Tíminn - 30.07.1996, Qupperneq 16
Vebríb (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.30 í gær)
• Suburland: Hvöss austan átt vib ströndina en annars norðaustan
stinningskaldi eba allhvasst og rigning. Hiti 8 til 14 stig.
• Faxaflói: Allhvöss norðaustan átt og rigning. Hiti 8 tiM4 stig.
• Breibafjörbur og Vestfirðir: Allhvöss austan átt og rigning meb
köflum. Hiti 9 til 12 stig.
• Strandir og Norðurland vestra til Austurlands ab Clettingi:
Austan stinningskaldi eba allhvasst, skýjab og rigning meb köflum. Hiti
7 til 12 stig.
• Austfirbir: Austan stinningskaldi og rigning. Hiti 8 til 12 stig.
• Subausturland: Allhvöss eba hvöss austan átt og rigning. Hiti 12
til 17 stig.
• Mibhálendib: Allhvöss eba hvöss austlæg átt og rigning sunnan til
en skýjab og rigning meb köflum notabn til. Hiti 5 til 12 stig.
Sameining sveitarfélaga:
Spurning hvort öll
sveitarfélögin þurfi aö
endurtaka kosningu
„Menn bíba eftir svari frá Fé-
lagsmálaráðuneyti um þab
hverning eigi að standa ab
kosningu aftur," segir Magn-
hildur Björnsdóttir, vara-
oddviti í Fljótsdalshreppi.
„Það er spurning hvort það
þurfi að kjósa um sameiningu
í öllum hreppunum aftur eða
hvort það nægir að endurtaka
kosninguna í Fljótsdals-
hreppi". Aö sögn Magnhildar
hefur engin formlega ákvörð-
un verið tekin um það hvort
sameiningarmálin verði tekin
upp aftur, það sé þó líklegra en
ekki. „Hins vegar er erfitt ab
Sveitarfélögin taka viö
grunnskólum:
Nýr launa-
greiðandi
„Vib bíbum með öndina í
hálsinum. Ég geri fastlega ráb
fyrir því ab stærri sveitarfélög-
in, eins og Reykjavík, Akur-
eyri og Hafnarfjöröur, séu al-
veg í stakk búin og tilbúin ab
taka við okkur en mabur ótt-
ast vissulega að smærri sveit-
arfélög séu ekki eins vel und-
irbúin," segir Finnbogi Sig-
urösson, formabur Kennarafé-
lags Reykjavíkur.
Flutningur grunnskólanna frá
ríki til sveitarfélaga mun eiga sér
stað á fimmtudaginn kemur,
þann 1. ágúst. Eitt fyrsta verk
sveitarfélaganna í þessum nýja
málaflokki verður aö greiða
kennurunum laun fyrir ágúst-
mánuð en þeir em á fyrirfram-
greiðslum eins og flestir opin-
berir starfsmenn. „Ég geri fast-
lega ráð fyrir því að 85-90%
launagreiðslnanna skili sér rétt-
um, en að það þurfi að skoða
einhver 10-15% prósent."
Kjarasamningur kennarar við
ríkið flyst óbreyttur til sveitarfé-
laga en samningar verða lausir
um áramót. Sveitarfélögin
munu líklega sameinast í samn-
ingaviðuræðum við kennara,
flest hafa þau skilað samning-
sumboði til launanefndar sveit-
arfélaga. Að sögn Finnboga eru
skiptar skoðanir um það hvort
að kennurum muni reynst auð-
veldara að semja við sveitarfé-
lögin en ríkið. Hann telur aö
það verði ósköp svipað en gmn-
ar þó að í litlum sveitarfélögum
þar sem nálægðin er meiri, verði
kennurum falin fleiri störf.
Sigrún Magnúsdóttir, formaö-
ur skólamálaráðs í Reykjavík, er
hvergi banginn við flutninginn,
hún segir Reykjavíkurborg hafa
undirbúið sig vel fyrir flutning-
inn. Sérstök nefnd, svokölluð
yfirfærslunefnd, hefur fundað
vikulega í eitt ár og margar und-
irnefndir hafa fjallab um af-
markaða málaflokka. Þessum
nefndarstörfum er nú lokið og
við tekur Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur sem mun stýra öllu
skólastarfi í borginni.
-gos
standa í sameiningarmálum
þegar mórallinn er orðinn
svona," en eins og kunnugt er
þá vændi oddviti Fljótsdals-
hrepps kjörstjórn um að hafa
falsað kjörgögn og menn úr ,
kjörstjórn höfðu orð á því að
fara í meiðyrðamál.
Sameiningin var samþykkt í
Vallarhreppi og Skriðdals-
hreppi en sameingarkosning-
arnar í Fljótsdalshreppi voru
úrskurðar ógildar. Hvaða áhrif
það hefur á gildi sameiningar-
kosninganna í hinum tveim
hreppunum er ekki ljóst.
Með hliðsjón af niðurstöðu
kosninganna í Fljótsdals-
hreppi, atkvæði voru jöfn við
fyrstu talningu en samþykkir
voru einum fleiri þegar taln-
ing var endurtekin, var ógild-
ingarúrskurðurinn einkum
byggður á því að utankjör-
fundaratkvæði kjósanda sem
ekki var á kjörskrá var tekið til
greina. Þess vegna hafa sveit-
arstjórnarmenn í Fljótsdal-
hreppi ennfremur lagt þá
spurningu fyrir ráðuneytið
hvort leggja ætti sömu kjör-
skrá til grundvallar ef gengiö
yrði aftur til sameiningarkosn-
inga í Fljótsdalshreppi.
-gos
Páll Pétursson, félagsmálaráöherra, og eiginkona hans Sigrún Magnúsdóttir tóku á móti flóttafólkinu þegar þoð
kom til landsins.
Flóttamennirnir komnir
„Þau eru mjög ánægb meb allt
saman og vilja helst byrja ab
vinna sem fyrst," segir jón Ty-
nes, félagsmálastjóri á ísafirði
um viðbrögð flóttafólksins
vib móttökum ísfiröinga.
Fjölskyldunum sex, 29
manns, voru úthlutaöar íbúð-
ir í nýju fjölbýlishúsi á ísa-
firbi, sem voru upphaflegar
byggðar í félagslega kerfinu.
Búið var að fullbúa íbúðirnar
húsgögnum og heimilistækj-
um „allt frá saumnál til sauma-
véla" sem Rauði Kross íslands
sá um að safna.
Þá flokkaði Rauði Krossinn
þann fatnað, bæði notaðann
og nýjan, sem safnast hafði og
leyfði fólkinu að velja úr. Að-
spurður sagði Jón ísfirðinga
vera mjög jákvæba, það sæist
t.d. á öllum þeim atvinnutil-
boðum sem þegar hefðu borist.
„Góð stemmning er í bænum,
það vilja allir fylgjast með, við
höfum líka verið dugleg við að
upplýsa bæjarbúa um gang
mála, t.d. birtust myndir og
viðtöl við allar fjölskyldurnar í
bæjarblaðinu."
-gos
Stjórnsýsluákœra á bœjarstjórn Hornafjarbar vegna afgreiöslu skólastefnu. Hallur Magnús-
son félagsmálastjóri:
Vib erum ab gera skynsamlegar
breytingar á skólamálum hér
Lögb hefur verið fram stjórn-
sýsluákæra á hendur bæjar-
stjóm Hornafjaðrar vegna af-
greiðslu á skólastefnu bæjar-
stjórnar. Kæran byggir á
meintu vanhæfi þriggja bæj-
arfulltrúa.
„Það em þrír skólamenn sem
um ræðir, tveir skólastjórar og
einn kennari sem reyndar var
hættur. En að þeir hafi átt að
víkja við afgreiðslu málsins. Það
skiptir ekki máli, þetta fór níu-
núll," segir Hallur Magnússon
félagsmálastjóri Hornafjarðar.
Hallur segir næstu skref í stöð-
unni að afgreiða máliö með því
ab kalla inn varamenn fyrir
þessa þrjá bæjarfulltrúa og sé
reiknað með því ab skólastefn-
an verði staðfest. En á hverju
byggir þessi skólastefna?
„Við emm aö gera skynsam-
legar breytingar á skólamálum
hér sem spara mikla fjármuni,
samhliða því að einsetja skól-
ann strax og veita miklu, miklu
betri þjónustu," fullyröir Hallur.
Hann segir Hornfirðinga ætla
að gera abra hluti en geröir séu á
flestum öðmm stöðum á land-
inu.
„Við tökum þrjá skóla og sam-
einum þá og fáum með því tvo
bekki í hverjum árgangi, skipt-
um þeim í þrjú stig: Fyrsta til
þriðja bekk í einum skóla, fjórða
til sjöunda í öðrum skóla og átt-
unda til tíunda þeim þriðja.
Þannig að það eru þrír til fjórir
árgangar í hverjum skóla. Með
þessu náum viö tveimur bekkj-
um í hverjum árgangi af hæfi-
legri stærð. Við þurfum ekki ab
vera með samkennslu sem þýðir
betri þjónustu fyrir nemend-
urna í stað þess að vera með of
stóra bekki. Við náum hag-
kvæmari rekstri á skólunum
vegna þessa. Og við lögum
hvern skóla að hverjum aldurs-
hóp fyrir sig.
Með þessu þurfum við ekki ab
byggja fyrir nema um 140 millj-
ónir, en hefðum þurft að byggja
fyrir 270 milljónir annars. Við
erum að spara þarna líklega um
100 milljónir og vib ætlum að
nota þá peninga til að bæta ab-
búnað. Það er hægt að gera mik-
ib fyrir 100 milljónir eins og
gefur að skilja. í því felst hag-
ræðingin." -ohr
Ný kirkja í Reykholti jafnframt tónlistarhús. Séra Ceir Waage sóknarprestur:
Kirkjan alla tíð verib
fóstra tónlistarinnar
„Þab er nú líkast til. Kirkjan hefur
alla tíð verið fóstra tónlistarinn-
ar, en það má aldrei koma upp sú
staba að tónlistin í sjálfu sér fari
að ryðja öbrum þáttum til hlið-
ar," svarar séra Geir Waage sókn-
arprestur í Reykholti, aðspuröur
hvort tónlist verbi ekki áfram
þáttur í helgihaldi í Reykholti.
Ný og glæsileg kirkja var vígb í
Reykholti á sunnudag.
Geir hefur stundum veriö talinn
til þeirra sem vilja leggja aukna
áherslu á hið helga orð í kirkjum
landsins, en minni á tónlistarflutn-
ing.
„í kirkjunni er það orðiö, helgi-
haldið, sem hefur allan forgang og
tónlistarflutningurinn styður það
en vitaskuld gengur hann aldrei yf-
ir það, þá er eitthvað orðið verulega
mikið að ef svoleiðis staða kemur
upp. Ég hef enga ástæðu til að ótt-
ast að þaö verði nokkurn tíma hér,"
segir Geir.
Nýja kirkjan í Reykholti sem vígð
var á sunnudaginn er öðrum þræði
tónlistarhús, þar sem kirkjubygg-
ingin er sérstaklega hönnuð með
það fyrir augum að hljómburður sé
þar eins og best verður á kosið.
Að minnsta kosti 600 manns
voru viðstaddir vígsluna, en það
var Sigurður Sigurðarson vígslu-
biskup í Skálholti sem vígði kirkj-
una. Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, var í Flatey að endurvígja
kirkjuna þar.
Sjá nánar ítarlega umfjöllun um
nýja Reykholtskirkju á síbu 8 í Tím-
anum í dag.
-ohr