Tíminn - 06.10.1994, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 6. október 1994
19
Langholtskirkja:
Orgel fyrir jól?
Söfnunarátak vegna orgelkaupa í
Langholtskirkju hefur nú staðið yfir
í tvö ár. Söfnunin hefur gengið
samkvæmt áætlun og er nú veriö að
ganga frá því hvaðan orgelið verður
keypt. Vonast er til að samningar
um smíði hljóðfæris verði í höfn
fyrir jól.
Söfnunarféö kemur fyrst og fremst
inn frá föstum styrktaraöilum, sem
greiða ákveðna upphæð á mánuði,
flestir kr. 500. Auk þess hefur
hljómdiskurinn „Það var lagið",
sem gefinn var út haustið 1992 meö
Kór Langholtskirkju, einsöngvur-
um og Kammersveit Langholts-
kirkju, skilab umtalsverbum hagn-
abi. Mjög margar minningargjafir
hafa borist í sjóðinn, en þab færist
mjög í vöxt aö aðstandendur bendi
á hann, er ástvinir eru bornir til
grafar.
Einu sinni á ári er efnt til glæsi-
legra tónleika fyrir styrktaraðila og
fær hver þeirra tvo miða. Þriðju
styrktartónleikar orgelsjóðsins
verba dagana 6., 7. og 8. október.
Þar munu koma fram Karlakórinn
Fóstbræður, Gunnar Kvaran selló-
leikari og Gísli Magnússon píanó-
leikari, Kór Langholtskirkju ásamt
Guðrúnu Maríu Finnbogadóttur,
sem var sigurvegari í Tónvaka-
keppni ríkisútvarpsins 1994 og
söng lengi með Kór Langholts-
kirkju. „The Boys" Rúnar og Arnar
Halldórssynir, ungu íslensku strák-
arnir sem búa í Noregi og hafa gert
þar garðinn frægan, munu einnig
koma fram. Þeir tengjast Langholts-
kirkju á skemmtilegan hátt, þar sem
afi þeirra, Kristinn Sigurjónsson,
var yfirsmiður kirkjubyggingarinn-
ar og er í sóknarnefnd kirkjunnar.
Erindi þeirra til íslands er reyndar
það að þeir fermast í Langholts-
kirkju sunnudaginn 9. október. Þess
má geta í leiðinni aö um þessar
mundir er að koma út hér á landi
annar hljómdiskur þeirra, en fyrri
diskurinn seldist mjög vel og fengu
þeir afhenta gullplötu fyrir hann.
Það er mikil þörf fyrir orgel í Lang-
holtskirkju, þar sem kirkjan er eitt
besta og eftirsóttasta tónleikahús
landsins. Láta mun nærri að hátt í
tuttugu þúsund manns sæki tón-
leika í Langholtskirkju árlega. Ljóst
er ab vandað orgel mun stórbæta
tónleikaabstöðu hússins. ■
Oddafélagið fundar á Skógum
Oddafélagiö, samtök áhuga-
manna um endurreisn fræba-
seturs ab Odda á Rangárvöll-
um, heldur sína þribju Odda-
stefnu í Skógum undir Eyja-
fjöllum. Ráöstefnan fer fram í
Skógaskóla og Byggbasafninu
í Skógum.
Ráðstefnan hefst kl. 13.00,
laugardaginn 8. október 1994
og henni lýkur eigi síðar en kl.
18. þann dag.
Ráöstefnuna setur Þór Jakobs-
son veðurfræðingur, formaður
Oddafélagsins. Sverrir Magnús-
son skólastjóri og Þór Magnús-
son þjóðminjavörður ræða um
minjavörsluna í landinu. Þórð-
ur Tómasson, safnstjóri í Skóg-
um, heldur erindi um Skóga-
safnið, þróun þess og starfsemi.
Sigríður Sigurðardóttir, safn-
vörður í Glaumbæ, flytur erindi
um torfbæi og safnamál, Inga
Lára Baldvinsdóttir, deildar-
stjóri í Þjóðminjasafni, flytur er-
indi um hlutverk byggðasafna
og Gísli Sverrir Árnason, for-
stöðumaður sýslusafns Austur-
Skaftafellssýslu, Höfn, heldur
erindi um héraðsskjalasöfn.
Ef næg þátttaka fæst verður
rútuferb úr Reykjavík kl. 11.00.
Þátttaka tilkynnist fyrir fimmtu-
dag í síma 600600 og 31487 hjá
Þór Jakobssyni eða í síma 98-
78226 og 98-78668 hjá Friðjóni
Guðröðarsyni.
DAGBOK
Fimmtudagur
6
október
279. dagur ársins - 86 dagar eftir.
40. vlka
Sólris kl. 7.50
sólarlag kl. 18.40
Dagurinn styttist
um 7 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni, tvímenningur, kl.
13 í dag í Risinu. Dansað kl. 20
í kvöld í Risinu. Dansbandið
Sveitin milli sanda sér um tón-
listina. Opið öllum.
Sigurvegarar í laukal-
eik Blómavals
Á sýningunni íslensk blóm
1994, sem haldin var í Perl-
unni dagana 17.-18. septem-
ber, gekkst Blómaval fyrir lau-
kaleik þar sem gestir áttu að
giska á fjölda lauka í körfu
einni mikilli. Mikill fjöldi
lausna barst og á meðal þeirra
var ein sem reyndist vera hár-
rétt eða 4972 stk. Hinn get-
spaki reyndist vera Gunnar Jó-
hannesson og fékk hann ásamt
konu sinni, Ernu Guðmunds-
dóttur, 10.000 kr. laukaúttekt
að launum fyrir vikið.
Alda Ármanna Sveins-
dóttlr sýnir í Sparl-
sjóbnum í Garbabæ
Opnuð verður málverkasýning
í Sparisjóbnum í Garðabæ,
Garbatorgi 1, á verkum Öldu
Ármönnu Sveinsdóttur mynd-
listarkonu, laugardaginn 8.
október kl. 14 til 17.
Sýningin verður síban opin
sunnudaginn 9. október frá kl.
14 til 17 og eftir það á opnun-
artíma Sparisjóðsins frá kl.
8.30-16 alla virka daga til 30.
nóvember.
Alda Ármanna er fædd á
Noröfirði. Myndlistarnám
hennar: 1954 Myndlistaskól-
inn í Reykjavík. 1964- 1972
námskeið í myndlist hjá
Myndlistafélagi Norðfjarðar.
1983- 1987 Myndlista- og
handíðaskóli íslands meö loka-
próf úr kennaradeild. 1986
námsferb til New York. 1990-
1991 Myndlistaskólinn í
Reykjavík, framhaldsnám í ol-
íumálun.
Hún hefur haldið fjölda
einkasýninga hérlendis og er-
lendis, auk þess að taka þátt í
fjölda samsýninga. Hún var
einn af stofnfélögum Mynd-
listafélags Neskaupstabar 1965
og virkur þátttakandi í félaginu
allt til ársins 1972.
Á sýningunni í Sparisjóönum
í Garðabæ mun Alda sýna olíu-
verk, m.a. hluta af sýningunni
„Gyðjur í íslensku samfélagi",
sem hún hélt á Nordisk Forum
í Finnlandi í sumar. Ennfremur
myndir unnar í framhaldi af
því. Myndunum fylgja ljóð-
rænir textar, sem tengjast efni
myndanna. Myndirnar verða
til sölu.
Við opnun sýningarinnar
munu Sigurður Þorbergsson og
Ingibjörg Guðlaugsdóttir spila
á básúnu.
Brynhildur Þorgeirs-
dóttir sýnlr í Slunka-
ríki á ísafirbi
8.-24. október sýnir Brynhildur
Þorgeirsdóttir skúlptúra í Gall-
erí Slunkaríki á ísafirði.
Brynhildur er fædd 1955 ab
Hrafnkelsstöðum í Árnessýslu.
Utan íslands sptti hún mynd-
listarmenntun sfna til Hol-
lands og Bandaríkjanna.
í þau 12 ár, sem Brynhildur
hefur starfað að myndlist, hef-
ur hún haldið 9 einkasýningar
og tekib þátt í samsýningum
beggja vegna Atlantshafsins.
Skúlptúrarnir eru unnir úr
steinsteypu, gleri og öðrum
efnum. Þeir, sem til sýnis eru í
Slunkaríki, eru landslagsmynd-
anir: strönd, steinar og klettur.
Gallerí Slunkaríki, Abalstræti
22, er opið fimmtud.-sunnud.
kl. 16-18.
Ólöf Nordal
sýnir í
Gerbubergi
Sunnudaginn 9. október kl. 15
opnar Ólöf Nordal myndlistar-
sýningu í menningarmiöstöð-
inni í Gerðubergi. Á sýning-
unni, sem ber titilinn „Sjálfs-
mynd", verða skúlptúrar og
teikningar.
Ólöf Nordal nam við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands,
Cranbrook Academy of Art og
Yale University School of Art,
Bandaríkjunum.
Sýningin verður opin frá kl.
10-21 mánudaga-fimmtudaga
og frá 13-17 föstudaga-sunnu-
daga. Sýningunni lýkur 6. nóv-
ember
ARNAÐ HEILLA
Sverrir Meyvantsson.
75 ára afmæli
í dag, fimmtudaginn 6. októ-
ber, er 75 ára Sverrir G. Mey-
vantsson bifreiðastjóri, Baldurs-
götu 36, Reykjavík.
Sverrir er fæddur í Reykjavík,
sonur hins þjóðkunna bónda og
bifreiðastjóra Meyvants Sigurðs-
sonar á Eibi, Seltjarnarnesi.
Sverrir ók um árabil stræti-
svögnum og leigubifreiðum,
m.a. á Hreyfli og BSR.
Kona Sverris var Jóna Ingibjörg
Ágústsdóttir, en hún lést á síð-
asta ári.
t ANDLAT
Snorri Jóhannsson
látinn
Látinn er í Reykjavik Snorri Jó-
hannsson, þjónn og fyrrverandi
blómasali, fjörutíu og tveggja
ára að aldri. Snorri var í stjórn
Fulltrúaráðs framsóknarfélag-
anna í Reykjavík og gegndi ýms-
um trúnaöarstörfum fyrir Fram-
sóknarflokkinn. Nú síðast var
Snorri annar tveggja kosninga-
stjóra Framsóknarflokksins í
sveitarstjórnarkosningunum.
Snorri lætúr eftir sig eiginkoriu'
og tvo syni.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reyk|avlk frá 30. september tll 6. október er I
Apótekl Austurbaejar og Breliholts apótekl. Þaó
apótek sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl.
22.00 að kvöldl t!l kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en
kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýslngar um læknls-
og lyfjaþjónustu eru gefnar I sfma 18888.
Neyðarvakt Tannlækrtafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíóum. Símsvari 681041.
Hafnarf jðrður. Hafnarfjaróar apótek og Noróurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sína
vikuna hvort aó sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opió í þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opió frá kl. 11.00-12.00 og 20.00-
21.00. Á öórum tímum er lyfjafræóingur á bakvakt. Upplýs-
ingar eru gefnar í síma 22445.
Apótek Keflavlkur: Opió virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna Iridaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opió virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opiö er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apötek bæjarins er opió virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. ki. 13.00-14.00.
Garðabær: Apötekió er opió rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. október 1994
Mánaðargreiðslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir)......... 12.329
1/2 hjónalífeyrir............................11.096
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega..........22.684
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega.r......23.320
Heimilisuppbót................................7.711
Sérstök heimilisuppbót........................5.304
Bamalífeyrir v/1 bams........................10.300
Meðlagv/1 barns .............................10.300
Mæðralaun/feöralaun v/1 bams..................1.000
Mæóralaun/feöralaun v/2ja bama................5.000
Mæðralaun/feðralaun v/3ja bama eða fleiri...10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða..............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða.............11.583
Fullur ekkjulífeyrir....................... 12.329
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)................ 15.448
Fæóingarstyrkur.‘............................25.090
Vasapeningar vistmanna.......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggreldslur
Fullir fæðingardagpeningar.................1.052.00
Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ....142.80
GENGISSKRÁNING
05. október1994 kl. 10,57
Oplnb. vlóm.gengl Gengl
Kaup Sala skr.fundar
Bandaríkjadollar.... 67,69 67,87 67,78
Sterllngspund 107,28 107,58 107,43
Kanadadollar 50,27 50,43 50,35
Dönsk króna 11,171 11,205 11,188
Norsk króna 10,044 10,074 10,059
Sænsk króna 9,175 9,203 9,189
Flnnskt mark 14,085 14,127 14,106
Franskur frankl 12,795 12,833 12,814
Belglskur franki 2,1261 2,1329 2,1295
Svissneskur franki 52,77 52,93 52,85
Hollenskt gylllnl 39,07 39,19 39,13
Þýskt mark 43,77 43,89 43,83
ítölsk líra ,...0,04300 0,04314 0,04307
Austurrískur sch..„ 6,218 6,238 6,228
Portúg. escudo 0,4288 0,4304 0,4296
Spánskur peseti 0,5276 0,5294 0,5285
Japanskt yen 0,6793 0,6811 0,6802
Irskt pund 106,09 106,45 106,27
Sérst. dráttarr 99,08 99,38 99,23
ECU-Evrópumynt... 83,68 83,94 83,81
Grfsk drakma 0,2871 0,2881 0,2876
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVtK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar