeir hafa kvartað yfir því hjá
Sameinuðu þjóðunum að innrás
Króata inn í Kraína-héraö hafi
skemmt fyrir friðartilraunum en
þeim hefur þó ekki tekist að sann-
faera Bandaríkin og aðra um að
rétt sé að hóta Króatíustjórn refsi-
aðgerðum.
Vesturveldin eru ennþá að
reyna að koma sér saman um
ályktun sem lögð yrði fyrir Sam-
einuðu þjóðirnar enda þótt vart
sé hægt að reikna með því að slík
ályktun hefði mikil áhrif þegar
hernaðaraðgerðum Króata er lok-
iö og markmiði þeirra er náð.
Boris Jeltsín Rússlandsforseti
hefur boöið leiðtogum Króata og
Serba til viðræðna í Moskvu til að
reyna aö ná fram samkomulagi.
Vesturveldin tóku þessum hug-
myndum Jeltsíns fálega frá upp-
hafi. Þau setja þab fyrir sig ab Bo-
sníustjórn, sem er í höndum
Múslima, var ekki boðið til við-
ræðnanna í Moskvu, og hafa auk
þess áhyggjur af því aö Serbar og
Króatar hafi gert leynisamkomu-
lag um aö skipta Bosníu á milli
sín og yrði þá framtíð múslima
alls óviss. „Ef eitthvað verður úr
þessum viðræöum má það ekki
verða til þess að múslimar bíði
skaða af," sagði Klaus Kinkel, ut-
anríkisráðherra Þýskalands, í
blaöaviðtali í gær. Franjo Tu-
djman Króatíuforseti sagðist í gær
ekki koma til viðræðnanna nema
þær væru betur undirbúnar, auk
þess sem hann gerði þab að skil-
yrði að Alija Isetbegovic, leiðtogi
Bosníu, myndi einnig koma til
viðræðnanna.
Bandaríkjastórn hefur ekkert
sagt opinberlega um heimboð
Jeltsíns, en á þriðjudaginn til-
kynnti hún að sendinefnd hátt
settra aöila myndi halda til Lond-
on, Parísar og Bonn til viðræðna
nú í vikunni — en ekki til
Moskvu. Þessi sendiför var greini-
lega ákveöinn í nokkrum flýti, og
að því er virðist einkum vegna
harðrar gagnrýni innanlands á
stefnuleysi stjórnarinnar í mál-
efnum Balkansskagans.
Evrópskur stjórnarerindreki,
sem vildi ekki láta nafns síns get-
ið, sagöi auk þess: „Það er 'engu
líkara en að Rússar og Bandaríkja-
menn séu komnir í samkeppni og
það er ekkert sem bendir til þess
að þeir hafi neitt sem máli skiptir
til málanna ab leggja."
Vesturveldin eru enn að reyna
ab fá Serba til að samþykkja frið-
aráætlun sem felur það í sér að
Bosníu yrði skipt nokkurn veginn
jafnt á milli Serba annars vegar og
sambandsríkis Króata og múslima
hins vegar. En Radovan Karadzic,
leiðtogi Bosníu- Serba, hefur ekki
sýnt minnsta áhuga á að sam-
þykkja þá áætlun.
Vonir Vesturveldanna eru nú
bundnar við það að Karadzic
verði undir í valdabaráttu við
Ratko Mladic, yfirmann herliðs
Bosníu-Serba, sem er í nánu sam-
bandi við stjórnina í Belgrad. Ef
það gengur eftir er hugsanlegt að
Slobodan Milosevic forseti gæti
fengið Mladic til að fallast á frið-
aráætlunina.
Eini raunverulegi valkosturinn
sem fram hefur komið er sam-
komulag, sem Carl Bildt gerði viö
Milosevic, um að refsiaðgeröum
Sameinuðu þjóðanna yrði létt af
Serbíu gegn því að hún viður-
kenni formlega sjálfstæði Bosníu.
Slík viðurkenning myndi hugsan-
lega binda endi á allar vangavelt-
ur um að Bosníu yrði skipt upp og
fyrir vikið yrðu Bosníu- Serbar
einangraðri en nokkru sinni fyrr,
sem gæti þýtt ab þeir neyddust til
að fallast á einhver konar sam-
komulag.
Frumbyggjar Astralíu:
Hvab varb
um „stolnu
kynslóðina"?
Sydney — Reuter
Ríkisstjórnin í Ástralíu lét í
gær hefja rannsókn á afdrif-
um „stoinu kynslóðarinnar"
svonefndu, tugþúsundum
frumbyggja sem neyddir voru
til þess að yfirgefa fjölskyldur
sínar samkvæmt stefnu
stjórnvalda allt fram á miðjan
sjöunda áratuginn.
Frumbyggjar hafa kallað
þessa aðskilnaðarstefnu þjóöar-
morð vegna þess að markmiðið
með henni var að frumbyggj-
arnir myndu smám saman sam-
lagast öðrum íbúum Ástralíu,
sem þá voru í yfirgnæfandi
meirihluta af engilsaxnesku
bergi brotnir.
Robert Tickner ráðherra, sem
fer með málefni frumbyggja í
ríkisstjórninni, segir rannsókn-
ina vera mikilvægt skref í þá átt
að koma á sáttum milli frum-
byggja og annarra íbúa Ástral-
íu.
„Flestir íbúar Ástralíu sem
ekki eru innfæddir gera sér enn
í dag enga grein fyrir því hvað
þessar aðskilnaðaraögerðir voru
umfangsmiklar," sagöi hann.
Börnunum sem tekin voru frá
fjölskyldum sínum var í fæst-
um tilvikum sagt frá því aö þau
væru frumbyggjar, og þá ekki
fyrr en þau komust á fullorðins-
aldur. Og menn geta rétt
ímyndað sér þau áhrif sem
þetta hafði á fjölskyldurnar sem
þurftu að horfa upp á börnin
sín tekin burt. „Það eru bókstaf-
lega tugþúsundir fullorðinna
frumbyggja sem hafa beðið var-
anlegt sálrænt tjón af þessari
aðskilnaðarstefnu," sagði Brian
Butler, yfirmaður Barnavernd-
arstofnunar frumbyggja.
Fjöldi frumbyggja hefur
höfðað mál gegn stjórnvöldum
og krefst skaðabóta fyrir aö-
skilnaðinn frá fjölskyldum sín-
um. „Þetta mál er óskrifað blað
í sögu Ástralíu," sagði Butler.
„Það er kominn tími til aö rikis-
stjórnin taki opinberlega á sig
ábyrgð á gerðum sínum og
greiði bætur til þeirra sem uröu
fyrir þeim." ■
Sendiherra Rúmeníu í Túnis í viötali viö ítalskt dagblaö:
Ceausescuhjónin voru
pyntuð fyrir aftökuna
Gelu Voican-Voiculescu, sá
sem hafði yfirumsjón með af-
töku rúmenska einræöisherr-
ans Nicolaes Ceausescus og
eiginkonu hans Elenu árib
1989, hefur nú upplýst, í vib-
tali við ítalska dagblaðið L'Es-
presso, ab þau hafi bæði verið
pyntub ábur en aftakan fór
fram. Einnig upplýsir hann að
hluti vídeómyndanna sem
teknar voru af aftökunni hafi
enn ekki verib sýndar í rúm-
enska sjónvarpinu.
í viðtalinu segir Voican-Voicu-
lescu meðal annars: „Jafnvel enn
í dag, að fimm árum liðnum, finn
ég ekki til neinnar meðaumkunar
þegar ég horfi á þá hluta mynd-
bandsins þar sem bundið er fyrir
augun á Ceausescu hjónunum,
þau lamin og pyntuð og síðan
skotin — myndir sem rúmenska
þjóðin hefur ekki enn séð."
Voican-Voículescu er nú
séndiherra Rúmeníu í Túnis.
Hann hafði sem fyrr segir yfir-
umsjón með aftökunni árið
1989, en síðan var hann vara-
forsætisrábherra landsins þang-
að til fyrstu kosningarnar fóru
þar fram áriö 1990. ■
Afsökunarbeiðni ókomin
í gær var þess minnst í Nagasaki ab fimmtíu ár eru libin frá
því Bandaríkjamenn vörpubu kjarnorkusprengju á borgina. Við
þab tækifæri sagbi borgarstjórinn í Nagasaki ab vart væri vib
því ab búast að mark yrbi tekið á áskorun um eyöingu allra
kjarnorkuvopna, sem borgarbúar sendu frá sér til heimsbyggb-
arinnar í gær, fyrr en japan hefði bebist með formlegum hætti
afsökunar á framferbi sínu f seinni heimsstyrjöldinni.
Að drukkna í pappírsflóði
Ráðherraráð Evrópusambandsins er ab drukkna f pappírs-
flóði og skortir tilfinnanlega aðstöbu til ab geyma allar þær
skýrslur og skjöl sem rábinu bæbi berast og sem þab sjálft gef-
ur út. Hefur ráðib gripib til þess rábs að hætta ab senda frá sér
prentabar fréttatilkynningar, héðan í frá verða þær eingöngu
fáanlegar í gegnum tölvupóst.
Sumarauki í
Eystri-Rangá
Gó& tilbob í gangi í ágúst, t.d. frí gisting fyrir þrjár stang-
ir saman o.fl. Hringiö og kynnið ykkur málib.
Ásgar&ur viö Hvolsvöll, sími 487 8367, fax 487 8387.