Tíminn - 15.08.1996, Page 9
Fimmtudagur 15. ágúst 1996
9
evrópska skrúðgarða að fyrir-
mynd. Ýmislegt bendir til þess að
garðar frá barrokk- og endur-
reisnartíma Evrópu hafi með ein-
hverjum hætti hafi haft áhrif á
útlit Skrúðs þrátt fyrir að Sig-
tryggur minnist ekki á slík tengsl
í dagbók sinni um Skrúð.
En íslensk náttúra og sérstakar
aðstæður gætu allt eins hafa
skapað þennan sterka svip garðs-
ins. í urðina og næsta nágrenni
voru sóttir steinar í hleðslu sem
myndar ramma garðsins. Stein-
hleðslan veitir skjól og hlífir fyrir
ágangi búfjár. Reyniviöartré, er
nemendur gróðursettu innan við
hleðsluna, uxu upp í skjólinu og
undirstrika umgjörð garðsins.
Lækur, sem á upptök í fjallsrót-
um, hríslast um garðinn í ýms-
um tilbrigðum. Rennur fyrst í
stokk ofan í hlaðinn brunn þar
sem gott hefur verið að skola af
sér svita og ryk eftir erfiði dags-
ins. Rétt hjá er fallegur gos-
bmnnur, hvar haldnar vom sýn-
ingar við tækifæri, þar sem ótal
sérsmíðaðir stútar mynduðu
skrautleg tilbrigði vatnsins. Ef til
vill er þetta fyrsti gosbrunnur á
íslandi. Neðar í garðinum hjalar
þessi sami lækur undurblítt við
hliðina á fyrsta skipulagða tjald-
stæði á íslandi og hverfur svo
leiðar sinnar.
Ljóst er þrátt fyrir nytsemis-
sjónarmið garðsins og yfirlýstan
tilgang hans hefur Sigtryggur
verið næmur á hið fíngerða.
Meistaraverkið Skrúður er ekki
hvað síst borið uppi af sammna
fjölda ólíkra þátta. Þarna tengjast
í samhljómi lærdómurinn, nyt-
semin og fegurðin í öllum sínum
myndum. Jafnvel það óvænta
stingur upp kollinum.
Því miður fór svo er fram liðu
stundir að viðhald garbsins,
gróbur og tré voru komin í mikla
vanhirbu. Ekki mátti dragast öllu
lengur ab hefjast handa við end-
urreisn hans. Árið 1992 tóku
nokkrir áhugamenn sig til og
boðuðu til fundar að Núpi.
Ákveðið var að hefjast handa og
þá um haustið komu nemendur
og kennarar Garðyrkjuskóla ríkis-
ins vestur og hófú verkib í sam-
vinnu við heimamenn og aðra
velunnara garðsins.
Unnið hefur verið sleitulaust
síðan að endurgerð garðsins og er
þeirri vinnu nú lokib. Hinir fjöl-
mörgu velgjörbarmenn verða
ekki tíundaðir að þessu sinni, en
þess skal getið að listi yfir þá
mun liggja frammi í garðhúsi
Skrúðs á vígsludegi.
Sérstök nefnd hefur starfab á
uppbyggingartímanum, og mun
hún væntanlega vinna áfram, en
eitt meginverkefni hennar verbur
að tryggja rekstur garðsins um
ókomin ár. Til þess að tryggja
viðunandi viðhald og uppbygg-
ingu Skrúðs á hverjum tíma er
fyrirhugað ab stofna opinberan
sjóð, sem vonandi verður það
öflugur innan tíðar að hægt verði
að starfrækja garðinn fyrir vexti
af höfuðstóli.
Þrátt fyrir þessi tímamót er
framtíö Skrúðs ekki borgið. Nú
mun reyna á vilja og þann stubn-
ing sem við vonum ab víða sé ab
finna. Almenningur jafnt sem
fyrirtæki og stofnanir geta stutt
við sjóbinn með framlögum og
lagt með því móti sitt af mörkum
til varðveislu og viðhalds helstu
gersemar garbyrkju á íslandi. Vib
vitum ab fjölmargir hafa taugar
til garðsins, ekki hvað síst fyrr-
verandi nemendur Núpsskóla
sem skipta þúsundum, svo og
þeir sem unna fegurð garða og
gróðurs og er annt um sögu og
framtíö mikilvægrar menningar-
arfleifðar.
Þeir sem vilja leggja fé í stofn-
sjóbinn eða koma á framfæri
áheitum geta haft samband vib
undirritaða í Framkvæmdanefnd
Skrúðs.
Þá er einnig hægt að leggja inn
framlag á bankareikning sjóðs-
ins:
Framkvæmdasjóöur Skrúbs. kt.
420771- 0109. Bankanr. 0556-14-
301909
F.h. Framkvœmdanefndar Skrúðs:
Grétar J. Unnsteinsson, formaður.
Skólastjóri Garðyrkjuskóla ríkisins
Sigurður Helgason, deildarstjóri í
Menntamálaráðuneytinu
Brynjólfur Jónsson, framkvaemda-
stjóri Skógrœktarfélags íslands
Samsýning íslenskra og japanskra listamanna:
Austan vindar og norban
Á laugardaginn kemur verbur
opnub samsýning íslenskra og
japanskra listarmanna í Norræna
húsinu. Sýningin er ekki „hönn-
ub" af listfræbingum eba öbrum
heldur byggist val sýnenda mest
á vináttu og mannlegum sam-
skiptum listamannanna á milli.
íslensku listamennirnar heyra
til Kom-hópsins sem hélt samsýn-
ingu í Japan fyrir ári síban. Með
sýningunni vilja þeir „miðla upp-
lifun Kom-hópsins af Japan til Is-
lands — einskonar þakklætisvottur
— og um leið framlag til að styrkja
menningartengsl þjóbanna — þótt
í litlum mæli sé". Verkin á sýning-
unni spanna mikla vídd allt frá
handmáluðu postulíni yfir í stærri
þrívíddarverk (skúlptúra) og eru
unnin úr ýmsum efnum, s.s. leir,
steini, gleri, bronsi o.fl.
í Kom-sýningarhópnum eru:
Magnús Tómasson, Krístín ísleifs-
dóttir, Sören S. Larsen, Sigrún Ó.
Einarsdóttir og Örn Þorsteinsson.
Japönsku listamennirnar eru: Ma-
koto Ito, Atsuo Ishii, Kazumi Ikem-
oto og Hiromi Assoka. Sýningin
verður opin daglega frá tvö til sjö
og stendur til 8. september.
i i
j T
jiiii
■ésam
-
■ ■
Bensínfóturinn
full þungur
Laganna verðir hafa verið iðnir
við radarmælingar að undan-
förnu. Betra er að hafa augun á
nálinni og flýta sér ekki um of,
enda getur hraðakstur verið
dýrt spaug og afleiðingarnar al-
varlegri en sektarmiði. Myndin
var tekin í austurbæ borgarinn-
ar eftir að ökumaður fólksbif-
reiðar hafði verið full þungstíg-
ur á inngjöfinni. Á minni
myndinni má sjá hvar lögregl-
an var að mæla.
Tímamynd: C S
B or g arafundir
Borgarnes - Akranes
Borgnesingar, Akumesingar
og aðrir nærsveitarmenn!
Rabbfundur um nýja morgunblaÖið
Dag- Tímann verbur í kvöld kl. 18.00
á Hótel Borgamesi og kl. 21.00 d Hótel
Barbró Akranesi.
Stefdn Jón Hafstein, ritstjóri blaðs-
ins, mun kynna helstu dherslur blaðs-
ins og svara fyrirspurnum.
Komib og ldtið í ljós dbendingar
ykkar og skoðanir dsamt því að heyra
hverjar dherslur verða í hinu nýja
blabi.
Kaffi og kökur.
Sjdumst hress!
-besti tími dagsins!