Tíminn - 12.12.1995, Side 3
Þribjudagur 12. desember 1995
3
Seölabankinn spáir a.m.k. 1% meiri veröbólgu á
nýja árinu:
Stööugleik-
inn í hættu
hækki launin
Ný spá Seðlabankans gerir ráö
fyrir 2,7% hækkun neyslu-
verbs á árinu 1996 og ámóta
hækkun milli þessa árs og
hins næsta — sem er rúmlega
1% meiri hækkun en á yfir-
standandi ári. Forsendur þess-
arar spár eru aö launaþróun
verði í samræmi vib gildandi
samninga og nýlegan úrskurö
launanefndar ASI og VSÍ.
Leiöi hins vegar órói á vinnu-
markaöi til meiri launahækk-
ana telur Seölabankinn hættu
á aö veröbólga vaxi enn frekar
og atvinnuleysi aukist. Þaö
gæti jafnframt orðið sérstakt
tilefni aöhaldsaögeröa í pen-
ingamálum.
Miöaö viö framangreindar
forsendur áætlar Seblabankinn
ab kaupmáttur launa, m.v.
launavísitölu, gæti aukist um
samtals 5,5% á árunum 1995 og
Friörik Sophusson fjármálaráöherra óttast aö veröbólgan komist á skriö. Jón Kristjánsson for-
maöur fjárlaganefndar vill aö ríkiö fari varlega í framkvœmdir. Friörik:
1996. Kaupmáttur lægstu launa
aukist að líkindum meira. Laun-
þegar muni auk þess njóta góbs
af skattfrelsi lífeyrissjóösið-
gjalda sinna.
„í þessu ljósi er hætt viö aö
launahækkanir umfram þab
sem þegar hefur veriö samið um
geti leitt til meiri veröbólgu en
hér er spáö. Stöðugleikanum í
efnahagsmálum væri þar meb
stefnt í hættu sem gæti aukið at-
vinnuleysi á ný. Þaö gæti einnig
kallaö á sérstakar aöhaldsab-
geröir í peningamálum. Stöðug-
leikinn hefur skapaö skilyröi til
hagvaxtar og atvinnusköpunar
sem auðvelt er að raska", segir í
yfirlýsingu Seölabankans um
verölagshorfur 1996. ■
Nú standa yfir endurbœtur á Austurbœjarskóla. Leitast hefur verib vib ab halda
upprunalegu útliti sem mest, enda þykir skólinn merkileg bygging í íslenskri byggingarlist vegna nýklassískra ein-
kenna. Nýlega fundu starfsmenn Morkinskinnu rósamunstur í einum af sölum skólans, en þar er gamalt leiksvib
og fyrrum fór þar fram ýmis afþreying fyrir nemendur s.s. kvikmyndasýningar. Verib er ab rannsaka aldur máln-
ingarinnar, en ab sögn Vilhjálms Hjálmarssonar arkitekts gœti þetta hafa verib málab um 1940.
Á myndinni er Vilhjálmur ásamt starfsmanni Morkinskinnu, Ólafi Inga jónssyni, og fyrrverandi nemanda skólans
og málningarmeistara, Kristjáni Gublaugssyni, ab fletta libnum tíma. -BÞ/Tímamynd cs
Verið aö bua til hinar
verstu verðbólguvæntingar
Hertar umgengisreglur
um auölindir sjávar.
Fjármálaráöuneytiö:
Hækka verð-
ur veiðieftir-
litsgjaldið
Fjárlagaskrifa fjármálarábu-
neytisins telur aö hækka verbi
svonefnt veiöieftirlitsgjald um
allt aö 6-10 milljónir króna á ári
svo ab vibbótarkostnabur vegna
aukinna verkaefna Fiskistofu í
tengslum viö hertar umgengis-
reglur um aublindir sjávar, falli
ekki á ríkissjób.
Þetta kemur m.a. fram í fylgi-
skjali við stjórnarfrumvarp til
iaga um umgengni um auðlindir
sjávar, sem sjávarútvegsráöherra
hyggst leggja fram á þingi. Þar
kemur einnig fram sú skoðun
fjárlagaskrifstofunnar aö nauð-
synlegt veröi aö fjölga störfum í
veiðieftirliti um 2-3 til aö hægt
verði aö sinna eftirliti með 60
höfnum í kringum landið í sam-
ræmi viö ákvæöi frumvarpsins.
En viö veiðieftirlit Fiskistofú eru
fyrir 23-24 störf og árlegur kostn-
aður útgerðar vegna veiðieftirlits-
ins nemur hátt í 100 milljónir
króna. -grh
Fribrik Sophusson, fjármála-
rábherra, sagbi í samtali viö
Tímann í vikunni aö hann
óttaöist aö verbbólgan gæti
náb sér á strik.
„Ég er ekki í nokkrum vafa
um aö menn eru eftir þessa síö-
ustu samninga að búa til hinar
verstu verðbólguvæntingar,"
sagöi ráðherrann.
Jón Kristjánsson, formaöur
fjárlaganefndar Alþingis, er ekki
eins óttasleginn. En hann legg-
ur til aö ríkiö dragi úr fram-
kvæmdum sínum, þegar verk-
efni stóraukast á öörum sviðum.
„Mér finnst áríöandi núna, ef
hér er aö fara af stað mikiö af
stórframkvæmdum, álvers-
stækkun í Straumsvík, stækkun
á Grundartanga og ef til vill
nýtt álver þar, og hugsanlega
Hvalfjaröargöng aö auki, þá
dragi ríkið úr framkvæmdum í
staðinn og reyni að ná ríkis-
sjóöshallanum niður. Þaö verö-
ur meö öllu móti að draga úr
spennuáhrifum. Allar þessar
framkvæmdir, fari þær af staö
nokkurn veginn samtímis gætu
vissulega verkab veröbólgu-
hvetjandi," sagöi Jón Kristjáns-
son.
Jón benti á aö nú er slaki á
Nóvember er orbinn annar
mesti utanferbamánubur ársins.
Um 18.700 íslendingar komu til
landsins í nóvember, sem er
rúmlega 29% fjölgun frá sama
mánuöi í fyrra. Á síöustu fimm
árum finnast raunar aöeins tvö
dæmi um eilítib fleiri (um 20
þús.) utanfara í einum mánuöi,
ágúst sl. og ágúst 1991. Meö
sama áframhaldi virbist stefna í
ab nóvember verbi mesti feröa-
mánubur íslendinga.
Útlendingaeftirlitiö taldi sam-
tals rúmlega 36.400 heimkomna
íslendinga í október og nóvember,
þ.e. hinum dæmigeröa helgar/
haustferöatíma. Þetta er fjölgun
um 6.700 manns (24%) frá sömu
mánuðum í fyrra og 10.000
manns (38%) fleira en þessa tvo
haustmánuöi fyrir tveim árum.
Samkvæmt tölum Seölabankans
var eyðsla íslendinga erlendis aö
meöaltali tæplega 120.000 kr. á
fjóröa ársfjórðungi í fyrra. Þessi
6.700 manna viðbót í októ-
ber/nóvember gæti þannig kostað
um 800 milljóna kr. aukin gjald-
eyrisútgjöld, m.v. sömu tvo mán-
uöi á síðasta ári.
vinnumarkaði, sérstaklega í
byggingariönaðinum, þannig
að aukin verkefni á því sviöi
ættu ekki aö skapa spennu
strax.
„En allt kallar þetta á aö ríkiö
sé ekki aö ráöast í miklar fram-
kvæmdir. Við þurfum fyrst og
Ljóst er aö áriö í heild verður
líka algjört metferöaár. Rúmlega
153 þúsund íslendingar komu til
landsins frá áramótum til nóvem-
berloka og búast má viö a.m.k. 10-
11 þúsund til viðbótar áöur en ár-
Heilbrigöisrábherra, Ingibjörg
Pálmadóttir, og fjármálaráb-
herra, Fribrik Sophusson, hafa
fengib í hendur bréf Bandalags
kvenna í Hafnarfirbi. Þar er skor-
ab á rábherrana ab sýna skilning,
þegar rætt er um þjónustuhlut-
verk St. Jósefsspítala í Hafnar-
firbi, og framtíbarhlutverk hans.
Konurnar lýsa yfir miklum
áhyggjum vegna breytinga sem nú
er rætt um. Bandalagib hefur alla
tíö staðið að baki spítalanum og
fremst ab nýta færiö til aö ná
niður hallanum á ríkissjóöi. Ef
við gerum þaö ekki þegar upp-
sveifla er, þá er borin von aö
gera þaö þegar samdráttur rík-
ir," sagöi Jón Kristjánsson, for-
maður fjárlaganefndar Alþingis,
í gær. - JBP
iö er úti, eöa samtals líklega kring-
um 164 þúsund á árinu. Þetta
veröur í fyrsta sinn sem utanferðir
íslendinga fara yfir 150 þúsund á
einu ári og hátt í 20 þúsund feröa
fjölgun frá síöasta ári. ■
boriö hag hans mjög fyrir brjósti,
meðal annars meö miklum fjársöfn-
unum til tækjakaupa. Þegar gerö var
tilraun til að leggja starfsemina niö-
ur haustið 1991 stóð Bandalag
kvenna fyrir undirskriftasöfnun og
skrifuðu meira en 10 þúsund
manns undir áskorun til ráðherra
heilbrigðismála. Þá var oröið viö
beiðni fjöldans og spítalanum hald-
ið í gangi. Formaöur Bandalags
kvenna í Hafnarfirði er Erla Mathie-
sen. -fBP
Höfundur Netheima
meö fyrirlestur í kvöld
í tilefni af útkomu bókarinnar
Netheimar eftir Norömann-
inn Odd de Presno flytur höf-
undurinn nokkra fyrirlestra í
Reykjavík. Þriöji fyrirlestur
hans hefst kl. 20 í kvöld,
þribjudag, í Fjölbrautarskól-
anum í Ármúla, og er hann
fluttur í samvinnu viö Skóla-
skrifstofu Reykjavíkur. Bókin
Netheimar er ætluö þeim sem
vilja nýta sér tölvusamskipti á
markvissan hátt, hvort heldur
um er aö ræöa byrjendur eöa
vana notendur.
Odd de Presno hefur um ára-
bil unnið aö rannsóknum og
kynningu á tölvusamskiptum.
Hann fer víöa til aö kynna
stjórnendum fyrirtækja, kenn-
urum og vísindamönnum
hvernig nýta megi hina svoköll-
uðu netheima.
í fréttatilkynningu frá Láru
Stefánsdóttur og Lars H. Ander-
sen, sem hafa þýtt og staðfært
bókina Netheima í samvinnu
viö Odd de Presno, kemur fram
að þeir sem hafi hug á aö nýta
sér ráögjöf höfundarins geti
haft samband í síma 562 4598
og 431 4539 og veröi þá reynt
að skipuleggja slíkt meb
skömmum fyrirvara. ■
Um 18.700 íslendingar komu heim:
Nóvember annar mesti
ferðamánuður ársins
Bandalag kvenna í Hafnarfiröi skorar á heilbrigöis-
ráöherra og fjármálaráöherra:
Haldib St. Jósefs-
spítala opnum