Tíminn - 06.10.1994, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.10.1994, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 6. október 1994 fr ■*■■*■** ■*ritirfrin» 3 Háskólarektor óttast aö Háskóli íslands dragist langt aftur úr evrópskum skólum Hefur þegar þurft aö spara of mikið Stjórnendur Háskóla Islands fara fram á ab fjárveiting til skólans verbi aukin um 75 milljónir króna til ab mæta fjölgun nemenda. Sveinbjöm Björnsson rektor segir ab Há- skólanum hafi þegar verib gert ab ganga of langt í sparnabi og óttast ab kennslunni muni hraka verulega verbi haldib áfram á sömu braut. Áætlab er ab skrábir nemendur vib Háskólann verbi 5390 í upp- hafi næsta árs sem er um 5,5% fjölgun frá fyrra ári og um fjórb- ungs fjölgun undanfarin sjö ár. Á sama tíma hafa fjárveitingar til Háskólans rýrnab ab raungildi um 1,5%. Sveinbjörn Björnsson háskóla- rektor segir ab Háskólanum hafi þegar verib gert ab ganga of langt í sparnabi og hann hafi einkum komib nibur á fjölmennustu greinunum. Hann bendir á sam- anburb sem Háskólinn hefur gert á kennsluaðferðum og kennslu- kostnaði sínum miðað við há- skóla í Evrópu. Samanburðurinn sýnir að í fjölmennustu náms- greinunum em kennarar of fáir miðaö við nemendafjölda. „Þeg- ar nemendum fjölgar stöðugt í einstökum greinum höfum við það eina ráð að útvega stærri kennslustofur. Nemendur hafa ekki fengið nægilega kennslu í smærri hópum þar sem þeir geta tekið þátt í umræðum með kenn- ara og leyst verkefni með aðstoð hans," segir Sveinbjörn. Til að uppfylla evrópska staðla þyrfti Háskólinn að fá sem nem- ur 20% aukningu í fjárveitingu eða um 300 milljónir króna, þeg- ar miðað er við nemendafjöld- ann á árinu 1994. Beiðni Háskól- ans var að fá um þriðjung þessar- ar aukningar á næsta ári. „Þab er því miður ekki ab sjá neinar undirtektir vib það. Það sem okkur þykir þó enn verra er að það er heldur ekki reynt að halda í horfinu. Nemendum mun fjölga um 5,5% á næsta ári. Til að mæta því þyrfti fjárveiting- in að aukast um 75 milljónir. Gerist þaö ekki verður að smyrja þynnra á alla sem nemur fjölgun nemenda. Það er þessi sífellda út- þynning sem við óttumst að muni færa okkur undir markið þannig að á endanum getum við ekki boðið frambærilega kennslu. Meb samanburbinum við evrópska háskóla teljum við okkur sjá ýmsar vísbendingar um að við séum þegar komin ískyggi- lega langt niður." Sveinbjörn segir að deildir skól- ans séu núna reknar með halla og muni fara fram úr fjárlögum þessa árs. Verði fjárveitingin til Háskólans óbreytt á næsta ári verði því nauösynlegt að grípa tii frekari ráðstafana. „Þaö verður aö fækka valgreinum meira, stækka kennsluhópa og minnka æfinga- kennslu. Állt þetta þýðir verri þjónustu við nemendur." ■ Kennarar telja aö ekki sé gert ráö fvrir flutningi grunnskólans í fjárlagafrumvarpinu. Kennarasambandiö: Stefnubreytingu Ólafs G. fagnað ''..v 171*1 Ái„£. J j: „• „1.1 • i i : : i .1 i ... Gubrún Ebba Ólafsdóttir, vara- formabur Kennarasambands ís- lands, segist fagna þeirri ákvörb- un Ólafs G. Einarssonar mennta- málarábherra ab hætta vib ab lengja skólaárib úr níu mánubum í tíu í grunn- og framhaldsskólum landsins. Hún segir ab samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sé ekki gert ráb fyrir flutningi grunnskólans til sveitarfélaganna á næsta ári. í framhaldi af þessari ákvörðun rábherrans, sem hann kynnti í um- ræbum um stefnuræðu forsætisráð- herra á Alþingi í fyrradag, munu kennarar væntanlega taka upp þrábinn frá síbustu kjaravibræbum vib ríkib um fjöjgun virkra kennslu- daga á níu mánaða kennslutímabil- inu. En á sínum tíma treysti samn- inganefnd ríksins sér ekki til að ganga til samninga við kennara um þab atribi vegna þess ab samninga- nefndin taldi sig ekki hafa heimild til þess frá rábherra. Þá telja kennarar ab ekki sé gert ráð fyrir flutningi grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga í nýútkomnu fjár- lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt því virbast stjórnvöld hafa hlustað á varnaðarorð þeirra skólamanna og forystumanna ein- stakra sveitarfélaga sem hafa varab við því að yfirfærsla grunnskólans verbi framkvæmd í einhverju fljót- ræði. En samkvæmt yfirlýstri stefnu stjórnvalda hefur verib stefnt ab því ab sveitarfélögin taki að fullu vib grunnskólanum 1. ágúst 1995. Vinna við mótun kröfugerðar kennara vegna kjarasamninga er þegar hafin, en þar sem þeir hafa ekki fengib vibræbur um nýjan kjarasamning er mörgu enn ólokið í þeim efnum. í því sambandi má nefna breytingar á vinnutíma kennara vegna einsetningarinnar. Gubrún Ebba segir að þab sé orbib löngu tímabært að það verði fram- kvæmt, sem fram kemur í skýrslu rábherranefndar, ab kennsla sé ab- alstarf og kennurum verði gert kleift ab lifa af því starfi. ■ Ólafur G. Einarsson. Félagsmálarábherra skipar vinnuhóp til ab fjalla um vinnulöggjöf- ina: Ráöherra hnaut um jafnaðar- regluna Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra hefur skipað í vinnuhóp til að fjalla um samskiptareglur á vinnu- markaði, vinnulöggjöfina. Upphaflega var gengið svo frá skipan í þennan vinnuhóp að atvinnurekendur áttu að hafa þar þrjá fulltrúa á móti tveim- ur fulltrúum frá samtökum launafólks. En því þurfti ráð- herra að breyta eftir mótmæli frá samtökum launafólks og hafa bábir aðilar jafn marga fulltrúa í hópnum, eöa þrjá. Vinnuhópnum er m.a. falið að kynna sér þróun samskipta- reglna samtaka atvinnurekenda og launafólks í nágrannalönd- unum, skila skýrslu um athug- anir sínar og gera tillögur um breytingar á íslenskri löggjöf ef athugunin leiðir nauðsyn þess í Ijós. Formaður vinnuhópsins er Gylfi Kristinsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu. Aörir í vinnuhópnum eru Benedikt Davíðsson forseti ASÍ og Bryn- dís Hlöðversdóttir, Iögfræðing- ur samtakanna, Ögmundur Jón- asson formaður BSRB, Birgir Guðjónsson, skrifstofustjóri starfsmannaskrifstofu fjármála- ráðuneytisins, Árni Benedikts- $on, formaður Vinnumálasam- bands samvinnufélaga, og Þór- arinn V. Þórarinsson fram- kvæmdastjóri VSÍ. ■ Formannafundur ASI um fjárlagafrumvarpib: Trúnaðarbrestur „Menn munu bregbast vib þessu á þann hátt ab vib munum krefjast þess ab ríkisstjórnin breyti þess- um áherslum sem fram koma í fjárlagafrumvarpinu. Ef þetta fer óbreytt fram þá er ekkert vafamál ab þab hefur orbib trúnabarbrest- ur," segir Hervar Gunnarsson, annar varaforseti ASÍ. Formenn landssambanda innan ASÍ fundubu í fyrradag og í gær um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. í ályktun fundarins er hafnab þeirri stefnu sem ríkisstjórnin hefur markab meb frumvarpinu. Fundur- inn telur ab abaleinkenni efnahags- stefnu ríkisstjórnarinnar sé ab vib- halda og auka atvinnuleysi frá því sem nú er, meb því ab skerða fram- lög til framkvæmda um nánast sömu upphæð og nemur auknum fjárfestingum í atvinnulífinu. Þá sé þab lýsandj fyrir stefnu ríkisstjóm- arinnar ab hún telur eblilegt ab nýta hluta af efnhagsbatanum til þess að lækka skatta á hátekjufólki og falla frá loforbum um sérstakan fjármagnstekjuskatt. Þar meb sé augljóst ab ríkisstjórnin hyggst ekki ætla ab nota efnahags- batann til ab koma til móts vib ósk- ir og þarfir þeirra sem hafa lagt grunninn ab þessum bata á undan- förnum árum. Þvert á móti hyggst ríkisstjórnin leggja auknar byrðar á þá sem minnst mega sin meb veru- legum niðurskurði á greibslum til atvinnulausra, elli- og örorkulífeyr- isþega og áframhaldandi niður- skurbi í félags- og velferbarmálum. Engar tillagnanna eru úrbætur gagnvart þeim vaxandi hópi fólks sem lent hefur í greiðsluerfibleikum í húsnæbiskerfinu vegna tekjusam- dráttar. Þess í stað er stefnt að hækkun vaxta í húsbréfakerfinu. ■ Verkefnastyrkur Félaqsstofnunar stúdenta Félagsstofnun stúdenta auglýsir eftir umsóknum um verkefna- styrk til lokaverkefnis við Háskóla íslands. Styrkurinn er að upphæð 100.000 krónur og verður veittur í febrúar 1995. Skilyröi fyrir styrkveitingu er að umsækjandi Ijúki verkefni á haustönn og útskrifist í febrúar 1995. Umsóknir skulu vera nafnlausar og tilgreina deild og/eða skor umsækjanda og inni- halda ítarlega verkefnislýsingu eða efnisyfirlit. Nafn umsækj- anda og námsferilsskýrsla frá Nemendaskrá skal fylgja með umsókn í lokuðu umslagi. Umsóknum skal skilað til framkvæmdastjóra FS eigi síðar en 15. nóvember. Félagsstofnun stúdenta

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.