Tíminn - 06.10.1994, Blaðsíða 6
6
víafö
Fimmtudagur 6. október 1994
Vikurfréttir
KEFLAVIK
Kiwanisklúbburinn Keilir hefur
afhent Rauða kross deildinni á
Suðurnesjum 100 bangsa, sem
komið verður fyrir í sjúkra-
flutningabifreiðum deildarinn-
ar.
Hér er um að ræða svokallaða
Kiwanisbangsa, sem ætlað er að
veita börnum huggun á erfið-
um stundum, því yfirleitt lenda
börn óvænt í sjúkraflutningum
og hafa ekki tíma til að taka
sinn eigin bangsa með.
Það var Björn Herbert Guð-
björnsson, formaður styrktar-
nefndar Keilis, sem afhenti
Gísla Viðari Harðarsyni, for-
manni Rauða kross deildar Suð-
urnesja, bangsana. Þeir eru nú
þegar komnir í alla sjúkrabíl-
ana, tilbúnir að veita börnum
huggun og jafnvel eldra fólki
einnig, ef það finnur huggun í
þessum litlu, Ioðnu vinum.
Sveppaæta á
sjúkrahús
Sautján ára gamall piltur var
fluttur nýlega á Sjúkrahús Suð-
urnesja vegna sveppaáts. Piltur-
inn hafði borðað sveppina í
teiti í heimahúsi og var orðinn
veikur.
Starfsfólk sjúkrahússins gerði
viðeigandi ráðstafanir og náði
pilturinn sér fljótt. Hann mun
örugglega láta sér nægja pizzu
meö sveppum næst, en ekki of-
skynjunarsveppi af umferðar-
eyjum.
UÐURNESJA
F= l=* ÉT-TI R
Islandsbanki:
Þribjungi starfs-
manna sagt upp
Tæplega þriðjungi starfsmanna
Islandsbanka í Keflavík, níu
talsins, hefur verið sagt upp
störfum. Starfsmönnunum var
boðið að vinna ekki uppsagnar-
frestinn, en fá hann greiddan.
Allir starfsmennirnir tóku því
boði, skv. heimildum blaðsins.
Meðal þeirra starfsmanna, sem
sagt var upp, eru menn með
um 20 ára starfsaldur.
íþróttamiöstööin í Garöi:
Skápur meö verb-
launagripum Jó-
hanns afhjúpaöur
Nýlega var afhjúpaður gler-
skápur í íþróttamiðstöðinni í
Garði. Þessi skápur inniheldur
Gísli Vibar Harbarson og Björn Herbert Gubbjörnsson meb einn af hundr-
ab Kiwanisböngsum sem komnir eru í sjúkrabílana.
hluta af verölaunagripum Jó-
hanns Jóhannssonar frjáls-
íþróttamanns, sem lést fyrr á
þessu ári. Það var ekkja Jó-
hanns, Anna Birna Björnsdótt-
ir, sem afhjúpabi skápinn, sem
er staðsettur í anddyri íþrótta-
miðstöðvarinnar. Jóhann hefbi
orðið 76 ára gamall á þessu ári.
Jóhann Jónsson var frækinn
íþróttamaður og margfaldur ís-
lands-, Evrópu- og heimsmeist-
ari í flokki öldunga í frjálsum
íþróttum.
Eystra-
horn
Fljóthuga
sýslumaöur
Sýslumaðurinn okkar var held-
ur fljótur á sér, er hann gaf lög-
reglunni fyrirmæli um að
klippa númerin af mjólkurbíln-
um vegna vangoldins virbis-
aukaskatts. Lögreglan klippti af,
en daginn eftir var samið við
Páll Björnsson sýslumabur skilar
Arnbirni Sigurbergssyni númera-
ptötunum.
mjólkurbúið á Egilsstöðum um
mjólkurflutninga hér næstu
daga. Ekki var langt liðið á
þann dag, þegar Páll sýslumað-
ur afhenti afleysingabílstjóran-
um Arnbirni Sigurbergssyni
plöturnar og bað hann að festa
á bílinn, því hann væri skrúf-
járnslaus. Hafði honum þá yfir-
sést um samning sem afleys-
ingamaður hans hafði gert við
eiganda mjólkurbílsins, Kristj-
önu Jensdóttur, meðan hann
var í fríi.
Eystrahorni er ekki kunnugt
um hver beri kostnað af þess-
um málarekstri.
D) DAGBLAÐ
Sigurbur Ingvarsson, oddviti Gerbahrepps, hélt stutta tölu vib athöfnina.
Vib hlib hans er Áhna Björnsdóttir, ekkja jóhanns jónssonar.
AKUREYRI
Gott atvinnu-
ástand á Siglufirbi
Atvinnuástand er mjög gott á
Siglufirði, en nú eru aðeins níu
manns á atvinnuleysisskrá,
tveir karlar og sjö konur. Þorri
kvennanna er á hlutabótum, en
þær misstu 100% vinnu og
voru endurrábnar í hlutavinnu.
Þetta er betra ástand en verið
hefur sl. fimm ár. Uppihald
hefur verið í lobnuverksmiðj-
unni vegna hráefnisskorts og
þar kunna að koma til fram-
kvæmda einhverjar tíma-
bundnar uppsagnir.
Á öðrum vinnustöðum skortjr
starfsfólk, t.d. hjá frystihúsi
Þormóðs ramma hf., en þar
vantar a.m.k. tug kvenna í
snyrtingu, pökkun o.fl. Fyrir
eru um 50 konur við störf. Það
ástand hefur verib síðan um
miðjan ágústmánuð, er skóla-
fólk fór að hverfa af vinnu-
markabnum, og eru ekki líkur á
að úr þessum skorti rætist á
næstunni.
Sl. þrjú ár hefur ekki fallið úr
dagur í vinnslunni hjá frysti-
húsi Þormóðs ramma hf., en
þessa dagana er verið að vinna
fisk af smábátunum og eins
hefur Stálvík SI verib á ísfisk-
veiðum í Smugunni og lagt
hráefnisöfluninni lið.
Húsavíkurbœr:
50 börn bíöa dag-
vistunar
Málefni leikskóla voru rædd á
fundi bæjarráðs Húsavíkur í
næstsíðustu viku. Ákveðið var
að auglýsa eftir húsi til kaups
eða leigu fyrir nýjan leikskóla.
Á biðlista á Bestabæ fyrir börn
sem eru tveggja ára og eldri eru
50 börn, en að meðtöldum
yngri börnum sem skráð eru á
biðlista eru börnin alls 73. Sam-
kvæmt sundurliðun listans eru
tvö börn fædd '89, 4 börn '90,
7 börn '91, 40 börn '92 og 20
börn '93.
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Sjúkrabílar á Suöurnesjum:
Bangsar meb í
öll útköll
Póstkort sem
bókmenntaform
Samkvæmt upplýsingum út-
gáfufyrirtækisins Bjarts til-
kynnti tímaritið Bjartur og frú
Emilía á laugardaginn var um
úrslit í samkeppni um „póst-
kort sem bókmenntaform".
Rúmlega 400 kort bárust, en
það var samdóma álit að verð-
launa útvarpsmanninn og bók-
menntafræðinginn Jón Karl
hans frá heilsuhælinu á Vífils-
stöðum skara fram úr af þeim
rúmlega 400 sem bárust.
Samkvæmt sömu upplýsing-
um er sýning haldin á 40 bestu
póstkortunum í anddyri leik-
hússins í Héðinshúsinu að
Seljavegi 2. Verðlaunapóstkort-
ið mun vera frá því um 1930 og
skýrir sig sjálft.
Helgason, enda þótti póstkort
rir heimSoknin<\
^a/á%tuc
0^ sUV,(í. ^
urj-,r •
Wrvni
touur i oeof urir rnikinn
Suc(n. < r e.oso^
c;rv<1U tuÁ ttií oiv, iiUnn.
P ^ > fnn EX
c tlw er f*r{ K
HjJ' Oaf Tck'r’
aáw en jeajkoirr.
KifWu, Flrljo
ún
Skipun í embætti
landsbókavarbar
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi yfirlýsing frá Félagi
bókavaröa í rannsóknar-
bókasöfnum:
„í tilefni af skipun í embætti
landsbókavarðar þann 1. októ-
ber til næstu sex ára vill stjórn
Félags bókavarða í rannsóknar-
bókasöfnum óska nýskipuðum
landsbókaverði, sem um árabil
var formaöur félagsins, vel-
farnaðar í starfi sínu.
Stjórnin fagnar því að Ioks
skuli hilla undir opnun stærsta
rannsóknarbókasafns á íslandi,
þ.e. nýtt Landsbókasafn ís-
lands — Háskólabókasafn, sem
tekur formlega til starfa þann
1. desember á þessu ári. Allir
þeir, sem rannsóknir stunda á
Islandi, og einnig þeir, sem
koma til landsins í því skyni að
stunda rannsóknir um Island
og íslensk málefni, hljóta að
vænta mikils af hinu nýja
safni. Megi það verða leiðandi
afl á sviði upplýsingaöflunar
og sú miðstöð rannsókna og
þekkingaröflunar sem slíkt
safn á að vera.
Til þess að safnið geti farið að
gegna sínu víötæka hlutverki
sem fyrst, skiptir miklu aö nú
verði unnið af kappi við að
skilgreina störf og stöður ann-
arra starfsmanna hins nýja
safns. Von stjórnar FBR er sú
aö sameining Landsbókasafns
íslands og Háskólabókasafns í
eina stofnun gangi farsællega
fyrir sig, þannig að allir megi
vel við una." ■
Ekki tekin afstaöa til tilboöa í Hvaifjaröargöng
nœstu tvœr vikurnar:
Unnið að fjármögnun
Gylfi Þórðarson, stjórnarfor-
maður Spalar, á ekki von á
aö afstaða verði tekin til til-
boðanna sem bárust í gerö
Hvalfjarðarganga næstu
tvær vikurnar. Búið er að
kanna tæknilega hlið til-
boðanna, en erlendir ráð-
gjafar vinna enn að fjár-
mögnun verksins.
Tilboðin voru opnuð á Akra-
nesi þann 30. ágúst sl. Þrjú til-
boð bárust í verkið og voru
þau frá Hagvirki-Klefti o.fl.,
ístaki o.fl. og Nortaki. Öll til-
boðin voru innan áætlunar
verktaka, sem var upp á 3,3
milljarða.
Gylfi segir að búið sé að
skoða tilboðin og nú bíði
menn eftir að vinnu ráðgjaf-
anna ljúki. Hann á von á að
það verði eftir um það bil tvær
vikur. Gylfi segist bjartsýnn á
að vinna þeirra skili jákvæðum
árangri og þá verði hægt að til-
kynna hver hljóti verkið og
hefja frámkvæmdir. ■