Réttur


Réttur - 01.07.1937, Síða 8

Réttur - 01.07.1937, Síða 8
stefnu sem ein getur bjargað flokki hans í þrenging- unum, samfylkingarstefnunni. Ætli það hefði ekki ver- ið nær fyrir Héðinn Valdimarsson að reyna að vekja traust almennings á Alþýðuflokknum eftir ósigurinn með því að stinga upp á að endurreisa Sjómannafélag- ið, sem hefur í rauninni verið dautt í mörg ár, með þeim árangri að mikill hluti meðlima þess hefur verið afhentur íhaldinu, eða gera ráðstafanir til þess að Dagsbrún'yrði opnuð og gerð að raunverulegu verk- lýðsfélagi á nýan leik! UPPLÝSTIR KJÓSENDUR ERU RÓTTÆKIR, EYMDIN KÝS ÍHALDIÐ. Heildsölukaupmenn og stórútgerðarmenn halda því fram, að eymdin sé vatn á myllu róttæku flokkanna, að þar sem takist að skapa eymd, þar verði allir bols- ar. Þetta er rangt. Hungurtryllt fólk getur orðið ræn- ingjar, satt er það, en það getur ekki orðið sósíalist- ar. Það sem framar öllu gefur róttækum þjóðfélags- stefnum byr í seglin, það er upplýsingin. Upplýstu kjördæmin eru sterkust vígi vinstriflokkanna. Þar sem eymd og menntunarskortur ýmist fer sam- an eða skiftist á, eins og til dæmis á Snæfellsnesi og Suðurnesjum, hinum fornu slóðum Bessastaðavalds- ins þar sem trúin á kúgarann og vöndinn er landlæg, þar er fylgið við íhaldið öruggast. Hér í Reykjavík lokkar íhaldið með ölmusum og allra handa mútum eða hótunum einkum það fólk sem sefur andlegum fastasvefni, fólk sem er neðan við normalskynsemi, vitfirringa, fáþjána, sjúklinga og allskonar aumingja, bónbjargafólk af öllum tegundum, skoðunarlaust kvenfólk, sljó gamalmenni; með svo blygðunarlaus- um ruddaskap, að sæmilegum mönnum hrýs hugur við, er öllum þessum aumingjum á kjördegi sópað út úr skúmaskotum sínum, og dregnir eins og varnalaus- ar skepnur upp að kjörborðinu og látnir kjósa þar um- 168

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.