Tíminn - 20.10.1995, Síða 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur Föstudagur 20. október 1995 197. tölublaö 1995
Byggingavísitala:
1,2 prósent
verðbólga
Hagstofan hefur reiknaö út vísi-
tölu byggingarkostnaðar sam-
kvæmt verölagi um miðjan
október. Hún hefur hækkaö um
0,3% frá því í september. Síö-
ustu tólf mánuöi hefur vísitalan
hækkaö um 3,4%. Undanfarna
þrjá mánuöi hefur hún hins
vegar hækkað um 0,3 sem jafn-
gildir 1,2% veröbólgu umreikn-
að til ársgrundvallar. ■
íslensk mynd verölaunuö:
Ási vinsæll
í Chicago
Barnamyndin Ási hlaut veröaun
sem vinsælasta kvikmyndin á kvik-
myndahátíð bama og unglinga
sem haldin var í Chicago í Banda-
ríkjunum á dögunum. Myndin var
valin vinsælust af áhorfendum úr
hópi 130 mynda frá 35 löndum.
Myndin, sem var framlag Innlendr-
ar dagskrárdeildar Sjónvarps í leik-
inni þáttaröð innan barna og ung-
lingaeilda evrópsku sjónvarstö-
vanna (EBU), er eftir Sigurbjöm Að-
alsteinsson. Myndin er þriðja
mynd Sigurbjöms sem hlýtur verð-
laun á erlendri grundu en hinar eru
„Hundur, hundur" og „Ókunn
dufl". Sigurbjörn er þessa dagana
að ljúka annari mynd fyrir Sjón-
varpið sem verður framleg í nýrri
þáttaröð innan EBU og nefist sú
mynd „Björgun". ■
Ingvar Viktorsson bæjarstjóri
Hafnarfjarðar viðurkenndi á
blahamannafundi í gær að á hann
rynnu nú tvær grímur varðandi
bæjarábyrgðir, sem hann í eina tíð
hafi verið samþykkur. Málefni
Miðbæjar Hafnarfjarðar, sem fékk
120 milljón króna bæjarábyrgð,
hafa orðib bænum dýrkeypt.
Hafnarfjarðarbæ er í raun nauð-
ugur sá kostur að kaupa af fyrirtæk-
inu eignir upp á 250 milljónir
króna, hótelturn og bílakjallara, og
leggja í afar flókið ferli makaskipta á
fasteignamarkaði. Sá gjörningur
verður endanlegur á fundi bæjar-
stjórnar eftir helgi. Ljóst er að
minnihluti bæjarstjómar hefur sitt-
hvað vib samningana að athuga. í
bæjarráði upphófust miklar þrætur
Fjölmennur félagsfundur í
Verkamannafélaginu Dagsbrún
samþykkti mótatkvæbalaust í
Bíóborginni í gær aö fela stjórn
og trúnabarmannarábi félags-
ins ab segja upp gildandi kjara-
samningi, frá og meb næstu
áramótum. Ábur en til at-
kvæbagreibslu kom, hafbi
fundurinn í raun samþykkt til-
lögu stjórnarinnar meb lófa-
klappi þegar hún var lesin upp í
upphafi fundar.
Niðurstaðan í Bíóborginni kom
í sjálfu sér ekki á óvart miðað við
þá óánægju sem var meö samn-
ingana þegar þeir voru samþykkt-
ir fyrir rúmu hálfu ári síðan. Þaö
milli fylkinganna í gærdag.
í makaskiptaferlinu sem fram-
undan er eru meðal annars kaup
Hafnarfjarðarkaupstaðar á 659 fer-
metra húsnæði í gömlu Morgun-
blaðshöllinni í hjarta Reykjavíkur.
Þá eign hyggst Hafnarfjarðarbær
selja Reykjavíkurborg eða öðrum
þeim sem kaupa vilja. Eignin er
keypt af SÍF, sem aftur kaupir í hót-
eltumi miðbæjarframkvæmdanna
auk þess að fá lóö til athafna í bæn-
um.
Þeir Ingvar Viktorsson og Jóhann
Gunnar Bergþórsson, formaður
Miðbæjarnefndar, sáu þó eilítið ljós
í myrkrinu. Þrátt fyrir aö bærinn
verði nú enn skuldsettari en fyrr,
næst sá árangur ab ljúka fram-
kvæmdum við vægast sagt um-
kom hinsvegar fram í máli ræðu-
manna á fundinum að það væri
ekki nóg að segja samningunum
upp, ef menn væru ekki tilbúnir
að leggja hart að sér í baráttunni
fyrir hækkun launa og betri kjör-
um.
Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar sagði í
ræðu sinni á fundinum að hug-
myndafræöilegur grundvöllur
febrúar-samninganna hefði snú-
ist í andhverfu sína með þeim
samningum sem gerðir hafa verib
við þá sem á eftir komu. Hann
sagði það vera áfellisdóm yfir ís-
lensku atvinnulífi að í nágranna-
löndum væri hægt aö greiða allt
deilda miðbæjarbyggingu. Þá næst
líka sá árangur að stórfyrirtækið SÍF,
Sölusamtök íslenskra fiskframleið-
enda, góbur skattgreibandi og at-
vinnuskapandi, flytur alfarið í
Hafnarfjörð og kaupir tvær hæðir í
svokölluðum hótelturni miðbæjar-
kjarnans ásamt 20 bílastæöum í
kjallara. Hótelturninn svonefndi
kostar Hafnarfjörð 169 milljónir
króna en bílakjallari tæpar 84 millj-
ónir.
Jóhann Gunnar Bergþórsson
benti á að nágrannasveitarfélög
legðu fram fé þegar í byrjun til að
stuðla að framgangi „kringlu"versl-
ana, þab væri því ekkert einsdæmi
að bæjarfélög kæmu að rekstri sem
þessum. Þá benti hann á ab fyrrver-
andi meirihluti hefði hjálpab verk-
að þrefalt hærri laun fyrir sam-
bærilega vinnu og unninn er hér-
lendis. Þaö heföi hinsvegar verib
tekið eftir því að enginn af for-
svarsmönnum atvinnulífsins
hefði getaö útskýrt ástæður fyrir
þessum launamun.
Hann gagnrýndi harðlega
meintan stöðugleika og þá aðal-
lega vegna þess að tilgangur þeirr-
ar efnahagsstefnu virtist ein-
göngu vera á þá leið að halda lág-
um launum áfram lágum. Afleið-
ingarnar væru m.a. þær að
verkafólk gæti ekki lengur eignast
eigið húsnæði og þaðan af síður
búið í félagslega íbúðarkerfinu
vegna lágra launa.
takafyrirtækinu Byggðaverki út úr
ógöngum gagnvart Iðnlánasjóði.
Nauðsynlegt væri að koma til að-
stoðar Miðbæjarframkvæmdum
sem réðu ekki lengur við fram-
kvæmdina. Miðbæjarframkvæmdin
var á sínum tíma gagnrýnd, jafnt af
fagurfræðilegum sem og viðskipta-
fræðilegum ástæðum.
Ingvar Viktorsson sagði að Hafn-
arfjörður, senn næst stærsti bær
landsins yrði að geta boðið upp á
samsvarandi aðstöðu og önnur
sveitarfélög. „Sjálfstæbi okkar bygg-
ist á því að halda versluninni í bæn-
um," sagði Ingvar. Hann sagði við-
skipti í nýja verslunarkjamanum
lífleg. Ingvar neitaði því að bygg-
ingin hefbi frá upphafi verið mis-
tök. -JBP
Formaðurinn sagði að ekkert afl
gæti stöðvab verkalýöshreyfing-
una ef hún legðist á eitt í barátt-
unni fyrir markmiðum sínum og
skoraöi á önnur félög að fylgja
fordæmi Dagsbrúnar og ísfirskra
verkamanna í Verkalýðsfélaginu
Baldri. Hann sagði aö VSÍ stjórn-
aði ekki Dagsbrún og gaf lítið fyr-
ir viöleitni þeirra til að beita ein-
hverjum lagarefjum til að reyna
að hindra framgang réttlætis.
-grh
SFR á fundi í gœr:
Vill ræða
uppsögn
samninga
Á trúnaðarmannafundi SFR sem
haldinn var í gær var samþykkt
ályktun þar sem launastefna
vinnuveitenda og ríkisvalds er
harðlega gagnrýnd.
Beinir trúnaðarmannaráðið því í
samþykkt sinni til stjórnar félagsins
að kalla saman samninganefnd og
Iaunamálaráð til þess að ræða upp-
sögn samninga. SFR er fyrsta félag
opinberra starfsmanna til að hreyfa
uppsagnarmálum og er tónninn í
félaginu augljóslega svipaður og í
félögum sem samþykkt hafa upp-
sögn samninga. Þannig er t.d. talað
um ab „á sama tíma og almennu
launafólki er skammtab úr hnefa
færir alþingi og kjaradómur háemb-
ættismönnum, ráðherrum og al-
þingismönnum tugþúsundir á silf-
urfati." Trúnaðarmannafundurinn
krefst þess einnig ab gerðar verði
breytingar á þeim þáttum fjárlaga-
frumvarpsins sem rýra kjör launa-
fólks og valda auknu misrétti og
ójöfnuði í þjóöfélaginu. ■
Hafnarfjaröarbœr fastur í neti bœjarábyrgöarinnar og kaupir fasteignir fyrir rúmar 250 milljónir króna:
Kaupir í Moggahöllinni —
fær aðalstöövar SÍF í bæinn