Tíminn - 20.10.1995, Blaðsíða 10

Tíminn - 20.10.1995, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 20. október 1995 Þegar ekiö er út á Skaga frá Saubárkróki, er fyrst fariö um Gönguskörö og nokkru síöar blasir neöri hluti Laxár í Laxárdal viö sjónum vegfarenda. Skömmu áöur en komiö er aö brú yfir ána hjá Skíöastööum, liggur vegur til vinstri upp meö Laxá inn Laxárdal og yfir Þverárfjall og á Skagastrand- arveg. Þetta er einkar falleg akstursleiö aö sumarlagi og aöeins fær á þeim tíma. Undanfarin misseri hefur ver- iö unnið að stórfelldum vega- bótum á vegi út fyrir Skaga. Halldór Blöndal samgönguráð- herra hefur boðað aö umbætur á fyrrgreindri leið um Þverárfjall séu á dagskrá á næstu árum. Víst er að ef svo veröur, mun þetta veröa fjölfarin leið, ekki síst feröalanga sem vilja breyta til eða fara styttri leið og losna við hraðakstursumferð á þjóð- vegi 1, a.m.k. aðra Ieiðina um Langadal, Stóra-Vatnsskarð til Skagafjaröar. Upptök Laxár í Laxárdal, eða Laxár í Skefilsstaðahreppi, eru Tröllabotnar, rétt við fjallið Tröllakirkju sem er á mörkum Austur- Húnavatnssýslu og Skagafjarðarsýslu. Þannig er Laxá á Refasveit á ferð vestan við „kirkjuna" og upptök henn- ar nokkru sunnar. Laxá í Skaga- firði er laxgeng 28 km, að Háa- fossi. Hún fellur í sjó í Sævar- landsósi, fast við norðurenda Tindastóls. Eingöngu er veitt á stöng í ánni og notaðar mest tvær stengur við veiðar. Jarðeigendur við ána nýta veiðina sjálfir og hafa þarafleiðandi til afnota eig- ið húsnæöi. Árleg meðalveiði 1974-1994 voru 127 laxar, en mesta árleg veiöi 245 laxar 1980. Auðvelt er að komast að Laxá í Skefilsstabahreppi blasir vib. Minntist ekki á Orion sér- staklega Sœvariandsvík og ós Laxár í Skefilsstabahreppi. Drangey í baksýn. Ljósm. eh Laxá í Skefilsstabahreppi Laxá í Skefilsstabahreppi. VEIÐIMAL EINAR HANNESSON veiðistöðum. Við ána er Veiðifélag Laxár í Skefilsstaðahreppi, sem stofnað var árið 1972. Innan vébanda þess eru átta jarðir og tveir af- réttir. Formaður félagsins hefur verib alla tíð Ólafur Sveinsson, yfirlæknir á Sauðárkróki. Mótmæla skeröingu Almennur félagsfundur í deild forstöbumanna dvalar- og hjúkrunarheimila aldr- abra, sem haldinn var á Hrafnistu, Hafnarfirbi þann 12. október 1995, samþykkti eftirfarandi ályktun: „Mótmælum skerðingu á ráðstöfunarfé Framkvæmda- sjóðs aldraðra, og minnum um leiö á upphaflegt markmið sjóbseins, sem var ab veita fé til uppbyggingar og endurbóta á dvalar- og hjúkrunarheimilum aldrabra og til annarra áþekkra verkefna. Sérstaklega ber ab hafa þetta í huga meb tilliti til niburstöbu kannana um mikla fjölgun aldraðra á næstu árum og áratugum." ■ Kvennafrídagurinn tvítugur: Baráttufundir 24. októ- ber í tilefni dagsins Þriöjudaginn 24. október næst- komandi veröa 20 ár liöin frá kvennafrídeginum á íslandi 1975. Af því tilefni hefur verib ákveb- ið aö halda baráttu- og hátíbar- fundi á tveimur stöbum á land- inu, Deiglunni á Akureyri og ís- lensku óperunni í Reykjavík. í Reykjavík hefst dagskrá kl. 20.30. Miðasala er í íslensku óper- unni kl. 15.00-20.15. Aðgangseyr- ir er 500 krónur. Kynnir er Ragnheibur Asta Pét- /ursdóttir og meðal atriba munu þær konur, sem sungu á plötunni „Áfram stelpur" árið 1975, koma saman aftur og taka nokkur lög. Hátíbarræða kvöldsins verður flutt af Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur. Reynt verður að skapa þá stemmningu sem ríkti árið 1975, þegar konur um allt land lögðu niður vinnu, en auk þess verður horft til framtíbar kvennabaráttu á íslandi. Bryndís Hlöðversdóttir, Sigríð- ur Kristinsdóttir og Steinunn V. Óskarsdóttir hafa ásamt Þórhildi Þorleifsdóttur haldið utan um skipulagningu dagsins, en í und- irbúningsnefnd sitja konur frá öllum stjórnmálaflokkum, Kven- réttindafélagi íslands, Kvenfé- lagasambandi íslands og konum frá verkalýðshreyfingunni. Eftir dagskrána í óperunni verður opið hús í Hlabvarpanum' fram eftir kvöldi. ■ Árni B. Árnason, framkvæmda- stjóri Jaröefnaibnabar, bibur um athugasemd vegna fréttar blaösins í gær um vikurútflutn- ing. Hann segist ekki hafa minnst sérstaklega á fyrirtækib Orion hf. „Mér er ekki kunnugt um að Orion hf. hafi flutt út vikur til Þýskalands, né annarra landa yfir- leitt. í samtali okkar nefndi ég aldrei ab fyrirtækib Orion hf. væri ab eybileggja markab fyrir vikur í Þýskalandi meb því ab flytja hann út óunninn, enda er ekki ætlandi ab óreyndu ab fyrirtækib muni standa ab slíku. Hins vegar er rétt haft eftir ab ég tel ab útflutningur þeirra fyrir- tækja, sem hafa verib ab selja vikur óflokkaðan og ab öbru leyti óunn- inn til Þýskalands ab undanförnu, hafi haft mjög skaðleg áhrif á þann markab," segir Árni B. Árna- son. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.