Tíminn - 07.12.1995, Page 14
14
mimfimir
Fimmtudagur 7. desember 1995
CEISLADISKAR
Geislaplata meb leik Jon-
asar Ingimundarsonar
Út er kominn geisladiskur meö
píanóleik Jónasar Ingimundar-
sonar.
Um viðfangsefni hans segir
Halldór Hansen í meöfylgjandi
texta m.a.: „Á þessum geisla-
diski Jónasar Ingimundarsonar
er aö finna safn af píanólögum,
sem kalla mætti „Lög sem mér
finnst ég þekkja", þar eö flest
laganna eru meö því marki
brennd aö eiga beinan og milli-
liðalausan aðgang aö hug og
hjarta áheyrandans á sama hátt
og lög, sem allir þekkja." Og
ögn síðar segir Halldór Hansen:
„Á tónleikum munu flest af
þessum lögum og önnur svip-
aös eðlis oftast heyrast sem
aukalög. Hvert og eitt þeirra
stendur þar meö undir sér sem
sjálfstæð eining án frekari
tengsla viö hin. Það sem heldur
þeim saman er aö þau falla öll
ljúft aö eyra."
Á plötunni er aö finna mjög
ólík verk eftir sautján höfunda.
Upptaka fór fram í Listasafni
Kópavogs undir stjórn Halldórs
Jónas Ingimundarson.
Víkingssonar. Geislaplata þessi
hlaut nafniö „Viö slaghörp-
una", en Jónas stendur fyrir
tónleikum í Listasafni Kópavogs
meö sama heiti.
Útgefandi er Fermata, en Japis
sér um dreifingu.
Smáverk fyrir
flautu og píanó
Áshildur Haraldsdóttir flautuleik-
ari og Selma Guðmundsdóttir pí-
anóleikari hófu samstarf í sumar
sem leiö, er þær hljóðrituðu 19
verk til útgáfu á geislaplötunni
„Miniatures" í Víðistaðakirkju.
Þaö var Bjarni Rúnar Bjarnason
tónmeistari ásamt Georg Magn-
ússyni sem önnuðust hljóðritun
og fórst það verk einkar vel úr
hendi.
Eins og nafniö gefur til kynna,
samanstendur Miniatures af 19
stuttum tónverkum eftir ólíka
höfunda. Mörg verkanna eru frá
síðari hluta 19. aldar og tengjast
Tónlistarháskólanum í París á
einn eða annan máta, en sá skóli
á mikinn þátt í vinsældum flaut-
unnar á þessari öld. Þar lærðu og
kenndu fremstu flautuleikarar
Frakklands, tónskáldin sóttust
eftir aö semja verk fyrir þá og þaö-
an barst „franski flautuskólinn"
víöa um heiminn. Þá má einnig
finna verk eftir þýsk, svissnesk,
ensk, dönsk og íslensk tónskáld á
plötunni og eru nokkur þeirra 20.
aldar verk. Mörg verkanna eru
hreinlega fágæt og hafa sjaldan
eöa aldrei komið út á geislaplöt-
um, en önnur eru á meðal þekkt-
ustu verka fyrir flautu og hafa
notið vinsælda um skeið. Gefur
þetta „Miniatures" sérstakan blæ
og eykur á mikilvægi útgáfunnar.
Meöal þessara verka eru nokkur
sem reyna verulega á færni
flautuleikarans, verk sem gefa Ás-
hildi kost á að sýna hvaö í henni
býr. Þá er hlutur píanósins einnig
nokkur og nýtur leikur Selmu sín
vel á plötunni.
Áshildur Haraldsdóttir er búsett
í Frakklandi og starfar þar meö
kammersveitinni L'Orchestre
Symphonique Francais í París. Þá
hefur hún gefiö út nokkrar geisla-
plötur hjá Intim Musik í Svíþjóö,
auk þess að leika á tónleikum víöa
um álfur.
Selma Guömundsdóttir hefur
starfað sem kennari viö Tónlistar-
skóla Reykjavíkur um árabil. Hún
hefur haldiö tónleika víða um
heim og gefiö út nokkrar geisla-
Áshildur Haraldsdóttir.
Selma Cuömundsdóttir.
plötur, þ.á m. sólóplötu og tvær
geislaplötur meö Sigrúnu Eð-
valdsdóttur.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ás-
hildur og Selma starfa saman og
hefur samstarf þeirra verið sérlega
gott og borið góðan ávöxt.
Umbúðir hannaði Jökull Tóm-
asson, ljósmyndari var Sveinn
Speight, filmuvinnsla var í hönd-
um PMS og Sony DADC í Austur-
ríki annabist framleiöslu og
prentun. Spor h.f. gefur geisla-
plötuna út og annaðist jafnframt
dreifingu til hljómfangaverslana.
„Miniatures" kostar kr. 1999. ■
Gullvæg regla
Hrólfur Hjaltason er ekki bara
góöur bridgespilari, heldur er
hann stundum mjög orðhepp-
inn við spilaborðið. Eitt sinn
sat undirritaður í heimabridge
meb Hrólf sem makker og eftir
að ég hafði gefið 2 geim og 1
slemmu á misheppnuðu út-
spili hallaði Hrólfur sér fram
og sagði föðurlega: „Heyrbu,
Björn. Þar sem það hefur kom-
ið á daginn að þú ert vondur í
útspilum, ætla ég að gefa þér
eina góða reglu. Næst þegar þú
átt út, skaltu velja útspil og
leggja á grúfu. Síðan skaltu
taka spiliö upp og velja eitt-
hvert annað."
Sjálfur á Hrólfur ekki við
þetta vandamál að stríða og í
Reykjavíkurmótinu í tvímenn-
ingi náði Hrólfur sér í topp
með vel heppnuðu útspili.
Vestur/AV á hættu
♦ 7
V ÁDG932
♦ KGS2
♦ GS
* QG9853
V 4
* 984
* T87
N
V A
S
A KT2
¥ K86
♦ ÁD7
* ÁD64
A Á64
¥ T75
♦ T63
+ K932
Vestur varð sagnhafi í 4 spöð-
um eftir að Hrólfur í norður og
Rúnar Magnússon í suður sögðu
hjörtu. Hrólfur taldi líklegt ab
hjartakóngurinn væri í austur,
og tryggði niðurkast þannig ab
hann spilaði tígulfimmunni út,
3./5. Sagnhafi setti lítib í upp-
hafi og Rúnar drap á tíuna. Rún-
ar spilaði hjarta sem Hrólfur
drap og síðan kom tígultvistur-
inn. Nú gerði sagnhafi sig sekan
um mistök meö því að setja
ásinn, en e.t.v. var hann hrædd-
ur um tígulstungu. Hann kast-
aði síðan tígli í hjartakónginn
og spilaði spaba. Rúnar drap og
BRIDGE
BjÖRN ÞORLÁKSSON
spilaði tígli sem sagnhafi
trompaöi heima og var nú kom-
inn minnst einn niður eins og
lauflegan er. Hann spilaði
tíunni að heiman, Hrólfur lagði
á, drottning og kóngur. Taps-
lagirnir urðu þannig tveir á lauf.
Fyrir að skrifa 200 í sinn dálk
fengu Hrólfur-Rúnar fullt hús
stiga og Hrólfur þarf ljóslega
ekki sjálfur að beita reglunni að
ofan.
Evrópumótiö í paratví-
menningi og sveita-
keppni í Monaco
Fjórða Evrópumótið í paratví-
menningi og sveitakeppni verð-
ur haldið í Monaco 18.-23. mars
1996. Dagsetningar hafa breyst
um viku frá því að mótaskrá BSÍ
var gefin út. Spilað verður á
Hótel de Paris í Monte Carlo og
er skráningarfrestur til 15. janú-
ar 1996. Skráning verður að fara
fram í gegnum Bridgesamband
íslands. Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu BSÍ í síma
587- 9360 á skrifstofutíma.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Nú er lokið 3 kvöldum af 6 í
Butler- keppni BR. 60 pör taka
þátt og hafa Eiríkur Hjaltason
og Hjalti Elíasson leitt mótið frá
upphafi, en Guðmundur Páll
Arnarson og Þorlákur Jónsson
nábu síðasta keppniskvöld að
saxa forskotiö niður í eitt stig.
Staða efstu para:
1. Eiríkur-Hjalti 201
2. Guðmundur P.-Þorlákur 200
3. Hermann Lárusson-Erlendur
Jónsson 111
4. Hrólfur Hjaltason Oddur
Hjaltason 110
Sigtryggur Sigurðsson-
Bragi Hauksson 90
Bridgefélag SÁA
Þriðjudaginn 28. nóvember
var spilaður eins kvölds tölvu-
reiknaður mitchell með for-
gefnum spilum. 22 pör spiluðu
9 umferðir með 3 spilum milli
para. Meðalskor var 216 og best-
um árangri náðu:
NS
1. Jakob Kristinsson-Guðmund-
ur Pétursson 255
2. Magnús Þorsteinsson-
Guðmundur Vestmann 233
3. Sigurður Jónsson-Georg
ísaksson 233
AV
1. Jónas Þorláksson-
Jón Björnsson 271
2. Daníel Már Sigurðsson-
Vilhjálmur Sig. jr. 247
3. Guðmundur Þórðarson-
Þórir Guðjónsson 245
Bridgefélag SÁÁ spilar öll
þriðjudagskvöld að Ármúla
17A, Úlfaldanum og mýflug-
unni, og er spilabur eins kvölds
tölvureiknaður mitchell með
forgefnum spilum. Spila-
mennska hefst kl. 19.30 og eru
allir velkomnir. Keppnisstjóri er
Sveinn R. Eiríksson.
Bikarkeppni Norðurlands:
Dregib í 3. umferb
1. Þorsteinn Friðriksson, UMSE-
Jóhann Magnússon, Dalvík
2. Jón Örn Berndsen, Sauðárkr,-
Ingvar Jónsson, Sigluf.
3. Stefán Vilhjálmsson, Ak.-Stef-
án G./Anton Haraldsson, Ak.
4. Stefán Sveinbj./Haukur Harð-
ars. Ak.-Þórólfur J., Húsav./
Stefán B., Blönduósi.
Leikjum á að vera lokiö fyrir
17. des., en þeir sem eiga eftir
tvo leiki geta fengið frest til ára-
móta. Dregið verður í næstu
umferð 18. des. Úrslit leikja
sendist til Ásgríms Sigurbjörns-
sonar í síma 453-5030 eða 453-
5353. Fax: 453-6040.
Þættir úr þjóöarsögu
Vilhjálmur Hjálmarsson:
Þeir breyttu Islandssögunni.
Tveir þættir af landi og sjó.
Æskan 1995.
Hér eru komnir tveir þættir úr
byggðasögu Austurlands. Annar
er um það hvernig bændum
eystra tókst að bjarga bústofni
sínum frá hungri og felli í fann-
ferginu mikla 1951. Hinn er um
árabátaútveg Færeyinga á Aust-
fjörðum.
Hér er um að ræöa sögulegar
heimildir, sem gott er að eiga í
bók. Harðindin eystra veturinn
1950-51 voru slík að dreifa
þurfti fóðri, bæði heyi og öðru,
víða um hérub. Það varb ekki
gert nema með krafti þeirra
tækja sem voru nýjung í sam-
göngumálum hér á landi, snjó-
bíla og beltisýtna. Af því er mik-
il saga, sem hér er rakin. Aust-
firðingar sigruðust á snjó-
þyngslunum. Og það er engin
fjarstæba að segja að þar meb
hafi íslandssögunni verið
breytt.
Þessi harðindi eru svo
skammt undan að frásögnin um
baráttuna við þau er tiltölulega
auðveld, þó aö hún hafi kostað
sína vinnu. Hér hefur nákunn-
ugur maður, sem átti sjálfur
sinn þátt í málunum, byggt upp
frásögn af þáttaskilum í þjóbar-
BÆKUR
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
sögunni. Þar hefur réttur maður
skrifað rétta sögu á réttum tíma.
Færeyingar hafa lengi sótt afla
á íslandsmið. Vestur á fjörðum
bar talsvert á skútum þeirra.
Þeirra tími er ekki lengra undan
en það, ab sá sami og þessi orð
skrifar man frá æskuárum sín-
um að Færeyingar gengu á land
og dönsuðu hringdansa sína,
þegar ekki gaf að stunda veiöi-
skapinn. En austur frá komu
þeir meb báta sína og notuðu
þá. Fyrst var skútan móðurskip
með árabátunum, en svo varð
þessi útvegur laus við skúturnar.
Þá komu menn bara með ára-
báta sína og reru þeim til fiskjar
þaðan sem þeir fengu uppsátur í
verstöð.
Þessi færeyski árabátaútvegur
á Austfjörðum á upphaf sitt upp
úr 1870 og nær fram yfir seinni
heimsstyrjöld. Viðskiptin voru
vinsamleg og hafa átt drjúgan
þátt í því að rækja frændsemi
þjóðanna. Og vissulega var tími
til kominn að koma þessari sögu
á bók, meira en hundrað árum
eftir upphaf hennar.
Vilhjálmur segist styðja frá-
sögn sína við grundvallarrit sem
kom út í Færeyjum 1980. Þaö
heitir: „Til lands, útróður á ís-
landi", eftir Samal Johansen. En
jafnframt því hefur hann talað
við fólk og kannaö heimildir.
Þar má nefna samtíma blaða-
fregnir, opinber gögn um reglur
og tilskipanir, dagbækur o.fl.
Allt hefur þetta veriö mikil
vinna. En nú er þessi sérstaka
útgerðarsaga komin á bók og
hún verður eflaust kærkomin
bæði á íslandi og í Færeyjum.
Vilhjálmur Hjálmarsson hef-
ur á efri árum getið sér gott orð
sem fræöimaður og rithöfund-
ur. Þar er hann búinn að kynna
sig svo að ekki þarf um ab bæta.
Uppeldi hans í Mjóafiröi og
starf hans sem alþingismaður
og fjölþætt kynni vib fólk
heima og heiman hefur þróað
með honum mannvit sem verð-
ur undirstaða allra hans rit-
starfa. Þab hefur gert hann vin-
sælan sögumann, þar sem yfir-
sýnin er mótuð af góðvild ritar-
ans sem skilur alþýðlega
lífsbaráttu og hefur gott kímni-
skyn.
Með þessari síðustu bók sinni
hefur Vilhjálmur á Brekku búið
til varðveislu þætti sem margir
munu þakka honum. ■