Tíminn - 30.07.1996, Page 8
I
Þribjudagur 30. júlí 1996
8
Á sunnudaginn var vígð ný og
glæsileg kirkja í Reykholti í
Borgarfiröi. Kirkjan hefur verið
tæpan áratug í byggingu en
hún er ab nokkru leyti ólík öbr-
um kirkjum landsins því í
byggingunni koma saman ýms-
ir þættir sem alla jafna teldust
ólíkir. Kirkjan er ab sjálfsögbu
Gubshús en jafnframt er hún
hönnub meb þab fyrir augum
ab nýtast sem tónlistarhús. Inn-
an veggja sömu byggingar er
einnig abstaba til þjónustu fyrir
ferbamenn, bókasafn, fræðaset-
ur og fræbimannaíbúb. Um 600
manns voru vibstaddir vígsl-
una í Reykholti.
Fyrstu hugmyndir
um byggingu 1923
Saga kirkjunnar sem hóf þjón-
ustu vib Reykholtsprestakall á
sunnudag verbur rakin allt aftur
til ársins 1923 en það ár ákvað
aðalsafnaðarfundur Reykholts-
sóknar að halda gömlu kirkjunni
ekki við lengur en safna þess í
stað sjóbum til þess að byggja
nýja hæfilega steinkirkju, eins og
það var þá orðað. Lítib varð úr
þessum áformum og brunnu
sjóðirnir jafnóðum upp í verb-
bólgu. Gömlu kirkjunni var auð-
vitað eigi að síður haldið vib en
það var ekki gert út frá því sjónar-
miði ab halda húsinu við í sama
formi, heldur var kirkjunni gert
til góða þab sem þurfti til þess að
hún væri nýtileg áfram, að sögn
séra Geirs Waage sóknarprests í
Reykholti.
Geir segir að það hafi verið í
kring um 1980 að sóknarnefndin
sá að ekki mátti vib svo búið
standa, það yrði að taka ákvörð-
un um kirkjuna hvort gera ætti
gömlu kirkjuna algerlega upp eða
byggja nýja. Sá kostur var skoð-
aður að byggja gömlu kirkjuna
algerlega upp en menn sáu fram
á að ef það yrði gert hefbu menn
ekki aðra aðstöðu en þá sem
hefði verið í Reykholti frá 1887.
Kirkjan var mjög léleg orðin og
því var það lagt til við aðalsafn-
aðarfund að það yrði ekki gert við
hana heldur yrði ráðist í að
byggja nýja kirkju og að í tengsl-
um við þá kirkjubyggingu mundi
sóknin beita sér fyrir því að koma
upp annarri aðstöðu sem búið
var að tala um áratugum saman.
„Þá er fyrst að nefna bókhlöðuna,
en frá því um 1930 hafa veriö
uppi hugmyndir um að koma
upp góðri aðstöðu fyrir bókasafn
í Reykholti til þess sérstaklega að
kynna verk Snorra. Upp úr 1930
hrinti norskur maður, Einar Hil-
sen, þeim hugmyndum af stað.
Hilsen þessi safnabi og sendi til
Reykholts, Snorra-safns í Reyk-
holti eins og hann kallaði það
sjálfur, ýmsar útgáfur af verkum
Snorra Sturlusonar, norskar,
danskar og enskar og beitti sér
fyrir því að einstaklingar og sam-
tök gerðu slíkt hið sama. Þannig
varð til vísir ab safni um Snorra
Sturluson. Bókasafn Tryggva Þór-
hallssonar ráðherra hefur verib í
Reykholti síðan á fjórða áratugn-
um, en ríkisstjórnin keypti þab á
sínum tíma," sagði Geir Waage.
Mikill bókakostur en
engin abstaba
Þannig var mikill bókakostur
fyrir hendi í Reykholti en engin
aðstaða til að sinna honum.
„Söfnuðurinn ákvað að beita sér
fyrir því að í tengslum við kirkju-
bygginguna yrði reist þessi bók-
hlaba. Frá því um það bil sem
handritin komu heim þá höfðu
ýmsir framámenn talað um að
gaman væri og jafnvel nauðsyn-
legt að koma upp íbúð í Reyk-
holti svo erlendir og innlendir
áhugamenn um Snorra, vísinda-
menn, gætu dvaliö í Reykholti
um tíma, annað hvort við störf
Ný kirkja var vígö í Reykholti á sunnudag. Byggingin sem hún er hluti af er öörum þrœöi tónlistarhús, feröaþjón-
ustumiöstöö, bókhlaöa, frœöimannasetur og fræöimannaíbúö.
Reykholtskirkja vígb síbasta sunnudag ab vibstöddu fjölmenni. Séra
Ceir Waage sóknarprestur:
V erkib haft mik-
inn mebbyr
eða hvíld. Þessar hugmyndir
höfðu gengið aftur í ræðum
manna lengi eftir það.
Loks var það mjög pínlegt að
hér var mjög léleg salernisað-
staða fyrir ferðamenn og engin
aðstaða til að sinna ferðafólki al-
mennt. Þess vegna var það að
þegar sóknarnefndin gekk frá til-
lögu að þessum byggingum þá
var þess óskab við húsameistara
ríksins ab hann gerði ráð fyrir
einhverri aðstöðu fyrir þessar
þarfir sem ég er búinn að telja
upp. Þannig urðu þessar hug-
myndir til," segir Geir um ástæð-
ur þess að innan sömu veggja eru
svo fjölbreyttar vistarverur sem
raun ber vitni. Enda voru hug-
myndirnar ekki nýjar af nálinni
þegar ákveðið var að fara út í
bygginguna, eins og Geir segir:
Þessar hugmyndir
taldar upp í bréfi frá
því um 1960
„Það er til bréf sem séra Einar
Guðnason ritaði menntamála-
nefnd Alþingis upp úr 1960 þar
sem hann er ab svara fyrirspurn
frá menntamálanefnd um hvað
hann teldi brýnast ab gera á
staðnum á næstu árum. Þar telur
hann upp allar þessar hugmynd-
ir."
Þessar hugmyndir voru í
vinnslu fram yfir mibjan síðasta
áratug. „Þær voru kynntar og
ræddar og síðan var haldinn að-
alsafnaöarfundur sem var mjög
vandlega undirbúinn og boðaður
þar sem ákvörðun var tekin um
að ráðast í þessar byggingar.
Skóflustunguna tók svo herra
Pétur Sigurgeirsson á hvíta-
sunnudag 1988. Sjötta september
þá um haustið lagði frú Vigdís
Finnbogadóttir homstein bygg-
ingarinnar að viðstöddum Olafi
Hákonarsyni Noregskonungi sem
var hér í heimsókn. Við það tæki-
færi afhenti Ólafur gjöf frá Norð-
mönnum, eina milljón norskra
króna til Snorrastofu, ekki til
kirkjunnar heldur til Snorrastofu.
Sú ágæta gjöf hrinti málinu vel
fram, allavega hvað áræði okkar
varöaði."
Norbmenn veittu
rausnarlega styrki
Norsk stjórnvöld lögðu ekki
fram frekari styrki, en norskir
einstaklingar gerðu þab hins veg-
ar og nefnir Geir einn mann sér-
staklega í því sambandi, Arild
Holand í Björgvin, en hann færði
Snorrastofu 100.000 norskar
krónur að gjöf á síöasta ári. „Fleiri
styrkir en smærri hafa komið frá
einstaklingum í Noregi til Snorra-
stofu."
Innlendir aðilar hafa einnig
veitt verkinu brautargengi. „Jöfn-
unarsjóður sókna gagnvart kirkj-
unni hefur lagt þessu mikið og
gott liö. Síðan hefur Alþingi veitt
til þess á fjárlögum og ríkisstjórn-
in beitti sér fyrir því núna að 25
milljónir króna verða lagbar til
Snorrastofu til að ljúka byggingu
hennar á næstu fimm ámm."
Verkib haft mikinn
mebbyr
„Verkið í heild hefur haft mik-
inn meðbyr, bæði í héraði og ut-
an héraðs. Fjölmargir einstak-
lingar, stofnanir og fýrirtæki hafa
aðstobab okkur beint og óbeint.
Það má segja að allir sem að verk-
inu hafa komið hafi borið verkið
á höndum sér. Verktakar, iðnað-
armenn og allir sem með ein-
hverjum hætti hafa komið að
þessu verki hafa hjálpað því mik-
ið. Það er eiginlega eins og þeir
hafi allir verið aö vinna sjálfum
sér. Það hefur fengist mikið fyrir
hverja krónu sem hefur verið
lögð í þetta verk. Það var byggt
með þeim hætti lengst af, alveg
fram undir þennan lokaáfanga
núna, að það var byggt eftir efn-
um og ástæbum. Þaö var byggt
fyrir þá fjármuni sem fyrirsjáan-
legir voru eða búið var að lofa til
verksins. Þess vegna hafa verk-
þættirnir gengið svolítið í
skrykkjum. En þegar tekin var
ákvörðun um að vígja í sumar þá
varð að miða við það og þar af
leiðandi höfum við verið að
byggja fyrir peninga sem við höf-
um ekki haft á hendi núna síð-
ast," segir Geir.
Hann vill ekkert fullyrða um
heildarkostnaðinn við bygging-
una, en segir að það kæmi sér
ekki á óvart að kostnaðurinn
væri kominn yfir hundrað millj-
ónirnar.
Stefán Ólafsson frá Litlu-
Brekku er byggingameistari kirkj-
unnar og hefur fylgt verkinu frá
upphafi. Sigurdór Jóhannsson
rafVirkjameistari á Akranesi hehir
séð um rafmagnið, og Gösli, Ág-
úst Guðmundsson, sá um múr-
verkib. Byggingafélagið Borg í
Borgarnesi smíðaði gluggana í
bygginguna en Trésmiðjan Akur
á Akranesi hurðir og það sem
þeim fylgdi.
„Menn hafa lagt sig eftir því að
taka íslenskt byggingarefni fram
yfir annað og það má segja að all-
ir þjónustuaðilar á svæðinu hafi
með einum eba öðrum hætti
komið að þessu verki og það er
ástæða til að þakka öllu þessu
fólki og öllum þessum fyrirtækj-
um fyrir allt samstarf við okkur."
Öbrum þræbi tón-
listar- og sönghús
En Reykholtskirkja er ekki ein-
vörðungu Guðshús eins og fram
hefur komið. Hún er öðrum
þræði hönnuð sem tónlistar- og
sönghús. „Þegar gerð kirkjunnar
var lögð fyrir húsameistara þá var
óskað eftir því að húsið yrði hefð-
bundið í grunngerðinni, þetta
yrði krosskirkja meb útbrotum
eins og kirkjurnar voru hér í eina
tíð, sem sagt, sömu grundvallar-
gerðar og Skálholtsdómkirkja og
þessar gömlu kirkjur, en auðvitað
er húsið nútímalegt að öllu öðru
leyti. Það var ákveðið frá upphafi
að gæta að öllu sem varðaði
hljómburð þannig að húsið yrði
sem best úr garði gert fyrir tón-
listarflutning. Þess vegna eru nú
veggirnir á kirkjunni eins og þeir
eru, en veggfletir eru hvergi sam-
síöa. Það var ákveðið að hafa kór-
dyrnar víðar og rúmar þannig ab
þar væri hægt að stilla upp stór-
um kórum og yfirleitt gefinn
gaumur að rými þannig að það
væri hægt að koma fyrir tónlist-
arflutningi og það var hugsað fyr-
ir því öllu frá upphafi. Því það er
mikið tónlistarlíf í Borgarfirði og
mikið fjör í öllu kórstarfi. Það var
náttúrulega talið sjálfsagt ab
reyna að hlúa að því menningar-
starfi með því að gera kirkjuna
þannig úr garði að hún væri
hentug fyrir söng og tónlist."
Geir segist reikna með að svo
verði búið um hnútana að öll list
eigi greiðan inngang í kirkjuna,
en bætir við: „En auðvitað er
kirkjan fyrst og fremst musteri,
helgidómur. Og sem helgidómur
reynir hún að hlúa að hinum
fögru listum."
Geir segir að tónlistin eigi að
styðja predikunina. „í kirkjunni
er það orðið, helgihaldið, sem
hefur allan forgang og tónlistar-
flutningurinn styður það en vita-
skuld gengur hann aldrei yfir
það, þá er eitthvað orðið verulega
mikið að ef svoleiðis staða kemur
upp. Ég hef enga ástæðu til ab
óttast að það verði nokkurn tíma
hér," segir Geir og ítrekar að hús-
ið sé beinlínis byggt með það fyr-
ir augum að það henti vel til tón-
listarflutnings. Aðspurður hvort
tónlist verði áfram þáttur í helgi-
haldi í Reykholtskirkju svarar
Geir: „Það er nú líkast til. Kirkjan
hefur alla tíð verið fóstra tónlist-
arinnar en það má aldrei koma
upp sú staða að tónlistin í sjálfu
sér fari að ryðja öðrum þáttum til
hliðar."
Söngurinn ómabi
Enda ómaði söngurinn á
sunnudaginn. Kórar Reykholts-
kirkju og Hvanneyrarkirkju
sungu við sjálfa athöfnina og eft-
ir hana voru tónleikar þar sem
Borgfirðingar sungu. Kvennakór-
inn Freyjukórinn og karlakórinn
Söngbræður sungu tvö lög hver,
en síðan sameinuðust þeir kórar,
ásamt kirkjukórunum tveimur og
söng þá fjölmennur kór Borgfirð-
inga.
Geir Waage er ánægður með
nýja sóknarkirkju og telur að vel
hafi tekist til. „Mér finnst hafa
tekist mjög vel til með gerð þessa
húss. Og ég sé ekki betur, miðað
við þessa reynslu frá gærdeginum
að það sé prýðilega hentugt út frá
þeim forsendum sem menn gáfu
sér og ég er mjög ánægður með
þetta allt."
-ohr
\Amlngar F]öldl vfnnlngahafa 7Upphaaö á hvern
1. *-« 0 3.292.579
2.4-> »o 324.778
3. •-» 43 13.020
4. 1-5 1.861 700
Samtals: 2.28707 2 3.631077
Upplý*ingar um vinninQstökjr fátt ainnig I slmtvara
568-1511 eöa Grœnu númeri BOO-6511 og Itextavarpi