Réttur


Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 18

Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 18
sér margfalt léttara fyrir að afla sér nytsamra og góðra bóka. Það er óþarfi að lestur fólks falli niður, enda má það ekki henda íslenzka alþýðu, sambandið við beztu skáldin má heldur aldrei slitna, þeirra orð verða að vera henni styrkur, örvun og leiðbeining, ekki síður nú en allar liðnar aldir. Nú færir Réttur lesendum sínum þau tíðindi, að stofn- að hefir verið nýtt bókmenntafélag, „Mál og menning“, til að viðhalda og efla alþýðumenntun íslendinga og gefa almenningi kost á að eignast ágætustu bækur með miklu lægra verði en áður. Félagið „hefir sett sér það takmark að ná á tveim árum 3000 kawpendum og veita þeim 8—12 arka bók (128—192 bls.) annan hvern mánuð, eða allt að 1200 bls. á á/ri fyrir einar tíu krónur. Innifalið í þessum 6 bókum er ársritið „Rauðir perim ar“, sem nú kosta 8 krónur“. Með þessu hefti Réttar fylgir boðsbréf frá stjórn félagsins, þar sem nákvæm- lega er skýrt frá þeim ástæðum, sem liggja til þessarar félagsstofnunar og tilgangi félagsins. Það eru hinir sömu róttæku kraftar, sem sköpuðu „Rauða penna“ og gengust fyrir stofnun „Heims- kringlu“, sem enn á ný — og í þetta sinn með auknum liðstyk — sýna dugnað sinn og menningaráhuga, og hrinda þessu nýja bókmenntafélagi af stokkunum. Ég veit, að alþýða manna um allt land mun fagna þessu nýja afreki rithöfundanna. Með stofnun þessa bók- menntafélags eiga að vera skapaðir möguleikar til að brjóta niður múrinn, sem enni er milli rithöfundanna og fátækrar alþýðu. Alþýðan getur á þennan hátt sjálf með því að flykkjast inn í bókmenntafélagið „Mál og menning“ unnið hröðum skrefum að því, að afla sér svo ódýrra bóka, að ekki sé henníi f járhagslega um megn. Hin róttæku skáld og menntamenn hafa tekið að sér forustuna á sviði bókmenntanina. Nýtt og glæsilegt tímabil er að rísa í sögu íslenzkra bókmennta, stærri skáld koma nú fram en þjóðin hefir átt um langt skeið. En; skáldin eru fyrir fólkið, bókmenntirnar eru fyrir 178

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.