Réttur


Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 11

Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 11
þér aldrei þykja eins vænt um þær og þetta hús, því með byggingu þessa húss hefir þú náð því þráða takmarki, að stryka út alla forsögu þess. Það er eins og aðalsmerki, sem ótiginborinn maður hefir hlotið. Við móttöku þess er fyrri æfi hans gleymd; hann er aðalsmaður, og bæði honum og öðrum finnst hann alltaf hafa verið það. Og með tilorðningu þessa húss eru gleymd öll önnur hús,sem þú hefir átt. Ódýr hús og lítilf jörleg, smíðuð úr timbri, með ósmekklegu byggingarlagi. Þetta hús er aðeins gler og steinn; það hefir fagr- ar, hreinskilnar línur og opinskáa glugga, sem engu virðast hafa að leyna. Það er tákn hátternis þíns, umsögn um það, hve vel þér hefir tekist að komast áfram í lífinu. Það er stórt og mikilfenglegt hús og atendur í virðulegri fjarðlægð frá öðrum húsum. Eng- an húsbraskara mundi nokkurn tíma dreyma um að Æreta eignazt það. Menn bera lotningu fyrir því eins og drambsömum þjóðhöfðingja. Lítill, grænn blettur kringum húsið minnir á það, að jafnvel í lífi hins hreinræktaðasta kaupsýslu- manns, sem mælir alt á kvarða hagsýni og ágóða, er ofurlítill, gróinn blettur, sem ekki hefir verið ræktaður til fjár, heldur unaðar. Þú hefir uppáhald á þessum bletti, hlúir að honum og skreytir hann með fallegum blómum og dýrum þægindum. Þú horfir eitt augnablik upp í gluggan á borð- stofunni, þar sem þú varst að ljúka við að kveðja konuna þína með vingjarnlegum kossi, áður en þú fórst út. Hún tók báðum höndum um hnakkann á þér og sagði hálf-sýtileg, en þó með yndislegri glettni, að það væru meiri stjórnarfundirnir, sem þú værir alltaf á, ekkert kvöld gætuð þið verið ein saman. Dásamleg kona. Alltaf jafnfalleg og alltaf jafnskot- in. Þú hefðir ekki getað valið þér neina konu, sem hefði hæft þér betur og þessu fullkomna húsi þínu. Þér þótti vænt um kveðjuorð hennar, þau full- 171

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.