Tíminn - 01.11.1995, Qupperneq 1
*. *
W£VFILl/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
79. árgangur
Miðvikudagur 1. nóvember 1995
FJÖRFALDUR1. VINNINGUR
205. tölublaö 1995
Fyrirtœkl og íbúar Hverfísgötu
knýja á um tvístefnu vib göt-
una og heimsœkja borgar-
stjóra. Pétur Sigurbsson í ís-
berg hf.:
„Þetta er
gleymda
gatan"
Sendinefnd frá Hverfisgötunni í
Reykjavík mun ganga á fund
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra í dag. Pétur Sigurös-
son stórkaupmabur í ísbergi hf.
ab Hverfisgötu 39 sagbi í samtali
vib Tímann í gær ab rætt væri um
götuna sem „gleymdu götuna".
Því mibur væri gatan á niburleib
og í niburníbslu sem verslunar-
og athafnagata, fasteignaverb þar
um slóbir væri á niburleib.
Pétur sagbi ab borgarstjóra yrði
afhent bréf með undirskriftum á
fjórða tugs manna sem búa við göt-
una eða reka þar fyrirtæki af ýmsu
tagi. Sagði Pétur að margt mundi
vinnast við að gera götuna að tví-
stefnuakstursgötu.
í fyrsta lagi mundi slíkt hafa já-
kvæð áhrif á verslun og þjónustu
við götuna og í miðborginni al-
mennt. í öðru lagi mundi draga úr
ofboðslegum hraðakstri sem stund-
aður er á götunni. í þriðja lagi
mundu almenningssamgöngur í
miðborginni verða greiðari en nú
er. Loks mundu bílageymsluhúsin
við Hverfisgötu sem rúma 500 bíla
nýtast til muna betur. -]BP
Batnandi afkoma hjá íslands-
banka:
306 millj. kr.
hagnaður
Fyrstu níu mánuöi þessa árs varð
306 milljóna kr. hagnaður af rekstri
íslandsbanka. Vegna breytinga á
uppgjörstímum liggja ekki fyrir
sambærilegar tölur frá síðasta ári,
skv. frétt bankans, en til viðmiðun-
ar varb hagnaður bankans 185
millj. kr. á öllu síðasta ári. -BÞ
Frumvarp um frestun greisblu-
marks saubfjárafurba:
Ákvörðun
1. desember?
Komib er fram á Alþingi frum-
varp er heimila á landbúnabar-
rábherra ab fresta ákvörbun um
heildargreibslumark saubfjáraf-
urba til 1. desember næstkom-
andi en ákvæbi í lögum frá vor-
þingi gera ráb fyrir ab slík
ákvörbun verbi tekin fyrir 1. nóv-
ember.
Frumvarp þetta er flutt vegna
þess að Alþingi hefur ekki enn af-
greitt þær breytingar á búvörulög-
um sem nýr búvörusamningur um
framleiðslu á sauðfjárafurðum gerir
ráð fyrir. Frestun þessarar ákvarð-
anatöku er því talin óhjákvæmileg
en búvörusamningurinn er nú til
meðferöar í landbúnaðarnefnd Al-
þingis. -ÞI
Frá hinni tilfinningaþrungnu minningarathöfn á ísafiröi ígœr. Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands huggaraö-
Standendur. Tímamynd: Pjetur
VSÍ segir ekki hœgt oð hœkka tímakaupiö ab óbreyttu afuröaveröi og
afköstum. Dagsbrún:
Þaö er eitthvað að
þessum mönnum
Gubmundur J. Gubmundsson
formabur Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar segir ab þab hljóti
ab vera eitthvab ab þeim mönn-
um sem telja ab ekki sé hægt ab
hækka tímakaupib nema því ab-
eins ab afurbaverb hækki eba af-
köst launafólk aukist. En í síb-
asta fréttabréfi VSÍ heldur ab-
stobarframkvæmdastjóri sam-
bandsins þessu fram.
Gubmundur segir ab „dimmar
sendingar" sem þessar frá VSÍ
muni abeins verba til þess ab
skerpa línurnar í því sem fram-
undan er í samskiptum abila
vinnumarkabarins.
Næstu daga og vikur munu ab-
ildarfélög Verkamannasambands-
ins taka afstöðu til þess hvað þau
munu gera í framhaldi af niður-
stöðum 18. þings VMSÍ. í kjara-
málaályktun þingsins er skorað á
launanefnd og verkalýðsfélög að
segja upp gildandi kjarasamningi,
enda séu forsendur samninga
brostnar. Það veltur síðan á af-
stööu félaganna hvaða kröfur þau
munu setja á oddinn og m.a.
hversu háar kauphækkunarkröfur
þeirra verða. í dag kemur mið-
stjórn ASÍ saman til reglulegs
fundar þar sem að öllum líkindum
verður spáb í næstu skref í kjara-
málunum.
Formabur Dagsbrúnar segist
varla eiga orð
yfir þessu sem
fram kemur í
fréttabréfi VSÍ
og vísar því al-
gjörlega á bug
að ekki sé hægt
aö koma til
móts vib kröfur „ x , ,
launafólks um Cuðmttndurj.
hærra kaup. Hann lætur í það
skína aö þab verði kannski næsta
skref af hálfu atvinnurekenda að
hreinlega biðja verkalýðsfélögin
að skipuleggja og sjá um rekstur
fyrirtækjana og senda síðan arð-
inn heim í rúm til eigenda.
„Þeir eru greinilega engir menn i
þetta, æpandi uppúr rúminu að
það þurfi að vinna betur. Ég held
að þaö ætti bara að taka þessa
menn og setja þá í læknisskoöun,"
segir. Guömundur J. Hann lætur
jafnframt aö því að liggja aö at-
vinnurekendur í fiskvinnslu séu sá
hópur manna sem nær „samfellt
er á atvinnuleysisbótum" vegna
þátttöku Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs í launagreiðslum starfsfólks
þegar tímabundin vinnustöðvun
er í húsunum vegna hráefnis-
skorts.
Hann bendir t.d. að afurðaverð
hefur sjaldan verið hærra og hvað
afköstin varðar þá sé það fyrst og
fremst spurning um stjórnarhætti
í fyrirtækjunum sjálfum. Þar fyrir
utan sé búið að gera margsvíslegar
breytingar á bónusnum og skipu-
lagi honum tengdum á liðnum
áratugum, auk þess sem fiskverka-
konur séu margar hverjar siitnar
og lúnar áður en þær verða sextug-
ar. -grh
1200 manns vi6
minningar at-
höfn á ísafir&i
í gær fór fram á ísafirði fjöl-
menn minningarathöfn um
fórnarlömb snjóflóðanna á
Flateyri. Forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, var
vibstödd athöfnina svo og
forsætisrábherra, félagsmála-
rábherra og þingmenn Vest-
fjarbakjördæmis.
Fimm prestar komu ab at-
höfninni og ýmsir kórar úr ná-
lægum byggðarlögum sungu,
s.s. kirkjukórar ísafjarðar, Þing-
eyrar og Súðavíkur. Nálægð
vobaatburbanna kom skýrt
fram við athöfnina, en alls
voru um 1200 manns við at-
höfnina. 20 manns létu lífið í
flóðinu sem féll fyrir sex dög-
um.
Um 30 þúsund manns vott-
uðu Flateyringum samúð sína í
blysför niður Laugaveginn i
fyrradag og fjöldi samúðar-
skeyta hefur borist erlendis frá.
Akureyringar fóru blysför um
miðbæinn í gær að frumkvæði
Verkmenntaskólans, Mennta-
skólans og Háskólans á Akur-
eyri og var þátttaka góð. Þá var
staðið fyrir kertafleytingu á
Eskifirði. -BÞ
Fateyringar fá mikinn stuöning:
Á 3ja hundrað milljónir safnast
Fjársöfnuninni Samhugur í
verki lauk í gærkvöldi. Alls
söfnubust á þribja hundrab
milljóna og eru forrábamenn
mjög ánægbir meb hve vel til
tókst. Gefendur voru vel á fer-
tugasta þúsundib.
Af öðrum erlendum þjóðum
ólöstuðum hafa Færeyingar
stutt fórnarlömb snjóflóðanna
mest með miklu starfi síðustu
daga.
Ymis félagasamtök hafa gef-
ið ágóba af vinnu sinni og
m.a. var haldið bingó í Þórs-
höfn í fyrrakvöld sem skilaði
Flateyringum 660.000 kr. Auk
þess hafa Lions- hreyfingar á
Norðurlöndum staðið fyrir
söfnun.
-BÞ