Réttur


Réttur - 01.07.1937, Side 27

Réttur - 01.07.1937, Side 27
sá eini, sem var færður úr fötunum. Þegar við vorum að fara frá Huelva, eftir sjöttu eða sjöundu skoðunar- ferðina, segir hann eitthvað í mótmælaskyni. Hann fær hnefahögg á kinnina, fölnar upp en þegir. Lög- reglumaðurinn lítur útJ eins og ekkert hafi ískorist. Við ókum okkar leið. Á hinni 150 kílómetra leið frá Ayamonte til Sevilla vorum við ellefu sinnum rannsökuð. Við höfum hepn- ina með okkur og náum öll til Sevilla, því þetta var fyrir hádegi og rannsóknararnir voru því ódrukknir ennþá. Fari bifreið þessa sömu leið að kvöldlagi, losn- ar hún venjulega við allmikinn hluta farþeganna á leiðinni. Það eru helst verkamenn og aðrir daglauna- menn. Fasistum geðjast aldrei að þeim, Þeim leiðist, og vilja þessvegna hafa eitthvað til að dunda við á nóttunni. ■i” -k Burðarmaðurinn á „Hotel Madrid“ í Sevilla, sem bar farangur minn frá viðkomustöð bifreiðarinnar uppá hótelið, kunni svolítið í frönsku og gladdist yfir því, að geta nú komið þekkingu sinni í peninga. Hann sneri sér að mér mjög einlæglega: „Þér eruð vel geymdur á hótelinu hiá okkur, þar hafið þér ekk- ert að óttast. Síðustu dagana hafa bara verið tvær handtökur. Annar er franskur blaðamaður. Seguridad lét sækja hann hingað á hótelið kl. 3 í dag, til að at- huga vegabréfið hans, honum verður sennilega sleppt fljótt aftur. Hinn er Englendingur frá Gibraltar, sem skrifaði sig, Belton hershöfðingja í gestaskrána. Hann kom í fyrradag og var strax tekinn fastur. Við send- um honum mat í fangelsið tvo fyrstu dagana, en í dag var maturinn sendur til baka. Annaðhvort hefir hann verið skotinn eða honum hefir verið sleppt, annað- hvort hefir hann verið njósnari eða þetta hefir verið eintómur misskilningur. Eins og ég segi, hjá okkur eruð þér í góðum höndum. En ef þér hefðuð farið á 187

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.