Réttur


Réttur - 01.07.1937, Qupperneq 17

Réttur - 01.07.1937, Qupperneq 17
kjörum fólksins, orsökum örbirgðar og annara þjóð- félagsmeinsemda, sem er glæpur að vilja ekki útrýma. Það verður að hefjast ný og máttug gagnrýi á menn- ingarstarsemi landsmanna, svo sem skóla, styrktarsjóði, Eíkisútvarp. Öll þessi tæki, sem almenningur leggur fé til, verða að vera í hans þjónustu, en ekki í þjónustu óvina hans, eða notuð með yfirskyni hlutleysis til að fimbulfamba um hluti, sem engum koma við, og er ein- göngu til að gera áheyrendurna menn að heimskari. Öll menningarmál þjóðarinnar í heild verður að taka hið bráðasta fyrir til ítarlegrar rannsóknar, og það verður að hefja baráttu fyrir nýrri og heilbrigðari skipun þeirra. Hinum róttæku skáldum og menntamönnum er þegar orðið fullljóst hlutverk sitt á þessui sviði. Þó mun enn| verða nokkur bið á því, að hinir róttæku kraftar njóti sín í opinberu menningarlífi þjóðarinnar. Aftur á móti þolir starfsemin fyrir uppfræðslu almenn- ings enga bið .Hinir róttæku kraftar getaþarhertsókn- ina. Þeim liggur á hjarta menntun fólksins. Það er krafa þeirra, að menntunin nái til allrar alþýðu, eins hinna fátæku. Það stendur líkt á fyrir alþýðunni og hinum róttæku rithöfundum: hún er útilokuð frá menntastofnununum, hún hefir ekki ráð á að notfæra sér skólana, hún verður að gera sér að góðu að hlusta á þrugl og vaðal dauðsljórra manna í útvarpinu kvöld eftir kvöld, þó hún eigi brennandi löngun; til að heyra lifandi rödd. Jafnvel bækur eru alþýðunni forboðnar, vegna þess hvað dýrar þær eru, eða hvað fátæk hún er. Og hefir þó verið aðalmark íslenzkrar alþýðu að nema fræði af bókum, og verða gáfuð af og glögg- skyggn á hlutina. En nú, í flóði bókanna, er henni til- finnanlega meinað að njóta þeirra. Þennan ís verður að brjóta, og til þess treysta sér strax hin róttæku skáld og menntamenn, með hjálp al- þýðunnar sjálfrar. Það vill svo vel til að hún getur þar unnið mest að sjálf, eins og í allri frelsisbaráttu sinni. Hún getur í samstarfi við menntamennina gert 177

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.