Tíminn - 01.11.1995, Blaðsíða 6
6
Mibvikudagur 1. nóvember 1995
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
SAUÐARKROKI
Skóverksmibjan Skrefið:
Reynir útflutning
til Þýskalands
Forráðamenn skóverksmiðj-
unnar Skrefsins á Skagaströnd
eru að gera tilraun með aö selja
framleiðslu sína á Þýskalands-
markaði. Nýlega fóru til Þýska-
lands tvær sendingar af heilsu-
skónum, sem eru helsta fram-
leiðsla Skrefsins og hafa selst
mjög vel á innanlandsmarkaðn-
um.
„Við vitum ekki enn hvernig
gengur með söluna í Þýska-
landi, en við erum að reyna að
stækka markaðinn. Þab veitir
ekki af, því innanlandsmarkað-
urinn er full lítiil. Hins vegar er
mjög dýrt að vinna markaði er-
lendis," segir Bryndís Gubjóns-
dóttir, framkvæmdastjóri
Skrefsins. Bryndís segir starf-
semina í rétta átt. Fyrirtækið er
um þessar mundir ab setja á
markað nýja gerö af klossum.
Eins og áöur segir eru heilsus-
kórnir, sem eru inniskór, aöal-
framleiösla Skrefsins. Mjög lrtið
er framleitt af hefðbundnum
skóm. Þaö eru aðeins kuldas-
kórnir sem svolítið er framleitt
af, segir Bryndís. Hjá Skrefinu
eru fimm heilsdagsstörf. Starfs-
menn eru þó heldur fleiri en
vanalega í þessum mánuöi,
enda er meira að gera þessa dag-
ana en venjulega.
rntTTnninnin
SELFOSSI
Hafnarmjöl og Vestdalsmjöl í
vibræðum um stóra lobnu-
bræbslu í Þorlákshöfn:
Fjárfest fyrir 250
milljónir
Forrábamenn Hafnarmjöls hf.
og Vestdalsmjöls á Seyöisfiröi
hafa verið í viðræöum að und-
anförnu um byggingu stórrar
loönubræðslu í Þorlákshöfn.
Rætt er um að áttfalda afkasta-
getu verksmiðju Hafnarmjöls
og að þessar framkvæmdir kosti
um 250 milljónir króna. Full-
trúar Atvinnuþróunarsjóðs Suð-
urlands hafa leitt viðræðurnar,
sem eru vel á veg komnar, en
málið er þó ekki frágengið.
Afkastageta verksmiðju Hafn-
armjöls er nú um 100 tonn á
sólarhring, en með fyrirhugaðri
stækkun yrði hún um 800
tonn. Samkvæmt heimildum
Sunnlenska yrði stofnað nýtt
hlutafélag um fyrirtækið meb
þátttöku Hafnarmjöls, Vestdals-
Flugvélin sem Flugfélag Vestmannaeyja hefur fest kaup á.
mjöls og nokkurra annarra
hluthafa. Verksmiðja Vestdals-
mjöls á Seyðisfiröi stórskemmd-
ist í snjóflóði sl. vetur og for-
ráðamenn fyrirtækisins hafa
viljað flytja starfsemi þess ann-
ab.
Eystra-
horn
Hornfirski skipa-
stóllinn minnkar
um 500 tonn
milli ára
Skipastóll Hornafjaröar hef-
ur minnkað um 558 brúttó-
lestir á einu ári og tæpar 1000
brúttólestir á tveimur árum,
og hornfirski kvótinn dróst
saman um tæp 1200 þorsk-
ígildi milli kvótaáranna '94-
'95 og '95- ‘96. Þessar tölur
lýsa þeim veruleika sem út-
gerðir hér búa við. Smærri
togskip og vertíðarbátar, sem
hafa verið uppistaðan í skipa-
stól Hornfirðinga, eiga undir
högg að sækja eftir að kvóti
þeirra rýrnaði, enda hlutfall
laurta í innkomunni mun
hærra á þessum bátum en á
stærri skipum. Vib heyrðum
hljóðið í formanni Útvegs-
mannafélags Hornafjarðar,
Halldóru Bergljótu Jónsdóttur,
að afloknum aðalfundi ný-
iega.
„Við höfum verulegar
áhyggjur af þróun mála og
teljum ab stjórnvöld verbi að
grípa í taumana og laga sam-
keppnisstöðu þessarar tegund-
ar fiskiskipa, því vandamálið
er ekki einskorðaö við Horna-
fjörb, heldur er reynslan hin
sama um allt land. íslenski
fiskiskipaflotinn er að verða
samsettur úr 0-30 tonna smá-
bátum og stórum verksmiðju-
skipum, en aðrar stærðir eru
að hverfa. Ég tel að viö svo
búið megi ekki standa, því við
getum ekki verið án báta af
millistærð, vegna ýmissa
veiba — ég get nefnt sem
dæmi humarveiöarnar."
1
VESTMANNAEYJUM
Flugfélag Vestmannaeyja
hf.:
Kaupir tveggja
hreyfla flugvél
Fyrir síðustu helgi skrifabi
Valur Andersen, abaieigandi
Flugfélags Vestmannaeyja,
undir samning um kaup á
tveggja hreyfla flugvél í Eng-
landi. Ef alit gengur að ósk-
um, gæti hún verið komin í
notkun eftir tíu til fimmtán
daga.
Valur sagði í samtali við
FRÉTTIR að vélin sé af gerð-
inni Partenavia P68B og er
hún sömu gerðar og flugvélin
sem fórst í sumar. „Ég fór út
og skoðaði flugvélina í síðustu
viku. Leist mér strax mjög vel
á hana og skrifaöi undir kaup-
samning úti. Flugvélin er sex
til sjö sæta einkavél og hefur
verib lítið flogið." Valur von-
ast til að vélin verði tekin í
notkun innan skamms.
Sameiginlegt leibakerfi al-
menningsvagna á höfub-
borgarsvæbinu:
Myndi skila
þjóbarbúinu
7-800 millj
ónum króna
Meðal þeirra, sem fluttu er-
indi á samgöngurábstefnu
SSH sem haldin var í Kópa-
vogi um síðustu helgi, var Pét-
ur Fenger, framkvæmdastjóri
Almenningsvagna. í máli
hans kom m.a. fram að eitt
samræmt leiðakerfi almenn-
ingsvagna fyrir allt höfuð-
borgarsvæðið undir einni yfir-
stjórn myndi skila þjóðarbú-
inu ábata, sem næmi 7-800
milljónum króna árlega.
í máli Péturs kom fram að
meb stofnun Almennings-
vagna bs. hefðu menn náð
hálfa leið að þessu marki, þeg-
ar Hafnarfjörður, Kópavogur,
Garöabær, Mosfellsbær, Bessa-
staðahreppur og Kjalarnes-
hreppur sameinuðust um
rekstur eins fyrirtækis, sem sér
um almenningssamgöngur í
þessum bæjarfélögum og milli
þeirra ásamt akstri til og frá
Reykjavík.
Bátum afþessarí stœrö hefur fœkkab í flotanum.
Á myndinni eru, taliö frá vinstri: Sigmar Pétursson, Þrúöur jóna Kristjáns-
dóttir, Þórey S. jóhannsdóttir, Gunnar Stefánsson og Þór Símon Ragnars-
son útibússtjóri.
Viöurkenningar
fyrir að yfirbuga
ránsmanninn
Bankastjórn Landsbanka ís-
lands heiðrabi í gær og veitti
sérstaka viöurkenningu þeim
Gunnari Stefánssyni og Sig-
mari Péturssyni, sem meb
snarræbi tókst að yfirbuga
mann er reyndi að ræna Háa-
leitisútibú Landsbankans í
fyrri viku.
Stjórnendum Landsbankans
þykir viðeigandi að veita
mönnunum viðurkenningu
fyrir að koma í veg fyrir að
ránsmaðurinn kæmist undan.
Jafnframt minnir bankastjórnin
á að vafasamt geti verið ab
grípa inn í atburðarás af þessu
tagi, þótt vel hafi tekist til í
þetta sinn, því slíkt gæti orðið
til að stofna lífi og heilsu
manna í hættu.
Þeir Gunnar og Sigmar veittu
viðurkenningunni vibtöku í
óformlegu kaffisamsæti í Háa-
leitisútibúi Landsbanka íslands
í gær, miðvikudag, og var þeim
þar einnig þakkað persónulega
af starfsfólki útibúsins.
Meðfylgjandi mynd var tekin
þegar Þór Símon Ragnarsson
útibússtjóri afhenti þeim viður-
kenningu bankans. ■
Athugasemdir
viö staöhœfingar um lönnemasamband íslands í
frétt um Skólafélag lönskólans í Reykjavík, laugar-
daginn 28. október sl.
í fyrrgreindri frétt er því haldiö
fram að Ibnnemasambandib hafi
„tekib" bókhald Skólafélagsins
og „haldib" því í fimm mánubi.
Einnig kemur fram ab þáverandi
formabur Skólafélagsins hafi ver-
ib varaformabur Ibnnemasam-
bandsins og því sé „sömu sögu"
ab segja af bókhaldsmálum Ibn-
nemasambandsins og þessarar
fyrri stjórnar Skólafélagsins.
Með þessum fullyrðingum er
verið að fara meira en lítib frjáls-
lega með sannleikann. Hið sanna í
málinu er:
Reikningar Skólafélags Iðnskól-
ans í Reykjavík fyrir skólaáriö 1994
til 1995 voru felldir á abalfundi fé-
lagsins voriö 1995. Á þessum aðal-
fundi áttu einnig að fara fram
stjórnarskipti, en víðfrægir tvíbura-
bræbur og samherjar þeirra höfðu
þá nýverið sigrað í kosningum til
framkvæmdastjórnar. Stjórnar-
skiptin fóru hins vegar ekki fram,
þar sem aðalfundi var frestað undir
dagskrárliðnum „Reikningar", þeg-
ar þeir voru felldir.
Á svipubum tíma og þetta gerist
kemur fram kæra á kosningarnar,
vegna þess ab upp úr kjörkassanum
komu fleiri atkvæbi en skráb voru í
kjörskrá. í ljósi þessa baðst Þórir
Karl lausnar sem formaöur Skólafé-
lagsins og fór fram á aö sambands-
stjórn INSÍ skipaði bráðabirgða-
stjóm. Bráðabirgðastjórnin sendi
því næst reikningana til Iðnnema-
sambandsins til endurskoðunar.
Samkvæmt lögum Skólafélagsins
hefbi reyndar átt að gera það ábur
en þeir voru lagðir fram á aðal-
fundi félagsins.
Sambandsstjórn úrskurbaði
stuttu eftir þetta um lögmæti kosn-
inganna og dæmdi þær gildar, tví-
burabræðurnir tóku þá vib völd-
um.
Þórir Karl Jónasson var á svipuð-
um tíma rekin úr stjórn Ibnnema-
sambandsins fyrir ábyrgðarleysi og
þar sem meirihluti sambands-
stjórnar treysti sér ekki til að starfa
með honum lengur.
Viö endurskoðun reikninganna
næstu mánubina voru gerðar mikl-
ar leiðréttingar á færslu fylgiskjala,
þau könnuð og fjöldi ávísana kall-
aðar inn. Þegar því verki lauk nú í
haust, treystu endurskoðendur Iðn-
nemasambandsins sér hins vegar
ekki til ab leggja nafn sitt við
reikningana, bæði vegna tengsla og
óreiðu í fjármálum; þ.a.l. voru þeir
sendir til löggiltra endurskoðenda í
fullu samráði vib yfiivöld Iðnskól-
ans í Reykjavík.
Að lokum þykir rétt að benda á
ab bókhald Ibnnemasambands ís-
lands er endurskobab á hverju ári
af löggiltum endurskoðendum og
lagt fyrir þing sambandsins þar
sem fulltrúar 64 abildarfélaga Iön-
nemasambandsins af öllu landinu
eiga rétt á að kjósa sér fulltrúa til
setu.
Á 53. þingi Iðnnemasambands-
ins helgina 27. til 29. október var
bæði bókhald sambandsins og
skýrsla formanns samþykkt athuga-
semdalaust. í skýrslu formanns
komu ofangreind atriði skýrt fram.
Yfirlýstir fylgismenn tvíburanna
voru vibstaddir þetta og greiddu
hvorki atkvæði gegn reikningun-
um né skýrslunni. Það er því með
öllu rangt að hægt sé að vefengja
reikninga sambandsins eða úr-
skuröi síbustu sambandsstjórnar,
því þing Iðnnemasambandsins er
æðsta vald í málefnum sambands-
ins og aðildarfélaga þess.
Brjánn jónsson,
framkvœtndastjóri INSÍ