Tíminn - 30.03.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 30. mars 1989
11 ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll llllllllllllllllllllllll 111 lllllllllllllllll llijlllllillll 111111 lllllllllllllllllHIIIIII lllllllllllllllllll!llllllllJI!llllllll[|||l!llllillllll!!llllllll!llljlillllll!lllllll]||li!illílí!llllil]|j|||||l!llllllllilj|l!l[||||||liyiilllEIIEIIIIIill!llllltl
Þeir Teitur Örlygsson, t.v., og Jón Örn Guðmundsson takast á í kvöld og á
svip þeirra má sjá að báðir ætla að selja sig dýrt. Tímamynd Pjetur
Fyrirliöar [Rog UMFN sigurvissir fyrir
úrslitaleikinn í bikarnum í körfu:
Báðir ætla
sér sigur!
„Við komum brjálaðir í þennan
leik og það getur allt gerst. Ég held
LESTUNARAfETLUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla föstudaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell....
17/4
Gioucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
n*'
við vinnum ÍR-inga auðveldlega í
þessum leik,“ sagði Teitur Örlygsson
Njarðvíkingur um úrslitaleikinn í
körfuknattleik, en hann fer fram í
kvöld. En Sturla Örlygsson, bróðir
Teits, þjálfari ÍR-inga var ekki á
sama máli. „Við crum bjartsýnir á
að standa okkur vel og þetta verður
baráttuleikur. Pressan er alfarið á
Njarðvíkingum, þar sem flestir telja
að þeir eigi sigurinn vísan og ég held
að það hjálpi okkur að sigra í
þessurn leik."
Leið liðanna í úrslitaleikinn hefur
verið ólík. ÍR-ingar hafa verið
heppnir og hafa þeir lagt lið Molduxa
frá Sauðárkróki, UBK og Njarðvík-
b, en hins vegar hafa Njarðvíkingar
mætt nýbökuðum íslandsmeisturum
Keflavíkur, fyrrum íslandsmeistur-
um Hauka og hinu sterka liði KR.
Njarðvíkingar eru núverandi
bikarmeistarar og unnu einnig bikar-
keppnina árið 1987 og var það fyrsti
bikarmeistaratitill þeirra og ef sigur
vinnst í dag verður það þriðji bikar-
meistaratitillinn í röð. ÍR-ingar hafa
aftur á móti aldrei orðið bikarmeist-
arar, en síðast komust þeir í úrslit
1984 eða árið sem Pétur Guðmunds-
son spilaði með þeim. Þá eru ein tólf
ár síðan þeir unnu deildina. Leikur-
inn hefst klukkan 21.00 og verður í
Laugardalshöll. Kl. 19.00 hefst úr-
slitaleikur í bikarkeppni kvenna og
eigast þar við lið ÍR og ÍBK sem nú
eiga möguleika á bikarnum annað
árið í röð.
Kvennaleikinn dæma þeir Krist-
ján Möller og Jón Otti Ólafsson og
karlaleikinn þeir Bergur Steingríms-
son, sem nú dæmir sinn fyrsta bikar-
úrslitaleik, og Gunnar Valgeirsson.
-PS
SKifíWE/W
SAMBANDS/NS
UNDARGÖTU 9A -101 REYKJAVlK
SlMI 698100
Á 1 A A Á A A A.
!AKI\I IRAIJSÍPA Hl JININTjA
KR VANN
KR bar sigurorð af UBK í í
fyrstu deild karla í handknattleik
í fyrrakvöld, með 28 mörkum
gegn 25 í Laugardalshöll. Petta
tap Blikanna gerir það að verkum
að fátt blasir annað við liðinu en
fall í aðra deild. Hinsvegar bendir
nú flest til þess að KR-ingum
takist að tryggja sér rétt til að
leika í Evrópukeppni félagsliða
að ári.
Atkvæðamestir í leiknum voru
þeir Guðmundur Pálmason er
skoraði 8 mörk fyrir KR og Hans
Guðmundsson með 9 mörk fyrir
UBK.
Úrslit á skíðalandsmótinu sem fram fór í Siglufirði:
Siglfirðingarnir
hirtu flest gull
Frá Erni I»órarinssyni, frcttaritara Tímans í
Fljótum:
Eins og Tíminn greindi
frá í gær lauk skíöalands-
mótinu í Siglufirði með
verölaunaafhendingu á
sunnudag. I blaðinu í gær
var greint ítarlega frá úrslit- .
um í skíðagöngu, en í dag
verður greint frá öðrum úr-
slitum á þessu móti.
Ásta kom á óvart
í alpagreinum
Keppni í alpagreinum fór fram á
nýju skíðasvæði Siglfirðinga í
Skarðsdal. Úrslitin í þessum grein-
um urðu talsvert önnur en fyrir-
fram hafði verið búist við. í
kvennaflokki hafa t.d. Akureyrar-
stúlkurnar verið mjög sigursælar í
vetur og var fyrirfram reiknað með
að svo yrði áfram. Pá má geta þess
að einn besti svigmaður landsins
undanfarin ár, Daníel Hilmarsson,
Dalvík komst ekki á mótið fyrr en
síðdegis á laugardag, þegar aðeins
var cftir að kcppa í stórsvigi. En
Ásta Halldórsdóttir, ísafirði og
Örnólfur Valdimarsson, Reykja-
vík, komu, sáu og sigruðu.
Ásta sigraði í svigi á laugardag á
tímanum 1.45,64. Það var einkum
mjög vel útfærð fyrri ferð í sviginu,
sem færði henni þennan sigur.
Guðrún H. Kristjánsdóttir, Akur-
eyri varð önnur, með tímann
1.46,82 og Margrét Rúnarsdóttir,
ísafirði þriðja, á 1.47,79.
Ásta gerði sér einnig lítið fyrir
og sigraði í samhliða svigi sem
frarn fór á laugardaginn. Anna
María Malmquist, Akureyri varð
önnurogGuðrún H. Kristjánsdótt-
ir þriðja.
í stórsviginu tókst hins vegar
Önnu Maríu að sigra Ástu. Annað
sætið dugði Ástu hins vegar til þess
að sigra í alpatvíkeppni, (þ.e. svig
og stórsvig) og þrenn gullverðlaun
og eitt silfur hlýtur að vera meiri
uppskera en hún bjóst við fyrir-
fram. Þriðja í stórsviginu varð
Guðrún H. Kristjánsdóttir. Ekki
er ólíklegt að árangurinn á þessu
móti hafi valdið Guðrúnu von-
brigðum, því hún hefur náð ágæt-
um árangri bæði innanlands og
utan í vetur. En íþróttirnar eru nú
einu sinni þannig, að aðeins einn
getur sigrað og vísast hefur Guðrún
ekki sagt sitt síðasta orð í vetur.
Örnólfur sigraði
með yfirburðum
Örnólfur Valdimarsson vann
svigið með yfirburðum, liann fékk
tímann 1.43.98. Arnór Gunnars-
son, ísafirði varð annar á 1.46,56
og Kristinn Svanbergsson, Akur-
eyri þriðji með tímann 1.46,62.
Örnólfur sigraði einnig í samhliða
svigi, en félagi hans úr Reykjavík.
Haukur Arnórsson varð annar.
Þriðji varð Helgi Geirharðsson,
Reykjavík og fjórði Vilhelm Þor-
steinsson, Akureyri.
í stórsviginu tókst Guðmundi
Sigurjónssyni, Akureyri að stöðva
sigurgöngu Örnólfs, sem varð að
láta sér lynda annað sætið. Það
dugði honum þó til sigurs í alpa-
tvíkeppninni og hlaut því Örnólfur
eins og Ásta þrenn gullverðlaun og
ein silfurverðlaun á mótinu. Þriðji
í stórsviginu varð Vilhelm Þor-
steinsson, Akureyri.
Ólafsfirðingar
bestir í stökki
Keppnin í stökki fór fram á
páskadag. Þessi grein hefur löng-
um verið sérgrein Siglfirðinga og
Ólafsfirðinga og varð engin brcyt-
ing þar á að þessu sinni. Ólafur
Björnsson. Ólafsfirði sigraði í
stökkinu með 241,9 stig, Guð-
mundur Konráðsson, Ólafsfirði
varð annar, hann hlaut 216,8 stig
og Helgi Hannesson, Siglufirði
þriðji með 215,4 stig. Ólafur
Björnsson sigraði einnig í norrænni
tvíkeppni, (þ.e. ganga, stökk) með
miklum yfirburðum. Hann hlaut
491,6 stig, faðir hans Björn Þór
Ólafsson varð annar með 371,5 stig
og Guðmundur Konráðsson,
Ólafsfirði þriðji, með 362,7 stig.
Björn Þór var að keppa þarna á
sínu 29. skíðalandsmóti. Mjög fá-
títt er að skíðamenn eigi jafn
langan keppnisferil að baki og
Björn á, og ekki er að efa að
verðlaunasafnið er orðið mikið að
vöxtum.
Þess má svo að lokum geta að
Siglfirðingar hlutu flest gullverð-
laun á mótinu eða sex, ísfirðingar
og Akureyringar hlutu fimm
hvorir, Reykvíkingar þrenn og Ól-
afsfirðingar tvenn gullverðlaun.
Nýjung hjá íslenskum getraunum:
Dregið í fyrir-
tækjaleiknum
Nú á laugardag hefst nýr leikur
hjá íslenskum getraunum. Er óhætt
að segja að nokkurskonar bikar-
keppni sé á ferðinni. Fyrirtækjum og
hópum einstaklinga var gefinn kost-
ur á að skrá sig til leiks undir
hópnúmeri. 130 lið hafa tilkynnt
þátttöku og hafa liðin nú verið
dregin saman. Tvö lið sitja yfir í
fyrstu uniferð, þar sem 128 lið er
æskilega talan. Hinsvegar skili lið
ekki inn seðlum, fellur það út og
annað tveggja liða er sitja yfir kemur
í staðinn.
Skilyröi til þátttöku er að skila inn
144 rööum sem kosta samtals 1440
krónur. Á opnum seðli er um að
ræða tvær þrítryggingar og fjórar
tvítryggingar. Koma þarf afriti af
útskrift seðilsins til höfuðstöðva ís-
lenskra getrauna í Reykjavík og má
benda á þann möguleika að senda
seöilinn t.d. á telefaxi, búi menn úti
á landi. Telefaxnúmer íslenskra
getrauna er 91-688395.
Tíminn birtir í dag lista yfir liðin
sem drógust saman, en leikurinn er
fólginn í því að það lið sem fleiri
rétta hlýtur sigrar og heldur áfram
næstu viku. Þannig verða 64 lið sem
falla út um helgina en hin liðin
dragast gegn nýjum mótherja í 14.
leikviku. Það lið sem stendur uppi
sem sigurvegari fær í verðlaun mat
fyrir tíu á veitingastaðnum Arnar-
hóli. Þá verða þau átta lið sem
komast í áttaliða úrslit heiðruð mcð
sérstöku viðurkenningarskjali frá ís-
lenskum getraunum. En hér á eftir
birtist listinn yfir þau lið er etja
kappi saman á laugardag.
127 Hafnarst.92 AK
3 Inghóll
169 SamherjiAK
987 Þ.ogE.
299 Vcitingah.
858 AogÞsf
908 Mcba
11 Kjörís
172 Álfasteinn hf
233 Pubilc Works
870 Vitinn ísaf.
81 Strcngir
l(K) ÍSALTölvud.
901 Sportb.Akur.
57 Fittingsbúðin
171 Raftækjastöðin
109 Bætirhf
141 Scndibílast.hf
333 Sölusk.Hvammst
29 Fylkisheimilið
10 Ballskák
303 Scðlabankinn
868 Vinnufatabúðin
230 Brunabót Kcfl.
853 Lyfsal.Hvammst.
132 Rafmagnsv. Rvk.
112 Lyfhf "
653 Ljósiðsf
Hópnúmcr Liö Hópnúmcr Lid 777 Bílaogbónþ. 421 Tölvuland
204 Zinkstöðin 147 Hácyri 180 Oddi 165 Tannlækn.Eiðis
179 Rakarast. BG 177 BjarniSF 21 ísl.gæðsfisk. 902 Ljósavíkhf
184 Stálsmiðjan 182 Hcildvcrsl.KB 234 Prcntsm. ÓK 345 Prcntsm.Suðurl
49 SVR 678 Vcrkfr.d.Rvk. 142 Brautarskóli 575 Hreyflll
97 Ásgarður 531 Kaupf. V.Hún. 131 Hífir 163 MBF
584 Hrcingcrning. 696 Dagur 74 Sparisj.Kcfl. 989 Bylgjan
176 Sýslusk.Hvol. 175 Pvramid 32 Endursk.ÞJ 173 Vélsm.Akur.
181 Sundh.Selfo. *871 RLR 135 Mjöllhf 227 Tannlækn.Miðst
77 Vídeómark. 178 SÍS-matvara 16 Endursk.BEA-A 174 Prcntsm.GBcn
8 Heimilistæki 797 Tciknist.Rvk. 578 Myndberg 65 Tóróhf
640 Þórshamarhf 650 ísl.gets.tölv. 850 HagkaupKópa. 888 Fiskhöllin
140 GaukuráSt. 143 Strandasíld 161 Bakkafiskur 621 Seifurhf
128 Hlaðbær 38 Safalinn 314 Bautinn 872 Rafverktak
167 Akraborgin 591 Arinbjörn RE 109 Hönnun 818 Gullaugaðísaf
116 ÓskKE5 412 BÁS-Vclaleiga 500 SSNiðursuða 41 Málningarlag.
890 Grcttir 119 Fiskiðj. Dalur 444 Hárprýði 666 Rammamiðstöðin
200 Skinneyhf 800 DV 72 Eimskip-forg. 1 Prismahf
325 Scancx 7 Auglýsst. M.ó. 567 KSÍ 64 Terasa ÍR-B
737 Rafmv.R.loft. 108 Faxafrost 160 Plastpr.-pokar 155 Örn Vilmundars
20 Vídeóleigan 897 Offsetprent 153 Hafnarmálast. 12 SKÝRR
111 V.í.tölvud. 86 Fiskiðjanhf 55 Endusk. Sog H 911 RARIKStykkish
593 Fiskb.Húsav. 400 Scndibílarhf 863 Stálsmiðjan 688 GBB
118 Bbank. Mclar 313 Nýjarlínur 216 Endursk.BEA-B 878 Hafnarskr. AK
107 EimskipMötun. 604 Trésmiðjanösp 907 Tíminn 148 Pcnsillsf
183 Tankhrcinsun 220 Gutenbcrg