Tíminn - 08.05.1996, Page 9
Mibvikudagur 8. maí 1996
wfvnmvi
9
UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . .
Lokatörn þingkosninganna á Indlandi var í gœr:
Rao á í vök að verjast
Ekki var annaö aö sjá en aö
P.V. Narasimha Rao, forsaetis-
ráöherra Indlands, héldi ró
sinni í gær þegar lokatöm
hófst í þingkosningunum á
Indlandi. Stjómmálaskýr-
endur segja þó aö hann
standi nú frammi fyrir þeirri
erfiöustu raun sem hann hef-
ur lent í á löngum stjóm-
málaferli sínum.
Rao, sem er 74 ára gamall,
hefur fariö meö stjórnvölinn á
Indlandi í fimm ár, og notað
þann tíma til þess aö gera um-
fangsmiklar efnahagsumbætur
og opna landamæri Indlands
gagnvart viðskiptum viö um-
heiminn. Með þessu hefur
honum tekist aö koma sér í
náðina hjá Vesturlöndum, sem
líta á hann sem brautryðjanda
í nútímavæðingu Indlands, en
öðru máli gegnir um heima-
menn á Indlandi þar sem hann
þykir hafa átt í vök að verjast.
„Ef eitthvað er að marka
reynslu mína, þá snýr Þjóð-
þingsflokkurinn aftur til
valda," sagði hann á sunnu-
daginn, síðasta dag kosninga-
baráttunnar fyrir lokatörnina.
En margir stjórnmálaskýrend-
ur efast um að hann muni
reynast þar sannspár. Alls óvíst
sé hvort Þjóðþingsflokkurinn,
sem hefur mátt sitja undir
ásökunum um spillingu og all-
nokkur hópur flokksmanna
hefur yfirgefið flokkinn, nái
meirihluta á þinginu, þar sem
alls eiga 545 þingmenn sæti.
Kosningarnar til þingsins
hafa farið fram í nokkrum
áföngum, enda ekkert áhlaupa-
verk fyrir 930 milljón manna
þjóð að kjósa sér þing. í gær var
kosið í 183 síðustu þingsætin,
og þá áttu 200 milljónir manna
að neyta kosningaréttar síns.
Talning atkvæða í öllum kjör-
dæmum landsins, sem eru 543
talsins, hefst síðan í dag, mið-
vikudag, og úrslit verða vænt-
anlega orðin nokkuð ljós þann
11. maí.
Pran Chopra, sem fylgst hef-
ur náið með indverskum
stjórnmálum, segir að Rao
„skorti það sem þarf til þess að
ná inn atkvæðum," en bætti
því við að deilurnar innan
flokksins eigi rætur sínar að
rekja til persónuleika Raos en
ekki stefnumála hans. „Hvað
varðar stefnumálin er hann
einn besti forsætisráðherra sem
við höfum átt. En hæfileiki
hans til þess að vinna stefnu-
málum sínum fylgi er af skorn-
um skammti. Þegar hann kem-
ur fram opinberlega fær fólk þá
mynd af honum að hann sé
maður þungur í skapi."
Rao hefur starfað í 55 ár fyrir
flokkinn, tekið að sér hvert
ráðherraembættið á fætur öðru
undir stjórn allra helstu forsæt-
isráðherra landsins frá því það
hlaut sjálfstæði árið 1947. Al-
mennt er litið á hann sem
traustan embættismann sem er
slyngur við að útfæra stefnu-
málin og fer ekki með neitt
fleipur í fjölmiðlum.
Indverjar eru þó ekki hrifnir
af því hve tregur hann virðist
oft vera til að taka ákvarðanir.
„Ég tek ákvarðanir. Og ég tek
ekki ákvarðanir, sem er líka
ákvörðun," sagði Rao nýlega
sér til varnar.
Gagnrýnendur halda því
einnig fram að hann hafi of
mikil völd á sinni könnu. Auk
þess að vera flokksformaður er
hann yfirmaður a.m.k. 13
ráðuneyta.
Flestar skoðanakannanir
benda til þess að flokkurinn
muni missa meirihluta sinn,
en sigurvegari kosninganna
verði þjóðernissinnaður
hindúaflokkur (BJP).
-CB/Reuter
Seaver Leslie vill aö Bandaríkin haldi fast / gömlu mœlieiningarnar:
Metrakerfið er meingallab
Listamaöurinn Seaver Leslie
hefur um skeiö barist hetju-
legri baráttu gegn því aö
metrakerfiö veröi tekiö upp í
Bandaríkjunum, og heldur
Eins og sjá má af samanburbinum vib Lundúnastrætisvagnana þrjá á
myndinni, erA3XX engin smásmíbi, enda á hún ab geta flogib meb 500
farþega ílangflugi milli heimsálfa.
því fram aö gamla kerfiö
hafi ótvíræöa yfirburöi og
skaöinn yröi óbætanlegur ef
skipt veröur yfir.
Bandaríkin eru eina stóra
iðnaðarríkið sem enn hefur
ekki opinberlega tekið upp
metrakerfið, og Leslie bendir á
að almenningur hafi greini-
lega sýnt lítinn áhuga á að
breyta til. „Það er ekki vegna
þrjósku okkar," segir hann,
heldur sé metrakerfið „lélegra
kerfi."
Hann heldur því fram að
hefbundna einingakerfið þar
sem notast er við tommur,
únsur og „kvart" henti mann-
fólkinu betur en metrakerfið
vegna þess að gamla kerfið sé
byggt á hlutföllum líkamans
og því hvernig fólk skynjar
umhverfið í daglegu lífi.
„Með því að nota gömlu ein-
ingarnar endurspeglum við
hin raunverulegu hlutföll sem
ríkja í veruleikanum," segir
Leslie, sem fékk áhuga á mæl-
ingavísindum þegar hann var
að rannsaka keltneskar bygg-
ingarústir í Bretlandi.
Arið 1988 lýsti Bandaríkja-
þing því yfir að það mælti með
notkun metrakerfisins í við-
skiptum, en vildi ekki gera það
að skyldu.
-GB/Reuter
Maöur til
sýnis
Petrus Kruiper heitir þessi 76 ára
gamli búskmabur sem hafbur var
til sýnis á árlegri þorpshátíb sem
haldin var sl. sunnudaginn í bœn-
um Klerksdorp í Subur-Afríku,
u.þ.b. 110 km vestur af jóhannes-
arborg. Þangab gat fólk komib og
kíkt á Petrus og félaga hans, þar
sem þeir sátu innan girbingar eins
og dýr í dýragarbi, klœddir ab
hœtti þjóbar sinnar, fyrir abeins 2
rönd, eba u.þ.b. 30 ísl. krónur. Sitt
hvoru megin vib þá voru Ijónynja
og hýena til sýnis.
Reuter
Ein með öllu
FYRIR FYRIRTÆKIÐ OG HEIMILIÐ
FYRIRTÆKIÐ
Airbus kemur fram meö nýja kynslóö farþegaþotna. Þróunarverkefni
sem kostar stjarnfrceöilegar upphœöir:
Stærsta farþegaþotan á
ab taka 500 manns í sæti
Stærsta farþegaþota heims,
500 sæta flugvél, er á vinnu-
borðinu hjá Airbus, samevr-
ópsku flugvélaverksmiöj-
unni. Hún heitir A3XX á
teikniborðinu og sérstök
deild innan fyrirtækisins
annast um þróun þessarar
flugvélar.
Jean Person framkvæmda-
stjóri Airbus segir að fram-
leiðsla 500 sæta þotna stafi af
því að fyrirtækið verði að mæta
eftirspurn flugfélaganna eftir
stærri þotum. Fjölmörg flugfé-
lög og samstarfsaðilar í flug-
vélaiðnaði séu með í ráðum
varðandi hönnunina.
Reiknað er með þörf fyrir um
1.300 þotur af þessari gerð á
næstu 20 árum. Virði kaup-
samninga yrði stjarnfræðileg
tala, — 300 milljarðar Banda-
ríkjadala, eða ca. 20.000 millj-
arðar íslenskra króna, jafnvirði
fjárlaga íslenska ríkisins hátt í
tvær aldir. Eða ef maður snýr
dæminu við, áttföld fjárlög ís-
lenska ríkisins næstu 20 árin!
„Með því að sameina reynslu
og þekkingu samstarfsaðila
okkar í greininni og stærstu
flugfélaga heims, sköpum við
hagstæðan vettvang til að þróa
nýja flugvél eftir sérstökum
leiðum hvað varðar hagræð-
ingu, þægindi fyrir farþega auk
þess að mæta kröfum í vernd-
un umhverfisins. Til að ná
þessu fram verðum við að fá
nýja hönnun og nýja kynslóð
flugvéla. Það hreinlega nægir
ekki að þróa áfram gamlar hug-
myndir," segir Jean Person.
BILINN
HUSIÐ & GARÐINN
Mjög auðveld og þægileg í notkun
Ekkert rispar lakkið meira á
bílnum en drullugir og tjaraðir
þvottakústar.
KEW
KEW X-tra er mjög öflug. og einstaklega
þægilega útbúin háþrústidæla með öllum
búnaði og fylgihlutum til þrifa utanhúss.
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík
Sími 587 5554, Fax 587 7116