Tíminn - 31.10.1995, Side 3
Þri&judagur 31. október 1995
fötöttfððtH
'TWflF
3
Hvaö er til ráöa á Vestfjöröum? Endurteknar náttúruhamfarir sem kostaö hafa tugi mannslífa kalla á raunhœf viöbrögö:
Landshluti í einangrun
Mörg íslensk þorp og baeir kúra
undir háum og tignarlegum
fjöllum eins og alkunna er. Þar
hefur myndast byggö utan um
fiskveibiauðlindina á gósen-
tímum, sem komiö hafa og far-
iö á um þaö bil einnar aldar
sögu staöanna. Byggöirnar hafa
breiöst út frá töngum og nesj-
um í átt til gnæfandi og ógn-
andi fjallanna þegar undirlend-
iö þraut. Yfirleitt hafa heima-
menn gefiö lítiö út á hættuna
sem slíkri búsetu er samfara. Á
sumrin hafa menn séö grænar
grundir og hentuga skika til
búsetu þrátt fyrir yfirgnæfandi
fjöllin. Yfirvöld byggingamála
hafa lagt blessun sína yfir
íbúöabyggingar upp í fjallsræt-
ur.
36 mannslíf á 9
mánuöum
Þar til nú að snjóflóð hafa fall-
ið á tvær vestfirskar byggðir með
níu mánaða millibili, og kostað
36 manns lífið og stórfellt eigna-
tjón. Þá hefur umræðan snúist
upp í það hvort eðlilegt og sann-
gjarnt geti talist að fólk búi við
yfirvofandi hættu lungann úr ár-
inu. Fram er komið að hættumat
sem sérfræðingar hafa gert af
mestu samviskusemi hefur lítið
upp á sig. Ennfremur að snjó-
flóðavarnir viröast sáralitla þýð-
ingu hafa.
Byggðastefnan sem haldið hef-
ur veriö að fólki á íslandi er um
margt skiljanleg. Auðvitað vilja
allir að landið verði áfram í
byggð, ekki að byggðin á Suðvest-
urlandi stækki enn. En þegar
Reykvíkingar eru að tala um
nauðsyn þess að byggð haldist í
landinu eru þeir eflaust mest að
hugsa um sumarakstur sinn um
landið. Hann yrði vissulega átak-
anlegur ef engar væru byggðirnar
á þeirri leið. En sumarökumenn
vita fátt eitt um skelfilega og
langa vetur.
Oddvitinn: Þaö hefur
þrengt aö okkur
Vandamál fólksins í sjávarplás-
sum á Vestfjörðum, Noröurlandi
og Austurlandi eru óleyst. Ljóst
virðist nú að enginn mannlegur
máttur getur firrt fólkið ótta sem
nú er vakinn hjá mörgum við
hatramma og óblíða náttúru. Nú
síðast hefur ógn náttúrunnar
sjálfrar dunið yfir 400 manna
þorp, Flateyri við Önundarfjörð.
Möguleikar þess pláss hafa við
fyrstu sýn verið skertir svo um
munar. íbúarnir telja þó margir
að vandamál byggðarinnar megi
leysa og kalla á skjótar aðgerðir.
„Það er rétt að við eigum ekki
mikla möguleika á byggingalandi
hér á Flateyri, það hefur þrengt
að okkur við þessa atburöi," sagði
Magnea Guðmundsdóttir, odd-
viti á Flateyri á föstudag. Magnea
sagðist ekki geta séö aö í þeirri
stöðu sem Flateyri væri nú væri
hægt aö svara spurningum um
framtíðina.
Á sunnudag kom þó strax fram
á borgarafundi á Flateyri að Flat-
eyringar vilja flestir hefja upp-
byggingu. Áfallið hefur ekki dreg-
ið úr þeim máttinn. Ljóst er þó að
ný hugsun þarf að koma til ef
byggja á upp þorp fyrir 400 til
500 manns á Flateyri. Þaö þorp
verður utar á eyrinni og allt land-
rými þar nýtt til muna betur en
nú er gert. Nú þegar hefur verið
óskað eftir nýju skipulagi neðan
Flateyri viö Önundarfjörb eftir náttúruhamfarirnar abfaranótt fimmtudagsins. Þar er sorglegt um ab litast, 20 látnir og
eybileggingin mikil. Tímamynd GVA
Tjarnargötu utan byggöarinnar
sem varð fyrir snjóflóðinu.
Hvernig það skipulagt verður
leyst veit enginn. Ljóst er þó að
blokkarbyggingar eru eitur í bein-
um flestra þeirra sem búa utan
þéttbýlisstaða landsins.
Nágrannarnir:
Hugsa ekki svo mjög
aftur í tímann
Nágrannar Flateyringa á Suður-
eyri í Súgandafirði eru að vonum
daprir þessa dagana. í síðustu
viku kyngdi þar niður snjó, síð-
ustu daga sumars sam-
kvæmt dagatalinu.
Mannhæðarháir skaflar
eru í byggðinni og
skömmu eftir snjóflóð-
ið á Flateyri skall snjó-
flóð yfir veginn inn í
þorpið og mátti litlu
muna að 17 björgunar-
sveitarmenn á leið til
Flateyrar yrðu fyrir því.
Enn ein áminningin
um mátt náttúruafl-
anna og margur fékk
kaldan svita við til-
hugsunina um það
hvað þarna hefði getað
gerst ef 17 karlmenn
hefðu orðið fyrir slysi.
„Það er auövitað
álitamál hvernig á að standa aö
málum í þessum plássum. Það
sem gerist í dag þarf ekki að end-
urtaka sig næstu aldirnar þess
vegna. Mín skoðun er nú sú að
menn horfi ekki svo stíft á það
þótt spýtist niður snjóspýja,
hvort þarna sé byggingarland eða
ekki, menn horfa mest á flat-
neskjuna á sumrum og hugsa
ekki svo langt aftur í tímann,"
sagði Halldór Karl Hermannsson
sveitarstjóri á Suöureyri.
Halldór sagði að sér hefði verið
sagt að í Sviss væru hús sem
byggð vær>*í nánd fjalla teiknuð
þannig að húshornið sem vísaði
að fjallshlíð myndaði ævinlega
einskonar plóg. Slíkt hefði reynst
vel.
Vestfirskar byggöir í
fjárhagsvanda
„Flateyringum hefur tekist að
halda sjó í fjármálum sínum þrátt
fyrir alít. Og 1. desember síðast-
liðinn kom í ljós að Flateyri var
eina þorpið á noröanverðum
Vestfjöröum sem sýndi fólks-
fjölgun. Þetta hefur verið að
styrkjast hjá þeim. Þó sér maður
aö samdráttur hefur orðið á tekj-
um þar eins og annars staðar á
Vestfjörðum. Hjá okkur á Suður-
eyri er samdrátturinn rúm 25% á
fimm árum, úr 43 milljónum
1989 í 33 milljónir í skatttekjum.
Það mundi þýða á ísafirði að
skatttekjur færu úr 400 milljón-
um í 300 milljónir. Á sama tíma
eru skuldirnar þær sömu og fyrir
fimm árum en tekjurnar minnka
og grunnurinn til að borga þær er
horfinn," sagði Halldór Karl Her-
Matthías Bjarna-
son, fyrrverandi
alþingismabur og
samgönguráb-
herra — vib er-
um hvergi óhult í
heimi hér.
Magnea Cub-
mundsdóttir,
oddviti Flateyrar-
hrepps — segir
ab þab hafi veru-
lega þrengt ab
Flateyringum.
Fólk telur sig þó
geta leyst vanda-
málib.
C unnlaugur Sig-
mundsson, al-
þingismabur
Vestfirbinga —
þab má ekki
neyba einn eba
neinn til búsetu.
mannsson. „Hver fjölskylda sem
hverfur er mikiö áfall fyrir byggð-
arlagiö og þýðir að enn rýrna
skatttekjur byggðarlagsins. Skell-
urinn núna nær ekki aðeins til
Flateyrar heldur er hætt viö að
hann hafi áhrif um allar byggðir
hér á norðanverðum Vestfjörð-
um," sagði Haildór Karl.
Fyrrum þingmaöur: ís-
land heldur áfram aö lifa
Matthías Bjarnason, þingmaö-
ur Vestfirðinga um áratuga skeið
og ráöherra samgöngumála, hef-
ur veriö ötull talsmaður byggðar-
laga í Vestfirðingafjórðungi.
Hann var aö vonum sleginn yfir
ótíðindunum á Flateyri þar sem
hann á marga vini og kunningja.
„Auðvitað verður byggðaþróun
á Vestfjöröum fyrir miklu áfaili
eftir að hafa fengið tvö mann-
skæö snjóflóð í röð og auk þess
slys þar sem þrír ungir menn frá
Patreksfiröi létust eins og hendi
væri veifað. Slysfarir hafa verið
miklar á Vestfjörðum og víðar.
Sem betur fer hefur sjóslysum
fækkað verulega hér á landi, en
þá koma snjóflóðin og umferðar-
slysin í staðinn," sagði Matthías
Bjarnason.
„Annars eru snjófióðin mér
ekkert nýtt. Sjálfur hef ég lent í
þeim í Óshlíðinni. í þessum hlíð-
um koma hundruð snjóflóða á
hverjum vetri, en fæst þeirra
komast niður á vegi eða niður í
sjó," sagði Matthías.
Matthías Bjarnason sagði að
óvíða væri mannskepnan óhult.
Hvarvetna væri hættan. Víðar
væru fjallalönd, jarðskjálftasvæði
og eldgosasvæði. Meira
að segja í Kaliforníu
þar sem svo margir
vilja búa, þar ógnuðu
jarðskjálftar og skógar-
eldar lífi fólksins.
„ísland er nú ekki
eina la'ndið í heimin-
um þar sem lífsbarátt-
an er hörð. Það þýöir
ekki annað en að taka
allt saman o§ skoða
það vandlega. Eg er nú
varla í standi þessa
dagana til að tala mik-
ið um framtíðina eftir
þessa voðalegu at-
burði. En ísland heldur
áfram að lifa og viö
þurfum aö lifa sem víð-
ast hvar á landinu. Varðandi Ön-
undarfjörð, þá er gifurlegt land-
flæmi í firðinum þar sem engin
snjóflóðahætta er, í Holtsland-
inu. En þá er einn hörgull á, en
það er Hvilftarströndin sem er
hin mesta snjóakista í norðanátt-
inni. Frá Vegamótum að Flateyri
eru um 7 kílómetrar og ekki aílir
á hættusvæði," sagði Matthías.
Hættan er líka á höfuö-
borgarsvæöinu
Matthías segir að sér þyld ekki
skynsamlegt að allt fólk á íslandi.
safnist saman á einum bletti á
landinu, suðvesturhorninu. Þar
sé jarðskjálfta- og eldgosahættan.
Hvarvetna séu hætturnar, það
hafi komið í ljós í Vestmannaeyj-
um um árið, þegar fór að gjósa
öllum að óvörum.
„Við megum ekki gleyma kost-
um þess að búa í smáum samfé-
lögum. Þar má nefna aö fólk lifir
kyrrlátara lífi. Börnin kynnast
svo mörgu sem börn í borgum og
stórum byggöum þekkja ekki.
Þessvegna þykir fólki að mörgu
leyti gott að ala upp börn í litlum
byggðarlögum. Fíkniefnavanda-
mál geta vissulega komið upp í
sjávarplássunum, en langmest er
þó hættan þar sem fólkib er flest
og þar eru slíkir erfiðleikar mest-
ir," sagöi Matthías.
„Ég held nú að eftir því sem ég
þekki Vestfirðinga þá eru þeir
ekki fyrir það að flýja samfélag
sitt. Margir verða aö leita hingað
subur af heilsufarsástæðum og
aðrir vegna menntunar sinnar,"
sagði Matthías Bjarnason.
Þingmaöurinn:
Óttast búseturöskun á
Vestfjöröum
Alþingi íslendinga kom saman
í gærdag, á þriðja degi vetrar. Al-
þingismenn munu eiga eftir að
taka á málefnum Vestfirðinga og
annarra landsmanna sem búa við
ógnvekjandi snjóflóðahættu.
Gunnlaugur Sigmundsson al-
þingismaður sagbi í samtali vib
Tímann að hann hefði rætt við
rábherra Framsóknarflokksins
eftir ríkisstjórnarfundinn á föstu-
dag.
„Eg er á því aö það eigi ekki að
taka ákvarbanir í of miklu hasti
meö Flateyri. Þab þarf að endur-
skoða þróunina í Súðavík líka.
Manni sýnist ekki mikiö af vaén-
legu byggingarlandi á Flateyri.
Framundan eru kosningar um
sameiningu sveitarfélaga á norð-
anverðum Vestfjörðum. Verbi
það samþykkt þá er Flateyri orðin
hluti af nýju sveitarfélagi. Þá er
þab spurningin hvort það verður
ekki nýja sveitarfélagsins ab
marka stefnu í uppbyggingu á
svæbinu. Mér finnst ráblegt að
bíða eftir niðurstöbum kosning-
anna sem nú eru framundan.
Verbi slík sameining felld, þá er
komið upp aftur nýtt vibhorf,"
sagði Gunnlaugur.
„Ég horfi á vandamálin á Flat-
eyri svo að þaö er ekki aðeins að
nýjasti hluti bæjarins sé ekki
byggingarhæfur, heldur líka að
vegurinn að bænum er ótryggur
vegna snjóflóðahættu. Öll þessi
mál þarf að skoða í miklu víðara
samhengi en gert hefur verið áð-
ur. Við þurfum tíma til að skoða
málin raunsætt, skoba alla búsetu
í nýju ljósi, taka inn fleiri þætti til
umræðu og bíða eftir niðurstöð-
um í kosningum um sameiningu
sveitarfélaganna. Þetta kallar líka
á aö breyta þarf lögum sem refsa
mönnum sem vilja byggja annars
staðar, í dag fær fólk haerra hlut-
fall greiðslna ef þeir byggja á
sama stað. Hvernig í ósköpunum
eigum við að neyða fólk sem hef-
ur lent í hörmungum að byggja á
sama stað ef því líður illa," sagði
Gunnlaugur Sigmundsson.
Gunnlaugur sagði aö ekki mætti
gleyma vandamálum á sunnan-
verðum Vestfjörðum, til dæmis á
Bíldudal, þar sem fólki hefði
fækkað svo að ekki væri lengur
hægt að halda uppi lítilli dag-
vöruverslun.
Gunnlaugur sagði aö hann ótt-
aðist mjög að fólki mundi nú
fækka enn á Vestfjörðum. Hann
sagðist ekki treysta sér til að
neyða fólk til búsetu meö stjórn-
valdsaðgerðum.
„Mér er sárt að sjá vestfirskar
byggðir eyðast en ég treysti mér
ekki til að vinna þannig að fólk
verði neytt til ab búa þar sem því
líöur illa, þótt það hafi átt áratuga
ánægjulega búsetu," sagði Gunn-
laugur Sigmundsson. -JBP