Tíminn - 20.10.1995, Síða 9
Föstudagur 20. október 1995
Slsifittti
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Veraldlegir stjórnarandstööuhópar í Alsír taka undir ásakanir múslima á hendur frönsku
stjórninni:
Frakkar buðu hættunni heim
París — Reuter
Um leið og franska lögreglan
lýsti yfir áhyggjum sínum af
því að hætta kynni ab vera á
frekari sprengjuárásum í París
á næstunni, lýstu veraldlegar
stjórnmálahreyfingar í Alsír
yfir stuðningi sínum vib kröf-
ur íslamskra trúarhópa um að
franska stjórnin láti eiga sig ab
taka afstöðu í alsírska borgara-
stríðinu.
Leiðtogar Þjóðfrelsisfylking-
arinnar (FLN), sem ábur hafbi
stjórn Alsírs með höndum, og
leiðtogar Fylkingar sósíalískra
afla (FFS) sökuðu Jacques
Chirac um að leggja blessun
sína yfir forsetakosningarnar
sem fram eiga að fara í Alsír
16. nóvember nk., en þær eru
að sögn þeirra sýndarmennsk-
an ein og nánast öruggt er að
núverandi forseti, herforing-
inn Liamine Zeroual, vinni
sigur í þeim.
Moustapha Bouhadef, aðal-
ritari FFS, sagði í viðtali við
dagblaðið La Croix að fundur
Chiracs í næstu viku með
Zeroual í New York geti vart
talist annað en „stuðningur
við ríkisstjórnina og stefnu
hennar sem byggir á mann-
réttindabrotum og spillingu."
Og aðalritari FLN, Abdelham-
id Mehri, sagði í viðtali við
dagblaðið Liberation að fund-
urinn sýndi að „Frakkland
styðji sjónarspil lýðræðis og
kosninga sem eru ekki frjáls-
ar."
Bæði íslamskir og veraldlegir
stjórnarandstöðuhópar í Alsír
ætla að sniðganga kosningarn-
ar, og Abdelhamid Brahimini,
fyrrverandi forsætisráðherra í
Alsír sem nú býr í útlegð í
Lundúnum, segir kosningarn-
ar vera „leikaraskap þar sem
útkoman er vituð fyrirfram."
Brahimi sagði ennfremur að
vel væri hugsanlegt að örygg-
issveitir Alsírs stæðu að ein-
hverju leyti á bak við GIA,
íslömsku skæruliðahreyfing-
una sem sagst hefur bera
ábyrgð á sprengjutilræðunum
í París sem orbib hafa sjö
manns að bana og sært yfir
170.
GIA hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem Chirac er varað-
ur við því að hitta Zeroual, og
nú hafa sem sagt veraldlegir
stjórnarandstöðuhópar tekið
undir kröfur skæruliðanna,
þótt á öðrum forsendum sé.
GIA er klofningshópur frá
Frelsisfylkingu íslams (FIS),
sem átti sigur næsta vísan í
kosningum sem áttu að fara
fram árið 1992, en vib þær
kosningar var hætt á síðustu
stundu að frumkvæði hersins.
í vikublaðinu al-Ribat, sem
alsírskir útlagar gefa út í Þýska-
landi, er franska stjórnin sögð
hafa boöið hættunni heim
með því að taka afstöðu í borg-
arastyrjöldinni í Alsír. „Eng-
inn í Alsír hafbi áhuga á að
flytja átökin út, en það eru
franskir leiðtogar sem hafa
tekiö afstöðu í alsírsku átökun-
um."
Ricardo Chávez Carcía
er lögregluþjónn í Mexíkóborg. Hann geröi sér lítiö fyrir og lét kross-
festa sig í því skyni ab mótmœla spillingu meöal yfirmanna mexíkósku
lögreglunnar. Hann erþó ekki einn síns liös þvífjöldi starfsfélaga hans
ílögreglunni tók þátt í mótmœlunum meö honum, þótt þeir hafi
reyndar ekki látib binda sig fasta á kross.
Viröa þarf laga-
hefðir frumbyggja
Canberra — Reuter
Alastair Nicholson, yfirdómari við
fjölskyldudómstól Ástralíu, hvatti
ríkisstjórnina til þess að virða laga-
hefð frumbyggja í landinu og tekið
veröi tillit til hennar í ástralska
dómskerfinu.
„Það er dapurleg endurspeglun á
fortíöarviðhorfum til frumbyggja
okkar að enn í dag, eftir 200 ár,
skuli gagnrýnendur halda því fram
að við vitum ekki ennþá nóg um
hefðarrétt til þess að geta skilið
hann og tekist á við hann," sagði
Nicholson.
Það er næstum áratugur síðan
nefnd um endurskoðun og endur-
bætur á áströlskum lögum mælti
með því að dómstólar tækju tillit til
laga og siða frumbyggja þegar veriö
væri að ákveða refsingu, skilgreina
glæpi og fjallaö væri um fjölskyldu-
mál á borð við hjónaband og ætt-
leiðingu.
„Það er Iöngu kominn tími til aö
við skoðum í alvöru leiðir til að láta
lagahefðir frumbyggja, hvað snertir
málefni fjölskyldunnar, njóta þeirr-
ar viðurkenningar og virðingar sem
tilhlýðilegt er," sagði Nicholson.
Frumbyggjar eru alls 1,5% af
þeim 18 milljónum manns sem búa
í Ástralíu, en nærri 15% þeirra sem
sitja í fangelsi þar í landi eru frum-
byggjar. Rannsóknir á vegum hins
opinbera hafa sýnt að sjálfsmorð
séu mun algengari meðal frum-
byggja sem hafðir eru í haldi, og að
frumbyggjar eru handteknir 16
sinnum oftar en aðrir íbúar lands-
ins, auk þess sem tilefniö er oft að-
eins smávægilegt, svo sem drykkju-
skapur á almannafæri.
Paul Keating forsætisráðherra
hefur gert það að einu helsta stefnu-
máli ríkisstjórnarinnar að vinna að
sáttum milli frumbyggja og annarra
íbúa landsins. M.a. hefur hann
fengið því framgengt að sett hafa
verið lög um landareignir sem gera
fmmbyggjum kleift að endur-
heimta hefðbundin landsvæði sín.
Einnig er reiknað meö því að hann
kynni víðtækan félagsmálapakka á
næstu mánuðum þar sem stefnt er
að því að bæta lífsskilyrði frum-
byggja. ■
Atvinnuleysi í Finnlandi
er meö því mesta sem
þekkist í Evrópu:
Stjórnin
ákveöur að-
gerðir til að
dragaúrat-
vinnuleysi
Helsinki — Reuter
Finnska stjórnin hefur komiö sér
saman um abgerbir í atvinnumál-
um sem miða að því að minnka
atvinnuleysi í landinu um u.þ.b.
helming á næstu árum.
Atvinnuleysi í Finnlandi er
með því mesta sem þekkist í Evr-
ópu. í ágúst sl. taldist finnsku
hagstofunni svo til að 404.000
manns væru atvinnulausir, en
það er 16,2% atvinnuleysi. At-
vinnumálaráðuneytið notar
öðruvísi mælikvarða á atvinnu-
leysi og þar segja menn að
452.100 manns hafi verið að leita
sér aö atvinnu í september, sem
samsvarar 17,9% atvinnuleysi.
Aðgerðirnar, sem ríkisstjórnin
hefur ákveðið að grípa til, fela
m.a. í sér að skattar á vinnuafl
verði lækkaöir, endurbætur veröi
gerðar á atvinnumarkaðnum,
stutt verði viö bakiö á sjálfstæð-
um atvinnurekstri, menntun og
starfsþjálfun verði efld og bygg-
ingastarfsemi verbi aukin, ab því
er segir í yfirlýsingu finnska fjár-
málaráðuneytisins. Þessar að-
gerðir eiga ab minnka atvinnu-
leysi þannig að árið 1999 verbi
það komið niður í 8 til 9 prósent,
sem þýðir að um 120.000 manns
verði útveguð atvinna á þeim
tíma.
í yfirlýsingu fjármálaráöuneyt-
isins var ekki tekið fram hver
kostnaöur ríkisins yrbi af þessum
aðgerðum, en að sögn finnska út-
varpsins hefur Paavo Lipponen
forsætisráðherra Iagt áherslu á að
aðgerðirnar muni ekki auka fjár-
lagahallann, sem er 57 milljarðar
finnskra marka (u.þ.b. 700 millj-
arðar ísl. kr.) á þessu ári, eða um
fjóröungur af heildarútgjöldum
ríkisins. ■
HEILSUGÆSLUSTOÐVAR I REYKJAV.K
STjÓRNUNARSVIÐ
Inflúensubólusetning á vegum
heilsugæslustöbvanna í Reykjavík,
Heilsugæslustöbvar Seltjarnarness
og sjálfstætt starfandi heimilis-
lækna
Um þessar mundir er að hefjast bólusetning gegn inflúensu á
vegum heilsugaeslustöðvanna í Reykjavík, Heilsugæslustöðvar-
innar á Seltjarnarnesi og sjálfstætt starfandi heimilislækna.
Samkvæmt upplýsingum landlæknis er öldrubum, hjarta- og
lungnasjúklingum og fólki með skert ónæmiskerfi sérstaklega
ráðlagt að láta bólusetja sig gegn inflúensu.
Bólusetningar eru framkvæmdar á heilsugæslustöðvunum í
Reykjavík og Heilsugæslustöðinni á Seltjarnarnesi. Stöðvarnar
eru:
Heilsugæslustöð Árbæjar, Hraunbæ 102, sími 567-1500,
Heilsugæslustöb Grafarvogs, Hverafold 1 -3, sími 587-1060,
Heilsugæslustöbin Efra-Breiðh., Hraunbergi 6, sími 567-0200,
Heilsugæslustöbin í Mjódd, Þönglabakka 6, sími 567-0440,
Heilsugæslustöbin í Fossvopi, Borgarspítala, sími 569-6780,
Heilsugæslan Lágmúla 4, simi 568- 8550,
Heilsugæslustöb Hlíbasvæbis, Drápuhlíb 14, sími 562-2320,
Heilsugæslustöb Miðbæjar, Vesturgötu 7, sími 562-5070,
Heilsugæslustöbin Seltjarnarnesi, Suburströnd, sími 561-2070.
Ennfremur annast sjálfstætt starfandi heimilislæknar í Reykja-
vík þessar bólusetningar.
19. október 1995.
Heilsugæslan í Reykjavík.
Heilsugæslustöbin á Seltjarnarnesi.