Tíminn - 12.12.1995, Blaðsíða 6
6
Þribjudagur 12. desember 1995
Hitaveita Akraness og Borgarfjaröar:
Skipt Upp í
þrju fyrirtæki
Meb samningi á milli ríkis og
eignarabila Hitaveitu Akraness og
Borgarfjarbar, HAB, sem undirrit-
abur var í gær, hefur fyrirtækinu
verib skipt í þrjár einingar. HAB
mun áfram selja heitt vatn í
heildsölu, en tvö önnur fyrirtæki
sjá um smásölu á heitu vatni á
Akranesi og í Borgamesi.
Stofnab verbur nýtt fyrirtæki á
Akranesi, Akranesveitur, þar sem
sameinast hitaveita, rafveita og
vatnsveita innanbæjar í eitt fyrir-
tæki, auk áhaldahúss og tækni-
deildar. Þá mun hitaveita í Borgar-
nesi sjá um smásölu á heitu vatni
þar í bæ. HAB mun frá áramótum
ekki hafa neina starfsmenn í þjón-
ustu sinni, en bæjarfélögin tvö
munu samkvæmt þjónustusamn-
ingi annast rekstur fyrirtækisins. Þá
mun Akraneskaupstabur kaupa
eignarhluti Borgarbyggbar og
Andakílshrepps í Andakílsárvirkj-
Fimm íslensk verkefni styrkt af Framkvœmdastjórn
E vrópusambandsins:
Lesblindir fá styrk
fyrir útgáfu námsefnis
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins tilkynnti nýverib
um úthlutun styrkja vegna
fyrstu umsókna í svokallabri Le-
onardo-áætlun, sem kennd er
vib listmálarann Leonardo da
Vinci. Sótt var um átta tilrauna-
verkefni undir islenskri stjórn
og hlutu fjögur þeirra styrk,
samtals ab upphæb 57 milljónir
króna.
Iöntæknistofnun fékk styrk til
aö þróa námsefni til sjálfsnáms í
fiskeldi. íslenska dyslexíufélagib
fékk styrk til aöö útbúa kennslu-
efni fyrir ungt fólk sem haldiö er
lesblindu. Úrlausn-Aögengi ehf.
hlaut styrk til aö þróa margmiöl-
unarbúnaö til sjálfsnáms í tungu-
málum, og Kennaraháskóli ís-
lands og Fræöslustofan Kría hlutu
styrk til aö þróa kennslu á tækni
sem mun stuðla aö umhverfis-
vænni lífsstíl í framtíöinni. -BÞ
Ríkiö mun samkvæmt þessum
nýja samningi verða eignaraðili aö
HAB og mun eignast 20,7% hlut.
Akraneskaupstaður mun eiga
53,7%, Andakílshreppur 4,3% og
Borgarbyggð 21,3%.
Gert er ráð fyrir aö raunlækkun
verði á gjaldskrá HAB, sem nemur
10% lækkun, 1. janúar næstkom-
andi og 5% 1. janúar 1998. Þá er
gert ráö fyrir í fjárhagsáætlun aö ár-
ið 2012 hafi HAB náö að greiða nið-
ur þau lán sem hvíla á fyrirtækinu.
Jafnframt er í hinum nýja samningi
kveðið á um aö ef skuldir verði
hærri en 900 milljónir, muni ríkis-
sjóður yfirtaka 75% þeirrar fjárhæö-
ar sem umfram stendur. -PS
Bjartsýnisverölaun Bröste
1995 voru afhent vib hátíblega athöfn íPerlunni 8. desember sl. Forstjóri
P. Bröste a/s, Peter Bröste, baub gesti velkomna og borgarstjóri Reykja-
víkur, frú Ingibjörg Sólrún Císladóttir, flutti ávarp. Þab var forseti Islands,
frú Vigdís Finnbogadóttir, sem afhenti Fribriki Þór Fribrikssyni verblaunin
ab upphæb DKK 50.000. -bþ
Kjarvalsstaöir:
Safnverslun opnuð
Búiö er ab opna safnverslun á
Kjarvalsstöbum í anddyri
safnsins þar sem seld verður
listræn gjafavara, Iistaverka-
bækur, veggspjöld, listaverka-
kort, afsteypur af verkum Ás-
mundar Sveinssonar, dagatöl
og margt fleira.
Auk þess hefur veriö komib
fyrir sýningarkassa í anddyri
safnsins sem verslanir og fyrir-
tæki geta leigt til kynninga á
vöru sinni. Hugmyndin er sú ab
í safnverslun Kjarvalsstaða verbi
einnig í framtíbinni á boðstól-
um íslensk nytjalist og gjafavara
eftir íslenska hönnuöi. Verslun-
in veröur opin daglega frá kl.
10-18.
Erlend tryggingafyrirtœki eru komin meö tcernar inn fyrir dyrastafinn hér á landi. Sun Life International:
BýÓur lífeyrissjóðum og
tryggingafélögum birginn
Mikil umræba hefur verib ab
undanförnu hér á landi um líf-
eyrismál, ekki hvab síst um lág-
ar lífeyrisgreibslur sem fólk fær
ab starfslokum eftir jafnvel ára-
tuga greibslur til sjóbanna. Vib-
skiptarábherra hefur lýst því yf-
ir opinberlega ab losa þurfi um
ýmis ákvæbi laga um lífeyris-
sjóbina. Vinnuveitendur og ASÍ
vilja skylduabild ab sjóbunum
og hafa samib sín á milli um líf
og limi sjóbþeganna. Mebal
annars bendir Finnur Ingólfs-
son á þá leib ab fólk eigi ab
mega velja um sparnabarleibir.
Til dæmis kæmi þar til greina
líftrygging í stab greibslu í lög-
bundinn lífeyrissjób.
Boöar haröa sam-
keppni
Ljóst er af tilboðum Sun Life
International, sem nú haslar sér
völl á íslandi, aö lífeyrissjóðir
landsmanna gætu átt í vændum
harðvítuga samkeppni á þessu
svibi. Ennfremur er ekki ótrúlegt
að líftryggingafélög hér á landi
fari að bjóöa fólki annars konar
kjör en nú tíbkast. Fólk, sem hef-
ur gamlar líftryggingar, mun ekki
njóta þeirra í íifanda lífi, þær eru
abeins greiddar út til eftirlifandi
maka.
Meö evrópsku frelsi á ýmsum
sviðum er farib að bóla á erlend-
um tryggingafélögum á íslensk-
um markabi. Eitt þeirra er Sun
Life, vel þekkt fyrirtæki í Bret-
landi, margverölaunað fyrir há-
gæðaþjónustu og hagstæba
ávöxtun. Fyrirtækiö er 185 ára
gamalt fyrirtæki með sjóöi í
vörslu sinni sem munu nema um
1600 milljörðum íslenskra króna,
meira en tíföld fjárlög íslenska
ríkisins.
Upplýsingar um Sun Life á ís-
landi veitir vátryggingamiðlun
Guöjóns Styrkárssonar hæstarétt-
arlögmanns í Miðbæjarmarkaön-
um, Abalstræti 9.
Tilboð Sun Life er fólgið í nýju
og sveigjanlegu fyrirkomulagi á
líftryggingu, söfnunartryggingu
og meinatryggingu. Það, sem
boöið er upp á, er ekki sú hefð-
bundna líftrygging sem best er
þekkt hér á landi.
Útlendur sjóður eöa
innlendur?
En er þaö skynsamleg ráðstöfun
ab greiba í söfnunarsjóöi trygg-
ingafélags í stað síns gamla lífeyr-
issjóös? Skoðum þetta.
Vib höfum dæmi um af-
greiðslumann sem greiöir 8 þús-
und á mánuði að núviröi í Lífeyr-
issjób verslunarmanna allt þar til
hann veröur sjötugur. Þá fær
hann ab starfslokum 45.500
krónur á mánuði.
Sun Life segir okkur ab greiöi
afgreiðslumabur þessi sömu upp-
hæb í sama tíma, eigi hann inn-
eign sem nemur 14 milljónum
króna um sjötugt. Þá getur maður
þessi valib um tvennt. Hann get-
ur tekið út þessar 45.500 krónur á
mánubi og haldib áfram aö bæta
við höfuðstólinn. Eba hann getur
tekib út 70 þúsund á mánuði og
haldið höfuðstólnum óskertum.
Hér er miðað viö 7,5% ársvexti.
Aö auki er afgreibslumaburinn líf-
tryggbur fyrir 5 milljónir króna,
auk þess sem hann er tryggður
gegn fjölda lífshættulegra sjúk-
dóma, ýmsum krabbameinum,
hjartaáfalli og fleiru. Þá er innifal-
in í iðgjaldinu frítrygging, en þaö
þýöir aö ef tryggingataki getur
ekki greitt iögjaldið vegna veik-
inda, þá greiöir Sun Life fyrir
hann og sjóöur hans heldur
áfram aö vaxa eins og hann heföi
aldrei veikst.
Annaö dæmi er íslenski lífeyris-
sjóðurinn. Greiddar eru kr. 15
þúsund á mánuöi í 30 ár. Þá getur
tryggingataki fengið lífeyri sem
svarar 201.738 krónum á mánuöi
— í tíu ár. Þá er sjóbur hans upp-
urinn, þegar miðað er viö 7%
ávöxtun. Inneignin er hvorki
framseljanleg né hægt að nota
hana sem veö.
Ef sömu greiðslur hefðu verið
greiddar Sun Life á sama tíma,
ætti viökomandi kr. 23,7 milljón-
ir í sjóbi. Þab geröi honum mögu-
legt ab taka út kr. 193 þúsund til
æviloka án þess að skeröa höfuö-
stólinn. Þar ab auki væri viðkom-
andi líftryggöur fyrir 10 milljónir
króna og nyti frítryggingar ef
hann veiktist. Þessi eign er veð-
setjanleg og henni er hægt ab ráö-
stafa hvenær sem er. Hér er miðab
viö 10% hóflega áætlaða meöal-
ávöxtun Sun Life.
Grátt leikinn prentari
Enn eitt dæmi úr raunveruleik-
anum. Prentari einn hafði greitt
mánaðarlega í 34 ár í Lífeyrissjóð
prentara, upphæð sem svarar 10
þúsund krónum á núvirði. Fyrir
starfslok var honum tilkynnt að
hann ætti rétt á 45 þúsund króna
lífeyristryggingu mánaðarlega.
Annað kom í ljós þegar hann fékk
fyrstu greiðslu. Hún reyndist vera
34 þúsund. Sjóðurinn þoldi ekki
hærri greibslu, sagði sjóbstjórinn,
en þá hafbi prentarasjóðurinn
sameinast mörgum öörum sjóð-
um í Sameinaða lífeyrissjóönum.
Fleiri dæmi mætti nefna um líf-
eyrissjóði okkar, og eftir því sem
Sun Life gefur upp, eru viöskiptin
viö þá ævinlega hagstæöari. Einn-
ig þegar litið er á tilboð erlendra
fyrirtækja sem farin eru aö bjóða
þjónustu hér. í Morgunblabinu
var nýlega auglýsing frá þýska
tryggingafélaginu Allianz. Það fé-
lag býður t.d. 10 þúsund króna
mánabargreiöslu í sjóöinn í 35 ár.
Aö þeim tíma liðnum á viðskipta-
vinurinn samkvæmt mebalávöxt-
un fyrirtækisins rúmar 14 millj-
ónir í sjóði, þar af 6 milljóna líf-
tryggingu.
Sun Life segist bjóba betur.
Samkvæmt meðalávöxtun þess
fyrirtækis, miöaö viö sömu mán-
aðargreiöslur og sömu líftrygg-
ingar, líti dæmið þannig út aö
tryggingarþeginn eigi inni 21,7
milljónir.
Sígarettan hækkar
ibgjöld, vindlar og
pípa skipta ekki máli!
Sun Life býður upp á meina-
tryggingar sem svo eru kallaðar.
Tryggt er gegn tilteknum sjúk-
dómum og ibgjöldin ódýrari,
reyki menn ekki sígarettur. Vindl-
ar og pípa skipta ekki máli.
Það, sem vakiö hefur athygli
viö Sun Life, er sú staðreynd að á
löngum ferli sínum hefur félagiö
ævinlega fjárfest skynsamlega og
fengiö afbragðs ávöxtun á sjóðum
sínum. Fyrir þetta og fleira hefur
Sun Life því unnið til marghátt-
aðra alþjóðlegra verðlauna.
Hver ákveður rétt
launþega?
Þannig er spurt í leiðara Morg-
unblaösins í vikunni. Fram hefur
komiö aö VSÍ og ASÍ hafa samið
um það sín á milli að „launþegum
veröur áfram skylt að greiða iö-
gjald í lífeyrissjóði vibkomandi
starfsstéttar eða starfshóps".
Menn eru því að ákveða þaö að
skylduaðild verði áfram að lífeyr-
issjóðunum, og ekkert val, eins og
viðskiptaráðherra vill að verbi.
Blaðið gagnrýnir þessa skylduað-
ild, sem ASÍ og VSI pukrast við að
semja um, slíkt standist engan
veginn. Blaðið mælir með því að
launþegar tryggi sig gegn veikind-
um og til aö tryggja tekjur á elliár-
um.
„Það er hins vegar hreint og
klárt mannréttindamál að laun-
þegar geti ráðið því hvar þeir
ávaxta lífeyri sinn. Að því hafa
veriö færð skynsamleg rök að
skyldugreiöslur í fastákveðinn líf-
eyrissjób brjóti í bága við Mann-
réttindasáttmála Evrópu og eign-
arréttarákvæði stjórnarskrárinn-
ar. Það er sömuleiðis hlutverk lög-
gjafans að tryggja aö þar sé öllum
vafa eytt," segir leiðarahöfundur
Morgunblaösins. Væntanlega
mun Finnur Ingólfsson viðskipta-
ráðherra sammála þessum leið-
araskrifum.
-JBP