Tíminn - 24.08.1995, Qupperneq 7
Fimmtudagur 24. ágúst 1995
7
UTLOND . . . UTLÓND . .. UTLOND . .. UTLOND . .. UTLOND . .. UTLOND . .. UTLOND . . . UTLOND . . .
Aukinn hernabarmáttur múslima í Bihac héraöi í kjölfar innrásarinnar í Krajína:
Láta Bosníu-múslimar til
skarar skríöa innan skamms?
Stefnt aö frí-
verslunar-
svæöi ríkja í
suöurhluta
Afríku
Zagreb — Reuter
„Héraðsstjómin í Bihac hefur
lýst því yfir, og við höfum enga
ástæðu til þess að efast um það,
að þeir ætli að hernema land-
svæði allt að landamærunum
sem gert er ráð fyrir í samkomu-
lagsdrögum Samráðshópsins,"
segir starfsmaður Sameinuðu
þjóðanna. í samkomulagi Sam-
ráðshópsins svonefnda (Cont-
act Group) er gert ráð fyrir því
að 51% alls landsvæðis í Bosníu
gangi til sambandsríkis Króata
og múslima, en Serbar fái af-
ganginn. Bosníu-Serbar neituðu
hins vegar að samþykkja þessi
skipti, en þeir náðu 70% af Bo-
sníu á sitt vald árið 1992.
Eftir að Króatar réðust inn í
Krajína hérað og náðu því á sitt
vald hefur Bihac hérað í Bosníu,
þar sem múslimar eru í meiri-
hluta, komist í beint samband
við Króatíu, en héraðið hefur
um langa hríð verið einangrað
svæði inni á hernámssvæði
Serba. Með sambandinu við
Króatíu hefur ástandið í hérað-
inu tekið stakkaskiptum, birgðir
hafa streymt inn í héraðið frá
Króatíu. Auk þess er ljóst að
múslimar í Bihac héraði hafa
náð á sitt vald fjöldanum öllum
af vopnum af Serbum sem voru
í Krajína héraði.
„Það er komin upp algerlega
ný staða í Bihac héraði," segir
starfsmaður Sameinuðu þjóð-
anna. „Með aðgangi að Króatíu
getur efnahagurinn tekið fjör-
kipp og fimmta herdeildin hef-
ur aukið hernaðarmátt sinn svo
um munar." Fimmta herdeild
Bosníustjórnar er staðsett í Bi-
hac héraði, en hún tók þátt í
bardögunum í Krajína héraði og
aðstoðaði Króata við að ná því á
sitt vald. „Þeir náðu á sitt vald
heilmiklu af vopnum og mikl-
um birgðum af skotfærum frá
Krajína-Serbum," segir hann.
Hrakfarir Serba í Króatíu og
Bosníu undanfarið hafa dregið
nokkuð úr þeim kjarkinn,
klofningur hefur myndast í röð-
um æðstu valdamanna þeirra og
ringulreið ríkir í hernum.
Bosníu-Serbar eru engu að síð-
ur mun betur vopnum búnir en
andstæðingar þeirra. Samt sem
áður er talið líldegt að múslimar
í Bihac héraði muni innan
skamms láta til skarar skríða og
stefni aö því að hertaka um 60
km breitt landsvæði sem liggur í
boga frá norðaustri til suðvest-
urs út frá landamærum Bihac.
Tugir þúsunda múslima og Kró-
ata voru hraktir af þessum
svæðum í upphafi stríðsins árið
1992 og í fimmtu herdeildinni í
Bihac1 eru þúsundir biturra
flóttamanna frá þessum svæð-
um sem eru staðráðnir í að ná
svæðinu aftur.
Einnig er hugsanlegt að her-
inn stefni lengra suður á bóginn
inn í Bosníu og komi þar til liðs
við hermenn Króata sem enn
eiga eftir að tryggja stöðu sína á
hluta landamæranna milli
Króatíu og Bosníu.
Kóngur í ríki fjölmiölanna:
Gerði kaupsamning
upp á 1200 milljaroa
Michael Eisner stjórnarformabur Walt Disney/ABC;
„ Músin sem öskrabi" virbist vera réttnefni, því nú
stjórnar hann mesta fjölmiblarisa heims eftir yfir-
töku Disney á ABC. Og af toppnum getur hann
öskrab þab sem hann vill á allt og alla.
Michael Eisner er af þýsku
bergi brotinn, nánar tiltekið af
bæverskum ættum, en afi
hans, Sigmund Eisner, auðg-
aðist í Ameríku á því að fram-
leiða skátabúninga og föt fyrir
herinn. Það hefur því alltaf
verið ríkidæmi í kringum Ei-
sner. Hann er 53 ára gamall og
kaup hans á ABC eru önnur
stærstu fyrirtækjakaupin í við-
skiptasögu Bandaríkjanna, en
söluverðmæti samningsins er
um 19 milljarðar dollara, eða
um 1200 milljaröar íslenskra
króna. Þetta jafngildir tíföld-
um fjárlögum íslenska ríkisins
og rúmlega það! Að þessum
samningi gerðum stjórnar
hann nú einni samsteypu sem
verður mesta fjölmiðlaveldi í
sögunni, þ.e.a.s. ef allir við-
komandi hluthafar og hiö pp-
inbera samþykkir kaupin. Á
þessari stundu er ekkert sem
bendir til annars.
Hver er Michael Ei-
sner?
En hver er þessi maður, sem
að öllum líkindum er orðinn
valdamesti fjölmiðlamaður í
víðri veröld. Hann er hávax-
inn og frjálslegur í fasi, dökk-
hærður, frekar breiðleitur og
allt að því valdsmannslegur.
Hann þykir samt bjóða af sér
strákslegan þokka og lætur oft
mynda sig með ekta ameríska
hornaboltahúfu og gjarnan
með Mikka mús og Minní mús
sér við hlið. Enda er Michael
Eisner stjórnarformaður í Walt
Disney. Og þegar ABC hefur
bæst við hefur hann á valdi
sínu fyrirtæki sem árlega skila
um 6-700 milljarðum ís-
lenskra króna í tekjur.
Bakvið strákslega grímu
leynist hinsvegar maður með
ótakmarkað sjálfstraust, mik-
inn metnað og gífurlegt
keppnisskap. Sagt er að kröfur
annarra Hollywood-forstjóra
séu nánast barnaleikur miðað
við þær kröfur sem Michael F.i-
sner gerir. Eiginkona hans og
nánasti ráðgjafi heitir Jane.
Hún er tölvunarfræðingur og
þau kynntust
fyrir 27 árum.
Saman eiga þau
þrjú börn. Vinir
þeirra eru fáir.
Michael er
með puttana í
öllu, hann
stjórnar, og eng-
ar endanlegar
ákvarðanir eru
teknar nema
með hans sam-
þykki; endanleg
klipping kvik-
myndar verbur
að fá hans sam-
þykki, bók frá
fyrirtækinu
einnig. Allt sem
Disney framleið-
ir og sendir á
markað verður
að fá hans
stimpil. Hug-
mynd sem Mi-
chael Eisner líst
ekki á deyr þar
meb. Af þessu má ljóst vera að
hér er einvaldur á ferð. Og víst
er að stjórnunarhættir hans
munu ekki breytast við yfir-
töku Disney á ABC.
Tók við Disney í
dauðateygjunum
En hann á kannski þessi
völd skilið, því þegar hann tók
við Disney árið 1984 var fyrir-
tækið dauðvona og lifði á
fornri frægð, aballega gömlum
teiknimyndum. En á þeim ár-
um sem Eisner hefur stýrt því
hefur leiðin legið upp á við og
hefur fyrirtækið sem frá sér
kvikmyndasmelli á borð við
Raider of the Lost Ark, Satur-
day Night Fever og Lion King,
sem er arðbærasta kvikmynd
sem gerb hefur verið. Og á síð-
asta ári varö kvikmyndadeild
Disney sú fyrsta í sögu Banda-
ríkjanna til að taka yfir millj-
arð dollara inn í miðasölu á
einu ári.
Villtu selja mér ABC ?
Árlega hittast (há)karlarnir í
amerískum fjölmiðla- og
skemmtanaiðnaði til skrafs og
ráðagerða. í júlí sl. hittust þeir
í Sun Valley í Idaho fylki. Mi-
chael Eisner var ekki á því að
fara í þetta sinn, því að í fyrra
veiktist hann á fundinum og í
framhaldi af því þurfti hann
að fara í hjartaþræðingu. En á
síðustu stundu ákvað hann að
fara á fundinn í ár. Þar hitti
hann Warren Buffet, sem er
stærsti hluthafinn í ABC. Út í
loftið spurði Michael millj-
arðamæringinn hvort hann
væri til í að selja sér ABC. Svar
hans var eitthvað á þessa leið:
„Já, það hljómar vel." Og þar
með var þab ákveðið. Næstu
tvær vikur (síðustu tvær vikur
júlí) voru notaðar vel til þess
að ganga frá öllum smáatrið-
um í samningnum, sem kom
öllum gjörsamlega í opna
skjöldu þegar hann var kynnt-
ur um síðustu mánabamót.
En Michael Eisner má passa
sig. Hann er ekki aðeins á tind-
inum á mesta fjölmiðlarisa
heims, og þangað eru alltaf
aðrir á leibinni, leynt eða Fjóst.
Læknar hafa líka varab hann
við og segja ab vegna hjartans
verði hann ab slaka á. Ekkert
bendir til þess ab hann ætli sér
þó að gera það og nýjasta verk-
efni Michaels Eisners, „músar-
innar sem öskraði", eins og
hann er kallaður, er að skrifa
bók um það hvernig á ab
stjórna skaþandi fyrirtæki sem
nýtur velgengni.
Byggt á The Sunday Times.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA! ^
UUMFEROAR
RÁD
jóhannesarborg — Reuter
11 ríki í suðurhluta Afríku,
sem eru aðildarríki Suður Afr-
íska þróunarbandalagsins
(SADC), stefna að því að und-
irrita frumsamkomulag um
fríverslunarsvæði bandalags-
ins í ágúst á næsta ári.
„Við höfum komiö okkur
saman um að stefna ab sam-
eiginlegum innri markaði ríkj-
anna," segir Abraham Paí-
langyo, sem sér um samræm-
ingu verslunar- og iðnaðar-
mála innan
þróunarbandalagsins. „Hve-
nær við náum því marki veit
ég ekki, en fyrsta skrefið er að
skapa fríverslunarsvæði."
Hann bætti því við að þetta
væri talin besta leiðin til þess
að taka á þeirri staðreynd að
sum aðildarríkja SADC eiga
jafnframt aðild að öðrum við-
skiptabandalögum: níu þeirra
eru einnig aðildarríki Comesa,
sem er sameiginlegt markaðs-
svæði 24 ríkja í suöur- og aust-
urhluta Afríku; og fimm þeirra
eiga einnig abild að tolla-
bandalagi Suður Afríku
(SACU).
Aðildarríki þróunarbanda-
lagsins (SADC) eru Angóla,
Botsvana, Lesótó, Malaví, Mó-
sambík, Namibía, Sambía,
Simbabve, Suður-Afríka, Svasí-
land og Tansanía.
Ver&ur Wu látinn
laus á næstu dög-
um?
Kínverjar eru nú að búa
sig undir að yfirheyra kín-
versk-ameríska mannrétt-
indafrömubinn Harry Wu,
með þab fyrir augum að
honum verði sleppt úr
haldi á næstu dögum, ab
því er Los Angeles Times
skýrbi frá f gær. Var þar
vitnað í háttsetta embætt-
ismenn Clintons Banda-
ríkjaforseta, sem sögðu að
Kínverjar stefndu að því
að Wu verbi látinn laus
áður en kvennaráðstefnan
í Peking hefst í næstu viku.
„Þeir munu sennilega
láta hann mæta fyrir rétti
og sakfella hann fyrir eitt-
hvað — einhvers konar
njósnir, eftir þvf sem við
höfum heyrt," sagði Mike
McCurry, talsmabur Hvfta
hússins.
Microsoft dreifir
Times ókeypis
í dag gerist þab, í fyrsta
sinn í 307 ára sögu dag-
blaðsins Times í London,
ab því veröur dreift endur-
gjaldslaust til lesenda.
Kostnabinn af þessu borg-
ar bandarfski hugbúnað-
arrisinn Microsoft, og er
þetta gert í tilefni þess að
alþjóðlegur útgáfudagur
Windows 95 er í dag.
Times verbur prentað í
1,5 milljón eintökum, sem
er helmingi meira en
venjulegt upplag blaðsins.